Morgunblaðið - 26.04.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.1964, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. apríl 1964 A SUMARDAGINN fyrsta var opnuð í Kristalsal Þjóð- leikhússins sýning á bókum og myndum í tilefni 400 ára afmaelis Shakespeares. Sýn- ing þessi verður opin gestum Þjóðleikhússins fyrir og eftir leiksýningar og í leikhléum, en fyrir þá er vilja skoða hana utan þess tíma verður hún opin í dag, sunnudag, írá klukkan 6 til 7 og síðan alia vikuna, frá mánudegi til föstudags, frá klukkan 4 til 6. Á sýningu þessari eru m a. myndir af öllum leiksýning- um sem hér hafa verið á verk um Shakespeares, margar myndir frá brezkum sýning- um á verkum hans og nokkuð af myndum úr kvikmyndum sem gerðar hafa verið eftir þeim. Brezka sendiráðið og Lands bókasafnið lánuðu Þjóðleik- húsinu bækur á sýninguna, m. a. Ijósprentað eintak af fyrstu útgáfu Hamlets frá 1604 en leikritið mun hafa verið leikið á sviði tveim ár- um áður. Páll V. G. Kolka, læknir léði einnig eintak sitt, No. 249 af 1000 tölusettum, á merkri bandarískri heildarút gáfu af verkum skáldsins, sem gefin er út í Fíladeilfíu fyrir áramót. Þá eru á sýningunni leik- inga sem verið hafa hér á skrár allra Shakespeare-sýn- landi og uppi á veggjum hang ir fjöldi mynda úr þeim. Fyrsta verk Shakespeares sem sett var hér á svið var „Twelfth Night“ sem Indriði Waage setti hér á svið ánð 1925 í þýðingu nafna síns Einarssonar. Uppi á vegg er svo mynd af Indriða Waage í hlutverki Malvolios og þar hjá fleiri myndir frægra Shakespeare-sýninga, s. s. sýning Leikfélagsins á Kaup- manninum í Feneyjum árið 1945, með Haraldi Björnssyni í aðalhlutverkinu og Hamlet- sýningin 1949 með Lárusi Pálssyni í hlutverki Dana- prinsins. Þá lék Laertes ung- ur maður nýkominn frá leik- listarnámi í London, Gunnar Eyjólfsson. Og loks eru svo þarna á vegg L. R. myndir úr Rómeo og Júlíu sem nú er sýnt í Iðnó. Hinumegin dyr- anna eru svo myndir úr hin- um fjórum leikritum Shake- speares sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu, Hamlet, Eins og yður þóknast, Jóns- messunæturdraumnum og Júlíusi Cæsar. Ofan af súlu sinni úti við vegg horfir Matthías skáld Jochumsson yfir salinn og kemur líklega kunnuglega fyrir sjónir sitthvað það sem glerið geymir þarna í einu borðinu skáhallt við súluna hans. Þar er nefnilega að finna Shakespeare-þýðingar íslenzkar og skáldið á Sigur- hæðum getur hrósað þar drjúgum hluta. Auk þess ber honum heiðurinn af hinm fyrstu, sem var þýðing hans á Macbeth. Annar afkasta- mikill Shakespeare-þýðandi er Helgi Hálfdánarson, lyfsali norður í landi og listamaður á að snara orðum skáldsins góða. En fleiri hafa lagt hönd á plóginn, m. a. Eiríkur Magn ússon, sem valdi sér Storminn til þýðingar og Sigurður Grímsson, sem þýddi Kaup- manninn í Feneyjum. í Margt er þarna fleira for- vitnilegt en líklega verður flestum starsýnt á erfðaskrá Shakespeares þar sem skáld- ið m. a. arfleiðir konu sína, svo sem frægt er orðið, að sínu „second-best bed“, en um þá ráðstöfun verður mönnum tíðrætt enn í dag. Þó margt sé muna á sýning unni fer því fjarri að allt hafi verið til tínt sem færi gafst á — „við höfum ekki getað notað nema svo sem V\ þess sem við gátum fengið“ sagði Klemens Jónsson, leik- ari á föstudagskvöldið, er hann sýndi okkur salinn, „það var úr nógu að velja, en takmarkað hvað fyrir kemst hér“. Séð' yfir Shakespeare-sý ninguna í Kristalsalnum. Shakespeare-sýning Ráðstefna um áfcngismá! RÁÐSTEFNA um áfengismál hófst í Sjálfstæðishúsinu (Sig- túni) kl. 10 í gærmorgun. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið boðaði til ráðstefnunnar í samráði við Landssambandið gegn áfengis- bölinu. Til ráðstefnunnar voru boðaðir nokkrir embættismenn og forystumenn félagsmála. Tilgangur ráðstefnunnar var að fá svör við því, hvað helzt eigi að gera til að bæta úr nú- verandi ástandi í áfengismálum þjóðarinnar, með því að fá for- ystumenn á sviði félagslifs, menningarmála, heilsugæzlu og löggæzlu til þess að bera sam- an þekkingu sina og reynslu varðandi orsakir óhóflegrar áfengisneyzlu og áhrif hennar á KLUKKAN 20,15 í kvöld gengst íþróttafélag stúdenta fyrir mik- illi íþrótahátíð að Hálogalandi. Keppt verður í körfuknattleik, handknattleik og knattspyrnu. Til þessarar keppni hafa Háskóla stúdentar boðið mjög sterkum liðum: Þrótti, sern er íslands- meistari í innanhússknattspyrnu; úrvalslið úr Reykjavíkurfélögun unr leikur við körfuknattleikslið Háskólans og FH í handknattleik. einstaklinginn og þjóðfélagið og benda á ráð til þess að draga úr áfengisneyzlu. Ráðstefnan hófst á ávarpi dómsmálaráðherra, Jóhanns Haf steins. Síðan voru haldin fjögur framsöguerindi: Uppeldi, mennt un og áfengi (dr. Broddi Jó- hannesson, skólástjóri), Áfengi, löggjöf og löggæzla (Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri), Fé- lagslífið og áfengið (Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri) og Sál- rænar orsakir drykkjuhneigðar og lækning (dr. Tómas Helga- son, prófessor). Kl. tvö eftir hádegi kom ráð- stefnan saman í háskólanum. Þar skiptu menn sér í umræðu- hópa, og voru erindin rædd frá Mótið hefst með ávarpi Páls Eiríkssonar, formanns íþróttafél. stúdenta, en að því loknu verð- ur gengið til keppni. Með þessari íþróttahátíð Há- skólans, verður rekinn endahnút- ur á hin fjörugu innanhússmót vetrarins og eru íþrótaunnendur hvattir til að láta ekki þetta síðasta tækifæri til að sjá skemimtileg? óke.onni fara fram hjá sex. ýmsum hliðum. Kl. 5 átti að hefjast sameiginlegur fundur, þar sem framsögumenn umræðu hópanna gerðu grein fyrir því, sem fram kom á hópfundunum. Að lokum áttu að fara fram al- mennar umræður. 'tls. 1 Þjóðsagan bak við gítar- inn, Segovia og hljóðfær ið, sem hann „fann upp“. — 2 Svipmynd: Salvador de Madariaga. — 3 Lambið sem hvarf, smá- saga eftir Dag Þorleifs- son. — 4 Delfí, ljóð eftir Einar M. Jónsson. — 4 Önnur ferð yfir Eski- f jarðarheiði, eftir Berg- þóru Pálsdóttur frá Vet- urhúsum. — 5 Bókmenntir: Bækur og ástir í Frans, eftir Claude Mauriac. — 7 Lesbók Æskunnar: Fag- ur gripur er æ til yndis. — g Hlutskipti Sovétkonunn- ar, eftir Elenu Whiteside. — 9 Gísli J. Ástþórsson: Eins og mér sýnist. —10 Fjaðrafok. —13 Gamlar minningar að vestan, eftir Vaidimar Björn Valdimarsson. ----KORT, sem sýnir hvar rignir. —14 Úr annálum miðalda. Guömundur Guðni Guð- mundsson tók saman. —16 Krossgáta. ----líridge. íþróttahátið Jafnvægi í efnahags- máluni Helgarráðstefna 1 Borgarnesi Árni Grétar SAMBAND ungra Sjálfstæð- ismanna og Félag ungra Sjálf stæðismanna 1 Mýrarsýslu efna til helgarráðstefnu um Jafnvægi í Efnahagsmálum í Hótel Borgarnesi dagana 2.—3. maí n.k. Á ráðstefnu þessari mun próf. Ólafur Björnsson flytja erindi um peninga- og verð- lagsmál, Bjarni Bragi Jóns- son, hagfræðingur flytur er- indi um ríkisbúgkapinn og Þórir Einarsson, viðskipta- fræðingur ræðir um kaup- gjaldsmál. Að loknum flutningi þess- ara erinda verða umræður í umræðuhópum svo og ai- mennar umræður. Þórir Bjarni Bragl Einarsson Jónsson Ungir sjálfstæðismenn á Vesturlandi, Reykjavík og Suðurnesjum eru eindregið hvattir til þess að sækja ráð stefnuna og að sjálfsögðu er ungum sjálfstæðismönnum hvaðanæva af landinu heimil þátttaka. Upplýsingar um ráð stefnuna, gistingar og ferðir eru veittar hjá félögum ungra sjálfstæðismanna í Vestur- landskjördæmi og á skrifstof- um SUS og Heimdallar f Reykjavík, sími 17100. Árni Grétar Finnsson formaður SUS setur ráðstefnuna en Aa geir Pétursson, sýslurr.aður i Borgarnesi flytur ávarp. Ólafur Ásgeir Björnsson Pétursson Næðst æZsta heiðursmerki skáta VIÐ skátamessu á. sumardag- inn fyrsta afhenti Jónas B. Jónsson, skátahöfðingi, Ósk- ari Pálssyni, skátaforingja, næstæðsta heiðursmerki Bandalags ísl. Skáta. Banda- lagið hefur nýlega tekið upp nýja gerð heiðursmerkja og er þetta í fyrsta skipti, sem merki af þessari gerð eru veitt, en þau eru viðurkenn- ing fyrir starf innan skáta- hreyfingar. Óskar Pá.lsson, skátaforingi, sem heiðursn. rkið hlaut, er einn elzti starfandi skátinn hér á landi .Hann er 57 ára, og 2. nóv. n.k. hefur hann starfað innan skátahreyfingar innar í 48 ár. Lægðin suð-austur af Reykja A, nokkur rigning og 6—7 st. i< nesi hreyfist lítið úr stað og hiti. Norðanlands ef hægviðri, / er því útlit fyrir hlýnandi léttskýjað og víðast 2—5 st. 1 veðráttu hér á landi. Við Suð hiti. 1 urströndina er vindur allhvass |

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.