Morgunblaðið - 26.04.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.04.1964, Blaðsíða 21
Sunnudagur 26. apríl 1984 MORGUNQLAÐIÐ 21 GREININ um kvikmyndun sögu Kazantzakis „Gríski Zorba“, sem hér fer á etfir nokkuð stytt, birtist í New York Herald Tribune fyrir skömmu. Hún er eftir Thomas Quinn Curtiss, sem fylgzt hef- ur með kvikmyndatökunni á Krít. Hómer lýsir fegurð og auði Krítar 900 f. Kr. og segir, að menn séu þar óteljandi, en borgir 90. Flestar þessara borga eru nú orðnar að ryki og ösku, og eyjan er strjál- býlli en á frægðardögum sín- um, en hún er fögur og ljóm- andi í vorsólinni, umgirt glitr- andi hafi. Krit er ekki enn komin i þjóðbraut ferðamann anna, þótt aðeins sé nokkurra Anthony Quinn (í miðið) í hlutverki Zorba og Irene Pappas sem ekkjan fagra. Saga Kazantzakis „Gríski Zorba" kvikmynduð á Krít klukkustunda flug þangað frá Aþenu, en talið er að straum- ur þeirra til eyjarinnar auk- ist mjög þegar kvikmyndin, „Gríski Zorba“, eftir sam- nefndri sögu Nóbelsverðlauna hafans, Nikosar Kazantzakis, kemur á markaðinn. En um þessar mundir er unnið að töku myndarinnar í þorpinu Chania við sjávarströndina og milli glóaldintrjánna við mið- bik eyjarinnar. Þessi saga Kazantzakis fjall ar um rithöfund. í bókinni er hann Grikki, en í kvikmynd- inni Breti af grískum uppruna. Hann kemur til Krítar í von um að geta hafið á ný starf- rækslu brúnkolanámu, sem hann erfði eftir föður sinn. Hiin hlédrægu störf hans í heimi bókmenntanna veita honum ekki næga ánægju og hann langar til þess að starfa á' öðrum sviðum um leið og hann safnar efni í bók um Búdda og kynnir sér Búdda- heimspeki. Á leið sinni til Kritar kemur rithöfundurinn við í hafnarborginni Píreus og hittir þar á knæpu gamlan, gráan og hrottalegan mann að nafni Zorba. Þeir taka tal sam an og Zorba tekst að fá vinnu hjá rithöfundinum sem mat- sveinn og forstöðumaður nám- unnar. Rithöfundurinn, bókamaður, sem hefur nær sagt skilið við mannlegt eðli, mætir þarna hinum frumstæða manni, sem er fullur af lífsþrótti, og Kaz- antzakis lýsir áhrifunum, sem þeir hafa hver á annan og baráttunni, sem verður milli þeirra. Þeir lenda í margvís- legum ævintýrum í þorpinu við námuna og maðurinn, sem er niðursokkinn í hugsanir sínar lærir margt af mannin- um, sem varpar sér út í hring- iðu lífsins. Zorba fær sér lagskonu, skömmu eftir komuna í þorp- ið, gamla og léttlynda frá Frakklandi. Hún var farin að láta á sjá og hafði dagað uppi á Krít, þegar fjórir elskhug- ar hennar, allir aðmírálar, sigldu á brott eftir fyrri heims styrjöldina. Rithöfundurinn hrífst af myndrænum og fjör- legum frásögnum Zorba af ást arævintýrum sínum, gleymir Búdda og vinnur hug ungrar fagurrar ekkju. En sælan var- ir ekki lengi því ættingjar ungs manns, sem drekkti sér, vegna þess að ekkjan endur- galt ekki ást hans, hefna sín og drepa hana. Ástkona Zorba gefur einnig upp öndina, og þegar hún liggur á líkbörun- um ræna þorpsbúar hinum fá- tæklegu eigum hennar. Námurekstur Englendings- ins og Zorba fer út um þúfur og leiðir þeirra skilja. En rit- höfundurinn finnur að Zorba hefur leyst hann úr hinu kæf- andi fangelsi sem bókmennta- störf hans höfðu hneppt hann í. Það er gríski leikstjórinn Michael Cacoyannis, sem stjórnar töku kvikmyndarinn- ar um Zorba, en hann er m.a. frægur fyrir kvikmyndun sína á „Electru" Euripídesar. — Anthony Quinn fer með hlut- verk Zorba, brezki leikarinn Alan Bates leikur rithöfund- inn, griska leikkonan Irena Pappas leikur ekkjuna hríf- andi og Simone Signoret er óþekkjanleg í hlutverki hinn- ar frönsku vinkonu Zorba. Pia Lindström, dóttir Ingrid Bergman, leikur rússneska stúlku, sem Zorba hittir á ferð um sínum og nokkrir velþekkt ir grískir leikarar fara með hlutverk í myndinni, t. d. Ge- orge Foundas, George Voya- djis og Sotiris Moustakas, en aukahlutverk eru öll leikin af íbúum Chania. Cacoyannis tek ur myndir af þeim í kaffihús- unum, fiskibátunum, á mörk- uðunum og í eldhúsunum. Svipmikil andlit þeirra gefa atriðunum raunveruleikablæ eins og andlit bændanna í kvik myndum Eisensteins. Enginn þessara fjárhirða, sjómanna, matsveina og húsmæðra hefur leikið áður, . en þau virðast leikarar frá náttúrunnar hendi og geta leikið, sungið og dans- að af svo mikilli list, að fag- menn fyllast aðdáun. Cacoy- annis tekst mjög vel að blanda saman atvinnuleikurum og ó- breyttum þorpsbúum og sum artiðin eru undraverð. Zorba dansar alltaf af krafti, þegar hann verður fyrir geðshrær- ingu, sama hvort um gleði eða sorg er að ræða. Eitt sinn kom Cacoyannis á veitingahús í Chania þar sem verkamenn dönsuðu þjóðdansa. Hann hringdi þegar í Anthony Quinn og kvikmyndatöku- mennina. Anthony slóst í hóp hinna dansandi verkamanna og þetta atriði lýsir, í kvik- myndinni, fögnuðinum, þegar náman er opnuð. ■---★------- Cacoyannis er sonur lög- fræðings á Kýpur, fæddur 1922. Hann lagði stund á lög- fræði í London, en hætti námi á stríðsárunum og stjórnaði sendingum brezka útvarpsins til Grikklands meðan landið var hernumið. Að stríðinu loknu hóf hann nám í leiklist og leikstjórn við Old Vic og lék nokkur hlutverk við leik- hús í London m.a. titilhlut- verkið í „Caligula" eftir Cam- us. Fyrstu kvikmynd sína tók Cacoyannis í Grikklandi, gam anmynd, er hlaut mjög góða dóma. Cacoyannis segir, að sögur Kazantzakis séu mjög vel fallnar til kvikmyndunar, þær séu svo myndríkar og lifandi. En saga Kazantzakis hefur þegar verið kvikmynd- uð og keyptur hefur verið rétt urinn til þess að kvikmynda „Frelsið eða dauðann." -----★------ Anthony Quinn á mjög ann- ríkt um þessar mundir. Frá áramótum hefur hann leikið í tveimur kvikmyndum, „Heim sókninni" eftir Ingrid Berg- man og „Marco Polo“, en þar leikur Quinn keisarann í Kína. Síðarnefnda myndin var tekin í Belgrad. Þegar töku Zorba er lokið, heldur Quinn til Vestur-Indía til þess að ieika í kvikmynd. Síðan fer hann til London og leikur í leikritinu „Don Quxiote" eftir Fielding. Auk þessa yfirgripsmikla leik starfs vinnur Quinn að ritun endurminninga sinna. „Sjálfsævisaga mín nær að- eins til 20. afmælisdagsins", segir hann, „eftir þann dag er ævin aðeins endurtekning." „Ég er fæddur í Mexíkó," heldur Quinn áfram, „faðir minn var íri, en móðir mín mexíkönsk. Ég var enn á barnsaldri þegar foreldrar mínir fluttust til Kaliforníu, og faðir minn tók að starfa við kvikmyndir. Hann lézt þegar ég var 13 ára. Þá varð ég að hætta í skóla og vinna fyrir móður minni og systur. En móðir mín giftist á ný og þegar ég var 17 ára hóf ég nám í byggingarlist og fleiri listgreinum við háskóla í Los Angeles. Á þessum árum var ég mjög bókhneigður og eyddi miklum tíma í bókaverzlun einni þar sem rithöfundar komu saman til þess að ræð- ast við. Þar hitti ég m.a. Sar- oyan, Steinbeck og Jim Tully. Einn vina minna í bókaverzl- uninni kynnti mig fyrir John Barrymore..... Þegar ég var 20 ára hófst leikferill minn. I fyrstu kvikmyndinni lék ég Indiána." N En það fór ekki eins fyrir Quinn og mörgum leikurum í Hollywood, sem staðna í vissri tegund hlutverka. Hann byrj- aði vel sem Indíáni og hætta var á að honum byðust ekki annars konar hlutverk, en hann var duglegur og fram- gjarn og tókst að skapa sér fjölbreytta listabraut. Hann hefur leikið í mörgum fræg- um kvikmyndum við góðan orðstír og einnig getið sér frægðar í leikhúsum vestan hafs og austan. ----★------ Enski leikarinn Alan Bates, sem leikur rithöfundinn, er nýkominn fram á sjónarsviðið sem kvikmyndaleikari, en hann hefur fengið góða dóma fyrir leik á sviði bæði í Lond- on og New York. Hefur hann t.d. leikið i „Horfðu reiður um öxl“ og „Húsverðinum." Æfingar í gúmbát svo dögum skiptir ÞÓRARINN Björnsson, skip- Iherra, hefir sent blaðinu eftir- tfarandi pistil, sem vekur allra ethygli: Danir eru nú 1 þriðja skiptið að gera athuganir með gúmim- björgunarbáta, þannig að menn eru hafðir í gúmtoát vissan tíima út á sjó undir eftirliti, t.d. nú verða þrír yfirmenn úr sjóhern- tim í 6 daga í venjulegum gúm- björgunarbát á Norðursjó. Tilraunir þessar fara fram á vegum Söværnets 'havariskole. Varðskip fylgist með bátnum í minnst 5 sjóm. fjarlægð. Gúmlbáturinn sendir út merki frá neyðarsendi. Þá verður far- þegaflugvél frá SAS látin svipast um eftir bátnum meðal annars með það fyrir augum fyrst og fremst að miða sig inn á hann, eftir neyðarsendingum frá hon- um, síðan að athuga, hvernig hann sést úr lofti. Væri ekki tilvalið fyrir okkur hér á íslandi að gera slíkar at- huganir. Það er ekki svo sjaldan, að íslenzkir sjómenn hafa orðið að yfirgefa skip sin á hafi úti og fara í gúmibjörgunarbát, en sem betur fer hafa oftast skip verið nálægt og komið til hjálpar fljót- lega .en það er ekki víst, að bau séu alltaf fyrir hendi. Slíkar athuganir hafa ómetan- legt gildi að mínu áliti. Fyrst vil ég nefna neyðar- senda. Nú er mér ekki kunnugt um hvað komið er á markaðinn af slíkum tækjum og mér vitan- lega hefur ekkert senditæki enn- þá verið viðurkennt hér af Skipaskoðuninni. Sjálfsagt væri að hafa þau tæki, sem til eru í bátnum og athuga hvað bezt reyndist. í öðru lagi er látið reka á bátn um við ýmis veðurskilyrði. Hef- ur þá mjög mikla þýðingu að athuga, hvernig bátinn rekur og hvað hratt. Því vnjulegast veit maður nokkurn veginn, bvernig veður og vindur hafa verið á þeim slóðum, sem skip hefur sokfcið þá er hægt að reikna út, hvert gúmtoátinn hefur rekið. í þriðja lagi flugvél þarf að miða sig inn á bátinn eftir neyð- arsendingu frá honum. Hún þarf að athuga, hvernig er að sjá hann úr lofti á öllum tímum sólarhringsins. Hún þarf að athuga, hvort hægt er að bæta nokkuð úr út- liti bátsins til að hann sjáist bet- ur. Þeir sem í bátnum eru verða að halda nákvæma dagbók um allt er gerist, veður sjólag, líðan þeirra sjálfra ,hvernig matar- pafckinn reynist ofl. ofl. Varðskip fylgist nákvsemlega með ferðum bátsins veðri og fleiru. Eg legg til ag við byrjum með að hafa gúmbát úti í 3 daga með 3 mönnum. Ég efast ekki um að margir mundu bjóða sig fram sem sjálfboðaliðar í þetta ferða- lag, þar sem vitað er að þetta er ágætis megrunraðferð. Að síðustu vona ég að réttir aðilar athugi þetta mál gaum- gæfilega. Þórarinn Björnsson. Framtíðarstarf Duglegur og reglusamur maður getur fengið vinnu á verkstæði okkar strax. — Hátt kaup. Upplýsingar í dag í síma 40593 kl. 1—3; og í síma 19988 kl. 5—7. GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.