Morgunblaðið - 26.04.1964, Page 12

Morgunblaðið - 26.04.1964, Page 12
MORGU NBLAÐIÐ Sunnudagur 26. aprfl 1964 1S Yfirlitsmynd yfir sýningarsv æðið. Það tekur 18 daga að skoða heimssýninguna í New York ef verið er að í 12 tí ma á dag FORSTÖÐUMENN heimssýn- ingarinnar, sem. opnuð var í New York s. 1. miðvikudag, ákváðu að hefja fyrirfram sölu á aðgöngumiðum fyrir tæpu árið eða hinn 1. maí 1963 Var þetta m.a. gert til að afla fjá.r til undirbúnings- ins. Takmarkið var að selja 10 milljón miða áður en sýn- ingin yrði opnuð. En undir- tektir almennings voru hetri en nokkurn hafði grunað, og í febrúarlok s. 1. höfðu rúnt.- lega 28 milljón miðar selzt. Virðist því sem áætlanir um 70 milljón gesti þau tvö ár, sem sýningin stendur, séu sízt of lágar. Á sýningunni verður áreið- anlega eitthvað fyrir alla, og þeir sem ætla sér að kynnast sýningunni, gera það ekki á einum degi. Segja forstöðu- mennirnir að ef einhver ætli sér að skoða allt, sem þarna- er að sjá hverju sinni, taki það um 18 daga miðað við að verið sé á sýningarsvæðinu frá kl. 10 f. h. til kl. 10 e. h. alla dagana Og jafnvel þetta nægir ekki til að sjá allt, því sumar leik-, lista- og íþrótta- aýningarnar eru þarna aðeins • •••■/••>••••••. • ■ Líkan af sýningarhöll hafnarst jórnarinnar í New York. Á þaki hallarinnar er þyrlu-flugvö Ilur. í nokkra daga, svo taka nýjár við. Sýningarsvæðið er í Queens borgarhlutanum, og þaðan eru um 16 kílómetrar inn í miðborgina á Manhattan eyju. En allt hefur verið gert til að auðvelda gestum heim- sóknina á sýninguna, þangað má komast eftir sérstökum hraðbrautum, með járnbraut- um, neðanjarðarbrautum, strætisvögnum, hraðbátum, flugvélum og þyrlum. Sér- stakur þyrluvöllur hefur ver- ið byggður á þaki einu inni á sýningarsvæðinu. Um að lifa lífinu ÞÁ FYRST lifum við lífinu í raun og veru er „sérhver ó- gleymanleg mínúta“ eins og Kipling komst að orði, hefur að geyma sextíu sekúndur sneisafullar af gleði eða sorg, vinnusemi eða tómstundagamni. Þegar við lifum lífinu í raun og veru, erum við í sátt við sjálf okkur, þá gerum við það sem okkur langar til og af því að okkur langar til þess. Þá lifum við lífinu er við eyðum dögum okkar við það sem veit- ir okkur sanna ánægju og kallar fram sannar tilfinningar okkar, en ekki þegar við erum önnum kafin við uppgerðar- skyldustörf og fánýta undirgefni. Það er ekki auðvelt að lifa lífinu í ráun og veru. Heimur- inn umhverfis okkur setur fram sínar kröfur. Hann vill hafa af okkur það sem er okkar dýrmætasta eign: tíminn. Og hann vill ráða gerðum okkar. Heimurinn segir til dæmis við mig, auman rithöfund: Skrifaðu nú formála að bókinni þeirri arna. — Er ekkert í hana varið? Nú, jæja, en höfund- urinn er góðkunningi þinn....Veittu þessum kvöldverði forsæti. Þig óar við því? Kannski það, en þú getur ekki af- þakkað boðið .... Farðu að sjá þessa kvikmynd. Þú heldur að hún sé drepleiðinleg? Má satt vera, en það er ekki um annað meira talað og þú getur ekki leitt hana hjá þér.“ Þannig er ævidögum okkar, sem eru þó sannarlega nógu stuttir fyrir, sóað til fullnægingar — hverju? Almennings- álitinu, hverflyndu, vanþakklátu almenningsálitinu, sem ekk- ert skynbragð ber á það hvílíkar fórnir við færum því né heldur veitir okkur neina hamingju fyrir það sem við látum af hendi rakna við það. Ef við lifðum lífinu í raun og veru, myndum við eyða því með ástvinum okkar, eiginmanni, eiginkonu, börnum okkar, beztu vinum, bókum sem við dáum, tónlist, sem við hlust- um alltaf á með jafnmikilli ánægju. En hversu margir okkar hafa til að bera það þor, að einangra sig við þetta, eins og á eyðieyju og Kverfa ekki aftur á vit heimsins? Stundum kemur það fyrir að við hittum í samkvæmi ein- hvern þann sem með persónutöfrum sínum og gáfum laðar okkur að sér þegar í stað. Ósjálfrátt tökum við hann tali, göngum burt úr margmenninu út í garðinn í stjörnuskini og okkúr finnst lífið vera auðugt og yndislegt þessa stuttu stund. En svo leitar veruleikinn á, við vöknum af draumin- um fagra, andvörpum og segjum, dauf í dálkinn: „Nei, þetta dugir ekki, við verðum að fara aftur til.hinna“ — og draum- urinn er á enda. Yið verðum að fara aftur til hinna — já, auðvitað, því enginn okkar hefur bolmagn til þess að brjóta í bága við þjóðfélagið eða fjölskyldu sína. En því miður er það oft þannig, að á þeirri stundu er við förum aftur til hinna, skiljum við eftir það sem við eigum bezt, þá hverfum við frá djúpvitrum hugsunum og fögrum að einskisverðu hjali og slúðri sem þreytir okkur svo, að okkur hættir til að gleypa við sleggjudómum annarra um menn og málefni í stað þess að mynda okkur sjálf einhverjar skoðanir á þeim. í leikriti sínu, „Le Misanthrope" (Mannhatarinn) leggur Moliére Alceste þetta í munn: „Drottinn minn! Það er heig- ulsháttur og hrein svívirða að leggjast svo lágt að svíkja sína eigin sál“. Alceste ýkir mál sitt nokkuð og Philinte svarar honum þá með fullum rétti er hún segir: „Ég tek fólki nú eins og það er og geri mér ekki rellu út af því.“ En við getum gert okkur viðunanlegt það augnablik er við „verðum að fara aftur til hinna.“ Það getum við gert með því að umgangast ekki annað fólk en það sem við vilj- um gjarnan hafa í kringum okkur og láta okkur ekki skipta neinu máli skoðanir annarra en þeirra. Þá þurfum við ekki að skilja eftir það bezta í fari okkar þegar við „förum aftur til hinna“. Þá lifum við lífinu í raun og veru. Sýningarsvæðið sjálft er stórt, nærri 3 ferkílómetrar, en engu að síður er auðvelt að ferðast á milli, því margs- konar farartæki eru í förum til að flytja gestina milli sýningarskálanna. Um 300 strætisvagnar verða í stöðug- um ferðum, en auik þeirra eru svo leigubílar, vagnalestir, sem dráttarvélar draga og einteinungsbrautir. Inn milli sýningarhallanna eru svo skrúðgarðar, þar sem gestir geta sezt og hvílt sig, og rúmdýnuverksmiðja ein leigir út rúm þar sem gestir geta hvílt sig í hálftíma fyrir hálfan dollar. Á sýningunni má sjá allt það nýjasta á sviði tækni og vísinda, geimferðir framtíð- arinnar, ferðir til tunglsins og út í stjörnugeiminn. Þar er einnig sýnt frumlíf á jörð- inni, og rakin sagan fram til dagsins í dag. Rúmlega 50 erlend ríki taka þátt í sýn- ingunni og er í sýningarsölum þeirra sagt frá lífinu í þess- um löndum, menningu og framleiðslu. Víðast hvar eru veitingahús þar sem hvert land framreiðir sína sérrétti, og sumsstaðar leikin þjóðlög og sýndir þjóðdansar meðan gestir sitja að snæðingi. Fyrir öllu verður að hugsa í sambandi við þessa heims- sýningu. Má þar til dæmis nefna að unnt á að vera að taka á móti 500 þúsund gest- um á dag snurðuláust. En margir gestanna vilja senda heim póstkort eða bréf frá sýningarsvæðinu, og þess- vegna hefur verið komiS upp pósthúsi á 9væðinu. Þetta er ekkert venjulegt pósthús, heldur talið það nýtízkuleg- asta, sem til er. Rafmagns- heilar og rafeindavélar floikika bréfin. Anna þessar vélar 250 þúsund bréfum á dag. Veðrið á opnunardaginn olli nokkrum vonbrigðum, Búizt hafði verið við hálfri milljón gesta fyrsta daginn, en vegna leiðindaveðurs varð aðsókni mun minni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.