Morgunblaðið - 26.04.1964, Page 28
TVÖFAIT
TVÖFALT
EINANGRUNARGLER
/Qára reynsla hérlendis
EGGERT KRISTJANS
aagtwatB
bo l löo'fc^'
Þ(orBkur (
/í/^m r
Mk'% lOMMHV
Farið fyrst \
yfir torfuna
■ 'n
| ■ • ■: r
: ^ /
» ■■* ;
■■'**'> tV
r ■•if
2. endurvarp af
b o t n i
ca. 40 faðma dýpi
1/10 sendiorka
dýptarmælis.
SIMEAD EH
JT
Utsvarsmál Kaup-
félags Skagfirðinga
tekið upp að nýju
M/B HALLDÖR JðNSSON S H 2 I 7
17. apríl '64.
Fisks.fármæling’ m/b Halldórs Jónssonar 17. apríl ’64, er skipiff íékk fyrsta metaflann í yfir-
atandandi hrotu.
Hinn mikli afli í nót ruglar
útgerðarkerfið
Eftir hvaða kjörum verður gert upp?
HIN gífurlegu aflabrögð í
þorskanót nú síðustu vikur
hafa skapað margs konar
Ekki úr Mela-
skólanum
f FRÉTX blaffsins um Viff-,
eyjarför björgunarbátsins
Gísla J. Johnsen s.l. fimmtu-
■ dag, var ranglega sagt, aff þaff
hafi veriff hópur unglinga úr
Melaskólanum, sem báturinn,
flutti. Hiff rétta er aff ungling
arnir voru úr Haga- og Voga-
’ skólanum.
vandamál, sem ekki eru leyst
enn og ekki verður vitað, að
svo komnu máli, hvernig
leysast.
Eftir því sem næst verður
komizt stunda nú 34 bátar
veiðar með þorskanót, en
geta verið fleiri, ef einhverj-
ir hafa tekið nótina nú síð-
ustu daga. Til er einnig að
sumir hátar hafa bæði net
og nót um borð.
Hinn mikli aflahlutur sjómanna
á sumum nótabátanna hefur skap
að óánægju hjá sjómönnum, sem
stunda aðrar veiðar t.d. netaveið
ar. Hafa þeir farið til útgerðar-
manna sinna og farið fram á að
fá nót um borð í bátana, eða að
minnsta kosti myndu þeir ekki
fara á bátana á næstu vertíð án
þes að hafa hana. Hinar svimandi
upphæðir, sem menn hafa fengið
á nótabátunum hafa því ruglað
allt útgerðarkerfið.
Talið er, að um fjölda ára hafi
ekki verið önnur eins fiskigengd
og á miðum Suðurn.báta, og jafn
framt hefur verið blíðalogn i mið
unum í meira en hálfan mánuð,
svo auðvelt hefur verið að at-
hafna sig með nótina. Hir. vegar
geta þessir bátar sáralítið aflað,
ef eitthvað er að sjó, en þá geta
netabátarnir stundað sínar veið-
ar, þótt vindur sé 5—6 vindstig.
Nótafiskurinn, sm á land hefur
komið, hefur yfirleitt flokkast í
fyrsta flokk, hafi ekki þurft að
sigla með hann því lengri leið.
Þessi fiskur hefur ekki verið
slægður um borð og er því orð-
in leiðinda matvara, liggi hann
nokkuð að ráði með slóginu. Á-
hafnir bátanna hafa hins vegar
algerlega neitað að vinna að að-
gerð um borð.
Frarmhald á bls. 27
FRAMTALSNEFND Sauffár-
króks kom saman á föstudags-
kvöld og samþykkti aff tilk.vnna
Kaupfélagi Skagfirðinga, að hún
hefði i hyggju aff taka útsvars-
mál félagsins upp aff nýju, þ. e.
aff hækka útsvariff fyrir árið
1960.
Eins og kunnugt er af fyrri
skrifum, var framtal Kaupfélags
Skagfirðinga fyrir árið 1960 vé-
fengt af niðurjöfnunarnefnd og
löggiltur endurskoðandi settur
til þess að athuga uppgefna
tekjustofna þess.
Leiddi sú endurskoðun til
þess, að niðurjöfnunarnefnd
hækkaði útsvarið um 290.800
krónur. Þessu breytti yfirskatta-
nefnd í 203.000 kr. hækkun, og
staðfesti ríkisskattanefnd þann
úrskurð. Kaupfélagið galt þá
upphæð alla, en fór síðan í end-
urkröfumál. Lyktaði því með
dómi Hæstaréttar nú fyrir
skemmstu, þar sem hækkunin
var felld niður vegna þess, að
niðurjöfnunarnefnd hafði ekki
gætt þeirrar skyldu sinnar að
tilkynna gjaldanda um hækkun
útsvarsins. Hefur það stundum
komið fyrir áður, en niðurjöfn-
unarnefndum hefur láðst að
gæta tilkynningarskyldunnar.
Hér er því um hreinan formgalla
að ræða.
í öðrum samböndum hefur
Kaupfélag Skagfirðinga viður-
kennt tekjustofnana, sem miðað
er við í álagningunni; t. d. hefur
það greitt að mestu tekjuskatt,
eignarskatt og söluskatt skv.
þeim.
í tilkynningu þeirri, sem fram
talsnefnd Sauðárkróks sam-
þykkti á föstudagskvöld að
senda kaupfélaginu, segir svo
m. a.:
„Niðurstaða (Hæstaréttarl
byggist fyrst og fremst á því, að
dómurinn tekur ekki efnislega
afstöðu til aukaútsvars þess, sem
á yður var lagt 30. des. 1960.
Ástæðan fyrir því er orðuð
þannig í dóminum: „Niðurjöfn-
unarnefnd gætti ekki þessarar
skyldu sinnar um tilkynningu.
og ber því að telja umrædda
Framh. á bls. 27
Stoíniundur
iélags gegn
hjartasjúk-
dómnm
í GÆR var haldinn stofnfund
ur félags gegn æða- og
hjartasjúkdómum, í Tjarnar-
bæ. Hófst hann kl. 2 síðdegis.
Prófessor Sigurður Samúels
son setti fundinn og þakkaði
þeim er til hans hefðu boðað.
Tilnefndi hann fundarstjóra
Valdimar Stefánsson saksókn
ara ríkisins, en hann nefndi
til fundarritara Snorra P.
Snorrason lækni.
Síðan flutti prófessor Sig-
urður Samúelsson erindi um
hjarta- og æðasjúkdóma, en
benti á ráðleggingar gegn
þeim. í því sambandi benti
hann á að kransæðasjúkdóm
ar hefðu ellefufaldast frá ár-
inu 1911 til 1955 hér á landi.
Þessu næst lagði íundar-
stjóri fram lög félagsins og
bar þau upp.
Er plaðið fór í prentun stóð
fundurinn enn.
Umhverfis jörðina með viðkomu
Tókíó og New York
Hnattferð fyiir tvo og þrír bílar vinningar
í glæsilegasta happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins til þessa
U M ÞESSAR niundir er
að hlaupa af stokkunum
"læsilegt landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins, hið
glæsilegasta til þessa. —
Vinningar eru fjórir tals-
ins, og verðmæti þeirra
samaniagt hvorki meira né
minna en 700 þúsund krón-
ur. Fyrsti vinningurinn er
einhver mesti happdrættis-
vinningur, sem á næstunni
verður á boðstólum, eða
ferð umhverfis hnóttinn
fyrir tvo, með viðkomu í 12
borgum, m.a. New York,
þar sem skoða má heinis-
sýninguna miklu, og í
Tókíó, þar sem Olympíu-
leikarnir fara fram. Verð-
mæti þessa vinnings er 250
þús. kr. Ilinir vinningarnir
þrír eru bílar.
Dregiff verffur i þessu glæsi-
lega happdrættti 10. júni n.k.
Munu umboffsmenn happdrætt
isins úti á landi fá miða í
hendur næstu daga, og um
mánaðamótin verða bílarnir
þrir til sýnis í miðbænum i
Reykjavík, og miðar þar til
sölu. Þangaff til verður hægt
að kaupa miða í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins i Sjálf-
stæðishúsinu við Austurvöll.
Innan tíffar munu og stuffn-
ingsmenn flokksins fá senda
miða heim. Hver miði kostar
kr. 100.
Svo vikið sé frekar að hin-
um glæsilegu vinningum, þá
er í öðru sæti SAAB-bíll, að
verðmæti kr. 160,000, þá DAF-
bíll, verðmæti kr. 130,000 og
loks WILLYS-jeppi, verð-
mæti kr. 160,000.
Um hnattferðina er það að
segja, að hún verður skipulögð
af fyrsta flokks ferðaskrif-
stofu, og farin með haustinu.
Þeim, sem happið hreppir,
verður þar gefinn kostur á að
heimsækja heimssýninguna í
New York og Olympíuleik-
ana í Japan, eins og fyrr get-
ur. Auk Tokíó og New York
mun vinningshafa gefast kost
ur á að heimsækja 10 stór-
borgir aðrar, eða San Frans-
isco, Honolulu (Hawai), Hong
Kong, Saigon, Kalkútta,
Kairó, Aþenu, Róm, París og
London.
Eins og fyrr getur er verð-
mæti þessa óvenjulega vinn-
ings 250,000 krónur, og er ráð-
gert að um helmingur þess
greiði farmiða frá íslandi um-
hverfis hnöttinn, en hinn
helmingurinn verði farareyrir,
sem þá er mjög ríflegur.
Er ráð fyrir því gert, að
hnattferðin öll verði farin síð-
ari hluta sumars eða í haust,
og mun hún standa í um einn
og hálfan mánuð, eða eftir
geðþótta vinningshafa.
Vegna þess, aff hér er um
a» ræða skyndihappdrætti,
dregiff eftir liðlega mánuð, er
fólki bent á aff verffa sér úti
um miða, strax og sala þeirra
hefst. Þetta er langglæsileg-
asta happdrætti sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur efnt
til, og skapar fólk sér því ein-
stakt tækifæri meff því að
kaupa miða, sem kosta aðeins
106 krónur.