Morgunblaðið - 14.06.1964, Blaðsíða 16
10
MQHGUHBLABiB
Sunnudagur 14. júní 1964
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastj óri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
LANDB ÚNAÐ URINN
OG FRAMTÍÐIN
t ræðu, sem dr. Sturla Frið-"
riksson flutti á landbún-
aðarráðstefnu ungra Sjálf-
stæðismanna á Hellu nýlega,
gerði hann framtíðarmögu-
leika íslenzks landbúnaðar að
umræðuefni. Hann vakti at-
hygli á, að ýmsar þjóðir á
norðurhveli jarðar hafa á síð-
ari árum leitazt við að efla
landbúnað í norðurhéruðum
sínum. Þetta hefðu til dæmis
Svíar, Finnar, Rússar og
Bandaríkjamenn gert í norð-
urbyggðum sínum. Með nýj-
um ræktunaraðferðum og
vali á harðgerðari nytjajurt-
um hefði tekizt að rækta jörð
og stunda landbúnað á norð-
lægari svæðum en áður. Dr.
Sturla kvað brúna nauðsyn
bera til þess fyrir íslendinga
að fylgjast með nýjungum
þessara þjóða og annarra og
hagnýta þær í okkar landi. En
jafnframt yrðum við að ryðja
nýjar brautir, byggðar á er-
lendri réynslu. Hann lagði á-
herzlu á nauðsyn aukinnar
vísindastarfsemi og rann-
sókna í þágu íslenzks land-
búnaðar. Framleiðsla hans
yrði að verða miklum mun
fjölbreyttari/
Dr. Sturla ræddi einnig
möguleika þess að stofna til
stóryrkjix á samfelldum rækt-
unarsvæðum, þar sem við-
hafa mætti verkaskiptingu og
beita stórvirkum vélum á hag
rænan hátt.
Allar eru þessar hugleiðing-
ar hins unga vísindamanns
hinar athyglisverðustu. —
Kjarni málsins er, að land-
búnaður getur átt glæsilega
framtíð á ísiandi. En hér eins
og annars staðar vérðá hin
hagnýtú vísindi að koma til
skjalanna. Ræktun landsins
og nýting þess verður að
byggjast á víðtækri þekkingu
í gæðum þess og möguleik-
um. Búin þurfa að stækka til
þess í senn að bændurnir geti
bætt afkomu sína og neytend-
urnir f'engið fjöíbreyttar og
góðar Íandbúnaðarafurðir við
skaplegu verði. Að þessu tak-
marki ber að stefna. Með
þetta í huga ber að efla ís-
lenzkan landbúnað og bæta
aðstöðú íslenzkra bænda.
- STÆKKUN
TÚNANNA
k ukning túnræktarinnar og
stækkun túnanna er ein
ánægj ulegasta staðreyndin úr
búnaðarsögu síðari ára. Tún-
in í sveitum íslands eru nú
talin um 80 þúsund hektarar
að flatarmáli. Á sl. ári stækk-
uðu þau um 4400 hektara og
mun það vera mesta túna-
stækkun, sem orðið hefur á
einu ári.
Þetta er enn ein sönnun
þess, að íslenzkir bændur trúa
á framtíðina og vinna ötul-
lega að ræktun landsins. —
Stórfelldum öðrum fram-
kvæmdum hefur síðustu árin
jafnframt verið haldið uppi í
sveitunum. Ný og góð húsa-
kynni hafa verið byggð yfir
menn og skepnur, raforka
hefur verið leidd til stöðugt
fleiri sveitabæja og akvega-
sambandið hefur verið að
batna, enda þótt mikið bresti
enn á að íslenzkir vegir full-
nægi þörfum atvinnulífsins
til lands og sjávar.
Mestu máli skiptír, að rækt
unin er í sókn. Aukgrasrækt-
arinnar eru skógrækt og sand
græðsla í öruggum vexti.
Öllu þessu ber að fagna.
Allt þetta gefur fyrirheit um
betra, arðgæfara, og fegurra
ísland.
AFTURGÖNGUR
KOMMÚNISTA
að hefur verið dauft yfir
kommúnistum á íslandi
undanfarið. — Flokksdeild
þeirra hefur verið hrjáð og
hrakin af sundurlyndi og
margvíslegum klíkuskap. —
Gamlir Stalínistar, sem mynd
að hafa kjarna flokksins hafa
verið 'í'fýlu en „endurskoðun-
arsinnar“ hafa vaðið uppi.
Deilan milli Peking og
Moskvu hefur ekki bætt um.
Einnig hér á íslandi hafa
kommúnistar skipzt í flokka
með eða á móti þeim Krús-,
jeff og Mao tse-tung. ,
Nú á að hressa upp á tæt-
ingsliðið. En ekki eru úrræðin
til þess þó sérlega líkleg til
þess að bera mikinn árangur.
Það er ný Keflavíkurganga til
þéss að mótmæla samvinnu
íslands við véstræriar lýð-
ræðisþjóðir um öryggis- og
utanríkismál.
Á sl. vetri fluttu kommún-
istar tillögu um það á Alþingi,
að utanríkisstefnu íslands
yrði breytt, tekið yrði upp
hlutleysi og náin samvinna
við kommúnistaríkin í austri,
í stað vestrænnar samvinnu.
Kommúnistar urðu háðu-
lega úti í umræðUrtum um
þessa tillögu. Síðan hafa þeii:
að mestu þagað um utanríkis-
og öryggismálin. En nú segj-
Frá íslenzku deildinni í sý ningunni.
„Svenska Massau"
í Gautaborg
„SVENSKA Massan“ er al-
þjóðleg vörusýning, sem hald
in er í Gautaborg í maí ár
hvert. Þetta er umfangs-
mesta vörusýning á Norður-
löndum. Milli 30 og 40 lönd
taka þátt í henni og fjölmörg
fyrirtæki frá hverju landi.
ísland hefur verið með á
þessari sýningu, og hefur
hinn íslenzki generalkonsúll
í Gautaborg, hr. Gullbrand
Sandgren, einkum séð um
þá þátttöku. Það eru einkum
flugfélögin tvö og Ferðaskrif
stofa ríkisins, sem lagt hafa til
sýningarefni og gert þessa
þátttöku kleifa.
Sýningin þetta ár var hald-
in dagana 15.—24. maí. Gest-
ir á henni voru um 160 þús-
und frá 41 landi.
ísland hafði þarna lítinn
bás með mynd af hinni gjós-
andi Surtsey fremst. Vákti
þessi bás svo mikla athygli,
að segja má, að hann hafi
þessa 10 daga, sem sýningin
var opin, verið þéttskipaðúr
forvitnum spyrjendum, sem
vildu fræðast um þetta furðu
lega eyríki, frægt fyrir gaml
ar bækur, sjóðandi jarðvatn,
nýjar eyjar, sem rísa úr hafi
og lítið flugfélag, sem hefur
svo mikið að gera, að risa-
flugfélögum heimsins stendur
ógn af. Um þessi efni fjölluðu
spurningar manna þá stuttu
stund, sem sá ar þetta ritar
3tóð þarna við.
Eg spurði sænska frú, sem
þarna veitti upplýsingar,
hvað vekti einna mesta at-
hygli gesta I þessum íslenzka
bás. Ságði hú.ii það vera gæru
skinn, sem þarna var, vand-
aða peysu úr íslenzkum lopa
prjónáða heima og Sindra-
stól klæddan fleklkióbtri ís-
lenzkri gæru. Auk þess væri
mikið blaðað í myndabókum
Almenna bókafélagsins og
listaverkabókum Helgafells,
sem lágu þarna i borði. Eftir
prentanir íslenzkra málverka
kvað hún einnig vekja mikta
athygli.
Það eru einkum tveir sænsk
ir fslandsvinir í Gautaborg,
sem allar þakkir eiga fyrir
þennan íslenzka bás, general-
konsúllinn, Gullbrand Sand-
gren, og Bengt Silfverstrand,
listmálari. Þeir höfðu i hendi
allar framkvæmdir við að
koma sýningunni upp og lán-
uðu meira að segja márgt a£
þeim íslenzku gripum, sem
þarna Yoru til sýnis.
Allmikið mun hafa verið
reynt til að vekja áhuga is-
lenzkra fyrirtækja i þessari
sýningu, án þess þó að það
bæri teljandi árangur. Virðist
slíkt tómlæti vandskilið, þar
eð risasýning sem þessi hlýt-
ur að vera sérlega hentug til
að auglýsa vörur. Einnig er
þarna gullið tækifæri til land
kynningar, en óneitanlega
hefði verið hægt að veita
fyllri upplýsingar um landið,
sem útlendir menn verða að
sjá án teljandi islenzkrar að-
stoðar.
Eirikur Hretnn Finnbogasow.
4 vikulegar ferðir Fagra-
ness um Isafjarðardjúp
Skipið verður einnig í hópferðum í sumar
ÉSAFIRÐI, 12. júní. f sumar
verður efnt til hópferðar um ísa-
fjarðardjúp og Jökulfirði með
djúpbátnum Fagranesi. Verða
ferðir þessar á sunnudögum á
tímabilinu frá 15. júní til 15.
ágúst. Annan hvorn sunnudag
verður farið um ísafjarðardjúp,
en hinn sunnudaginn um Jökul-
firði og jafnvel til Hornvíkur.
Er áætlað, að ferðin taki 9—10
klst. Fargjald verður 250 — 300
kr. Leiðsögumaður verður í þess
ast þeir ætla að „ganga aft-
ur!“
Það sætir sannarlega engri
furðu, þótt talað sé í spaugi
I um afturgöngur kommúnista.
um ferðum og mun skýra hið
markverðasta í hátalarakerfi
skipsins.
Þessar hópferðir eru algjört
nýmæli og má búast við, að
mikil þátttaka verði í þeim, þar
sem landslag er mjög fagurt og
tilkomumikið i þessum slóðum
og ekki alfaraleið. Mjög góður
aðbúnaður er á Fagranesinu
fyrir farþega og matur og aðrar
veitingar seldar þar allan dag-
inn.
Áætlunarferðum um ísafjarðar
djúp hefur nú verið fjölgað og
verða nú fjórar í viku. Á þriðju-
dögum og föstudögum verða ferð
ir að Melgraseyri með viðkomu-
á 12—14 stöðum. Margir eru
þegar farnir að nota þessar föstu
íerðir sem skemmtiferðir um
Djúpið. Á miðvikudögum og laug
ardögum eru beinar ferðir &
Melgraseyri og Ögur. Eru þetta
sérstaklega heppilegar ferðir
fyrir þá, sem vilja 3tytta sér
landleiðina til ísafjarðar, e«
vegalengdin Bjarkalundur —*
ísafjörður er 251 km., Bjarka-
lundur — ögur 119 km. og Bjark
arlundur — Melgraseyri 67 km,
Fagranes getur flutt fjóra tU
fimm fólksbíla og «r flutnings-
gjald 2S0—400 kr. Auk þes*
verður Fagranesið leigt til hóp-
ferða.
Fagranes kom til landsina
seint á síðasta hausti og hefur
reynzt mjög vel, og farþegunt
líkað mjög vel við skip og að-
búnað um borð. Skipstjóri er Áa»
berg Kristjánsson.
Fréttaritari.
Washington, 12. júní NT8
Charles Stelle sem síð-
ustu fjögur ár hefur veriS
fonnaður bandarísku sendi
nefndarinnár á afvopnunar
ráðstefnunni í Genf lézt i
Washington í gærkveldi 54
ára að sldri.