Morgunblaðið - 14.06.1964, Side 23
Sunnudagur 14. júní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
23
Þórólfur Þorvaldsson
í DAG 14. júní hefði vinur minn,
Þórólfur Þorvaldsson, orðið sjö-
tugur. Vil ég minnast hans með
nokkrum orðum.
Hann var til moldar borinn
22. apríl frá Borgarneskirkju að
viðstöddu miklu fjölmenni. Sókn
arprófasturinn séra Leó Júlíus-
son jarðsöng.
Þórólfur var fæddur 14. júní
1894 á Litlu-Brekku í Borgar-
hreppi, sonur hjónanna Helgu
Sigurðardóttur og Þorvalds Er-
lendssonar.
Þórólfur ólzt upp að mestu
með systkinum sínum, sem voru
átta, 5 bræður og þrjár systur
©g af þeim eru tvö á lífi.
Guðmundur bóndi á Brekku í
Borgarhreppi og Helga húsfrú á
Geitagerði á Fljótsdalshéraði,
Þórólfur andaðist á heimili sínu
í Borgarnesi 14. apríl eftir all-
langa vanheilsu. Hann varð fyr-
ir því óhappi að lenda í slysi
árið 1955 með þeim afleiðingum
að brjóstkassinn laskaðist og
þrengdi æ síðan að öndunarfær-
unum og náði hann sér aldrei
eftir það. Hann bar þrautir sín-
ar með mestri stillingu. Hann var
vel gefinn maður, skýr og vel
hugsandi. Þórólfur var hraust-
menni mikið og kraftamaður, og
átti því létt með að vinna ölll
venjuleg störf, bæði til sjós og
lands, enda hlífði hann sér ekki.
Þórólfur var mikill hestamað-
ur og átti hann góða gæðinga
á meðan hann bjó í sveitinni og
nokkru eftir að hann flutti til
Borgarness. Var hann ^áður
skepnuhirðir.
Þórólfur var tvígiftur. Fyrri
kona hans var Ingibjörg Jónas-
dóttir og eignuðust þau sex
börn og eru þrjú á lífi: Áslaug,
gift Ólafi Ingvarssyni, skóla-
stjóra á Varmalandi. Jónas, gift-
ur Guðríði Jónsdóttur, búsettur
í Borgarnesi, Kristján, giftur
Jóhönnu Helgadóttur, búsett í
Reykjavík.
Þórólfur byrjaði búskap sinn á
Litlu-Brekku í Borgarhreppi í
Mýrarsýslu og eitthvað bjó hann
í Brekkunesi, sem var býli úr
Brekkulandi.
Þórólfur heitinn kvæntist
seinni konu sinni, Maríu Tómas-
dóttur, 19. maí 1945, hinni ágæt-
ustu konu og góðum förunaut.
— Það var ástúðlegt og elskulegt
hjónaband. Þau' báru hvers ann-
ars byrðar í veikindum sínum.
Hún hefur átt við heilsuleysi að
stríða.
í jölritun — prentun —
kópering
Klapparstíg 16
Símar: 21990 — 51323
Það var gestkvæmt hjá þeim
hjónum í litla húsinu þeirra oft
og tíðum en alltaf var pláss fyr-
ir þá, sem að garði bar. Þau voru
bæði samvalin með gestrisni,
ástúð og hlýtt viðmót við alla
sem til þeirra komu.
Þórólfur heitinn var skemmti-
legur maður í viðmóti og allri
framkomu. Gætinn í orðum og
prúðmenni hið mesta. Hann bar
allt með gætni og stillingu, sem
að höndum bar. Hann var traust-
ur vinur vina sinna, eins og öll
hans systkini, enda átti hataa
marga vini og kunningja.
Ég bið góðan himnaföðurina
að blessa þennan góða látna via
minn og gefa honum góða heim-
komu í landið hið eilífa.
Sömuleiðis bið ég guð að blessa
konuna hans og gefa henni styrk
og þrek í hennar erfiðleikum.
Svo votta ég konu hans og
börnum og öllum hans ættingjum
og vinum mína innilegustu sani-
úð. —
íbúð 'óskast
3ja—4ra herb. íbúð óskast til leigu, sem fyrst. —
Upplýsingar í síma 34199.
Stór gufukelill
250 ferm. að hitafleti með öllum útbúnaði, brennara
o. fl. algjörlega ónotaður fyrirliggjandi.
Góðir greiðsluskilmálar. — Leitið upplýsinga.
GÍSLI HALLDÓRSSON ..
VÉLAMIÐSTÖÐIN
Hafnarstræti 8 — Sími 17800.
Ingimundur Sæmundsson.
VERID FORSJÁl
j FEROALAGIO
FERÐAH AN D BOKI N NI FYLGIR VEGAKORT,
MIÐHÁLENDISKORT OG VESTURLANDSKORT
Það er á allra vitorði að í flugvélaiðnaðinum er vöndun
og öryggi framar öllu. Þessar ástæður valda því að
SVENSKA AEROPLAN A/B, framleiðendur SAAB 96
SAAB 95, hafa einnig í þessari framleiðslu sinni kapp-
kostað að byggja fyrir yður bifreið þar sem öryggið er
í fyrsta sæti. Þessi til áréttingar má benda á hinar
TVÖFÖLDU KROSSBREMSUR og STÖÐUGLEIKA á
malarvegum ekki síður en á eggsléttum hraðbrautum.
Ferðalög á SAAB eru þess vegna bæði ÞÆGILEGRI
og ÖRUGGARI en þér eigið að venjast. — Seinustu bílar
fyrir sumarfrí verða afgreiddir í byrjun júlí.
\UB Sveinn Björnsson tyg
& Co. Reykjavik —mm-
þrjár undraverðar breytingar
liafa orðið á LUX
Hin fagra kvlkmyndad/s Antonella Lualdi
vill ekkert nema Lux-handsápu. Ástæðan
er sú, að hin mjúka og milda Lux-handsápa,
veitir hinu silkimjúka hörundi kvenna þá
fullkomnu snyrtin^u, sem það á skilið.
Lux-handsápan, sapan sein 9 af hverjum ÍO
kvikmyndastjörnum nota, fæst nú í nýjum
umbúðutn, með nýrri lögun og með nýjum ilm,
Veljtb ybur hina nýju eftirsóttu Lux-handsápu.
i hvítum, gulum, bleikum, bláum eöa grœnum lit.
Verndið yndisþokka yðar ijieð LUX-handsápu