Morgunblaðið - 04.07.1964, Blaðsíða 1
24 síður
Róm, 3. júlí (AP)
ANTONIO Segni, forseti Ítalíu,
fól í'dag Aldo Moro að reyna -að
mynda nýja ríkisstjórn, en Moro
var forsætisráðherra þar til sl.
föstudag, þegar hann baðst lausn
ar fyrir sig og ráðuneyti sitt eftir
að þingið felldi frumvarp- hans
um aukið ríkisframlag til einka-
skóla. \
Aldo Moro tókst að mynda frá-
farandi stjórn sína í desémber-
byrjun í fyrra, mánuði eftir að
Giovanni Leone hafði beðizt
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt,
sem aðeins hafði setið að-völdum
I fimm mánuði. Að stjórn Moros
stóðu fjórir flokkar, kristilegir
demókratar, Nenni-sósíalistar,
jafnaðarmenn og repúblikanar.
Höfðu flokkar þessir ríflegan
meirihluta í báðum þingdeildum,
þ.e, 386 af 630 í neðri deild og
191 af 315 í efri deild. Þótti það
sérstökum tíðindum sæta að
Pietro Nenni, formaður sósíalista
flokksins, sem venjulega er við
hann kenndur, tók nú sjálfur
ráðherrasæti í fyrsta sinn í 16 ár.
Áður hafði hann oft óbeinlínis
Framh. á bls. 23
Keimsókn Krúsjeffs
til Noregs lýkur í dag
Philip prins fór í gær af landi brott í fögru veðri eftir þriggja daga heimsókn. — Hér sést hann
kveðja forsætisráðherra Bjarna Benediktsson á flugvellinum. Aðrir viðstaddir, sem sjást á mynd-
inni, eru Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, Guðmundur í. Guðmundsson, utanríkisráðherra (sést
aöeins á hánn) og forseti Íslands. . . Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.
Ósló, 3. júlí (AP-NTB)
HEIMSÓKN Nikita Krúsjeffs,
forsætisráðherra, til Noregs lauk
í dag. í því tilefni var í dag birt
sameiginleg yfirlýsing hans og
Einars Gerhardsens, forsætisráð-
herra. Þar heita ráðherrarnir
því að vinna að friði í heimin-
um og aukinni afvopnun. Einnig
deGaulle
í Bonn
Bonn, 3. júlí (NTB)
• De Gaullé, Frakklandsfor-
seti, kom í dag í opinbera
heimsókn til Bonn. Forsetinn
kom með flugvél, og tók Lud-
wig Erhard á móti honum á
flugvellinum. Munu þeir de
Gaulle og Erhard ræðast við
í dag og á morgun, en helztu
umræðuefnin eru talin vera
Berlínar og Þýzkalandsmálin,
verðbólguhættan í löndum
EfnahagsbandaTigsins, þróun
in í Austur-Evrópu c<g stjórn-
málmeining Vestur-Evrópu.
Framkvæmd mannréttindalag-
anna gengur árekstrarlítið
Hörðustu amdstæðingamir
teSJa lögin brot á stjórnarskránni
BLÖKKUMENN víða í Banda-
ríkjunum könnuðu í dag hvernig
nýju mannréttindalögin, sem
Johnson forseti undirritaði í gær,
reyndust í framkvæmd. Sóttu
þejr ýmsa veitinga- og samkomu
staði, sem áður voru a'ðeins opnir
hvítum mönnum, og gekk það
yfirleitt árekstralaust.
Ekki hafa allir viljað sætta sig
við nýju lögin, og hafa nokkrir
veitingahúsaeigendur lokað hús-
Mildaður dómur í
máli Heianders
en hann þó talinn haía skrifað dreifibréfin
Stokkhólmi, 3. júlí — NTB.
LÖGMANNARÉTTURINN í
Stokkhólmi kvað í dag upp dóm
í máli Helanders biskups. Úr-
ekurðaði rétturinn að Dick Ilel-
nnder hafi skrifað nafnlausu bréf
in, sem dreift var um Stráng-
nás bisikupsdæmi fyrir biskups-
kosningarnar þar árið 1902. Hins
vegar telur rétturinn þá sök ekki
aægja til embættismissis, og felldi
úr gildi brottvikningardóm borg
arréttarins í Stokkhólmi frá 1953.
Þá dæmdi Lögmannarétturinn
Helander til að greiða alls 75 sekt
ir fyrir meiðyrði.
Fjórir dómarar áttu sæti í Lög
mannaréttinum, og voru þeir
ekki sammála um úrskurðinn.
Tveir þeirra vildu láta brottvikn
infiardóminn standa, en hinir
Framhald á bls. 2
um sínum í bili. Þá hafa ríkis-
stjórarnir George Wallace í Ala-
bama og Paul Johnson í Missis-
sippi lýst því yfir að mannrétt-
indalögin séu brot á stjórnarskrá
Bandarikjanna. Skýrði Wallece
frá því að hann muni leita að-
stoðar dómstólanna til að fá lög-
in numin úr gildi.
Þegar Johnson forseti hafði
undirritað mannréttindalögin í
gærkvöldi flutti hann ávarp, sem
útvarpað var og sjónvarpað um
öll Bandaríkin. Sagði hann að lög
in væru merkur áfangi í langri
baráttu fyrir frelsi, sem hófst í
Bandaríkjunum fyrir 180 árum.
Hét forsetinn því að fylgzt yrði
vel með því að lögin væru hald-
in. Þau væru ekki staðbundin,
heldur næðu þau til allra ríkja
Bandaríkjanna. Þeim væri ekki
ætlað að skapa sundrungu heldur
einingu.
Ein fyrsta tilraunin til að kanna
framkvæmd mannréttindalag-
anna var gerð í Kansas City i
Missouri. Þar í borg stendur yfir
ársþing CORE, sem eru samtök
þeirra, er berjast fyrir jafnrétti
kynþáttanna. Þrettán ára dreng-
ur, Eugene Young, var sendur í
rakarastofu Muehlebach hótels-
ins til að fá klippingu. En dreng-
urinn hafði fyr í vikunni verið
rekinn út úr rakarastofu þessari.
í dag gekk allt að óskum, og
1 *agði forstjóri hótelsins á etfir að
allir gætu fengið afgreiðslu þar
framvegis, ef íþeir gætu borgað.
Mikið hefur verið um árekstra
að undanförnu í borginni AJbany
'í Georgia ríki. En í dag var þar
allt með kyrrum kjörum og um
20 veitingahús borgarinnar af-
greiddu blökkumenn í fyrsta
segjast ráðherrarnir vera sam-
mála um að vinna beri að aukn-
um samskiptum Norðmanna og
Rússa á sviði viðskipta og menn-
ingarmála.
Ekki er í yfirlýsingunni
minnzt á aðild Noregs að Atlants
hafsbandalaginu, en Krúsjeff
sagði í ræðu nýlega að hann teldi
rétt fyrir Noreg og Danmörku að
ganga úr bandalaginu og mynda
hlutlaust svæði ásamt Finnlandi
og Svíþjóð. Á fundi með frétta-
mönnum í dag sagði Gerhardsen
hinsvegar að Norðmenn teldu
það þjóna hagsmunum sínum
bezt að taka virkan þátt í vest-
rænni samvinnu. „Að sjálfsögðu
lítum við ekki á Atlantshafsbanda
lagið sem árásarbandalag, held-
ur tryggingu fyrir friði í heim-
inum“, sagði forsætisráðherr-
ann. Kvaðst. Gerhadsen álíta að
Sovétríkin viðurkenndu nú aðild
Noregs og Danmerkur að banda-
laginu sem staðreynd, er ekki
verði breytt.
Krúsjeff og fylgdarlið hans
heldur heimleiðis snemma í fyrra
málið.
Lyndon B. Johnson, forseti Bandríkjanna, undirritar mannrétt-
indalögin í „Austur herbergi“ Hvíta hússins s. 1. fimmtudags>
kvöld (Símamynd frá AP).
Aldo Moro falin
stjórnarmyndun
'¥
1