Morgunblaðið - 04.07.1964, Blaðsíða 10
10
MORGU N BLAÐIÐ
Laugadagur 4. júlí 1964
Heimsókn Philips prins lauk í gær
Skoðaði Reykjavík í fögru veðri fyrir brotfförina
Suðurlandsbrautina er dgúpur
hitaveituskurður með ólokuð-
um stokk í. Þar var aftur
stanzað. Þarna á skurðbarm-
inum skýrði hitaveitustjóri
prinsinum frá hitaveitunni í
Reykjavík, og spurði hann
margra spurninga þar og við
borholuna á Lækjarhvamms-
túninu, sem var opin.
Krakkarnir úr nágrenninu
komu eins og skæðadrífa úr
öllum áttum, þegar bílarnir
stönzuðu og skildu ekki að
þau máttu ekki lengur fara
ofan í skurðinn sinn eða nálg-
ast þennan gest e'ins og aðra,
sem koma í hverfið.
Síðast var stanzað við hita-
veitugeymana á Öskjuhlíðinni,
þar sem borgarstjóri útskýrði
P H I L I P prins fór af landi
burt á hádegi í gær eftir
þriggja daga vel heppnaða
heimsókn á íslandi. Síðasta
morguninn kom hann í brezka
sendiráðið, ók um bæinn í
fylgd með Geir Hallgrímssyni
borgarstjóra, skoðaði lista-
verk Ásmundar Sveinssonar
og hitti listamanninn, stanz-
aði við borholu og hitaveitu-
framkvæmdir, hafði langa við
.dvöl í Þjóðminjasafninu og ók
síðan út á Reykjavíkurflug-
völl, þar sem hann kvaddi
forseta íslands, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra, borg
arstjóra og fleiri, steig upp í
Comet-þotu sína, sem hóf sig
á loft og virtist sigla með 45
gráðu horni upp í geiminn,
hnitaði hring yfir höfuðborg-
inni, sem sýndi sína. beztu hlið
í sólskininu, og tók stefnu á
Lundúnaborg.
Kl. 10 um morguninn kom
hertoginn af Edinborg í heim-
sókn á heimili brezka sendi-
herrans, Basil Boothby, og
fengu brezkir þegnar á ís-
landi þar tækifæri til að hitta
hann. Þaðan ók hann með
Geir Hallgrímssyni, borgar-
stjóra, og Gunnlaugi Péturs-
syni, borgaritara, og í bifreið-
um á eftir óku Agnar Klemenz
Jónsson, ráðuneytisstjóri, Páll
Líndal, skrifstofustjóri í borg-
arskrifstofum, forsetaritari,
Bonham-Carter aðmíráll, Com
fort, sendiráðsritari, Jóhannes
Zoega, hitaveitustjóri o. fl. —
Veður var hið fegursta, sól og
hlýja. Var ekið um götur bæj-
arins, upp Flókagötu og yfir í
Sigtún.
Þegar bílarnir óku fram hjá
garði Ásmundar Sveinssonar,
var myndhöggvarinn þar úti
að vinna með hjálp nokkurra
verkamanna við að stækka og
steypa upp mynd sína „Tröll-
konan“. Philip prins lét stöðva
bílinn, gekk inn í garðinn og
gaf sig á tal við Ásmund, sem
ekki hafði átt von á tignum
gestum og stóð þar í verka-
mannabuxum sínum og dugg-
arapeysu. Ásmundur heilsaði á
frönsku, er hertoginn tók í
höndina á honum. Bíðið, ég
Philip prins heilsaði upp á Ásmund Sveinsson, myndhöggvara, sem var að vinna í garði sínum. um
þarf að ná í lykilinn að vinnu
stofunni, sagði hann og þaut .
af stað inn. Fylgdarmenn
höfðu orð á því að ekki væri
tími til þess. En Ásmundur
kallaði á hlaupunum að hann
yrði enga stund, og prinsinn
gekk hinn rólegasti um garð-
inn og beið við sýningarskál-
ann, broshýr og léttur í skapi.
Síðan fór hann inn í skálann
með listamanninum og dvaldi
þar 3—4 mínútur við að skoða
listaverkið og skrifa í gesta-
bókina. Tíminn var naumur,
en prinsinn hafði orð á því
að nokkrar eldri myndir
minntu sig á enska mynd-
höggvarann Moore.
Nú var ekið upp í Laugarás-
inn, Langholtsveg og Álf-
heima, en á gatnamótum við
útsýnið og leysti úr mörgum
spurningum prinsins um
borgina og þróun hennar. En
þá var kominn tíminn til að
fara í Þjóðminjasafnið og, var
ekið þangað.
Við Þjóðminjasafnið beið
Við hitaveitugcymana á Oskju
hlíð.
fjöldi manns til að sjá þennan
tigna gest. Forseti íslands tók
á móti honum í safninu. Krist-
ján Eldjárn gekk með þeim
um báðar hæðir safnsins. —
Prinsinn langaði til að sjá
elztu minjar íslenzkar og eins
stöku hluti sem bentu til sam-
bands milli íslands og Eng-
lands og hafði gaman af að
skoða þátalíkönin á neðstu
hæðinni.
Áður en farið var úr safn-
inu gaf Ásgeir Ásgeirsson
Philip prinsi albúm með
myndum frá ferð hans hingað,
er Pétur Thomsen hafði tekið.
Gengu þeir síðan út á tröpp-
urnar og stóðu þar góða stund
í sólskininu og prinsinn veif-
aði til áhorfenda, sem safnazt
höfðu saman fyrir utan. Síðan
var ekið út á flugvöll.
Á Reykjavíkurflugvelli biðu
Bjarni Benediktsson, forsætis
ráðherra, og Guðmundur f.
Guðmundsson, utanríkisráð-
herra og kvöddu þeir og for-
seti íslands prinsinn með
virktum áður en hann steig
upp í hið volduga farartæki
sitt, Comet-þotu, merkta Royal
Air Force Traffic Command,
með blaktandi hertogafónan-
um framan á. Þótti áhorfend-
farkosturinn rennilegur
þar sem hann sigldi nærri
beint upp í loftið og hvarf í
suðurátt.
Um svipað leyti sigldi Brit-
annia, konungssnekkjan, út
Faxaflóa og suður fyrir
Reykjanes. Heimsókninni var
lokið.
Jóhannes Zoega, hitaveitustjórl, útskýrir hitaveituna fyrir hertoganum af Edinborg við oplnn
hitaveitustokk.
— Raðsprengt
Framh. af bls. 3
Flestir, sem sitja um kyrrt inn-
an húss, verða jarðskj'álftans
varir, einkum á efri hæðum
Ihúsa, en mörgum kemur ekki
jarðskjálfti í hug. Titringur likt
og þegar bíll ekur nálægt hús-
inu.“
Sjö stiga jarðskjálfti er sá tal
inn, þegar ltíið tjón verður á
vel byggðum húsum en talsverð
ar skemmdir á SUa bygigðum hús
um. 12. stig er hæsta stig jarð-
skjálfta, og eyðileggjast þá næst
um öli mannvirki.
Lima, Perú, 2. júlí NTB
• Fimmtíu börn hafa látizt í
barnaveikifaraldrinum í Pall-
asca-héraðinu fyrir norðan
Lima. Skrá.ð hafa verið 430 til
felli og óttazt er, að veikin
breiöist enn víða, þar sem
lítið er til af bóluefni á staðn-
um.
New York, 2. júlí AP
Þotu með 13 manns innan-
borðs hlekktist á á Kennedy-
flugvelli í gærkveldi. Tveir
menn hlutu minni há.ttar
meiðsl — aðrir sluppu óskadd
aðir með öllu.