Morgunblaðið - 05.07.1964, Side 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 5. júlí 1964
Fjallkonan
Arnfríður Ólafsdóttir
Jlátíöasvædið við nýju sundlaug ina.
Sundlaugin vígð
o
þjóðhátíðardaginn
Mikið var um dýrðir í Mos-
fellssveit á Þjóðhátíðardaginn
en nú voru í fyrsta skipti há-
tíðaiiöld heima fyrir hinn 17.
júní. Kunnu hreppsbúar iþess-
ari nýbreytni vel og fjöl-
menntu til hátíðahaldanna.
Það bar enn til nýlundu iþenn
an dag, að sundlaugin nýja
var vígð og opnuð almenningi.
Að lokinni útiguðsþjónustu
flutti Lárus Halldórsson skóla
stjóri minni dagsins, en Arn-
fríður ólafsdóttir flutti ávarp
Fjallkonunnar. Þá var og kór-
söngur undir stjórn Odds
Andréssonar.
Jón M. Guðmundsson odd-
viti flutti ávarp vegna vígslu
sundlaugarinnar, sem er veg-
legt mannvirki, heilsubrunnur
hreppsbúum til sóma. Fór vel
á því, að Klara Klængsdóttir,
kennari, sem m.a. hefur árum
saman Kennt sund í Mosfells-
sveit, skyldi verða til að vígja
laugina.
Mörg önnur atriði fóru
fram við sundlaugina við góð
ar undirtektir hátíðargesta, en
að loknu kaffihléi var þreytt
knattspyrna og fleiri leikir á
íþróttavellinum.
Milli atriða lék lúðrasveit
drengja undir stjórn Birgis D.
Sveinssonar kennara. Gjöra
menn sér miklar vonir um
þetta starf drengjanna í fram
tíðinni.
Að kvöldi skemmtu héraðs-
búar sér við dans í Hlégarði.
Kjósendurnír vilja
Scranton — leiðtogarnir
Goldwater
— Úrkoman
Framh. af bls. 32
bvrjun 1963 voru þeir settir upp
aftur og mælt í þeim á tímabil-
inu ágúst— október. Sýnir með
n.eðfylgjandi línurit niðurstöðu
þessara mælinga. Hefur úrkomu
magnig við Árbæ verið sett 100,
en þar mældust samtals á þess-
um tímabiium 320 mm. Til-
svarandi tala fyrir Reykjavíkur-
fiugvöll var hins vegar 256 mm.
Kemur fram, að úrkoman hefur
vaxið tiltöluiega jafnt frá Árbæ
upp undir Gunnarshólma, en úr
þvi er aukningin talsvert hrað-
ari austur á Sandskeið, og í
Svínahrauni hefur úrkoman á
því tímabili, sem mælingarnar ná
tii, verið 2.67 sinnum meiri en
við Árbæ.
Séu eingöngu teknir þeir dag-
ar, þegar úrxoma i einnverjum
mælanna fór yfir 10 mm, kemur
í ljós, að í þeim tilfellum hefur
ir.ælzt um þrefalt meira úrkomu-
magn í Svínahrauni en við Ár-
bæ. Virðist munurinn þvi vera
öllu meiri að jafnaði, þegar mik-
ið rignir. Þess er þó að gæta, að
í ágúst 1963, sem var mjög þurr
mánuður, var munurinn einnig
tiitölulega mikill.
Fjöldamörg einstök dæmi eru
um miklu meiri úrkomu, en
jaínframt eru þá til önnur dæmi
um minni mun, eða jafnvel stöku
dæmi þess, að meira rigni við
ströndina en á SanHskeið og í
Svínahraum.
NEW York Herald Tribune
skýrði fyrir nokkrum dögum
frá athyglisverðri skoðana-
könnun, sem Gallup-stofnunin
kom á fót í Bandaríkjunum.
Menn voru spurðir, hvort þeir
teldu sig vera hliðholla Repú-
blikönum, Demókrötum eða ó-
háða. Þeir sem þóttust hlið-
hollir Repúblikönum eða ó-
háðir voru spurðir: Setjum
svo, að valið til frambjóðanda
w'" • ■ •
Iveir leikir
i 1. deild
í KVÖLD og annað kvöld fara
fram á Laugardaisvellinum tveir
leikir í I. deild Knattspyrnumóts
íslands. í kvöld mætast Akranes
og Þróttur, en eins og kunnugt
er, korh Þróttur mjög á óvart
fyrir nokkru með jafntefli við
hina sterku Keflvíkinga, sem
ekki höfðu fyrr tapað stigi. Þrótt
arar berjast nú sem mest þeir
mega fyrir seturétti sínum í I.
deild og munu eflaust veita
Skagamönnum harða keppni.
KR og Valur keppa annað
kvöld. Líkur K.R. til sigur í mót-
inu hafa aukizt að mun undan-
farið, eða síðan Kefiavík tapaði
sínu öðru stigi, gegn Fram fyrir
nokkrum dögum. En Valsliðið er
svo sannarlega ekki unnið fynr
fram. , v _
við forsetakjör yrði um tvo
menn, þá William Scranton,
ríkisstjóra, og Barry Gold-
water, öldungadeildarþing-
mann. Hvorn þeirra mynduð
þér velja?
Úrslit þessarar skoðana-
könnunar voru sem hér segir:
Repúblikanar
Scranton .............. 55%
Goldwater ............. 34%
Óákveðnir ............. 11%
Óháðir
Scranton ............. 62%
Goldwater ............. 24%
Óákveðnir ............. 14%
Þáttakendur i þessari skoð-
anakönnun voru einungis al-
mennir kjósendur. Skoðanir
þeirra eru mjög ólíkar skoð-
unum foringja flokkanna á
hinum ýmsu stöðum í Banda-
ríkjunum ef dæma má eftir
skoðanakönnun, sem fór fram
meðal hinná síðarnefndu.
48% þeirra lýstu sig hliðholla
Goldwater, en aðeins 9%
fylgdu Scranton að málum.
Svipað þessu átti sér stað
þegar Eisenhower og Taft
börðust um frambjóðandastöð
una árið 1952. Skoðanakönnun
meðal almennra kjósenda
leiddi í ljós, að Eisenhower
hafði fyigi þeirra, en formenn
flokkanna í B'»ndaríkjunum
studdu Taft.
Þjónustan við neyt-
endur eykst til muna
r
Rætt við Svein Asgeirsson, formann
NeYtendasamtakanna
Mbl. sneri sér í gær til Sveins
Áageirssonar, haigfræðings, for-
manns Neytendasamtaikanna, og
spurði um viðhorf þeirra gagn-
vart hinum nýju samþykktum
borgarstjórnar í lokunartíma-
málinu. Fórust honum m.a. orð
á þessa leið:
— Við fögnum vissulega af-
stöðu yfirgnæfandi meirihluta
borgarstjórnar. Hún kom okkur
að vísu ekki á óvart, því að við
höfum fylgzt vel með málinu og
rætt við marga aðila þess. Við
sendum á sínum tíma harðlegasta
greinargerð allra þeirra, sem
leitað var til, um frv. að reglu-
gerð þeirri, sem borgarstjórn
setti í sept. s.l. Enda höfum við
11 ára þjálfun í því að ræða um
afgreiðslutíma frá sjónarmiði
neytenda.
Á þessum tíma hafa samtökin
sent frá sér hverja álitsgerðina
á fætur annarri, og það er vafa-
laust ekki of mikið sagt, að þau
áttu drjúgan þátt í að breyta af-
stöðu bæjaryfirvalda til þessa
máls á sínurn tíma, þannig að
smám saman var orðið hæigt að
fá keypt matvæli í bænum, þótt
kiukkan væri orðin sex.
— Það hefur verið rætt um
„þögn“ Neytendasamtakanna í
þessu máli.
— Já, það er hart að heyra
það eftir allan þennan tíma. í
sambandi við þessa afgreiðslu
málsins höfum við birt margar
álitsgerðir í öllum blöðum, og
öllum hlýtur að vera Ijóis afstaða
okkar. Frá henni höfum við al-
drei hvikað, hvorki opiniberlega
né í viðræðum við málsaðila.
Og til að leiðrétta misskilning,
skal ég taka það fram, að við
mótmæltum eir.nig lokun kvöld-
sölustaða, sem hefðu söluop í
staðinn. „Unglingavandamálið“
myndi ekki leysast með því, og
aðferðin væri ranglát.
— En svo að vikið sé að sam-
þykktum borgarstjórnar s. 1.
fimmtudag, þá er það víst, að
þjónustan vJS neytendur eykst til
muna við hinn aukna vörulista.
Við viljum þó hafa hann mun
víðtækari — reyndar ótakmark-
aðan. En varðandi bráðabirgða-
ákvæðið um leyfi til að hafa
opið til kl. 22, er það því miður
I að segja, að hætt er við, að það
breyti 1 litlu um núverandi á-
stand, ef kaupmenn og vörzlunar
fólk sjá ekki að sér. Enda þótt
j löngu væri búið að setja hina
j nýju reglugerð í borgarstjorn, þá
sömdu þessir aðilar um allt ann-
an hátt á lokunartímum en ætlazt
var til, og sömdu þá loksins til
2ja ára. Það var vægast sagt tor-
tryggilegt. En Neytendasamtökin
vöruðu einmitt við þessu, er
reglugerðin var sett og vildu
koma í veg fyrir það með sér-
stöku ákvæði, að slikt ástand
gæti skapazt, sem svo skapaðist
illu heilli.
— En ef bráðabirgðaákvæðiS
breytir í engu til batnaðar, hvu<J
þá?
— Ein leið er til! En vegna ó-
samstöðu neytenda er hún illfær.
Það er ekki nóg, að stjórn Neyt-
endasamtakanna berjist fyrir
hagsmunum neytenda. Að vLsu
eru um 5000 Reykvíkingar félags-
menn, en ef þeir væru mun fleiri.
þá væri auðveldara að gera gagn
ráðstafanir, sem myndu geta
breytt málinu og reyndar ráðið
úrslitum. Hið þriðja afl þarf að
koma til skjalanna, neytendur
sjálfir. Borgarstjórn getur ekki
meira gert að sinni.
— Á hvern hátt? 1
— Sýnt vilja sinn í verki, og
kaupa aðeins það nauðsynlegasta.
Neytendur hefðu ekki nema gott
af því að taka upp fábreyttara
mataræði nokkurn tíma. Það
gæti orðið bæði hollt og lær-
dómsríkt — hvíld frá mataríburð
inum. Þetta verkfall yrði því
þeim, sem í því ættu, til góða
frá báðum hliðum séð. Og ætla
mætti, að ekki ætti að vera erf-
itt að efna til slíks verkfalls. Það
ætti ekki sinn líka meðal verk-
falla. Neytendum safnaðist fé
með hverjum deginum, sem það
stæði yfir.
Hafa slíkar aðgerðir verið
ræddar í stjórn Neytendasamtak
anna?
— Já.
— Griskir
Frahald af bls. 1
Kýpur. Brá þá svo við, að tvenn
ar dyr inn í fundarsalinn opn-
uðust og inn þusti hópur öfga-
manna til hæigri. Hrópuðu þeic
ókæðisorð að forsætisráðlherran-
um, en hylltu Konstantin Kara-
manlis, fyrrv. forsætisráðherra
og kröfðust þess að hann tæki
aftur við embættinu.
Til sviptinga kom mifili þing-
manna og hinna óboðnu gesta.
Særðust margir þingmenn og
einn var fluttur í sjúkrahús. Lög
reglan skarst brátt í leikinn og
handtók 20 öfgamenn.
í dag var skýrt frá þvi, að
George Papandreou, myndi halda
til London innan fárra daga til
viðræðna við brezka ráðherra
um Kýpurmálið. Var honum upp
haflega boðið að koma til
London á leið frá viðræðunum
við Johnson, U Thant og da
Gaulle, en hann frestaði föc-
inni vegna borgarstjórnarkosri,-
inga, sem fram fara í Grikk-
landi á morgun.
NA fS hnútor / SV SOhnúisr H Sn/óioma » oti \7 Skúrir £ Þrumur W/'K Kufdoakif HihM H hrnt 1 L ÍS.I |
i H Æ Ð IN fyrir sunnan land vestlægri átt og þokusúld til
réð veðri hér í gær og veitti var bjartviðri. Hlýjast var kl.
Vesturlands, en fyrir austan 12 á Fagurhólsmýri, 16 stig.