Morgunblaðið - 05.07.1964, Side 3

Morgunblaðið - 05.07.1964, Side 3
Sunnudagur 5. júlí 1964 MORGUNBLAÐIÐ 3 | j i í Miðbærinn í smásjá Eins og frsegl: er Orðið er Pfhilip prins litið um það gef ið að hafa um sig sveim af blaðaijósmyndurum. Urðu ljósmyndarar blaðanna því að beita ýmsum brögðuim, er hann var á ferðinni hér á landi og færa sér í nyt þá tækni, seim fyrir hendi er. Ljósmyndari Morgunblaðsins ÓL K. M. tók flestar mynd- irnar, sem birtust af heirn- sókn prinsins, með Honey- well-Pentax Ijósmyndavél o.g 300 man og 500 mm aðdrátt- arlinsum. Til gamans birtum við nú tvær ljósmyndir, sem teknar eru með linsum þessum. Efri myndin er tekin af Banka- stræti með 500 mm linsimni úr gfLugga á 3. hæð Morgun- blaðshússins í austurátt. Neðri myndin er teikin úr Bankastræti, rétt fyrir neð- an Verzlunarbankann, með 300 mm linsunni vestur eftir AusturstrætL Myndimar eru báðar fram kallaðar og stækkaðar á venjulegan hátt, en ekki tek- inn hiuti af filmunni og stækikaður sérstakíiega. Sr. Eirikur J. Eirikssom Hið nýja réttlæti VI. Sunnudagur eftir trinitatis. Guðspjallið Mt. 5, 20-26. „ÞÚ verður aldréi skáld,“ var sagt við Einar Benediktsson. er hann í æsku var að reyna að yrkja. Var hann þá allur i form- inu. f>að virðist eitthvað hafa gerzt í lífi Einars Benediktssonar, sem gerði hann að skáldi. Menn benda á veikindi hans. Einhver ytri ummerki virðast hafa brost- :Ö og flóðalda sterkra innri áhrifa skollið yfir hann og hreinsað hjartað og gert það nýtt. Eitt- hvað virðist hafa gert hann að manni hins nýja sáttmála, stillt strengi hjarta hans með nýjum hætti. Einhvers konar raun býr að baki, barátta, missir. • Minna rnætti á s'káldbróðurinn Stephan G. Stephansson, sem verður í huga sér og hjarta, án stuðningá bóka jafnvel að skapa íslenzk- an heim, og verður við það skáld að búa að sjálfum sér og sínum innra manni. Minna mætti og á forfeður okkar, er námu hér fyrst land og urðu að leita í sjálfum sér uppbótar skóga og annarra gæða á berangri hér. Leiðin inn til hjartans er einatt ströng. Mörgum mun finnast öfgum líkast, er Jesús teflir fram sem nokkrum hliðstæðum manns- morði og að reiðast bróður sín- um. Með þessu kemur Jesús fram með nýtt lögmál. Þótt við hneykslum engan með breytni okkar né fremjum refsivert at- hæfi, megum við ekfki telja okk ur réttlát. Jesús leggur í dag áherzlu á að kærleikur hjartans verði að vera grundvöllur guðs- samfélags okkar mannanna. Kirkjufaðir einn segir, og er í samræmi við kenningu Krists, að maður, sem neiti þurfandi meðbróður um brauð brjóti boð- orðið um, að við megum ekki inann deyða. Jesús leggur hina góðu hvöt og kærleiksríkt hugarfar og hjartalag til grundvallar mati sínu á mannlegri breytni, en telur framkvæmdina atvikum háða. Kennurum þykir yfirleitt mjög vænt um nemendur, sem Skara fram úr. Á unglingsaldri ei maður viðkvæmur. Ég átti lengi í stríði við sjálfan mig að fyrirgefa einum mínum mesta og fcezta kennara, að hann skyldi að eins ræða -við 'þann okkar stú- dentanna, sem hæsta hlaut eink- unina. I>ar fór eins og oftar, sam an gáfur og ástundun og sköpuðu námsafrek, en stundum er það þannig, að þeim sem mest er gefið veitist ekki auðveldast að vera þakklátur og oft verða kenn arar fyrir þeirri reynslu að hljóta mestar þakkir þeirra nem énda er þeim þykir sem þeir hafi minnst liðsinnt, miðað við náms- árangur mældan í tölum. Ég ek eftir veginum. Telpa ein stefnir fyrir bilinn. Hana virðist „vanta eitthvað.“ Gæzlustúlka forðar henni frá slysi. í huga minn kemur, að öll þurfum við Árcksfur á haf- inu «16 saknað Madrid, 4. júlí. — NTB. SPÁNSKA olíuskipið „Banifaz“ sökk í nótt undan Spánarströnd- um eftir að það hafði lent í árekstri við franska olíuskipið „Fabioli". Sextán manna af „Bonifaz“ er saknað, en 34 hefur verið bjargað um borð í skip, sem komið hafa á slysstaðinn. Strax eftir árekst- urinn kom upp eldur í „Bonifaz“ og skipið sökk eftir skamma stund. Litlar skemmdir urðu á „Fabiolu“ og engan mann sakaði. Fjöldi skipa leitar nú mannanna 16. á handleiðslu að halda. GuSs hönd, og lófi okkar er hjartað. Leysir viljinn og hjartaþelið af hendi hlutverk gæzlustúlkunnar ó veginum sem ég ók um? Viltu ekki krjúpa frammi fyrir Guði mitt 1 öllu öryggi þínu á vegi lífsins og biðja um leiðsögn hans í hjarta þér? Við ætlumst stundum til þess að aðrir beri ábyrgð á okkur, einhver lög eða stofnanir. Óper- sónulegt þjóðfélag á að koma í staðinn fyrir samfélag okkar við hinn sanna vin hjartans. Eitt eða annað ytra, umstang á að gera hiýju hjartans óþarfa og góðleik viljans. Sunnlenskur bóndi var kunnur fyrir góðvild í garð allra, sérstak lega barna. Er hann var dáinn, dreymdi konu eina hann. Yfir honum var einikar bjart og hélt hunn á fallegri bók: „Nú kenni ég börnum", mælti hann sigri hrósandi. Þetta var löngu áður en nokkur fræðslulög komu til sögunnar, en andi þeirra laga var ekki fjarri mörgum formannin- um áður fyrr og heimilisföður- um. Hin ytri forrn verða að vera yljuð og gædd lífi innan frá. Það er nærri í tízku okkar á meðal að hallmæla kenningum og hrósa framkvæmdum. Lúter verður t.d. fyrir þessu og telja nienn sig vaxna frá allri bók- stafstrú. En Marteinn Lúter boðaði fyrst og fremst grundvöll kristin dómsins, lögmál kærleikans. Hann var maður, sem hafði átt í ægilega harðri baráttu, áður en hann yrði hjartans maður og málsvari. III. Mósebók segir: „Þér skul- uð vera heilagir, því að ég Drott inn Guð yðar er heilagur.“ í sömu bók stendur: „Eigi skaltu hefnisamur vera né langrækinn við samlanda þína“. í kenningu hinna skriftlærðu er heilaglei'k- inn mjög fólginn í aðgreiningu og kærleikurinn bundinn ýmsum ytri takmörkum. Við getum horft á orð Páls postula í Rómverja- bréfinu eins og mynd: „Kærleik urinn er fylling lögmálsins" (Rmv. 13,10). Séu lögmálsgrein- arnar kerið tákn réttlætis hinna skriftlærðu, flóir ek'ki út af börm um þess, þar sem kærleiksfylling hins nýja réttlætis Jesú Krists kemur til? Hið nýja lögmál hjartans er ekki auðlært. Skáld voru nefnd í upphafi þessa máls. Þar var minnzt á baráttu, sársauka. Ein dýpsta bæn og gagngerasta heilagrar ritningar er: „Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér af nýju stöðugan , anda!“ (Davíðssálmur 51,12). Jesús talar um, ag takmark sitt sé að mennirnir verði full- komnir. Hann hélt sig þó mjög meðal hinna lægstu í prófskóla veraldarinnar. Samkvæmt kristnum skilningi er iögmál hjartans 'og kærleik- ans engin ódýr lausn á mann- legum vanda. Jesús Kristur bar það fram til sigurs með baráttu sinni í lífi og dauða og upprisu. Kærleikurinn kemur frá Guði, er Guðs gjöf. í þeim skilningi, að hsnn er fullkominn, eigum við þess kost að verða fullkomnir, mennirnir, fyrir Guðs náð og kærleika. Hinir skriftlærðu voru sjálfum sér nógir. „Fyrirgef oss vorar skuldir," verður að fara fyrir við leitni okkar til full'komnunar — í kærleikanum. Án þeirrar bæn ar kemur Guðs ríkið ekki, né að Guðs vilji verði á himni og jörðu. Heyjum baráttu trúarinnar — hinnar góðu viðleitni með hvöt- ina til þess að leiðarljósL að full'kominn Guðs kærleikur verði grundvöllur okkar í lífi og dauða. Gefist okkur réttlæti kærleikans. Amen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.