Morgunblaðið - 14.07.1964, Blaðsíða 6
e
MORG UNB LAÐIÐ
Þriðjudagur 14. júlí 1964
Úr Austur-Skagafirði
BÆ, 5. júlí. — Alls staðar mun
vera byrjaður sláttur en mis-
jafnlega langt á veg kominn.
Þeir, sém ekki beittu fé eða kúm
á tún sín í vor, sem munu þó
vera fáir, byrjuðu fyrir miðjan
júní, fengu þá ágæta þurrka og
náðu töðu með beztu nýtingu, en
því miður eru þessir menn alltof
fáir. Það var mjög kalt um tima
og tafði fyrir sprettu, þó var gróð
ur fyrr en oft áður.
Fjöldi af bændum hafa ekki
aðstöðu til að hafa sauðfé annars
staðar en á túnum fyrst á vorin
og jafnvel meðan sauðburður
stendur yfir. Af því leiðir að
seinna verður borið á tún en vera
ætti, gras verður seinna i sprettu,
heyskapur byrjar þarafleiðandi
seinna. Þetta eru sannindi sem
illa gengur að bæta og lagfæra.
Þegar sláttur var almennt að
hefjast kom úrfelli og kuldakast.
Stórar tjarnir voru á túnum og
snjór var í fjöllum niður að bæj-
um og jafnvel tepptust samgöng-
ur. Þetta hefur tafið nokkuð fram
kvæmd heyskapar, en vélakostur
er orðinn það mikill á flestum
bæjum, að ekki er lengi verið að
slá og þurrka þegar þurrkurinn
kemur.
Fólkshald.
Ekki veit ég tíl þess að full-
orðið kaupafólk sé í vinnu við
heyskap, en á flestum bæjum
munu vera unglingar og börn úr
kaupstöðum. Þetta er þarfur og
víðast vel þeginn vinnukraftur,
snúningafólk, sem verður hand-
gengið og samrýmt heimilisfólk-
inu.
Ekki er ég í neinum vafa um
að unglingar og börnin úr kaup-
túnum hafá ómetanlegt gagn af
verunni í samfélagi við dýrin,
heyið, náttúruna og gott fólk.
Annað fólkshald við bústörfin
eru hjónin og börn þeirra, þau
sem ekki eru flogin úr hreiðr-
inu. Á of mörgum bæjum er að-
eins einn maður, lofar það ekki ,
góðu um framtðarbúskap.
stöðum og byrjun á íbúðarhúsi
í Litlubrekku. Smávegis aðgerðir
munu þó vera víða á bæjum.
Veiðar.
Lítil silungsgengd virðist^vera
í sufnar. Höfðavatn var lokað til
sjávar en eigendur vátnsins
fengu sér jarðýtu í vor og opnuðu
það til sjávar, þar sem lítill sil-
ungur virðist vera í því. Ósinn,
sem opnaður var, varð þó ekki
eins stór og ætlað var, en þó
virðist nú eitthvað að glæðast í
vatninu af nýrunnum og góðum
fiski.
19. júní var opnað fyrir drag-
nótaveiði í austurhluta Skaga-
fjarðar. Um þessa ráðstöfun eru
mjög skiptar skoðanir en þeir
sem barizt hafa fyrir opnun,
gerðu það til að tryggja afkomu
frystihússins á Hofsósi, atvinnu
fólks þar og afkomu eins
báts, sem gerður er út á drag-
nót frá staðnum, en trillubáta-
eigendur og þeir er stundað hafa
kolaveiðar í net og hafa lifað á
smáútgerð þykir höggvið nærri
sínum lífsbjargráðum. Þó svíður
þeim mest, að ég hygg, að bátar
frá Sauðárkróki sækja með drag
nætur á þessi mið Austur-Skag-
firðinga, slægja niður í og fæla
burt ágæta ýsugengd, sem komið
hefur hé<r inn með Iandinu. Dag-
vinna er nú unnin í frystihús-
inu á Hofsósi en sagt er mér að
á Sauðárkróki sé unnið nótt með
degi til að koma hráefninu í
vinnslu.
Eins og undanfarin ár era
nokkrir menn úr Hofsósi og ná-
grenni farnir á síld sem kallað
er, og er þar' einnig átt um þá
er síldarvinnu stunda á landi.
Engin alvarleg slys hafa orðið
og kvillalítið. Læknar kvarta yfir
að enginn fáist til að leysa þá af
í sumarleyfum, en til þess að
þeir komist að heiman nokkra
daga hafa þeir hjálpað hver öðr-
um til skiftis.
Nú er læknirinn á Hofsósi í 14
daga fríi en Ólafsfjarðarlæknir
gegnir á meðan.
— Björn.
Fraí 10 ara afmælishofi
Bindindisfélags ökumanna að
Hótel Sögu fimmtudagskvöld-
ið 9. júlí sl.
Pétur Sigurðsson, ritstjóri,
flytur aðalræðu kvöldsins.
Á myndinni sjást m.a. borg-
arstjorinn, Geir Hallgrimsson
og frú, forseti norska óaðals-
þingsins, fyrrv. ráðherra Jak-
ob Pettersen og frú, formaður,
Nordisk Union for Alkoholfri
Trafik, Sigurd Johansen skrif
stofustjóri og frú, o.fl.
I kvöldhófi þessu voru sæmd
ir heiðursmedalíu NUAT þeir
Sigurgeir Albertsson, formað-
ur BFÖ og ritari félagsins Ás-
björn Stefánsson. Hófið sátu
um 80 manns. — Ljósm. Mbl.:
Sv. Þ.
og lagfæringar
Miklar umbætur
að Hólum
BÆ, 5. júlí. —
ALLTAF finnst mér fagurt á
Hólum og þó fegurst þegar ég
veit að allt gengur þar með
ágætum. í viðtali við skólastjór
ann, Hauk Jörundsson, var mér
tjáð að miklar umbætur og lag
færingar væru þar í fram-
kvæmd. í vor var lögð mikil
girðing fram á Hagakoti beitar-
húsum staðarins. Þetta bætir og
auðveldar mjög alla fjárhirð-
ingu og fjárgæzlu búsins. Yerið
er að skifta alveg um gler og
glerpósta í gamla skólahúsinu,
og sett þar tvöfalt gler. Miklar
breytingar og aðgerðir er ver-
ið að gera í kjallara skóla-
hússins. Nýja álmu á að byggja
frá aðaldyrum skólahússins að
austan að aðaldyrum leikfimis
hússins, svo að svæðið á milli
húsanna, sem áður var opið
norður úr lokast. Þarna koma
aðallega snyrting, salerni, fata
hengi og svo aðalinngangur
hússins.
Verkstjóri við þessa smiði er
Níels Hermannsson, Hofsósi.
Flokkur ungra manna og
kvenna, innlendra og erlendra.
á vegum Þjóðkirkjunnar er nú
kominn að Hólum, þar sem
mála á staðinn eftir því sem
tími og vinnukraftur leyfir.
Sagði skólastjóri mér að hann
væri þó búinn að kaupa mikið
magn af málningu, sem nægja
myndi á hektara lands. Með
vinnuflokknum frá Þjóðkirkj-
unni er sr. Þórir Stephensen á
Sauðárkróki, en verkstjóri er
Hróbjartur Jónasson frá Hamrt.
Verið er að lagfæra og snyrta
gamla biskupagarðinn -á milli
húsanna og fleira af því tagb
Ég hef grun um að skólastjóra-
frúin eigi þar drjúgan þátt að
starfi, annars hefur Lilja Sigurð
ardóttir frá Víðivöllum verið
þar eitthvað í vor og stiutt stað
arfrúna með sinni alkunnu
smekkvísi og höndunum góðu,
sem vanar eru að hlúa að öllu
ungviði og gróandi lífi.
Síðast er ég vissi voru 35 bún
ir að sækja um skólavist næsta
vetur og er þar með fullsetið
það húsrúm, sem skólinn hefur
haft, en nú er skólastjóri að
undirbúa meira húsrúm, svo að
hægt sé að bæta við fimm
nemendum ennþá.
Hótei verður rekið á Holum I
sumar og þess að vænta að
margur ferðalangur uni þar á-
nægður, því að Hólum er gott
að koma. — Björn.
• SVINÐLIB og PRANGAÐ « SVARTUR MARKAÐUR
ETSTRA
Framk væmdir. .
Mjög mikið er nú komið af jarð
▼innslu. Hefur Búnaðarsamband
Skagfirðinga, B.S.S., ráðist í stór
framkvæmdir þar sem það keypti
fjórar jarðýtur á árinu og gerir
nú út sex jarðýtur og sex skurð-
gröfur, en hefur lagt elztu vélum
sínum sem voru orðnar viðhalds-
frekar. Einnig hefur sambandið
tvær stórar dráttarvélar með
tæturum, skurðgröfum og fleiri
tækjum sem eru mjög hentug til
smærri framkvæmda. Auk allra
þessara tækja sem B.S.S. rekur
nú eru einstaklingar með jarð-
vinnslutæki. Mikil eftFrspurn er
eftir hvers konar jarðvinnslu,
enda sér maður nú stór flæmi
í ræktun næstum á hverjum bæ.
Rafmagnsframkvæmdum þokar
áfram. Verið er að byrja að
tengja bæi í Viðvíkursveit, Hóla-
hreppi Og innhluta Hofshrepps,
en á þessu svæði va-r lína lögð
frá Sauðárkróksvirkjun s.L ár.
Nú er verið að byrja lögn í út-
hluta Hofshrepips og dölunum út
að Höfða, en sagt er að í Fells-
hreppinn komi lína frá Skeiðs-
fossb Húsbyggingar eru ekki mikl
ar og veit ég ekki til að í bygg-
ingu séu nema stór hlaða á Sleitu
Nú segja blöðin, að heldur sé
farið að draga úr bílainnflutn-
ingum. Allir vissu, að sá tími
kæmi, að markaðurnn mundi
mettast, en innflutningurinn
hefur sennilega orðið töluvert
meiri en búizt var við, þegar
höftin voru felld niður.
ísletndingar höfðu verið svelt
ir svo lengi hvað bílainnflutn-
ing snertir, að það var ekki ó-
eðlilegt þótt margir keyptu bíl,
þegar tækifærið kom loksins.
Jafnframt því sem allir fagna
því að hömlurnar eru niður
felldar og frelsi rikir nú í við-
skiptum á þesu sviði, þá gleðj-
ast líka allir yfir því ag allt
svindlið og prangið í sambandi
við bílana skuli nú tilheyra
fortíðinni. En þannig er það á
öllum sviðum — þar sem höml-
ur og höft ríkja: Spillingunni er
boðið heim.
f sumar hef ég hitt allmarga
menn, sem nýlega hafa ferðazt
austur fyrir járntjald. Flestir
veita því helzt athygli hve bíla
umferð er lítil á götum stór-
borganna þar eystra og greini-
legt er, að í löndum kommún-
ismans er það undantekning að
hinn venjulegi almúgamaður
eigi bíl. — Ég hef heyrt ýmsan
fróðleik að austan — fróðleik,
sem ég hef ekki heyrt fyrr af
vörum sjónarvotta.
Maður, sem nýlega er kominn
frá Tékkóslóvakíu sagði mér
það t.d., að hljómplötur með
Louis Armstrong og öðrum
„stjörnum" vesturlanda gengju
þar óhugnanlega háu verði á
svörtum markaði. Sama væri
að segja um plötur og annað,
sem Bítlarnir senda frá sér.
Sagðist hann hafa séð litlar
bækur með myndum af Bítlun-
um — og gengju þær kaupum
og sölum á serri svarar fimm
hundruð islenzkum krónum.
Það vakti líka athygli hans í
Tékkóslóvakiu, að þar virðist
saman „Cow Boy“ dellan vera
ríkjandi og var hér fyrir 10-15
árum meðal piltanna.
Þessi maður sagði, að það
þætti e.t.v. undarlegt að ferða-
menn kynntust verðlagi á Bítla-
bókum á svörtum markaði þar
eystra, því ekki hefði hann far-
ið með neitt slíkt með sér eða
ætlað að hagnast á svarta mark
aðs braski. —
Unglingarnir sækja 'hins veg
ar svo stíft að ferðafólki sem
kemur frá Vesturlöndum í von
um að í einhverri ferðatöskunni
leynist eitthvað, sem matur
þykir í.
• SMÁMUNIR
Slíkar eru afleiðingar
skömmtunar og hafta um víða
veröld — og aldrei verður þorst
inn í bannvöruna meiri en ein-
mitt, þegar tekið er upp á því
að skammta frelsið til að tala,
hlusta og hugsa. í samanburði
við það er skömmtun á bílum
og bomsum smámunir einir,
sem ekki er hægt að nefna i
sömu andránni.
• EINN BÍTILL
Af því að ég minatist á Bítl-
ana, þá má ég til með að segja
ykkur frá því, að ég sá einn
Bítilinn í Austurstræti í gær,
Hann var í .einkennisbúningi
lögreglunnar.
Ég gerði það að umræðuefni
ekki alls fyrir löngu, að Ijótt
væri að sjá einkennisklædda
menn með illa hirt hár og i
óburstuðum skóm. Þótt ein-
kennisklæðnaðurinn sé ný-
hreinsaður og brotin stíf í bux-
unum, þá verður lögregluþjóna
inn, tollþjónninn, póstburðar-
maðurinn, fiugmaðurinn eða
farmaðurinn aldrei „fínn“ nema
hann sé með vel klippt hár og
í nýburstuðum skóm.
Þess vegna tel ég ástæðu til
að benda á að rakarastofur eru
opnar til kl. 6 alla virka daga
nema laugardaga, þá til hádeg
is að minnsta kosti.
Sjálfvirka þvottavélin
LAVAMAT „n#va 64“
Fullkomnari en nokrku sinni.
Óbreytt verð.
AEG-umboðið
Söluumboð:
H Ú S P R Ý ÐI H.F.
Sími 20440 — 20441