Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 1
28 stðtir
Forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirsson.
Ásgeir Ásgeirsson tók
viö forsetaembættinu
í fjórða sinn í gær
I GÆR um kl. 16 átti að setja
Asgeir Asgeirsson inn í em-
bætti forseta Islands. Var það
í fjórða skipti, sem Asgeir
Asgeirsson tekur við embætt-
inu, en hann var þjóðkjörinn
vorið 1952 og síðan sjalfkjör-
inn þrisvar sinnum.
Athöfnin hófst í Dómkirkjunni
kt. 15,30 í gær, um það bil er
JWbt. fór í prentun. í kirkjunm
étti að fara fram stutt athöfn.
Biskup fslands, herra Sigurbjörn
Einarsson, las ritningarorð og
flutti bæn. Dómkirkjukórinn
Kuif sálma. í kirkjunni rúmuð-
ust einRÖngu boðsgestir, hand-
hafar foretavalds, þ. e. forseti
Hæstaréttar, forseti Sameinaðs
Alþingis og staðgengiU forsætis-
ráðherra, ráðherrar, hæstaréttar
dómarar, alþingisfosetar, ýmsir
embættismenn og erlendir sendi-
herrar.
Um kl. fjögur átti að ganga úr
kirkju í Alþingishúsið, í sal Neðri
deildar. Þar lýsti forseti Hæsta-
réttar, dr. Þórður Eyjólfsson,
kjöri forseta. Siðan undirritaði
forseti eiðstafinn, en að því loknu
afhenti forseti Hæstaréttar hon-
um kjörbréf.
Þá átti forseti og frú hans að
Framhald á bls 2
Námumönnunum
bjargað á mánudag?
Champagnole, 1. ágúst
(AP—NTB).
VONIR standa nú til að unnt
verðí að bjarga námumónnun-
iim níu, sem innilokaðir hafa
verið í kalksteinsnámunni í
Champagnole frá því á mánudag.
Telja björgunarmenn að þeim
takist að ná mönnunum upp úr
wámunni sneanma á mánudags-
morgun.
Björgimarrwænnrjjjir haf» tek-
ið í notkun nýjan olíubor frá
Bandaríkjunum, sem grefur um
tveggja metra göng á klukku-
stund, en göngin eru nærri 60
sentimetrar í þvermál. Um há-
degið í dag átti eftir að bora um
70 metra til námumannanna, og
gæti borinn lokið því verki um
miðnætti á sunnudag. Eftir er
þá að styrkja göngin og koma
iyftitækjum fyrir, en áætlað er
að það t- ki um sex kiukkustund-
kr.
Frábærar myndir af tunglinu
Sýna þunnt ösku- og ryklag. Yíirborðið J
þakið smá gígum. Líklegt að
geimför geti lent á tunglinu
Pasadena, Kaliforníu, 1. ág.
— (AP-NTB) —
í D A G voru birtar nokkrar
af þeim 4.316 ljósmyndum,
sein „Aagner 7“ sendi til jarð-
ar í gær rétt áður en geim-
farið lenti á tungiinu. Segja
vísindamenn myndirnar frá-
bærar, en það mun taka þá
uin þrjú ár að vinna úr þeirn.
En myndirnar hafa þegar
leitt í ljós að menn geta lent
á tunglinu án þess að gera
þurfi verulegar breytingar á
á þeim geimskipum, sem fyr-
irhugað hefur verið að nota
til þeirra ferða.
Vísindamenn sýndu fréttamönn
um fyrstu tíu myndirnar af tungl
inu í gærkvöldi (eftir Kaliforniu-
tíma, snemma í morgun eftir ísl.
tíma), og eru þetta fyrstu Ijós-
myndirnar, sem teknar hafa ver-
ið af tunglinu úr svo litilli fjar-
lægð. Sögðu vísindamennirnir að
myndirnar væru 1.000 sinnum
betri en myndir teknar úr stjörnu
kíkjum eða geimförum til þessa,
enda sýna þær smá gígi, sem eru
aðeins um metri í þvermál og
ekki var vitað um fyrr. Alitið
var að ryk eða öskulag væri á
tunglinu, en ekki vitað hve
þykkt. Nú segja vísindamennirn-
ir að nýju myndirnar sýni þetta
ryklag, en einnig að það muni
vart vera nema nokkra þuml-
unga þykkt, og mest um eit( fet
eða 30 sentímetrar. Undir þessu
Framhald á bls. 27
ÞESSI mynd var tekin á
eina af sjónvarpsvélunum í
„Ranger 7” í gær, rétt áður e*»
geimfarið lenti á tunglinu.
Eru þetta raunverulegar tvær
myndir af lendingarstaðnum,
og sýnir neðri myndin svæði,
sem er um 18 sinnum 30 metr
ar að stærð. eða eins og sæmi-
leg byggingarlóð. Efri myndin
er ekki fullgerð því gelm-
farið rakst á tunglið áður en
tókst að ná myndinni til jarð-
ar. Vinstri hluti myndarinnar
er heill, en til hægri eru ein-
tómar truflanir, sem mynduð-
ust þegar geimfarið rakst á
tunglið. Á myndunum sjást
margir smá gígir, og eru þeir
minnslu aðeins um einn metri
í þvermál. Sjónvarpsvélin, ' 11
sem myndin er tekin á, var
ein af sex vélum í geimfarinu
Hún var búin 25 mm linsu,
f. 1, og hóf ekki myndatöku
f.vrr en í 1000 feta hæð. Sýnir
hún þvi lendslag og aðstæður
á tunglinu betur en nokkurn-
tima áður hefur komið fram.