Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 13
Sunnudagur 2. ágúst 1964 MORGUNBLAÐIÐ 13 Þorsfeinn Bjarnason bókfœrslukennari 70 ára ÞÓ að hraðinn aukist með hverj-. um deginum, sem líður, gefurn vér oss ennþá einstaka sinnum tóm til að lita um öxl. Og þeg- ar merkum áfanga er náð á braut ævinnar, viljum vér jafn- vel staldra við andartak, kasta mæðinni, litast um og athuga kennileiti. Einn af vorum ágætu sam- ferðamönnum, Þorsteinn Bjarna son, bókfærslukennari við Vérzl- unarskóla íslands, verður sjöt- ugur á morgun. Hann var í (þennan heim borinn í Keflavík 3. dag ágústmánaðar árið 1894. Má því segja um Þ-oivtein, að snemma beygist krókurinn tii þess, sem verða vill, þar sem hann kaus að líta ljós þessa heims á sjálfri hátíð verzlunar- manna, þeirrar stéttar, sem hann er og hefur alla ævi verið tengdur svo traustum böndum. Faðir Þorsteins, Nicolai Bjarna eon, var á sinni tíð umsvifamik- iil kaupmaður hér í borg, og hans faðir, en afi Þorsteins, Jó- hann Pétur Bjarnason, var verzlunarstjóri í Vestmannaeyj- um. Móðir Þorsteins kennara Bjarnasonar, frú Anna, var kaup- mannsdóttir, því að faðir hennar var Þorsteinn Thorsteinsson, al- þingismaður og kaupmaður á Isafirði. Hvað var því eðlilegra en að hinn ungi sveinn væri settur t:l verzlunarnáms? Menntaðist hann á því sviði bæði utanlands og innan, m.a. í Ribe Handelsskole í Danmörku. Fyrstu starfsár sín hér heima stundaði Þorsteinn ýmiskonar verzlunar- og skrifstofustörf, bæði sjálfstætt og í annarra þjón ustu. En árið 1931 gerist hann kennari í bókfærslu við Verzlun- arskóla íslands. Þá má segja að hefjist meginþáttur í ævistarfi Þorsteins Bjarnasonar. Við Verzl- unarskólann hefur hann jafnan eiðan kennt bókfærslu og endur- ekoðun, verið aðalkennari í þess- ari höfuðgrein skólans. Raunar hefur Þorsteinn gert miklu meira en að annast kennsluna, því að svo má að orði kveða, að hann hafi lagt nýjan grundvöll að þess ari kennslugrein við skólann með eamningu fjölda kennslubóka og verkefna. Að öðrum ólöstuðum held ég að fáir kennarar hafi gert sér jafnmikið far um að fylgjast vel með nýjungum í sinni grein sem Þorsteinn Bjarmann. Hefur hann hvorki sparað fé né fyrirhöfn. ef hann hefur séð færi á að afla eér nýrrar þekkingar á sínu sviði með bókum og utanferðum. Verð ur slikt aldrei fullþakkað eða met ið sem skyldi í landi, þar sem andleg einangrun og stöðnun vof ir jafnan yfir, ef ekki er verið því betur á evrði. Þorsteinn er maður vörpulegur á velli, rammefldur. enda gædd-. ur miklu þrekj ti! líkama og sál- ar, og enginn veifiskati. Sumum nemendum hefur hann skotið akelk í bringu. Þeim hefur þótt maðurinn mikilúðlegur og ekki árennilegur. En að lokum hefur Þorsteinn öðlazt traust þeirra og virðingu. Öllum hefur þeim fyrr eða síðar orðið Ijóst, að hlýtt hjarta sló bókaranum í brjósti, þó að hann léti stundum brúnir eíga. Ekki hefur Þorsteinn Bjarnason eíður átt vinsældum að fagna meðal samkennara sinna. Hefur hann jafnan verið hrókur alls fagnaðar í þeirra hópi og höfð- ingi heim að sækja. Hann er hið mesta tryggðatröll og á allan hátt stór í sniðum, svo sem hann á kyn til. Þorsteinn Bjarnason er tvígift- ur. Fyrri konu sína, frú Stein- unni Pétursdóttur, missti hann érið 1942. Höfðu þau eignazt íimm mannvænleg börn. Seinni kona Þorsteins er frú Klara Sig urðardóttir. Hafa þau hjón eign szt einn son, Jóhann, hinn mesta dugnaðar- og efnispilt. Á heimili þeirra ólst einnig upp dóttir frú Klöru af fyrra hjónabandi henn- , ar, Margrét Jóhannsdóttir, braut skráð úr Verzlunarskóla íslands og ni'i gift kona. Er vér vinir Þorsteins Bjarna- sonar og samstarfsmenn samfögn um honum. konu hans og öllum ástvinum á þessum merkisdegi ævi hans og færum honum vorar alúðarfyllstu pakkir og hjartan- legar árnaðaróskir, viljum vér sérstaklega biðja forsjónina eins: að láta hina góðu giftu, sem jafn an heíur einkennt allt ævistarf Þorsteins, endast honum til hinztu stundar. Jón Gíslason. „BÓKARINN", eins og við nefn- . um hann okkar á milli, eða m. ö. orðum Þorsteinn Bjarnason, þók- færslukennari við Verzlunarskóla íslands fyllir sjöunda tuginn 3. ágúst nk. Ekki er það ætlunin að rekja æviferil hans með þess- um fáu línum heldur aðeins að árna honum heilla á þessum tímamótum og kvitta fyrir ánægjulega viðkynningu um ald- arfjórðungsskeið. Lítið hefur I maðurinn breytzt á þeim 25 ár- um síðan ég kynntist honum fyrst, mikilúðlegur í fasi og gustmikill, svo að beigur settist í fyrstu að óhörðnuðum ungling- um er hófu nám i 1. bekk Verzi- unarskóla íslands, og sóttu tím- ann í bókfærslu. Linkind og slóðaskapur attu ekki upp á paL- borðið hjá honum, þegar námið var annarsvegar. Við lærðum að meta Þorstein af verðleikum er námið sóttist lengra. Hann er traustur vinur vina sinna, gæddur góðri kímnigáfu, og vinarúargur. Þorsteinn hefur nú í meira en þrjá áratugi leitt nemendur Verzlunarskóla íslands í gegnuin völundarhús bókfærslunnar.. — Hann hefur lagt sig eftir að fylgjast með sínum gömlu nem- endum og er furðu fróður um hagi þeirra og frama, eftir að námi lauk. Með þessum fáu orðum sendi ég honum sjötíufaldar árnaðat- óskir á þessum tímamótum, etr hvort hann færir mér það í „debet“ eða „credit“ hliðina í dagbókina verður að ráðast. G. M. LL FERÐIR Guðmundur Jónasson ÖSKJUFERÐ 8. ágúst — 13 dagar kr. 5.330,00. j Gistingar og fæði Hl innifalið. S LÖND LEIÐIR Adolstrceti 8 simar — Smurbrauðsstúlka óskast sem allra tyrsf Brauðstofan Vesturgötu 25 Wellaform hárkrem heldur hárinu þétf og vel, og gef- ur því ferskan og mjúkan blæ. Ákjósanlegt fyrir hverskyns hárlagningu. Engin feiti. Klístrar ekki. M|ög drjúgt. Wella fyrir alla fjölskylduna. HALLDOR JÓNSSON H.F. Heiidverzlurt Hafnarstreeti 18-Símar 239 95 og 1 25 86 Janis roll-on deodorant gefur yöur ferskan og svalan ilm undir hendur, sem endist allan dag- inn. Gjörsamlega skaðlaust húð og fötum. Sjálfvirka kúlan í flöskuopinu ber létt og ná- kvæmlega á það sem þér þurfið í hvert sinn. HALLDÓR JÓNSSON H.F. Heildverzlun Hafnarstræti mar 23 995 1 25 86 Lýðháskóli fyrir sjómenn, Risöy, IMoregi Norskí Lýðháskólinn fyrir sjómenn býður unga íslendinga velkomna til náms. Piltar, 17 ára og eldri (og tæpiega 17 ára) geta komizt á eftirfarandi námskeið: 14 vikna námskeið, hefst í september. 36 vikna námskeið, hefst í september. 22 vikna námskeið, hefst í janúar. Skólinn skiptist í fjórar deildir: Þilfarsdeild, véladeild, inatsveinadeild og fræðilega deild. Skriíið og biðjið um upplýsingar! Áritun: Risöy Folkshöyskoie for sjömenn, Risöy, Tvedstrand, Noreg. HUSMÆÐUR DIXAN ER SÉRSTAKT ÞVOTTADUFT FYRIR | ALLAR TEGUNDIR ÞVOTTAVÉLA. • Vélin yðar þarfnast sérstaks þvottaefnis — þessvegna varð DIXAN til. • DIXAN freyðir lítið og er því sérstaklega gott fyrir sjálf- virkar þvottavélar. • DIXAN fer vel með vélina og skilar beztum árangri, einnig hvað viðkemur gerfiefnum. • DIXAN er i dag mest keypta efni í þvotta- vélar í Evrópu. • DIXAN er framleitt hjá HENKÍS. í Vestur- Þýzkalandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.