Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.08.1964, Blaðsíða 27
Sunnudagur 2. ágúst 19S4 MORGUNBLAÐIÐ 27 Fyrsti laxinn í eldis stöðina í Kollafirði EINS og frá hefir verið skýrt kom fyrsti laxinn í eldisstöðina í Kollafirði s.l. fimmtudag, eða þá fyrst urðu starfsmenn stöðv- arinnar varir við hann, þó svo kunni að vera, að hann hafi ver- ið kominn fyrr. Lax þessi er þriggja ára, hefir verið tvö ár í fersku vatni og eitt ár í sjó. Hann er 3,2 pund að þyngd og 59 cm á lengd. Starfið í Kollafjarðarstöðinni byrjaði síðsumars 1961 og voru þá keypt nokkur þúsund seyði úr eldisstöðinni við Elliðaár. Svo virðist sem þessi lax sé Miklar ferðir til Surtseyjar ÍORLÁKSHÖFN, 1. ágúst. Fólk ferðast um þessar mund'ir mikið til Surtseyjar um helgar. Herjólfur flytur fólkið og ver klukkustund í hverri ferð til hringsiglingar um eyuna. Frá Þorlákshöfn fer skipið kl. 6 á laugardagskvöldum til Vest- mannaeyja og þaðan kl. 11 um kvöldið og út arð Surtsey og siglir kringum hana í klukkustund, síð an til Eyja aftur og um nóttina til baka til Þorlákshafnar. Á sunnudögum fer skipið kl. 9 að morgni og heldur þá beint til Surtseyjar og síðan til Vest- mannaeyja og fer þaðan til þor- lákshafnar kl. 8 um kvöldið, svo fólki gefst gott tækifæri til að skoða Eyjarnar, hafi það ekki komið þangað áður. — Magnús Þing Norræna málarameistara- sambandsins ÞING Norræna Málarameistara sambandsins var haldið í Stoc- hoimi dagana 2. — 4. júlí s.l. I sambandinu eru Landssam- bönd málarameistara í Dan- mörku, Svíþjóð, Finnlandi, Nor- egi og málarameistarafélag Reykjavíkur, sem gekk í sam- bandið árið 1950, en á íslandi hef ir ekki verið stofnað landssam- band málarameistara. Þing Norræna Málarameistara sambandsins eru háð annað hvert ár til skiptis í löndum að- ildarfélaganna. Þingsetu hafa 3 kjörnir full- trúar frá hverju aðildarland- anna. Á þinginu voru rædd ým- is áhuiga og hagsmunamál málara meistara á norðurlöndum. Fulltrúer Málarameistarafélags Reykjavíkur á þinginu voru, Ólafur Jónsson, Kjartan Gísla- son og Sæmundur Sigurðsson. Næsta þing sambandsins verður báð í Danmörku 1966. (Frá Málarameistarafélagi Reykjavíkur), einn úr hópi þeirra seyða. Lax- inn er hængur og verður hann Útsvarsskrá lögð f ram á Akranesi ÚTSVARSSKRÁ, ásamt skrá um aðstöðugjöld í Akraneskaup- stað 1964, var lögð fram í dag. Alls var jafnað niður útsvörum að upphæð kr. 19.959.600,00 á 1179 einstaklinga og 32 félög. Aðstöðugjöld voru lögð á 82 ein- staklinga og 55 félög að upphæð kr. 3.090.000,00. Hér fara á eftir samanlögð gjöld þeirra, sem mest eiga að greiða að þessu sinni. Einstaklingar: Runólfur Hallfreðsson, skipstjóri 107.600,00 Jón Eiías Guðjónsson, kaupmaður 98.900,00 Páll Gíslason, sjúkrahúslæknir 94.000,00 Torfi Bjarnason, héraðsl. 94.00,00 Hallgrímur Björnsson, læknir 81.700,00 Garðar Finnsson, skipstjóri 80.400,00 Bragi Nielsson, læknir 79.100,00 Björgvin Sæmundsson, bæjarstjóri 75.600,00 Fríða Proppé, lyfsali Óskar Hervarðsson, 74.500,00 vélstjóri 66.200,00 Félög: Haraldur Böðvarsson & Co. 862.00,00 Síldar- og Fiskimjöls- Einn þurrkdagur frá miðjum • r r jum BORGAREYRUM 1. ágúst. Hér undir Eyjafjöllum hefir heyskapur gengið mjög erfiðlega vegna óþurrka eins og annars sfaðar á Suður og Vesturlandi. Undir A.-Eyjafjöllum hefir að- eins einn dagur verið þurr frá morgni til kvölds frá því um miðjan júní. Hér að utanverðu hefir það verið nokkru betra. Hey hafa hrakist. Það, sem náðst hefir upp er illa þurrkað og rignt hefir ofan í það áður en gengið hefir verið frá því til fullnustu. Mjög lítið magn hefir náðst í hlöður. f gær létti tíl og í dag er sólskin og góður þurrkur. Standa því vonir til að mikið af heyi náist saman núna. — Markús. AKRANESI, 1. ágúst. Hér var m.s. Brúarfoss í gær og lestaði humar og frosinn fisk á Ameríkumarkað. M.s. Skjald- breið kom í dag og tekur 60-70 tonn af hrognum, sem skipið flytur tiL niðursuðuverksimiðju á ísafirðL — Oddur. látinn lifa. Er hann nú í eldis- tjörn í eldishúsinu. Væntanlega verður laxinn kreistur í klak, í haust og siðan sleppt. Með þéssu er verið að byggja upp eigin stofna eldisstöðvarinnar. Meðfylgjandi mynd tók Þór Guðjónsson veiðimálastjóri' af laxinum. verksm. An. 330.000,00 Fiskiver h.f. 239.000,00 Sigurður Hallbjarnar- son h.f. 183.000,00 Vélsmiðjan Þorgeir og Ellert 168.600,00 Heimaskagi h.f. 168.500.00 Dráttarbraut Akraness 155.000,00 Kaupfél. Suður-Borg- firðinga 136.500,00 Slátutfélag Suðurlands 112.500,00 Nótastöðin h.f. 111.700,00 Lagt var á samkv?emt útsvars- stigum sbr. lög um tekju þofna sveitarfélaga frá 1964. Ekki var lagt á lægri tekjur en kr. 30. þús. og útsvör lægri en kr. 1.000,00 voru felld niður. Ekki var lagt á sjúkrabætur, mæðra- laun slysabætur, elli- ogörorku- bætur né fjölskyldubætur með 2. barni og fleirum. Sjómenn fengu fæðis- og hlífðarfatafrá- drátt þann sama og til skatts og aukafrádrátt að %. Náms- menn fengu sama frádrátt og til skatts og þeir sem kostuðu börn sín til náms eldri en 16 ára fengu frádrátt eftir mati svipað og til skatts. Giftar konur, sem unnu utan heimila sinna fengu 50% af telíjum sínum undan- þegnar útsvari. Allir gjaldendur, sem náð höfðu 70 ára aldri á árinu 1963 fengu 30 þús. kr. aukafrádrátt. Þeir gjaldendur, sem höfðu greitt útsvar sitt að fullu 31. des. 1963 fengu það dregið frá tekjum sínum, en ekki aðrir. Ýmis frávik önnur voru gerð til lækkunar útsvara vegna veikinda, ómegðar og annara ástæðna, sem skertu gjaldgetuna verulega. — G.S. — Tunglmyndirnar Framhald af bls. 1. ryklagi telja vísindamennirnir að sé hörð skorpa. En hvort hún er nógu föst í sér til að bera þungt og mikið geimfar er ekki unnt að segja á þessu stigi. Á fréttamannafundinum skýrði dr. Gerard Kiper frá stjörnuat- hugunarstöð háskólans í Arizona Ijósmyndirnar af tunglinu. Sagði hann að athyglisverðustu niður- stöðurnar á þessu fyrsta stigi rannsóknanna væru þær að ekk- ert óvænt sæist á myndunum. Hingað til hefur verið álitið að á tunglinu væru víðáttumiklar sléttur, sem voru taldar vera út- höf áður en vitað varð að á tungl- inu er ekki vatn. Nú er ljóst að þessar sléttur eru þaktar smá gígum, og sums staðar er svo mikið af gígum, að lendingar geimfara eru útilokaðar. Á öðr- um svæðum er minna um gígi, og segir dr. Kuiper að auðvelt ætti að reynast að smíða geim- fa r, er gæti lent á tunglinu. Butler vill fund um Laos Heimsókninni til l\loskvu lokið Moskvu, 1. ágúst (AP). RICHARD A. Butler, utanríkis- ráðherra Bretlands, skýrði frá því í Moskvu í dag að brezka stjórnin hafi farið fram á það við stjórnir Póllands, Kanada og Ind lands að þær reyni að koma á sáttum milli deiluaðilanna þriggja í Laos. Lýsti Butler þessu yfir að loknum viðræðum við leið toga Sovétríkjanna, sem áður höfðu neitað að fallast á skilyrði Breta og Bandaríkjamanna fyrir nýrri 14 ríkja ráðstefnu um fram tíð Laos. Indland, Pólland og Kanada eiga fulltrúa í alþjóða eftirlits- nefndinni, sem starfað hefur í Laos um nokkurt skeið. Sagði Butler í dag að hann hefði rétt verið að senda stjórnum þessara ríkja orðsendingu sína um mála- miðlun r Laos, og ætti hann því ekki von á svörum strax. „En ég er nokkuð viss um að Pólverjar fallast á tillöguna", sagði hann. Vill Butler að ríkisstjórnirnar þrjár boði deiluaðilana í Laos, þ.e. hægri sinna. hlutlausa og Pathet Lao kommúnista, til fund- ar einhvers staðar í Evrópu til að ræða ágreiningsmálin. Hinni opinberu heimsókn But.1 ers til Sovétríkjanna lauk í dag, Aðalfimdur r Prestafélags Is- lands í ágúst AÐALFUNDUR Prestafélags ís- lands verður haldinn í Reykjavík 28. ágúst, í hátíðasal Háskóla ís- lands. Dagskráin verður sem hér seg- ir: Kl. 9,30 f. h. morgunbænir, séra Sigurður Haukdal. Kl. 10 f. h. fundarsetning, skýrsla stjórnar. Kl. 11 f. h. cand. theol. Björn Björnsson flytur fyrirlestur um „guðfræðileg stormviðri“ á Bret- landseyjum. Kl. 12—2 e. h. hlé. Kl. 2 e. h. Codex ethicus. Um- ræður um tillögur til endurskoð- unar. Kl. 5,30 e. h. önnur mál. Stjórn- arkosning o. fl. Kl. 8,30 e. h. samsæti fyrir fundarmenn og konur þeirra að Gamla Garði. Ræðumaður kvölds ins er séra Sigurður Einarsson í Holti. — Stjórnin. og eins og fyrr segir náðist ekki samkomulag milli hans og Sovét leiðtoganna um Laos. Hins vegar var gefin út sameiginleg yfirlýs- ing eftir viðræðurnar um ýma önnur mál. Þar segir m.a. að leiðtogar Sovétríkjanna og Bret- lands séu sammála um að nauð- synlegt sé að ná alþjóðasamniog um til að koma í veg fyrir frek- ari útbreiðslu kjarnorkuvopna. Þá segir í yfirlýsingunni að báð ir aðilar séu sammála um að fremsta hagsmunamál allra þjóða á þessari öld kjamorkunnar sé að tryggja friðinn í heiminum. Þess végna er það verkefni ríkis stjórnanna að finna með samti- ingum friðsamlegar leiðir til lausnar öllum deilumálum. Þino; norræna V erzlunarmanna- sainbandsins DAGANA 2. — 5. ágúst verður haldið í Reykjavík þing Norr- æna verzlunarmannasambands- ins, sem eru samtök allra lands- sambanda verzlunarfólks á Norð urlöndum. Landssamband ísl. verzlunarmanna gerðist aðili að þessum 'Samtökum árið 1960. f stjórn sambandsins • eiga sæti forystumenn verzlunarfólks á Norðurlöndum, þrír frá hverju Norðurlandanna nema einn frá íslandi. Stjórnin kemur saman til fundar einu sinni á ári, þar sem fyrir liggja skýrslur sam- bándanna um starfsemi þeirra og rædd eru öll helztu hagsmuna- mál er skrifstofu- og vérzlunar- fólk varða. Þetta er í fyrsta skipti, sem þing þetta er haldið á íslandi. Núverandi formaður Norræna verzlunarmannasam- bandsins er Erik Magnusson, formaður sænska verzlunar- mannasambandsins. (Frétt frá LÍV). ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Vagn E. Jónsson Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttarlögmenn Austurstræti 9. Móðursystir okkar GUNNÞÓKUNN KRISTÍN JÓNSDÓTTIK Blómvallagötu 10, lézt í Landakoísspítala 26. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogski.kju miðvikndaginn 5. ágúst kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað, en þeim sem vildu minn- ast hennar er bent á líknarstofnanir. Ósk Óskarsdóttir, Jón Helgason. Jarðarför sonar míns GUNNARS GUNNARSSONAR frá Bergsskála, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 3 síðdegis. Fyrir mína hönd og barna minna. Halldóra Reykdal. Jarðarför föður okkar SVKINBJARNAR JÓNSSONAR bónda, Snæfoksstöðum, Grímsnesi, fer fram að Snurbæ á Hvalfjarðarströnd þriðjudaginn 4. ágúst og hefst athöfnin kl. 3 síðdegis. Bílferð verðu.r frá B.S.Í. kl. 1. Börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.