Morgunblaðið - 02.08.1964, Qupperneq 2
2
MORGUNBIAÐW
Sutinnrtpííur 2. Seúst 19B4
Miðbærinn var bókstaflega fullur af áætlunarbílum í gær. Við flestar götur stóðu
raðir af stórum bílum, sem biðu þess að fyllast af fólki. Um leið og- einn renndi úr
hlaði, kom annar í skarðið. — Langflestir munu hafa ætlað' í Þórsmörk, og var ungt
fólk í miklum meirihluta. Fjöldamargir áætlunarbílar frá mörgum ferðaskrifstofum
óku bangað í gær með fullfermi. — Ljósmyndin er tekin um kl. 14 í gær niðri í Austur
stræti, þar sem bílar frá Ferðaskrifstofu Úlfars Jakobsens voru hlaðnir. Á annað
þúsund manns fór með bílum Úlfars austur í Þórsmörk í gær og annað eins á föstu-
dag. Úlfar var þegar farinn að flytja fólk austur í Mörkina á fimmtudag.
— Forseti Islands
Framhald af bls. 1.
koma fram á svölum Alþingis-
hússins. Síðan flutti forseti ávarp
í sal Neðri deildar, og að lokum
var þjóðsöngurinn sunginn.
ÁVARP FORSETA ÍSLANDS
Hér fer á eftir ávarp forseta
íslands við embættistökuna:
Góðir íslendingar, nær og fjær!
Fyrsti ágúst er tímamót for-
setaembættisins, að þessu sinni
síðásta stund þriðja kjörtímabils-
míns, og upphaf hins fjórða. Mér
er bæði Ijúft og skylt að flytja
þjóð minni þakkir fyrir traust
fylgi og góðan hug í garð okkar
hjónanna. Embættinu fylgja
bæði ánægjustundir og áhyggjur
á víxl, en svo mun um flest eða
öll störf. Það væri margs að minn
ast frá þessum tólf árum, en ég
tel hér það eitt, að stjórnarmynd
anir hafa jafnan tekizt án tafar,
og því fagna ég á þessari stundu.
Með viðkvæmum huga þakka ég
það traust, sem lýsir sér í endur
kjöri og innsetning í embætti, og
bið guð að gefa mér áframhald-
andi góða heilsu og réttdæmi í
þeim efnum, sem til mín taka.
Það vill nú svo til, að í byrjun
þessa árs voru 40 ár liðin frá
því ég tók fyrst sæti á Alþingi
sem fulltrúi Vestur-ísfirðinga.
Ég veit það misvirðir enginn, að
ég beini við þetta tækifæri sér-
stakri kveðju og þakkiæti ti!
minna góðu og gömlu vina vest
ur þar. Þeim á ég að þakka að
ég slitnaði aldrei úr sambandi við
sjómanninn. bóndann og alla al-
þýðu manna, og hlaut það upp-
eldi í stjórnmálum, sem ég mætti
ekki án vera í núverandi stöðu
og starfi. Þjóðmál og þing-
mennska lærist ekki til neinnar
hlítar nema af langri reynsiu.
Þar verður engum prófum við
komið, nema síendurteknum
kosningum.
Það hefur mikið vatn runnið
til sjávar á þessum 20 árum fyrir
og öðrum 20 árum eftir Lýðveldis
stofnun. og stórfelldar breyting-
ar orðið í íslenzku þjóðfélagi og
þjóðlífi. Viðfangsefnin eru nú
aerið miklu flóknari en áður. Úr
því verður ekki bætt nema með
aukinni sérfræði.
Það var margt, sem menn átt-
uðu sig vart á eftir hina fyrri
heimstyrjöld, ekki síður hin eld.ri
sveit embættismanna en almenn
ingur. Gamli tíminn kom ekki
aftur. Tvær heimstyrjaldir hafa
fært margt úr skorðum. Breyting
ar í atvinnu-, fjárhags- og utan-
ríkismálum og aukin afskipti
ríkisvaldsins heimta ný tök og
þekking hjá ráðunautum Alþing
is og ríkisstjórna, og svö er fyrir
þakkandi, að sú stétt er nú vel
skipuð hæfum mönnum, sem
geta horfzt beint í augu við hvern
erlendan stéttarbróður.sem þarf
að mæta. Er það ein hin rikasta
þörf hvérs nútíma þjóðfélags. En
úrskurðir og völd eru eftir sem
áður í höndum Alþingis og rikis
stjórna, og verður svo meðan
almennur kosningaréttur er í
gildt.
Breytingarnar eru meirl
í þjóðlífinu yfirleitt en í sjálfu
stjórnarskipulaginu. Þróun at-
vinnulífsins hefur valdið aukinni
stéttaskipting, og þá dregið úr
stéttunum í vaxandi mæli. Meðan
kaupstaðir voru fámennir, sveitir
fjölmennar, tækin frumstæð og
afköst lítil, bjuggu allar „stéttir’*
á sama bæ, sátu við sama borð,
sváfu í baðstofu. Kvikfjárrækt
og iðnaður rekinn undir einu
þaki, og farið í verið á vertíð.
Það er fvrst við tilkomu full-
komnari tækja og véla að stétta-
skipting í nútíma merkingu hefst
og tilflutningur fólksins í land-
inu. Árabátar verða úreltir, og
hin stærri vélknúnu fiskisk.ip
draga vermennina þangað, sem
kaupstaðir vaxa við góð hafnar-
skilyrði, heimilisiðnaði hnignar í
samkeppni við ódýra, erlenda
vöru unz nútíma iðnaður nær fót
festu í kaupstöðunum. Það eru
breyttir atvinnuhættir, nýjar at-
vinnugreinar og verkaskipting,
sem valda fólksflutningunum.
Þessi tilflutningur hefir vaxið
svo hröðum skrefum í seinni tíð,
að mðrgum hrís hugur við, og
að sjálfsöigðu getur ríkisvald og
hin öflugri félagssamtök aukið
viðleitnina til að varðveita betra
jafnvægi í byggð landsins.
Þessi þróun hefir skapað ný
viðfangsefni og valdið átökum í
þjóðmálum, stórfelldum um-
bótum í fátækra- og trygginga-
málum, leiðréttingum á kosn-
ingarétti og kjördæmaskipun, og
deilum um kaup og kjör og sam-
ræmi milli ólíkra atvinnustétta.
Ber þar sérstaklega að fagna
júnísamningunum, sem lýðveldið
fékk í 20 ára afmælisgjöf. Þar
er komið inn á leiðir, sem lofa
góðu um framtíðina. Úrbæturnar
jafnan eftir á, þegar þörfin hefir
sagt greinilega til sín.
Almennur kosningaréttur og
þingræði gerir ráð fyrir deilum
og átökum, og setum þeim leik-
reglur. Alþinigi og dómstólar eru
vettvangur þessara átaka. Þar
takast á ólíkar hugsjónir, hags-
munir, metnaður, og fleira mætti
telja. Án slíks vettvangs réði
ofbeldið eitt úrslitum. Alþingi
er fornheilög stofnun með þjóð
vorri, og mikill misskilningur að
ásaka stofnunina sjálfa, skipu-
lagið, um það, sem miður kann
að fara, og ekki minnist ég slíks
úr fornum ritum. Það verður
seint hægt að leysa allan vandg
mannlegrar sambúðar, sinna öll-
um óskum í einu, eða gera alla
jafnánægða. Með þessu skipu-
lagi eru deilur og málefni af-
greidd án liðssafnaðar og vopna-
viðskipta, og valdaskipti fara
fram án fangelsana eða aftöku.
Þessi erfð er forn, og engin
önnur hæf til langlífis fyrir
fámenna þjóð.
Á Alþingi tekst oft málamiðl-
un, en meiri hluti ræður að öðr-
um kosti, enda er mörgum mál-
um þann veg háttað að þau segja
til sín ár eftir ár, og verða ekki
leyst í eitt skipti fyrir öll. Það
er sjaldgæft að full eining náist
á hinum fyrstu stigum hinna
stærri mála, og er sjálfstæðis-
baráttan eðlilega gott dæmi
slíkra viðfangsefna. Þar sló jafn-
an í hinar hörðustu brýnur, og
tókst þó fullkomin þjóðareining
um endurreist Lýðveldis fyrir 20
árum. Því fögnum vér af heilum
hug nú á þessu afmælisári, og
minnumst með þakklátum huga
þeirra manna, sem um það höfðu
forustuna. Þau merku tímamót
skapa oss nýja. aðstöðu meðal
þjóðanna. En þess ber jafnframt
að minnast að samhengið er ríkt
í sögu íslands, allt frá því er
Alþingi var stofnað í upphafi, og
þess vert að geta jafnframt, að
í ár eru 60 ár síðan þjóðin fékk
heimastjórn og 00 ár síðan henni
var sett hin fyrsta stjórnarskrá,
sem Jón Sigurðsson kom áleiðis,
án þess þó að samþykkja, að
ógleymdu fullveldi árið 1918.
Engum forustumanna sjálfstæðis-
baráttunnar hefir verið ofþakk-
að, en ýmsum van-þakkað, og
gildir það einkum um suma
ágætismenn þessarar aldar. þó
ég nefni engin nöfn. Fjarlægðin
er enn ekki nógu mikil til þess
að dómur sögunnar sé orðinn ein-
hlýtur. Sést það bezt af ágrein-
ingi og umræðum, sem enn fara
fram, og eru þó þarfar og hjálpa
til, að allt sjáist betur síðar, í
réttum hlutföllum og af hærri
sj ónarhól.
Samhengi sögunnar og sam-
ræmi hugsunarháttar, erfðavenja
og löggjafar styrkir stórlega vort
unga Lýðveldi og glæðir fram-
tíðarvonirnar. Það er forn hug-
sjón „að hverr maður verði síns
réttar og laga njótandi". Um
stjórnskipulag í aðaldráttum
byggir íslenzk þjóð á bjargi sinn-
ar eigin sögu og beztu fyrir-
myndum skyldra þjóða.
Vér höfum margt að þakka og
getum vérið ánægð með ætt og
uppruna, legu lands vors og
sjávar og landgæði. Þjóðin hefir
tekið fljótt og vel við véltækni
nútímans, og sýnir það, eins o.g
bókmenntir áður, að kynstofn-
inn er góður. Það hefir sýnt sig
að það þarf ekki ófrið erlendis
til árgæzku, afkasta og vel-
gengni. f dag eru 50 ár liðin frá
því hin fyrri heimsstyrjöld hófst
með hersö.gn Þjóðverja í garð
Rússa. Vér höfum verið ósnortn-
ari en aðrar vestrænar þjóðir af
hörmungum tveggja heimsstyrj-
alda. En eins og styrjaldartækni
er nú komið er engin vernd
lengur í fjarlægðum. Vér skul-
um þó ekki sýta um þá hluti,
sem vér ráðum ekki við, heldur
halda ótrauðir áfram uppbygig-
ingu lands vors og þjóðfélags.
En aðgæslu þarf um skipti við
aðrar þjóðir, vanda vorn mál-
stað og drengilega aðferð.
Það sem mestu varðar er sam-
hugur þjóðarinnar. Flokkar
liggja að vísu andfætis, en þó í
sama bóli. Áróður má aldrei
ganga svo langt að skyggi á
þjóðareining á úrslitastundum.
Sem þjóð búum vér öll við ein
Oig sömu örlög.
Óskir þjóðskáldsins, sem síð-
ar varð fyrstur íslenzkur ráð-
herra, á morgni þessarar aldar
hafa allar rætzt eða '"-"lizt nokk-
uð áleiðis, og ég lýk máli mínti
með þessari brýningu, sem enn
er í gildi: Starfið er margt, en
eitt er bræðrabandið, boðorðið,
hvar sem þér í fylking standið.
hvernig sem stríðið þá og þá er
blandið, það er: að elska, byggja
og treysta á landið“.
Fengu 6 laxa
í ýsunet
HAFNARFIRÐl — Eins og skvrt
var frá hér í blaðinu í gær, het'ur
talsvert orðið vart við lax t
höfninni, og fékk maður nokkur
þar tvo á stöng nú fyrr í vik-
unni. — í gærmorgun fengust
svo 6 laxar til viðbótar í ýsunet
og margir segjast hafa séð lax
stökkva í höfninni. — í fyrra
fengust milli 30 og 40 laxar í
Hafnarfjarðarhöfn, sem voru yf-
irleitt frá fjögurra til fiinm
punda. — G. E.
Höfnin lengd um
35 metra
. lákshöfn, 1. ágúst.
HAFNARGARÐURINN hefir nú
lengzt um 35 metra og sett nið-
ur 6 ker og önnur 6 eru tilbúin
til niðursetningar. Er þá aðeins
eftir að steypa tvö ker í Suður-
vararbryggjuna.
Hér vinna um 40—50 manns
að hafnargerðinni og fremur
skortir vinnukraft, einkum hand-
verksmenn.
Magnús,
/ NAIShnMar SVSOhnútar H Sn/óAema 9 ÚSi 7 Skúrir £ Þrumor W/Z, KuUoski/ HHttU
H
Lisf*,
Landbúnaðarráðherrar Norðurlanda á fundi í Hótel Sögu í gær. Frá vinstri Finninn S. Suomela,
I»á Ingólfur Jónsson, siðan Daninn Karl H. Skytte og loks Svíinn Eric Holmqvist. Á myndina
vantar norska landbúnaðarráðherrann, sem ekki gat komið tii fundarins.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
í gær var ljómandi veður land er grunn lægð að mynd-
um allt land en svalt loft. ast og þykknar sennilega upp
Frost var á Kili í fyrrinótt af henni í dag á Sv. landi.
og snjókoma, en við Græn-