Morgunblaðið - 02.08.1964, Síða 16
16
MORGUNBIAÐIÐ
Sunnudagur 2. ágúst 1964
t,
Eiginmaður rninn
JÓN GUÐMUNDSSON
endurskoðandi,
Nýjabæ Seltjarnarnesi,
lézt í Landsspílalanum 27. f.m. verður jarðsunginn frá
Neskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 1,30.
Bryndís Guðmundsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
ÞÚREY ARNGRÍMSDÓTTIR
Hjarðarhaga 62,
andaðist þann 30. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 4. ágúst *og hefst athöfnin kl. 15.
Þorsteinn Björnsson, María Jensen,
Emmý Björnsson, Steingrímur Vigfússon,
og barnabörn.
Konan mín
KRJSTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Marteinstungu,
sem andaðist á Sólvangi 30. júlí verður jarðsungin frá
þjóðkirkjunni i Hafnarfirði þriðjudaginn 4. ágúst
kl. 2 e.h.
Guðiaugur E. Einarsson.
Útför móður okkar og tengdamóður
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Domkirkjunni þriðjudaginn 4. ágúst kl. 2
síðdegis. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Svanfríður Sveinsdóttir,
Þórunn E. Sveinsdóttir, Jakob Einarsson,
Petra Hákansson, August Hákansson,
Bergur Sveinsson, Sigurlaug Guðjónsdóttir,
Píila Sveinsdóttir, Sigurður Björnsson,
Camilla D. Sveinsdóttir, Sigurður Finnbogason,
Björg Sveinsdóttir, Halldór Guðmundsson.
Við þökkum innilega öllum ættingjum og vinum nær
og fjær fyrir a.uðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar
VALFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
Unnur Isleifsdóttir,
Fjóla ísleifsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
móður okkar og tengdamóður
MAGNEU MAGNÚSDÓTTUR
frá Hólbæ, Stokkseyri.
Jóna Jónsdóttir,
Magnea Gísladóttir, Guðmundur Símonarson,
Guðrún Gísladóttir, Sigurður Einarsson,
Gísli Gíslason, Ólína Sigvaldadóttir,
Valdimar Gíslason, Kristjana Þorsteinsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
hluttekningu og samúð við andlát og jarðarför
ágústs benediktssonar
\élstjóra, Vegamótastíg 9.
Sérstakar þakkir skulu færðar Karlakórnum Fóst-
bræðrum og Félagi járniðnaðarmanna fyrir vinarhug
þeirra.
Þórdís Davíðsdóttir,
Guðrún D. Ágústsdóttir, Birgir Ágústsson,
Einar Ágústsson, Áslaug Ágústsdóttir,
Gunnar Ágústsson, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum sýnda samúð við andlát og jarðarför eigin-
manns míns og föður okkar
PÁLS S. STEINGRÍMSSONAR
frá Njálsstöðum.
Ingibjörg Sigurðardóttir og böm.
Þakka innilega auðsýr.da samúð við andlát og jarðar-
för mannsins míns
SIGMUNDAR ÞORGRÍMSSONAR
Melgerði 19.
Cathrine Þorgrímsson.
■!H,%
— Reykjavikurbréf
Framh. af bls. 15
um heim. Þykja mörgum stór-
veldisdraumar hans óraunhæfir
og engan veginn í samræmi við
það raunsæi, sem þessi reyndi
stjórnmálamaður hefir óneitan-
lega til brunns að bera.
Það er líka staðreynd aS Banda
ríkin hafa síður en svo sótzt
eftir forystu um málefni Evrópu.
Það hefir hinsvegar komið í hlut
Bandaríkjamanna að koma tví-
vegis til hjálpar Frökkum og
öðrum Evrópuþjóðum, þegar
Þjóðverjar höfðu ráðizt á þá og
ósigur og niðurlæging vofði yfir
Frökkum, eða var skollin yfir
þá. Þeir sem lesið hafa mann-
kynssöguna vita gerla að það
voru Frakkar, sem ákölluðu
Bandaríkjamenn um hjálp á
stund neyðarinnar, bæði 1915 og
1940. Það ætti að minnsta kosti
de Gaulle hershöfðingi að muna
og vita.
Efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna
Allur heimurinn veit líka að
það var hin stórfellda efnahags-
aðstoð Bandaríkjanna við Vest-
ur-Evrópu, sem átti ríkastan
þátt í hinni hröðu uppbyggingu
þar að síðari heimsstyrjöldinni
lokinni. Sú efnahagsaðstoð, sem
Bandaríkin veittu þá þjóðum
Evrópu fól síður en svo í sér
íhlutun um innri mál Evrópu-
þjóða að öðru leyti, en þvi, að
hún var stórbrotnasta hjálp,
sem mannkynssagan greinir við
bágstaddar og styrjaldarþreyttar
þjóðir.
En nú get ég, segir de Gaulle.
Nú er Frakkland orðið kjarn-
orkuveldi, sem ekki þarf lengur
á hjálp Bandaríkjanna að halda.
Þetta er skoðun de Gaulle, en
aðrar þjóðir Vestur Evrópu líta
allt öðruvísi á málið. Þær telja
að frelsi og öryggi hins vest-
ræna heims, byggist fyrst og
fremst á því, að góð og náin
samvinna haldist milli Norður-
Ameríku og Vestur-Evrópu. Leið
togar Vestur-Evrópu hafa aldrei
ætlazt til þess að Bandaríkin
drottnuðu yfir þjóðum þeirra,
enda hafa þau aldrei gert það.
En Bandaríkin hafa verið og
eru, sá varnarveggur, sem hver
ofbeldis- og einræðisaldan á fæt
ur annarri hefir brotnað á.
Stórveldisdraumar og mikil-
læti de Gaulle kunna að geta
æst upp franskan þjóðarmetnað.
En það aflar hvorki hinum
aldiia og mkiilhæfa forseta né
landi hans trausts eða trúar á
forystuhlutverk hans
Uggvænlegir
óþurrkar
Óþurrkarnir á Suður- og Vest-
urlandi, allt norður til Vestfjarða
oru orðnir hinir uggvænlegustu.
í þessum landshlutum liggja hey
nú víða undir stórskemmdum.
Margir bændur hafa reynt að
draga sláttinn í lengstu lög með
þeim afleiðingum að túnin eru
víða orðin úr sér sprottin. Einn
eða tveir þurrkdagar komu í
þessari viku, en þeir björguðu
ekki miklu eftir langvarandi
óþurrk og víða úrhellisrigning-
ar.
Þar sem súgþurrkun er, er
ástandið að visu nokkru betra.
En yfirleitt má segja að ástand
heyskaparins í fyrrgreindum
landshlutum sé mjög slæmt.
Óhætt er að fullyrða, að ef ekki
bregður til batnaðar innan
skamms séu vandræði fyrir dyr-
um.
Hafnsaríjörður
RÖSK STIJLKA EÐA PILTIIR
óskast til afgreiðslustarfa.
Bókabúð Ollvers Stelfis
Rekstursáætlanir eru auðveldar
Með tilkomu hinna nýju VEM-standard-
mótora varð það loksins að veruleika,
sem sérhver raftæknifræðingur hafði
lengi óskað eftir: Byggingu samkvæmt
alþjóðlegum mælikvörðum og afkasta-
þrep þau sömu og fyrir alla algengustu
rafmótora.
Allir VEM-Standardmótorar á afkasta-
sviðinu frá 0,12 til 100 kw eru mældir
samkvæmt meðmælum Alþjóðlegu raf-
tækninefndarinnar, en þessi mál gilda
mi í 34 löndum.
Það er nú auðvelt að ákveða fyrirfram
staðsentingu, undirstöður og tæknilegar
véltengingar. Þar með eru úr sögunni
ýms vandkvæði í sambandi við mismun-
andi mótora.
Við veitum yður fúslega allar nauðsyn-
legar nánari upplýsingar um Standard-
mótorana frá VEM-verksmiðjunum í
Sachsenwerk, Thurm og Wernigerode.
Gjörið svo vel að snúa yður beint til
útflytjanda framleiðsluvara okkar, eða
umboðsmanna á Islandi.
Deutsdiar Innen- und Auss«nhond«|
Berlln N 4 • Chausseestra&e 111/112
YEM - Eiektromasdilnenwcrkc Deubche Demolcrotlsdte Repukllk