Morgunblaðið - 02.08.1964, Side 19
Sunnudagur 2. ágúst 1964
MORGUNBLAÐIÐ
19
h
FYRSTfl HNATTFERDIN
Wade
1 DAG eru 40 ár liðin síðan
fyrsta fiugvélin, sem kom til
Islands, lenti á Hornafirði.
Vélinni stjórnaði Eric Nelson.
Lendingin í Hornafirði var
einn liður í fyrsta heimsflug-
inu.
Upphaflega voru flugvélarn
ar fjórar, og flugmenn auk
Nelsons Smith, Wade og Mart-
in majór, sem var foringi far-
arinnar. Lögðu flugkapparn-
ir af stað frá Seattle í Banda-
ríkjunum þann 8. apríl 1924.
í Alaska heltist flugvél Mart-
ins úr lestinni, en hinar héldu
áfram og flugu yfir Japan,
Mið-Asíulönd, Suður-Evrópu
og síðar norður til Orkneyja,
en þaðan skyldi haldið til ís-
lands.
Atburðir þessir vöktu geysi
lega athygli á íslandi og má
það m. a. marka af því að í
Isafold þ. 9. ágúst 1924 naer
fréttin um flugið yfir næstum
þvera forsíðuna, en grein um
50 ára afmæli stjórnarskrár-
innar er neðst í horninu. Fara
hér á eftir kaflar úr fréttinni.
Tveir snúa við
„Sú fregn flaug hér um bæ-
inn laugardaginn 2. ágúst, að
flugmenn þeir úr ameríska
hernum, er þreyta hið marg-
umrædda heimsflug, væru
væntanlegir til Hornafjarðar
þann dag. ..."
„Skömmu eftir hádegi kom
sú fregn hingað, að tvær flug-
vélarnar hefðu horfið til baka
til Orkneyja vegna þoku, en
einn flugmannanna, Svíinn
Nelson hefði haldið ótrauður
áfram, og hefði sézt til hans
frá tundurspillinum Reid 125
sjómílur undan landi. Búizt
var við að leiðin yrði flogin
frá Kirkwall til Hornafjarðar
höfnina, innan um skip og
báta, sem þar liggja. Þetta
var fjórðungi stundar eftir
kl. 2.
Mun flestum sú sjón seint
úr minni líða þegar flugmenn
irnir renndu sér úr lofti niður
á hofnina.
r jugvei meisons aregm a lana í Keykjavik.
þeir er þar voru fyrir. Vissi
hann ekkert um afturhvarí
þeirra félaga sinna; hélt þá
myndu vera rétt á eftir sér.
Veður hafði verið gott alla
leið, nema þessi þoka þar
syðra, skammt frá Orkneyj-
um. Fjöldi fólks viðs vegar
að var saman kominn við lend
ingarstaðinn til þess að sjá
til ferða flugvélanna. Fagn-
talsvert á leið bilaði vél
Wade’s og varð að setjast á
hafið. Herskipið Richmond
kom á vettvang og bjargaði
mönnunum, en þegar reyna
átti að ná vélinni upp á þil-
far þoldi hún ekki átakið og
liðaðist sundur og sökk í sjó.
Smith komst heilu og
höldnu til Hornafjarðar á 6
klst. og 17 mín., og var það
mun styttri tími en áætlað
hafði verið.
Lagt af stað úr Hornafirði
Snemma morguns 5. ágúst
barst sú fregn hingað austan
úr Hornafirði, að flugmenn-
irnir hefðu farið af stað úr
Hornafirði kl. 9.15 þá um
morguninn. Morgunblaðið og
ísafold gáfu út fregnmiða og
tilkynntu komu flugmann-
anna. Varð uppi fótur og fit
í bænum. Simarnir á skrifstof
um vorum höfðu engan frið.
Um 300 fyrirspurnum var
svarað að jafnaði hvern
klukkutíma.
Klukkan laust fyrir 2 sást
til vélanna af Skólavörðu-
holtinu, Túngötu og víðar, þar
sem hátt bar á. Fyrst sáust
þær eins og tveir dílar bera
við bvít ský.
Nú var enn eftir að vita
hvar þeir myndu lenda. Sumir
stóðu kyrrir á Skólavörðuhoit
inu, því að þaðan sást þó
altjend eitthvað. Margir voru
á Arnarhólstúni til þess að
sjá þá að minnsta kosti at-
huga, hve úfinn var sjórinn á
ytri höfninni. Og svo þaut
fólk aftur á bak og áfram um
göturnar. sem ekki hafði haft
ráðrúm til þess að velja sér
neinn samastað.
Flugmennirnir fljúga nú lágt
yfir bæinn, og allir þykjast sjá
það „á hæglæti þeirra“, að
þeir væru að velja sér lend-
ingarstað. En áður en varir,
renna þeir sér niður á innri
Eins og konungskoma
Eftir drykklanga stund var
borgarstjóri kominn á stein-
bryggjuna, en Þórarinn Kristj
ánsson kom flugmönnum í
land. Bauð borgarstjóri þá þar
velkomna fyrir bæjarins hönd,
og mannfjöldinn laust upp
húrrahrópi. Var þar saman
kommn eins mikill mannfjöldi
og annars gerist um konungs-
komur.......
.......Dvöl þeirra félaga á
Islandi var þeim sérstaklega
minnisstæð. Héðan fóru flug-
mennirnir ekki fyrr en að
morgni þess 21. ágúst. Hafði
þá italskur flugmaður, Loca-
telli slegist í för með þeim.
Flugvél hans fór í sjóinn und-
an Kap Farvel og var honum
og áhöfn hans bjargað um
borð í herskipið „Richmond",
sem var flugmönnunum til að
stoðar.
Þeir Nelson og Smith héldu
hnattfluginu áfram og luku
því 28. september, en Wade
fylgdist með þeim síðasta
spölinn og var þeim fagnað
af miklum mannfjölda.
Atburðarins minnzt
Flugmálafélag íslands, sem
er félag áhugamanna um flug
mál, hefur ákveðið að minn-
ast þessa merka atburðar, sem
vaknað hafði hér á landi, um
að nota flugvélar til sam-
göngubóta. Fimm árum áður
en þetta skeði hafði verið
stofnað Flugfélag íslands, sem
gerði nokkrar tilraunir með
innanlandsflug, en fjárhags-
grundvöllur reyndist ekki fyr-
ir því
Eric Nelson er enn'á lífi og
er orðinn 76 ára gamall. Af
heilsufarsastæðum t r e y s t i
hann sér ekki til þess að nota
sér boð Flugmálafélags ts-
lands um að koma hingað I
tilefni af þessum merku tíma-
mótum. Hann kom hingað fyr-
ir 10 árum og var honum þá
reistur minnisvarði úr stuðla-
bergi í Hornafirði. Á minnis-
varðanum stendur:
á 7—8 tímum. Var Nelson því
væntanlegur þangað um kh
2—3.
Nelson kemur til Ilornaf jarðar
Hann kom til Hornafjarðar
kl. 4. Sveif hann tvo hringi
yfir iónið, sem merkt var hon
um til lendingar til þess að
athuga þar staðhætti, og lenti
síðan heilu og höldnu. Hafði
hann flogið leiðina á 8%
klukkustund. Var hann hinn
brattasti er í land kom, og
kvaðst ekki vera þreyttari en
aði mannfjöldinn nú þessum
fyrsta flugmanni — eða mönn
um, sem heimsækja land vort
og fara fuglaleið. Jók það á
fögnuðinn að það var Svíi,
sem fyrstur leysti þetta afrek
— Norðurlandabúi, sömu þjóð
ar og sá maður, sem sigLdi
fyrstur kringum ísland."
Vélarbilun
Flugvélarnar tvær, sem
urðu að snúa' við, lögðu af
stað um sama leyti daginn
eftir, en er þær voru komnar
Flugvélarnar þrjár áður en flotholtin voru sett á þær.
— Suður-Afrlka
Framh. á bls. 12
dæmaskiptingin er stjórnar-
flokknum hliðholl og það er
engin tilviljun. Stjórnin hag-
ræðir henni og hvetur t. d.
stuðningsmenn sína til þess að
flytja á milli staða til þess að
atkvæði þeirra nýtist sem
bezt.
Löken sagði, að blöð, sem
andvíg væru stefnu stjórnar-
innar hefðu til þessa getað
gagnrýnt hana opinberlega.
Minntist hann t.d. á blöð
enskumælandi manna í Dur-
ban, sem hann kvað mjög harð
orð um kynþáttastefnuna.
— En stjórnin er sífellt að
herða tökin og óttazt er að
ekki líði á löngu þar til rit-
frelsi blaðanna verður skert.
Löken sagði að lokum, að
stefna stjórnarinnar í kyn-
þáttamálum og aðgerðir gegn
andstæðingum hennar yrðu æ
róttækari.
— Það er ómögulegt að gera
sér grein fyrir því hvernig
eða hvenær endi verður bund-
inn á núverandi ástand. Allir,
sem bera hag íbúa S-Afríku
fyrir brjósti, vona, að stjórnin
vakni til veruleikans og geri
sér grein fyrir að stefna henn
ar í kynþáttamálum er ófram-
kvæmanleg, áður en afleiðing
ar hennar verða margfalt al-
varlegri, sagði Löken.
Göiur steyptar
á Akranesi
Akranesi, 30. júlí.
ÞAÐ miðar vel áfram að steypa
göturnar hér. Sementsverk-
smiðjustjórnin bauð bænum að
láta steypa Mánabraut á sinn
kostnað, og er nú lokið við að
fjórum fimmtu. Aðeins er eftir
blávesturendinn, sem liggur að
Suðurgötu móts við Akratorg.
Lokið er við að steypa framhald
af Kirkj ubraut inn eftir að
Kirkjubraut 58, aðeins eftir að
ganga lítils háttar frá gangstétt.
Nýlega er byrjað á Vesturgötu;
á að steypa hana frá Skólatorgi
og inn að þvergötunni Merki-
gerði. Á daginn kemur, að þar í
götunni eru nýjar skolpleiðslu-
pípur, jafnvíðar og þær, sem
lagðar eru nú, fimmtán tommur
í þvermál. Aðeins á fimmtíu
metra spotta þarf að setja nýjar.
Þetta sparar okkur, saigði verk-
stjórinn, Leifur Ásgeirsson,
þriggja vikna vinnu. — Oddur.