Morgunblaðið - 13.08.1964, Page 6
MORGU N BLAÐID
Fimmtudagur 13. ágúst 1964
ÚTVARP REYKJAVÍK
A SUNNUDAGSKVOLD 2. ágúst
talaði Guðlaugur Jónsson um
Hnappadalsvötn á Snæfellsnesi.
Þau eru tvö: Hlíðarvatn, sem el
78 metrar yfir sjávarmál og 4,5
ferkílómetrar á stærð og Odda-
staðavatn, sem er 57 metra yfil
sjó ag tæpir 3 ferkílómetrai;
Hraunholtaá tengir vötnin sam-
an. Oddastaðavatn hefur mælz1
dýpst um 18 faðmar, en Hlíðar-
vatn er nok'kru dýpra. Góð sil*
ungsveiði er í vötnunum.
Siðar um kvöldið leiddi Agnat
Guðnason menn „út um hvippinn
og hvappinn". Sérlega fróðlegt
var viðtal hans við Magnús Guð-
ntundsson í Dalbæ, en hann hef-
ur verið blindur síðan hann man
eftir sér. I>ó hefur hann ávallt
unnið margvísleg störf og auk
þess spilað á harmonikku á dans-
ieikjum. Hann sagði, að á böllum
í gamla daga hefði verið dansað
frá kl. 10-6 og 7 á morgnana.
Kaupið var venjulega tíkall á
nóttu. Hinir löngu dansleikir
hafa sjálfsagt byggst á því, að
þeir voru miklu fátíðari þá en nú.
Annars hafa sérfræðingar tjáð
mér, að það mundi vera heppi-
legra að mörgu leyti að loka
ekki dansstöðum fyrr en eins og
kl 3 á nóttu á föstudags- og laug-
ardagskvöldum. Um það leyti
hefðu flestir „rasað út“ og færu
þá beint í háttinn að dansleik
loknum. Eins og nú er, þegar
dansleikir hætta kl. 1, hafa allt-
of margir tilhneigingu til að
halda áfram gleðskap í heima-
húsum við glasaglaum og lausa-
ástir ,unz roða tekur af næsta
degi eða jafnvel lengur. Afleið-
ingarnar láta svo ekki á sér
standa.
Þá voru einnig mjög fróðleg
viðtöl Agnars við þá Alexander
Jóhannesson, prófessor, Agnar
Kofoed Hansen, flugmálastjóra
og Baldvin Jónsson, formann
Flugmálafélags íslands. Minntust
þeir þess, að 40 ár eru liðin síð-
an fyrsta flugvélin lenti hér á ís-
landi af ílujgi yfir hafið.
Á mánudagskvöld flutti Sigfús
Haukur Andrésson, skjalavörður,
erindi: „Ófarir Petersens, Eyrar
bakkakaupmanns.“ Var það
greinagóð og fróðleg frásögn af
dönskum kaupmanni er hóf verzl
unarrekstur á Eyrarbakka um
1790 eða um það
leyti sem einok-
unarverzlunin
var lögð niður,
enda yfirtók
hann konungs-
verzlun, sem áð-
ur hafði verið á
þessum stað. Á
Eyrarbakka
voru verzlunar-
Sigfús Haukur skilyrði á marg-
Andrésson. an hátt ágæt,
verzlunarum-
dæmið t.d. mjög stórt ,en samt
sem áður varð þetta lítið gróða-
fyrirtæki fyrir Petersen kaup-
mann. Dönsk yfirvöld voru líka
allströng við hann, hnepptu hann
t.d. um hríð í varðhald vegna
skulda, og er skemmst frá því að
segja að kaupmaður gekk slypp-
ur og snauður — og meira en það
— frá öllu saman. Svo er að sjá
sem rekstrarfjárskortur í byrjun
hafi átt einna drýgstan þátt í ó-
förum Petersens.
Síðar á mánuðagskvöld var
þátturinn: „Sitt sýnist hverjum".
Voru þau Kristinn Gíslason, verð
lagsstjóri, Erlendur Einarsson,
forstjóri SÍS, Sigríður Kristjáns-
dóttir, húsfreyja og Sveinn Ás-
geirsson, formaður neytendasam-
takanna, spurð um álit sitt á
frjálsri verðlagningu.
Kristinn Gíslason mælti fyrst-
ur. Hann sagði, að hjá sumum
væri orðið haft einskonar skamm
aryrði, en samkeppni lausnarorð
við hverskyns vanda, einskonar
sjálfvirkt stjórnarkerfi, sem
byggt væri á óumbreytanlegum
lögmálum .Aðrir hefðu svo þver-
öfuga afstöðu. Hjá þeim væri
haft lausnarorðið, en hverskonar
samkeppni skammaryrði. Meðal-
hófið væri þarna vandratað sagði
Kristinn. Hann sagðist telja opin-
fcer afskipti af vöruverði, í þeim
mæli sem þau tíðkuðust hjá okk-
ur, hvorki byggð á heimsku né
n.annvonzku, eins og sumir virt-
ust telja. Með tiliiti til þeirrar
reynslu, sem fengizt hefði hér á
landi, sagðist hann ekki telja auk
ið álagningarfrelsi til bóta.
Erlendur Einarsson, sem svar-
aði næstur, taldi frjálsa álagn-
ingu vera neytendum til hags-
bóta. Hann sagði
að þegar ströngu
verðlagseftirliti
hefði verið beitt
hér, hefði það
verið gert til að
reyna að halda
verðbólgu í
skefjum. En
verðlagseftirlit-
ið hefði reynst
„heiðarlega rekn
um“ fyrirtækj-
um fjötur um
fót. Hann sagði, að neytendur
þjrftu ekki annað en ganga inn
í næsta kaupfélag, til að fá vitn-
eskju um rétt verðlag á vöru.
Væri verðlagseftirlit, þegar af
þeirri ástæðu, ónauðsynlegt.
Sigríður Kristj ánsdóttir, hús-
Erlendur
Einarsson.
freyja, virtist ekki ásátt Erlendi
um það, að kaupfélögin önnuðust
verðlagseftirlitið. Hér á landi
mundi frjáls samkeppni ekki
r.jóta sín það vel, að hægt væri
eftirlitslaust að fela henni ákvörð
un vöruverðsins. í>á benti hún á,
að það kæmi oftast í hlut hús-
freyjunnar að gera dagleg inn-
kaup. Hefði hún oft alls engan
tíma til að fara búð úr búð, til
að leita að hagstæðustu vöru-
verði. Hún taldi því hagkvæmast
fyrir neytendur að hafa föst verð
lagsákvæði.
Sveinn Ásgeirsson sagði meðal
annars, að því væri ekki að neita,
að fast hámarksverð gæti jafnvel
haldið vöruverði uppi. Benti
fcann og á ýmsa fleiri annmarka
of mikilla hafta. Hann sagði þó,
að frjáls álagning yrði að vera
vissum skilyrðum bundin. T.d.
yrði þá frjáls verzlunarsam-
keppni einnig að öðru leyti og
frjáls verðmyndun að vera fyrir
hendi. Meðan svo væri ekki, taldi
hann betra, að neytendur hefðu
hönd í bagga um ákvörðun vöru-
verðs og beittu til þess stjórnar-
völdunum,
Þáttur þessi var mjög fróðleg-
ur og athyglisverður. Fulltrúi
samvinnufélaganna var sá eini,
sem vildi skilyrðislaust frjálsa
álagningu. Virtist hann telja, að
samvinnufélögin mundu nánast
sjálfkrafa tryggja „heiðarlega"
álagningu. Ekki lét hann þess
getið, hvort samvinnufélögin
mundu hækka eða lækka álagn-
inguna, ef þau fengju frjálsræði
til þess. Hlustendur verða að láta
sér nægja að geta þar í eyðurn-
ar.
Dr. Áskell Löve, prófessor,
flutti síðari hluta hugleiðinga
sinna um lífið og tilveruna á
þriðjudagskvöldið. Nefndi hann
þann hluta: „Guð í alheims
geymi.“
Hann taldi nær fullvíst, að
„sálarverur" væru til á fleiri
fcnöttum en jörðinni. Hins vegar
væri fjarlægðin til þeirra svö
rnikil, að óhugsandi mætti kalla
að ná nokkru sinni sambandi við
þær. Gætu næstu sálarverur
varla verið nær en í 180,000 ljós-
ára fjarlægð. Hitt var þó öllu
lakara, að Áskell taldi, að Guð
væri í of mikilli fjarlægð frá
mönnunum til þess að hafa að-
stöðu til að bænheyra þá, þótt
gert væri ráð fyrir, að hann væri
staðsettur úti í himingeimnum,
sem hann hafði nú raunar ekki
mikla trú á. En Ásgeir hugsaði
sér .guðlegan rafheila“ 2ö ljósár
úti í geimnum. Taldi hann marga
mundu vera orðna langeygða eft
ir afgreiðslu, áður en þeir fengju
svar við bænum sínum slika óra
vegalengd.
Áskell taldi, að lífið hefði er\g-
an tilgang „nema í sjálfu sér“
eins Otg listin. Hann sagði, að
Guð væri rödd samvizkunnar og
okkar eigin siðferðiskennd. Trú-
in á Guð hefði gildj til mann-
bóta og líknarverka. Ekki kvað
Áskell lif að loknu þessu.
Erindi Áskels var mjög fróð-
legt og að ekki ástæða til að snú-
ast með ofstæki gegn kenningum
fcans. Þótt flestir trúi á guð, þá
má segja, að menn hafi enn eng-
ar skjallegar sannanir fyrir til-
vist hans, né lífi að loknu þessu,
fremur en vísindin fyrir hinu
gagnstæða. En einkennilegt
finnst mér, hve margir ræðu-
menn útvarpsins hafa hneigð til
að hnýta í Guð um þetta leyti.
Sennilega er það merki um gott
heilsufar og almenna velmegun,
því að sjaldan láta menn Guð
igjalda þess, að hann er ekki til,
ef sjúkdómar og sorgir steðja að
þeim og menn telja sig geta haft
eitthvað gott jlí honum.
Þetta kvöld hóf Stefán Sigurðs
son, kennari, lestur nýrrar kvöld
sögu. Nefnist hún „Flugslys á
jökli“ og er eftir Franzisko
Omelka. Stefán er orðinn all-
þekktur útvarpsmaður, jafnvígur
á passiusálma, barnasögur, espe
rantókennslu o.fl.
Á miðvikudagskvöld sá Jónas
St. Lúðvíksson um dagskrá:
„Vestmannaeyjar í blíðu og
stríðu“. Kom þar fram margvís-
legur fróðleikur úr sögu Vest-
mannaeyja frá ýmsum tímum.
Þá las dr.
Broddi Jóhann-
esson, skóla-
stjóri 5 kvæði,
eftir Jónas Hall-
grimsson,
Snorra Hjartar-
son, Einar Bene-
diktsson, Tómas
^^HHMMHHMGuðmund.sson
g Davíð Set-
'^B^^^Bfánsson .Broddi
Dr. Broddi hefur rödd, sem
Jóhannesson. er gædd slíkum
náttúrulegum
hrynjanda, að hann les bundið
mál nálega sjálfkrafa vel upp.
Stundum finnst manni, að þeir
menn gætu náð enn meiri áhrif-
um með smá tilbrigðum, en slíkt
er ávalt vafasamt. Hættan er sú,
að menn fái falska mynt fyrir
ekta gjaldeyri.
Á fimmtudagskvöld las Gísll
J. Astþórsson smásögu i gaman-
sömum stíl, sem hann nefndi „Líf
og list“. Fannst mér næsta erfitt
að fá áhuga á efni hennar, en
húmorinn hins vegar of ódýr og
cpinn, til að skapa list af sjálfum
sér.
Síðar kynnti Jón R. Kjartans-
son söngplötur Sigurðar Skag-
íield (1896-1956). Jón kvað Sig-
urð hafa sungið inn á flestar
hljómplötur
allra íslenzkra
söngvara, eða
ekki færri en 57
talsins. Hann
hafði óvenjulega
mikið raddsvið
og aflaði sér
frægðar með
söng sínum
bæði austan hafs
og vestan. Sig-
urður var Skag
firðingur. í sam
bandi við það lét
Jón þess getið, að flestir beztu
tenórsöngvarar okkar hefðu ver-
ið Norðlendingar, en baryton-
söngvarar hefðu einkum komið
af Suðurlandi. Fann hann enga
viðhlítandi skýringu á því, en
Framhald á bls. 14.
Sigurður
Skagfield.
• Varnarliðsmenn og
íslendingar
Guðrún S. Helgadóttir sendi
Velvakanda eftirfarandi bréf,
sem hún skrifaði vegna grein-
arkorns konu einnar, er birtist
í málgagni Sovétríkjanna á ís-
landi miðvikudaginn 4. ágúst:
„Þann 5. ágúst 1964 las ég
grein í „Þjóðviljanum" um álit
konu einnar á varnarliðsstöð-
inni á Keflavíkurvelli. Ég get
ekki staðizt þá freistingu að
skrifa Velvakanda örfá orð um
sama málefni. Ég nefni það áð-
ur, að ég er ekki með neinum
amerískum hermanni, né trúlof
uð eða gift neinum þeirra.
Ég hef tekið eftir því, hvað
sumir íslendingar líta niður á
bandariska hermenn. En hvers
vegna? Hvað hafa þessir menn
gert okkur? Myrt einhver skyld
menni okkar, stolið frá okkur,
gengið um bæinn drukknir og
látið öllum illum látum? Nei,
það hafa þeir eigi gjört. Ef svo
væri, mundi ég skilja fyrirlitn-
ingu sumra ykkar. Er það ein-
kennisbúningurinn, sem þið
fyrirlítið? Hvað mundi verða
gert, ef hermaður sunnan af
Keflavíkurvelli kæmd óeinkenn
isklæddur í bæinn? Þá yrði
ekkert sagt.
Hið eina, sem þeir gera hér,
er að vera viðbúnir að verja
frelsi okkar.
Konan, sem skrifaði áður-
nefnda grein, talar um öll óskil
getnu börnin, sem fæðast hér á
landi. Því miður, kæra frú, þá
er það ekki allt Ameríkönum
að kenna. (Hefur fæðingartala
óskilgetinna barna ekki fremur
lækkað upp á síðkastið?). Svo
eru til, því miður, fáeinar stúlk
ur hér í bæ, sem hafa komið
óorði á hermennina vegna
framkomu sinnar. (Fóru þær
ekki „út í skip“ hér í gamla
daga?). Hvernig væri að hugsa
um það?
Þá minnist ég eins atriðis.
Hvers vegna eru stúlkur, sem
ganga um bæinn, dæmdar götu
etelpur umhugsunarlaust af
ókunnugu fólki? Fólk hér gerir
of mikið af því að dæma hvern
sem er, áður en það þekkir
sjálfa persónuna. Ég hef með
eigin augum séð margar fram-
úrskrandi stúlkur með amer-
ískum hermönnum. Sem dæmi
þekki ég sjálf tvær.
Já, íslendingar, við gerum
sjálfum okkur mikinn óleik, af
því að við högum okkur stund
um eins og þjóð, sem ekki kann
mannasiði. Við erum litil þjóð
með mikið stolt, en enginn má
láta stolt sitt stíga sér til höf-
uðs. Við eigum nóg af auðu
landi, svo að við þurfum ekki
að sjá eftir auðum og hrikaleg
um landsskika suður í Keflavík.
Látum nú þessa ungu menn
vera í friði. Þeir eru að þjóna
landi sínu og landi okkar, þjóð
þeirra og þjóð okkar, með miklu
stolti. Þeim hefur verið trúað
fyrir varðstöðuskyldu hér á
íslandi, og þeir standa vel í
stöðu sinni, sem betur fer. Setj-
ið ykkur, góðir íslendingar, í
spor þeirra. Hvernig mundi ykk
ur líða í ókunnugu landi á
æskualdri?
Guðrún S. Helgadóttir.M
• Varnarliðið verður
hér, meðan okkur
sýnist
Sem betur fer, þá er sambúð
íslendinga og varnarliðsmanna
mjög góð, eins og nú standa
sakir. Hér áður fyrri komu
stundum fyrir einstök tilvik,
sem kommúnistar blésu upp,
en þeim er uppálagt að spilla
sambúð vestrænna þjóða, sem
þeir mest mega. Er það skiljan-
legt. Því miður tókst þeim stund
um fyrr á árum að æsa fók upp,
með því að spila á nótur mis-
skilins þjóðarstolts og þjóðar-
rembings; en þetta er liðin tíð.
Við vitum, að dvöl varnarliðs
hér er nauðsynleg, ef ekki á að
fara fyrir okkur eins og t.d.
Eystrasaltsþjóðunum. Því fögn
um við dvöl Bandaríkjamanna
hér, enda báðum við sjálfir um
þá, og vitum, að ísland verður
ekki gleypt „þegjandi og hljóða
laust.“
Hér dvelst bandarískt varnar
lið svo lengi sem okkur sjálf-
um sýnist, Bandaríkin vilja
verja okkur og við erurn 1
NATO. Engar kalkaðar komma
kerlingar koma í veg fyrir það.
BOSCH
kæliskApar
frá 4W;—8Vá cub.fet.
Ennfremur
FRYSTIKISTUR
Söluumboð
HÚSPRÝÐI h.f.
Sími 20440 og 20441