Morgunblaðið - 13.08.1964, Síða 24
TVÖFALT
EINANGRUNARGLER
20ára reynsla hérlendi»
EGGERT KRISTJANSSON «C
•jE13
KELVINATOR
KÆLISKAPAR
JHekls LAUGAVEGI
187. tbl. — Fimmtudagur 13. ágúst 196Í
Vestmannaeyjum, 12. ágúst —
FRÁ I>VÍ um miðjan júní haía
borizt á land um 120 þúsund
tunnur af síid. Hér hafa verið
stöðugt 15 til 20 bátar á síldveið
um, sem sumir hafa aflað prýði-
lega. Þeir hæstu hafa veitt um
15 — 16 þúsund tunnur. Aflinn
hefur næstum allur farið í
bræðslu og hafa verksmiðjumar
alltaf verið í gangi. Ekkert hefur
verið hægt að frysta af síldinni,
þar sem hún var of mögur í
fyrstu og síðan var í henni of
mikið af átu.
Síldin hefur að mestu veiðzt
um klukkustundar siglingu vest-
an við Eyjar, eða á svæðinu kring
um Surtsey. Undanfarna viku
hefur mjög lítið aflazt og nokkr-
ir bátanna farið austur til síld-
veiða þar, en sumir þeirra höfðu
einmitt komið til Eyja þaðan,
þegar lægð var í veiðinni á'aust-
Enn steinn í f ram-
ursvæðinu. Nú er tekið að ganga
á síldarbirgðir verksmiðjanna, og
hafa þær aðeins verkefni til
tveggja eða þriggja sólarhringa.
Björn.
545
ur
Laxo
Leirársveit
rúðu
Akranesi, 12. ágúst.
SVO bar við kl. 23 í gærkveldi,
nálægt Akranesvegamótunum,
að G-bíll úr Hafnarfirði var á
leið suður. Þeir, sem í bílnum
sátu, voru í sólskinsskapi, eftir
að hafa ferðazt sumarlangan
daginn ,en þá buldi við brestur,
er steinn hafði þeytzt á fieygi-
ferð undan hjólbarða bíls, sem á
móti kom, og braut framrúðuna
í Hafnarfjarðarbílnum. Þetta var
dökk Opel-bifreið, sem spjöllun-
um olli, og var horfin án þess að
númer hennar næðist. Lögregl-
unni hafði ekki tekizt að hafa
upp á Opelnum kl. 5 í dag. Eng-
inn meiddist, svo að vitað sé.
— Oddur.
Akranesi, 12. ágúst.
545 LAXAR hafa verið veiddir í
Laxá í Leirársveit í sumar.
Tregt var í byrjun, en þegar fór
að hellirigna dag eftir dag og
áin óx, færðist fjör í laxana og
veiðimennina. Júlímánuður gaf
ágæta veiði. Mesta veiði á ein-
um degi var 46 laxar. Á Eyjavísu
komu þarna menn af mörgum
þjóðernum. Auk íslendinga
veiddu þarna Danir, ítalir og
Ameríkumenn. Fóru þeir brott
hæstánægðir með aflann.
— Oddur.
nillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilMlllllllllllllllllllllilllllllllllllllllimillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllWf
Sjómælingar við Surtseyi
Sjómenn segjast hafa kastað á Surtlu-
héldu að hún væri síldartorfa
LANDHELGISGÆZLAN*
hefur í sumar unnið að mæl-
ingum á Surtsey og nágrenni
hennar. Morgunblaðið átti í
gær tal við Pétur Sigurðsson,
forstjóra, og Gunnar Berg-
steinsson, forstöðumann sjó-
mælinga LandhelgisgæzlunnT
ar. Gunnar fór á varðskipinu
Albert og vann að mælingum
þessum allan júlímánuð. Er
þegar tekið að vinna úr þess-
um upplýsingum.
Gunnar fiergsteinsson skýrði
svo frá, að tekin hefðu verið
á leigu elektríónisk tæki frá
Bretlandi til mælinganna.
Venjulega eru til staðarákvörð
unar skipinu, sem vinnur við
sjómælingar, notaður sextant
og mæld með honum lárétt
horn milli staða í landi. Á
þessu svæði sagði Gunnar að
erfitt væri 'að fá nákvæmar
staðsetningar á þann hátt og
þessvegna fengin Hydrodist
tæki til notkunar í Albert.
Með Hydrodist tækjunum er
hægt að mæla fjarlægðir með
mikilli nákvæmni o>g þannig
.fá góða staðsetningu til íð
nota við dýptarmælingarnar.
Bráðabirgðaleiðrétting við
sjókort mun bráðlega verða
gefin út. Hins veg'ar kvað
Gunnar endanlega leiðréttingu
ekki vera senda út fyrr en í
vetur, þegar þúið verður að
vinna til fuils úr öllum upp-
lýsingum.
Helztu breytingar á sjávar-
botninum á þessum slóðum
kvað Gunnar vera svokallaða
Surtlu,' þar sem gos varð síð-
ustu daga desembermánaðar.
Þar er nú grunn á nokkru
svæði, grynnst 20 metrar.
Dýpið kringum Surtlu er 100
m, en jpvermá.l hennar er um
einn kílómetri neðst. Gunnar
sagði, að nokkrir síldarskip-
stjórar segðust hafa kastað á
Surtlu, þar' sem þeim virtist
hún vera síldartorfa í fisksjá
bátanna.
Kringum Surtsey er dýpið
120 til 130 metrar. Að sunn-
anverðu mun þó botninn vera
nokkru óreglulegri, þar sem
hraunrensli hefur náð tals-
vert í sjó fram. Aðrar breyting
ar á sjávarbotninum kvað
Gunnar ekki sjáanlegar, en
sagði þó, að dýptarmælingar
hefðu verið gisnar á þessu
svæði fyrir.
HJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillilllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIII HlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllljllllllllllllllliliiiiiiiiiiMiiijiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiu
1 fyrradag var unnið að lagfæringum á gangstéttum við Snorra-
braut og ennfremur voru ljósastaurar þar hækkaðir allmikið, eins
og sjá má á myndinni. Verða fluoresenljós á þessiun staurum og
koma p«.u álreiðanlega að góðu gagni í skammdeginu.. (Ljósm. MþJ,
Sv. Þ.)
120 þús. tunnur
á land í Eyjum
frá þvi um miðjan júní
Beinafundur
í Dýrafirði
ÞINGEYRI, 12. ágúst. — í dag
þegar verið var að ryðja nýjan
veg með jarðýtu milli bæjanna
Alviðru og Leitis í Þýrafirði var
komið niður á mannabein í svo-
kallaðri Leitisbrekku. Var þegar
hætt að vinna með jarðýtunni,
en samband haft við þjóðminja-
gerð yrði frekari athugun á svæð
inu í kring og ef fleira kæmi 1
ljós myndi maður frá safninu
koma vestur og kanna fundinn.
Við nánari eftirgrennslan hafa
fundizt hlutar af þremur beina-
grindum á staðnum. Ekki er vit-
að, hvernig á því stendur að
„ , „ „ þessi bein eru þarna, en sagnir
safmð og þvi tjlkynnt um fund herma> að fyrr á timum hafí
þennan. Fór það þess á leit, að I bænahús verið á Leiti. •
Trjáplöntur gróður-
settar í Drangey
Bæ Iíöfðaströnd, 12. ágúst — þá sennilega fleiri plöntur verða
í JÚNÍ sl. er Drangur sil.gdi gróÖ«^ettar,
með félaig úr ungmennasambandi
Skagfirðinga út í Drangey tók
Guðbjartur skipstjóri fjórar eða
fimm trjáplöntur, greni og reyni,
í Kofabrekku er gott skjól fyr-
ir norðan átt, en gróður er þar
enginn nema hávaxið gras. Er
svo víðar á eynni og sina geysihá
7 • ,7 , i svo að til mála hefur komið að
til groðursetnmgar í Kofabrekku „ , ,
brenna hana í vetur, en sumir
skammt frá Grettisbæli í Drang-
ey. Fyrir skömmu var kannað,
vilja álíta, að það yrði til að
, j.., * , „ auka Á)k, og því ekki víst
hvort plonturnar dofnuðu vel i hvort af sinubruna v€rður.
eynni, en kom þá í ljós, að reynir — -_______________________________
inn var dauður, en grenið dafnaði
vel. Hafa menn hér mikinn á-
huga á að sjá hvort plönturnar
geta lifað þarna áfram, og munu
Soltað í
159,437 tnnnui
n Rnulnrhöin
Óðinn hæsta
Isöltunarstöðin með
11 þús. tunnur
SÖLTUN á Raufarhöfn nam
á miðnætti í fyrrakvöld sam-
tals 59437 tunnum. Söltunin
skiptist þannig á stöðvamar-
ÓSinn 11,004 tunnur, Hafsilf-
ur 10,726, Borgir 9678, Óskars1
Jstöð 6316, Norðursíld 5800, |
Björg 4004, Síldin 3878, Gísla(
vík 3396, Skor 1281, Möl 185
og Hólmsteinn Helgason 65.
Síldarverksmiðjan á Raufar-
höfn hefur tekið á móti 3001
þús. málum af síld til
bræðslu.
Varð fyrir raflosti
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 12.
ágúst. — Skömmu fyrri hádegi
í dag var Hjörtur Sigurðsson, raf
virki frá Reykjavík, við vinnu
sína í stóra flugskýlinu á Kefla-
víkurflugvelli. Var hann að
prófa raflögn, er skammhlaup
varð á línunni og varð hann fyrir
raflosti og hlaut brunasár á
hendi. Var Hjörtur fluttur i
sjúkrahúsið í Keflavík. — B.Þ.
Siglir Tröllafoss
undir Liberíufána?
Óttar Möller, forstjóri Eim-
skipafélags íslands, skýrði
Mbl. svo frá í gær, að tveir
skipaskoðunarmenn kæmu til
Reykjavíkur í dag, þeirra
erinda að skoða Tröllafoss
fyrir væntanlega kaupendur
skipsins. Óttar sagði, að enn
þá væru samningar skammt á
veg komnir og skipaskoðunar
mennirnir mundu gefa skipa-
félaginu, sem kannske hefur
hug á að kaupa Tröllafoss,
skýrslu um ástand og útlit
skipsins, og muni þá fyrst
hægt að halda áfram samning
um.
Skipafélag þetta hefur
starfsemi sína í Bandaríkjun-
unum, en skip félagsins sigla
undir fána Liberiu.
Umbúðamiðstöð-
in h.f. stofnuð
í LÖGBIRTINGI, sem út kom í
síðustu viku, er tilkynning um
stofnun hlutafélagsins Umbúða-
miðstöðin h.f., sem annast mun
framleiðslu og sölu á öskjum og
umbúðum um fisk og sjávaraf-
urðir og annan skyldan atvinnu-
rekstur. Stjórn félagsins skipa:
Einar Sigurðsson, Rvík, formað-
ur, Gunnar Guðjónsson, Rvík,
varafórmaður, Qlafur Jónsson,
Rvík, ritari, Rafn Pétursson,
Flateyri og Þorvaldur E. Ás-
mundsson, Akranesi. Hlutafé fé-
lagsins er 5 milljónir króna og
skiptist í 10 þús., eitt þús. og 500
króna hluti. Hlutafjársöfnun er
lokið og greitt hlutafé nemur
2.610,000 krónum. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna í Reykjavík
hefur forkaupsrétt að fölum
hlutabréfum, síðan félagið sjálft
og loks hluthafar. Á þriggja ára
fresti, er lokið er rekstursreikn-
ingi hlutafélagsins fyrir árið á
undan, skal fara fram athugun á
heildarvörukaupum félaga S.H„
hjá hlutafélaginu .Skulu félagar
S.H., hvort sem þeir eru hluthaf-
ar eða ekki, eiga rétt á að kaupa
hlutabréf, er S.H. á í hlutafélag-
inu, í réttu hlutfalli við vöru-
kaup þeirra síðastliðin þrjú ár.
Ákvæði þetta skal koma til fram
kvæmda í fyrsta sinn á árinu
1967 og skulu þá lögð til grund-
vallar vörukaup, sem farið hafa
fram á árunum 1964, 1965 og
1966. Ekki er S.H. skylt að selja
meira en 20% af hlutabréfaeign
sinni í hvert sinn.