Morgunblaðið - 26.08.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1964, Blaðsíða 2
2 MORCUN BLAÐIÐ Miðvikudagur 26. ágúst 1964 Uppreisnarmenn í Kongó undirbúa sókn Rússnesk mótmæli vegna „hernaÖar- afskipta„ Bandarikjanna og Belgiu Bukavu og Moskvu, 26. ágúst (AP-NTB) SOVÉTRÍKIN mótmaeltu í dag „hernaðarafskiptum“ BeLgíu og Bandarikjanna í Kongó og segja í yfirlýsingu, sem Tass-frétta- stofan birti að „íbúar Kongó eigi sanna vini í Afríku — og ekki eingöngu í Afríku — sem eru færir um að veita þeim alla nauð synlega aðstoð“. Frá Kongó berast þær fregn- ir að uppreisnarmenn í Kivu- héraði hafi haldið út fyrir landa- mærin og inn í nágrannarikið Rwanda. Þar sló í bardaga milli innrásarmanna og rikishersins við bæinn Bugarama, og urðu uppreisnarmenn að hörfa yfir landamærin að nýju eftir harða orustu. í yfirlýsingu sovétstjórnar- innar segir að Bandaríkin sendi nú hundruð fallhlífahermanna til Kongó ásamt vopnabirgðum, og eru Bandaríkin sökuð um hernaðaraðgerðir í iandinu. Binnig segir í tilkynningunni áð 'belgískir hermann hafi tekið þátt í hernaðaraðgerðum í Konigó. Um 250 uppreisnarmenn tóku þátt í innrásinni í Rwanda, en talið er að þeir hafi valið þessa ieið til að komast að Bukavu, höfuðborg Kivu-héraðs í Kongó og ekki átt von á mótstöðu inn- lendra hermanna. Bærinn Bugar- ama er aðeins 50 km. fyrir sunnan Bukavu, sem stjórnar- herinn í Kongó náði á sitt vald í siðustu viku eftir harða bar- Aðalf undur Presta félags Islands AÐALFUNDUR Prestafélags ís- lands verður haldinn á föstudag- inn í Háskóla íslands. Hefst fundurinn^ kl. 9:30-f.h. með morg unbæn, er séra Sigurður Hauk- dal flytur. Klukkan 10. f.h. flytur formaður félagsins skýrslu stjórnarinnar. Kl. 11 f.h. fytur cand theol. Björn Björnsson fyrirlestur um guðfræðileg stormviðri í Bretlandi. Kl. 2 e.h. verður tekið fyrir endurskoðun á codex ethicus og kl, 4 e.h. verða önnur mál tekin fyrir og síðan fer fram stjórnarkjör. Kl. 8:30 um kvöldið verður samsæti að Gamla Garði fyrir presta og konur þeirra, og ræðumaður kvöldsins verður séra Sigurður Einarsson í HoltL daga og mikið mannfall úr báð- um liðum. Unnu hermann Kongóstjórnar að því í dag að fjarlægja lík failinna hermannna af götum Bukavu og hreinsa til í borginni. Fundust þá fjórir uppreisnarmenn, sem legið höfðu í felum í rústum póst- hússins, og voru þeir aliir felldir. Segir í fréttum frá Bukavu að alls hafi á fjórða hundrað manns fallið í bardög- um um borgina. Hvítir íbúar Bukavu halda áfram að flýja borgina af ótta við nýja gagnárás uppreisnar- manna, sem talin er yfirvofandi vegna liðssafnaðar 1 nánd við borgina. — S-Vietnam Framhald af bls. 1. lýsing stjórnarinnar birt, og er hún í fimm aðal-liðum: í fyrsta lagi: Stjórnarskráin frá 16. ágúst verður afnum- in. Felur þetta í sér afsögn stjórnarinnar. í öðru lagi: Boðað verður til Skyndifundar herráðsins, sem í eiga sæti 58 herfor- ingjar, tií að kjósa nýjan þjóðarleiðtoga. í þriðja lagi. Eftir að nýr leiðtogi hefur verið valiftn mun herráðið segja af sér og fulltrúarnir snúa sér að nýju að störfum sínum inn- an hersins með það fyrir augum að halda áfram bar- áttunni gegn kommúnisma. hlutleysisstefnu, nýlendu- stefnu og hverskonar ein- ræði. í fjórða lagi: Hinn nýi leið- togi mun kalla saman þjóð- þing til að ganga frá stjórn- armyndun samkvæmt vilja þjóðarinnar. í fimmta lagi: Þar til þessar breytingar hafa verið fram- kvæmdar fer núverandi stjórn með völd í landinu. I frétt frá Washington segir að Bandaríkjastjórn haldi áfram stuðningi við ríkisstjórn Khanhs og við Khanh sjálfan. Átti Johnson forseti í dag fund með Óryggisráði Bandaríkjanna um ástandið, en engin tilkynning var gefin út í fundarlok. J NA !S hnúiar X Sn/óÁom* 7 Skúrir wss KuUatkil H Hmt | Ii/ SV50hnúfsr • C'l! £ Þrumur V \í0ifsdl = X gær var riltjandi átt hér þurt. Hitinn þar var 4—7 stig §{ S á Iandi norðlaag en hæg. í Reykjavík var minnstur |= = Sunnan lands og Vestan var hiti í fyrri nótt 1 stiig plús, í § = léttskýjað og hitinn á Suður- tveggja metra hæð en lág- s S ströndinni yfir 10 stig um markmælir niðaxr við jörð H S miðjan daginn en nyrðra var sýndi 5 stiga frost. E kalt og sólarlaust en víðast = e = iuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii)iiiiuiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i!iiiiiimmiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiu Biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einarsson, talar a Prestastefnunni í Haskolanum í gær. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). Prestastetna íslands hafin Haldin á jbessum tima árs vegna stjórnarfundar Lútherska heimssambandsins PRESTASTEFNA Islands 1964 hófst kl. 10:30 í gærmorgun með guðsþjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík að viðstöddum for- seta íslands, biskupshjónunum, vígslubiskupum og mörgum prest um landsins. Séra Jakob Jónsson prédikaði en séra Óskar J. Þor- láksson og séra Björn Jónsson þjónuðu fyrir altari. Kl. 2 e. h. setti biskup, herra Sigurbjörn Einarsson, prestastefnuna í kap- ellu Háskóla íslands með bæn og ávarpsorðum. Prestar sungu sálm og dr. Páll ísólfsson og Þórarinn Guðmundsson léku saman á orgel og fiðlu. Biskup gat þess m.a. í ávarpi sínu að Prestastefnan væri nú haldin á þessum tíma árs sökum stjórnarfundar Lútherska heims- sambandsins, sem hæfist um mán aðamótin. Gæfist prestum lands- ins nú kostur á að kynnast hin- um erlendu leiðtogum Lúthers- trúarmanna og sækja ýmsar sam- komur í sambandi við fundinn. Biskup kvað þennan fund heims- sambandsins hérlendis enn einn vott þess, að einangrun þjóðarinn ar væri nú úr sögunni, og ýmis erlend áhrif bærust þess í stað úr öllum áttum til landsins. Á því ylti hvernig íslenzk hugsun ynni úr því aðstreymi. Biskup kvað kirkjuna finna til ábyrgðar í þessu sambandi og kvað hana vilja vinna að því að vel tækist til. Kirkjunni ætti þjóðin m. a. það að þakka, að einangrun lands ins varð aldrei algjör og á um- byltingatímum hefði kirkjan ekki þýðingarminna hlutverki að gegna. Biskup kvað þjóðina aldrei hafa þurft á kirkjunni og leið- sögn hennar að halda sem nú. Þá vék biskup að lokum að vaxandi samstarfi og skilningi milli hinna ýmsu kirkjudeilda heimsins og kvað mannkyni skiljast æ betur að voðinn væri hinn sami alls staðar og hjálpin hin sama. Að ávarpi sínu loknu flutti biskup skýrslu sína um starf þjóðkirkjunnar á liðnu sýnódus- ári, en minntist fyrst séra Helga Sveinssonar, sem lézt á árinu og þriggja prestskvenna, sem ei'nnig létust á árinu, Guðrúnar Jónsdótt ur, Dorotheu Proppé og Margrét- ar Sigríðar Tómasdóttur. Við- staddir risu síðan úr sætum til að heiðra minningu hinna látnu. í skýrslu biskups kom m.a. fram það sem hér verður á eftir rakið. Á árinu tóku fimm kandi- datar prestsvígslu, Hreinn Hjart- arson, Lárus Þ. Guðmundsson, Bolli Þ. Gústafsson, Felix Ólafs- son og Frank Halldórsson. Þá minntist biskup þriggja nýrra starfa, sem til var stofnaoð á árinu. Séra Magnús Guðmunds- son, fyrrum prófastur, var ráðinn til að sinna sérstaklega þjónustu í sjúkrahúsum, séra Bragi Frið- riksson var skipaður prestur ís- lendinga búsettra á Keflavíkur- flugvelli og séra Jónas Gíslason var skipaður til fjögurra ára prestur fslendínga í Danmörku með 'búsetu £ Kaupmannahöfn. Tók biskup sérstaklega fram að stofnun embættis prests fyrir fs- lendinga í Danmörku ætti sér langan aðdraganda og væri það starf jafnframt hugsað fyrir presta, sem vildu leggja stund á framhaldsnám í guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla. Tveir prestar fengu lausn frá embætti á árinu, þeir séra Magn- ús Guðmundsson, prófastur í Ól- afsvík, og séra Gísli Brynjólfs- son, prófastur að Kirkjubæjar- klaustri. Ýmsar aðrar breytingar urðu á þjónustu presta í landinu og rakti biskup þær. Tveir pró- fastar vorU skipaðir á árinu, séra Þorgrímur Sigurðsson á Staðar- stað og séra Sigurður Guðmunds- son á Grenjaðarstað. Þrír prófast- ar voru settir. Séra Sigurður Stef ánsson, vígslubiskup að Möðru- völlum, fékk lausn frófastsstörf- um að eigin ósk. Á árinu var prestum fjölgað um sex í Reykjavík. Finnur Árnason, byggingameist ari, var skipaður eftirlitsmaður með prestssetrum og til þess að vera ráðunautur safnaða í kirkju- byggingum, og taldi biskup að mikið hefði áunnizt með þessu starfi. Þá var einnig ráðinn um- sjónarmaður kirkjugarða samkv. nýjum lögum þar að lútandi, Aðalsteinn Steindórsson garð- yrkjumaður. Biskup sagði að kirkjan hefði nú 128 prestsembætti auk djákna og væri óskipað £11 embætti, en þeim væri þjónað af nágranna- prestum. í sumum prestakallanna væri orðin mikil fólksfæð og byggðir afskekktar. Kvað biskup ekki verða hjá þvi komizt til lengdar að taka skipan þessara prestakalla til endurskoðunar 1 samræmi við breytta tima og að- stæður. Vígðar voru tvær nýjar kirkjur á árinu, i Barðastrandarprófasts- dæmi, að Reykhólum og Breiðu- vík. Kirkja var endurbyggð og endurvígð í Krísuvík og Stokks- eyrarkirkja endurbyggð. Þá voru og byggðar sumarbúðir þjóðkirkj unnar við Vestmannsvatn í Aðal- dal. Margar' kirkjur eru nú i smíðum. Styrkur var veittur á fjárlög- um til byggingar Hallgrímskirkju og smíði hennar haldið áfram. Biskup sagði að á liðnum vetri hefði verið gerð töluverð hríð að þeim framkvæmdum og sagði að ef einhverjir hefðu munað þessa atrennu hafi það fremur verið í jákvæða átt fyrir kirkjuna en hitt. Einnig gat biskup þess að minnzt hefði verið 350 ára af- mælis Hallgríms Péturssonar á árinu og Lútherska heimssam- bandið hefði veitt eina milljón króna til styrktar byggingar Hall grímskirkju, en fé þetta fer um hendur sambandsins frá sænsku kirkjunni. Þakkaði biskup höfð- inglega gjöf og lét í Ijósi ósk um að hún mætti örva landsmenn alla til almennari stuðnings við minningarkirkju trúarskáldsins. Þá minntist biskup á fram- kvæmdir £ Skálholti. Þar er full- gerður embættisbústaður, og unn ið að áætlun um vatnsveitu fyrir staðinn. Unnið hefur verið að sumarbúðum í sumar. Miðar því verki vel. Biskup gat þess og að Skálholtsskóla hafi í vor borizt álitleg fjárhæð frá Vestur-íslend- ingum. Kvað biskup það hug- mynd sína að veita guðfræði- stúdentum tækifæri til sumar- dvalar að Skálholti í framtíðinni og þeir ynnu þá jafnframt að þeim framkvæmdum, sem á döf- inni væru hverju sinni. Síðdegis í gær var fundi presta- stefnunnar haldið áfram í Hátíða sal Háskólans. Voru þar flutt framsöguerindi um aðalmál prestastefnunnar að þessu sinnL fermingarfræðsluna. Framsögu- menn voru séra Þorbergur Krist- jánsson og séra Páll Pálsson, og Helgi Elíasson, fræðsIumálastjórL Ennfremur var kosið í nefndir. Fundir prestastefnunnar halda áfram í dag, og henni lýkur á morgun, fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.