Morgunblaðið - 26.08.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.08.1964, Blaðsíða 22
22 MORCUN BLAÐIÐ Miðvikudagur 26. ágúst 1964 Akihito Japansprins taki við OL-eldinum AKIHITO Japansprins mun sennilega koma við sögu er Ólympíu- eldurinn verður borinn inn á Ólympíuleikvanginn í Tókíó 10. októ- ber nk. Hefur ákvörðunum um gang mála við setningu leikanna skyndilega breytzt eftir að sjálfur Konstantín Grikkjakonungur af- henti eldinn í hendur fyrsta blysberanum. Rinjiro Deguchi, einn af nefnd- armönnum í japönsku Ólympíu- nefndinni, skýrði blaðamönnum frá þessu í gær. Var hann einn þeirra Japana sem sóttu Ólympíu eldinn til Grikklands og kvaðst hafa orðið mjög snortinn af hvern áhuga konungur Grikkja hefði sýnt þessu máli. Því hefði hann átt uppástungu við japönsku nefndina um að Aki- hito prins taki við blysinu inni á leikvanginum í Tókíó úr hendi næst síðasta blysberans frammi fyrir heiðursstúku vallarins og rétti það Yoshinori Sakar, sem valinn hefur verið þl að hlaupa síðasta spölinn með eldinn inni é vellinum og tendra hann á altari vallarins. Ódýr ferð til LIVERPOOL í SAMBANDI við leik K.R. og Liverpol í Liverpool 14. sept. hef ur K.R. tekið á leigu flugvél sem fer frá Reykjavík föstudaginn 11. sept. og kemur aftur þriðjudag- inn 15. sept. Flogið verður með 80 mann-a flugvél og geta stuðn- ingsmenn félagsins fengið keypt far með vélinni á mjög légu verði svo lengi sem pláss er fyrir hendi. Eins og stendur eru nokk- ur pláss laus. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í síma 13025 og 33086. Á mánudag fóru kappliðsstúlkur Vals í meistaraflokki til keppni á Norðurlöndum. Þær eru ný- bakaðir íslandsmeistarar í úti- handknattleik og má því segja að veganestið sé gott. Fararstjóri er Þórarinn Eyþórsson þjálfari liðsins. Stúlkurnar fengu sér allar laglogar peysur og skreyttu með Valsmerkinu svo þær koma til með að vekja athygli á Karl Johan og á Stríkinu. Í»AÐ eru margir hnuggnir yfir frammistöðu okkar lands- liðs í knattspyrnu — ekki sízt s.I. sunnudag. í leikhléi þá var 11 drengjum úr Fram sem unnið höfðu til verð- launa fyrir knatthæfni afhent heiðursmerki sín. Þessir ungu piltar horfðu svo á landsleikinn — sem alla aðra leiki og vonandi Á ALÞJÓÐLEGU frjálsíþrótta móti Karlstad í Svíþjóð varð Guðmundur Hermannsson KR 2. í kúluvarpi og varpaði 16,61 m að því er segir í frétta- skeyti frá NTB í gærkvöldi. Þetta er langbezti árangur Guðmundar Hermannssonar, sem nálgast hefur 16 m mark- ið oftlega en ekki yfirstígið, þar til nú að hann heggur mjög nærri hinu gamla meti Gusnars Huseby 16,74 m sem sett var er Gunnar varð Evrópumeistari í Brussel 1950. Sigurvegari í keppninni í Karlstad var Norðmaðurirm Björn Bang Andersen sem varpaði 17,19 m. Ekki hafa aðrir íslendingar sem þarna kepptu komizt framarlega á móUnu, því aðr- ir eru ekki nefndir. Bezta afrek mótsins var kringlukast Tékkans Ludvik Danek sem kastaði 01,08 m en norski methafinn Stein John- sen sem var næstur kastaði 52,72. Héraðssamband þing- eyinga 50 ára Óskar Ágústsson sæmdur gullmerki ISI HÚSAVÍK, 24. ágúst — Héraðs- samband Þingeyinga minnist samband Þingeyinga minntist fimmtíu ára afmælis síns með veglegu hófi að Laugum í gær. Hóf þetta sátu um 250 manns víðsvegar að af landinu. Óskar Ágústsson, formaður IISÞ setti hófið, en veizlustjóri var Þráinn Þórisson. Sambandið var stofnað 31. október 1914 af átta félögum, en nú eru í því 742 félagar. HSÞ nefir látið til sín taka öll félags- og framfaramál héraðsins, en stærsta átakið á fyrstu árum þess var forganga um stofnun og byggingu Laugaskóla. En hin síðari ár hefir starfsemi Sam- bandsins meira beinzt að íþrótt- um og hefir það skapað sér góða aðstöðu til íþróttaiðkana að Laugum með byggingu íþrótta- vallar og fleiru. Á sviði íþrótta hefir hróður sambandsins mestur verið af skíðamönnum þess, sem hafa meðal annars keppt á Olym píuleikunum, en auk þess átt marga liðtæka menn í frjálsum iþróttum og góðar sveitir í hand bolta. Fyrsta íþróttaþjálfarann réði sambandið til sín 1915. Var það Guðmundur Kr. Guðmunds son, nú skrifstofustjóri í Reykja- vík. Alls töluðu 26 manns í hófi þessu og margar gjafir voru sam bandinp færðar. Skúli Þorsteins son, framkvæmdastjóri, afhenti sambandinu borðfána U.M.F.Í. á silfurstöng. Gísli Halldórsson, for seti ÍSÍ sæmdi Óskar Ágústsson læra þeir af hvorttveggju; það af leiknum að auka þarf veg ísl. knattspyrnu og það af knattþrautunum sem þeir hafa - numið og unnið, að knattspyrnu þarf vel að þjálfa og vel að stunda ef hún á að vera skemmtileg. Myndina tók Sv. Þormss. er Framararnir fengu merki sin- Óskar Ágústsson gullmerki ÍSÍ og afhenti sam- bandinu veggskjöld ÍSÍ, ísak Guðmann, formaður íþrótta- bandalags Akureyrar gaf sam- bandinu silfurbikar til keppni, Sveinn Jónsson, form. UMSE færði því áletraðan silfurskjöld frá sínu sambandi, Stefán Krist- jánsson íþróttakennari oig frú hans gáfu silfurbikar til keppni á unglingamóti, Jón Illugasön, formaður UMF Mývetninga af- henti sambandinu 10 þús. kr. að gjöf frá sínu félagi og svo gerði einnig UMF Bjarmi í Höfða- hverfi. Aðrir ræðumenn voru Jónas Jónsson frá Hriflu, Jónas Jóns- son frá Brekknakoti, Sigfús Jóna son, Einarsstöðum, Jón Sigurðs- son, Yzta-Felli, Brynjar Halldóra son, formaður Ungmennasam- bands Norður-Þingeyinga, Guð- mundur Kr. Guðmundsson, Reykjavík, Elín Friðriksdóttir, Laugum, Gunnlaugur Gunnars- son, Kasthvammi, Þórir Stein- þórsson, skólastjóri Reykholti, Karl Kristjánsson, alþingismaður Ármann Dalmannsson, Akur- eyri, Pétur Jónsson, Reynihlíð, Jón Jónsson, Fremsta Felli og Arnór Sigurjónsson, fyrrverandi skólastjóri. Frumort kvæði fluttu . Þórólfur Jónasson, Hraunkoti, Ketill Indriðason, Fjalli, Páll H. Jónsson frá Laugum, Steingrím- ur Baldvinsson Nesi, Jón Aðal- steinsson Lyngbrekku og Þor- Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.