Morgunblaðið - 26.08.1964, Page 3
Miðvikudagur 26. ágúst 1964
MORGUNBLAÐIÐ
3
% j- 4XSftW '
.. .-...^.tto_^\v.<v.-aVv\)»a->.v.v.v.-V.v"”.sw.-.v.v.v.vv.v.vv--.v.v- .v. ....... ...... * •• ......^.y.....^... v vy.■"■'«)
>
Verðir lag-anna hafa auga með l>ví, að bifreiðastjórar fari eftir settum umferðarreglum. Ekki verður annað séð en að hér sé
allt í bezta lagi. — Sveinn Þornióðsson, Ijásmyndari Mbl. tók myndirnar.
Ökuþórar teknir til bæna
- með aðstoð lítilla sendistöðva
ÞEIR MEGA nú fara að
vara sig, ökubórarnir í
borginni, bví að umferða-
deild lögreglunnar í Rvík
hefur tekið í sína bágu svo
kölluð ,walkie-talkie‘ tæki
Ekki er okkur kunnugt um
íslenzkt orð yfir betta hug
tak, en á ensku er bað
myndað af sögnunum að
ganga og að tala. Hér er
um að ræða litlar sendi-
stöðvar með rafhlöðu —
í senn handhægar og hag-
kvæmar.
Þessi tæki eiga éflaust eft-
ir að koma að góðum notum
og gera lögreglunni hægra um
vik með að hafa hemil á
gálausum ökuiþórum. Auk
þess eru þau tiltölulega ódýr,
— hvert tæki kostar um 2.500
krónur, en taltæki þau, sem
hifhjólaknaparnir hafa á hjól
um sínum kosta um 50 þús-
und. Er sýnt, að tæki þessi
munu hafa mikinn sparnað í
för með sér, auk þess sem þau
eru vel til þess fallin að skapa
betri umferðamenningu.
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins áttu leið um
Miklatorg í gær. Umferðin
var gífurleg, bifreiðir
streymdu að úr öllum áttum.
Götumálunard-eild borgarinn-
ar var að störfum á Miklu-
brautinni, þannig að umferða
þunginn hvíldi allur öðrumeg
in götunnar. Yfirvöld í reið-
buxum og leðurjökkum stjórn
uðu umferðinni með festu og
höfðu auga með því, að eng-
inn svindlaði sér í röðinnL
Kæmi það fyrir, var Sigurður
Ágústsson, varðstjóri umferð-
ardeildarinnar, tilbúinn að
taka til sinna ráða. Hann
gætti þess, að bifreiðastjóraí*
virtu umferðaréttinn á Mikla-
torgi. Þar stóð hann eins og
herforingi með þarfaþingið
,,walkie-talkie“ í höndum.
Yrði einhverjum bifreiða-
stjóranum á í messunni, var
hann snarlega stöðvaður og
honunr hlýtt yfir umferða-
reglurnar. Vart þarf frekari
bollaleggingar um það, hvað
gert yrði í málinu, ef við-
komandi félli á því prófi.
Kæmi það hins vegar fyrir,
sem telja verður hálfu alvar-
legra, að ökuþór virti að vett-
ugi stöðvunarmerki lögreglu-
þjónsins og hugsaði sér gott
til glóðaririnar að geta stung-
ið af, var það framtak dæmt
til glötunar. Sigurður mundi
þá einfaldlega kalla í appa-
ratið sitt — og byrsta sig
jafnvel — og gera lögreglu-
þjóninum á gatnamótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar,
sem þar var til staðar með
annað „walkie-talkie“ tæki
aðvart. Sá laganna vörður
fengi það hlutverk að taka
hinn ósvífna ökuþór til bæna.
Margir bifreiðastjórar hafa
tilhneigingu til þess að láta
gamminn geisa á Miklubraut
inni, þvi að hvergi liggur
beinni né breiðari vegur í
allri Reykjavík. Yfirleitt líta
menn fyrst í spegilinn, áður
en gefið er í, og sé ekkert
pólití sjáanlegt á næsta leiti,
er talið rökrétt að álykta að
ekkert sé því til fyrirstöðu að
láta hraðamælinn stíga upp í
100.
Úr því sem komið er, fara
möguleikar ökuþóra til þess
að láta gamminn geisa tak-
markalaust að takmarkast.
„Walkie-talkie“, þráðlausa
firðtalsenditækið góða, setur
strik í reikninginn. Tveir
laganna, verðir stilla sér nú
upp með hæfilegu millibili
á umferðabrautinni, hvor
með sitt senditæki. Sýnist
þeim hraði einhverrar bif-
reiðar óeðlilegur, er skeið-
klukkan einfaldlega sett í
gang hjá þeim sem fjær er,
Sigurður Ágústsson, varð-
stjóri hjá Umferðadeild lög-
reglunnar með talsenditækiö.
að gefnu merki um leið og
bifreiðin ekur fram hjá þeim,
sem nær er.
Slíkar sendistöðvar geta
líka komið að góðum notum
við að leysa úr umferða-
hnútum, t.d. inn við Laugar-
dalsvöll eða á öðrum stöðum,
þar sem slíkar meiri háttar
samkomur fara fram. Þegar
frönsku vísindamennirnir
skutu eldflaugunum á loft á
loft á Mýrdalssandi fyrir
skörrimu, var bifhjólasveit
lögreglunnar mætt með slíkt
senditæki og naut aðstoðar
þeirra við að beina umferðar-
straumnum í réttan farveg.
Þessi litlu hjálpartæki lög-
reglunnar hafa þegar gefið
mjög góða raun. Þau eru einn
liður í herferð lögreglunnar
gegn umferðaslysunum.
a. ind.
I,
kt
Af svlp þelrra Magnúsar og Sigurðar má helzt ráða þetta:
„Eitthvað er hann ólöglegur þessi!“ Hvort átt er við Svein
Þormóðsson, sem framkvæmdi myndatökuna á miðri götu, eða
eiuhveru ökuþórinu, skal ósagt látið!
S 1\ K S T LI \ \ IS
Hár byggingarkostnaður
OFT hefur verið á það drepið,
hve byggingarkostnaður er hár
hér á landi. Dagblaðið Vísir segir
svo um þetta mál í forystugrein
í gær:
„I samningunum við verkalýðs
félögin í vor var eitt þýðingar-
mesta atriðið aukning íbúða-
bygginga og lána til þeirra. Það
var að vonum vegna þess, að fá
hagsmunamál eru stærri. Á það
hefur hins vegar oft verið bent í
ræðu og riti, að byggingarkostn-
aður sé óeðlilega hár hér á landi
og of mikill hluti launatekna fari
til húsnæðis — miklu stærri
hluti en í nágrannalöndunum. Á
þetta ekki hvað sízt við nú á sein
ustu árum. Þensla hefur verið
gífurleg í byggingariðnaðinum,
háir ákvæðisvinnutaxtar skapazt
vegna mikillar eftirspurnar eftir
byggingarvinnuafli og erfitt
reynzt að fá ibúðir byggðar á
venjulegum töxtum“.
20% of hár
„Einn reyndasti arkitekt þjóð-
arinnar, Gísli Halldórsson, færði
fyrir nokkru rök að því í merku
erindi, að byggingarkostnaðurinn
hér á landi væri 20% hærri en
hann þyrfti að vera. Það jafn-
gildir 100 þúsund krónum á
minnstu íbúð, og er auðsætt,
hver aukabaggi það er fyrir
meðalfjölskyldu, sem koma vill
þaki yfir höfuð sér“.
Innflutningur húsa
„Þess vegna er sjálfsagt að
kanna þá leið, hvort innflutning-
ur tilbúinna húsa, verksmiðju-
húsa, erlendis frá, sé ekki ein
lausn þessa vanda. Þeirri iðn-
grein Liefir fleygt mjög fram á
undanförnum árum, bæði á Norð-
urlöndunum og annars staðar í
Evrópu. Slík hús má kaupa af
öllum gerðum, og mun íslenzk-
um fjölskyldum þykja verð
þeirra hagstætt, borið saman við
byggingarkostnað hér á landi.
Hins vegar hafa háir tollar, 50%,
hindrað innflutning þeirra til
Iandsins. Sá tollur er óeðlilega
hár, því að tollur á byggingar-
efni er almennt ekki nema 35%.
Þess vegna kemur mjög til álita
að fella toll á tilbúnum húsum
algjörlega niður, meðan ofþensl-
an ríkir í byggingarmálum og at-
vinna er miklu meira en næg.
Ugglaust yrði sú ráðstöfun til
þess að flytja nýjar hugmyndir í
húsagerð inn í landið, lækka
byggingarkostnaðinn og minnka
þá spillingu, sem nú á sér stað á
byggingarmarkaðinum og öllum
er kunn“.
— Vatn á engjum
Framhald af síðu 24
minnkaSi þegar á daginn leið, og
leysti þá snjó nokkuð. Mikill
vöxtur hljóp í alla læki og nú er
mikið vatn á engjum í norður-
hluta dalsins. Vatnsdalsá hefur
þó lítið vaxið, en vatnið á engj-
unum kemur úr lækjum úr fjall-
inu og hálsinum.
Lítið hefur verið unnið að hey-
skap í Vatnsdal þessa viku og
sums staðar ekkert. Víðast er
mikið hey úti, en mest í sæti.
Hér í útdalnum hefur talsvert
víða flætt undir sætið, einkum á
hólmunum við Flóðið. Heyskap-
ur hefur yfirleitt gengið vel og
nýting heyja er ágæt. Hefðu flest-
ir lokið heyskap að mestöllu leyti
um mánaðamótin ef tið hefði
haldizt góð. Sumir væru nú þeg-
ar búnir. — Biörn.