Morgunblaðið - 26.08.1964, Qupperneq 12
12
MOKGUN BLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. ágúst 1964
Útgefandi:
Fr amk væmdas tj ór i:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslust j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
GRUNDVÖLLUR
LÍFSKJARANNA
Luigi Long í ræðustól 3
Eftirmaður Togiiattis |
Senrilegt a5 Luigi Longo verði
leiðtogi ítalska kommúnista
Ýslendingar vilja eins og
aðrar þjóðir búa við sem
bezt og þroskavænlegust lífs-
kjör. Ekkert er heldur sjálf-
sagðara og eðlilegra en að
starfsöm og dugmikil þjóð
stefni að því að búa sem bezt
í haginn fyrir sig og kynslóð-
ir framtíðarinnar.
Það er gleðileg staðreynd,
að íslendingum hefur á örfá-
um áratugum tekizt að fram-
kvæma stórvirki í landi sínu.
Hér hafa ein eða tvær kyn-
slóðir unnið uppbyggingar-
starf, sem margar kynslóðir
hafa unnið í öðrum löndum.
Þjóðinni hefur ekki aðeins
tekizt að vinna stórfelldar
framkvæmdir um land allt
og gera land sitt betra og arð-
gæfara. Hún hefur jafnframt
tryggt sér lífskjör, sem eru
sambærileg við það bezta
sem þekkist annars staðar í
heiminum.
En hvernig tókst íslending-
um að brjótast þessa leið frá
sárri fátækt til bjargálna?
Þeir hófust fyrst handa um
það að afla sér nýrra og full-
komnari tækja til þess að
bjarga sér með og hagnýta
gæði lands síns. Vélbátarn-
ir og togararnir leystu ára-
bátana og seglskúturnar af
hólmi. Arðurinn af starfi ís-
lenzkra sjómanna margfald-
aðist. Peningaveltan jókst,
verzlunin varð innlend, banka
starfsemi efldist, ræktunin
jókst, túnin stækkuðp, ís-
lenzkur iðnaður spratt upp,
verkaskipting þjóðarinnar
varð fjölbreyttari og allt
þjóðlífið margbreytilegra og
þróttmeira.
Ný fullkomnari og afkasta-
meiri atvinnutæki lögðu
þannig grundvöllinn að hin-
um nýju tækjum íslendinga.
í skjóli aukins arðs af hinum
nýju tækjum voru síðan fram
kvæmdar fjölþættar félags-
legar umbætur, á sviði menn-
ingarmála, heilbrigðismála,
lýðhjálpar og á öllum öðrum
sviðum þjóðlífsins.
FÁTÆKTIN Á
UNDANHALDI
Tslendingum hefur þannig á
örskömmum tíma tekízt
að hrekja á undanhald þann
óvin, sem þjóðin hefur háð
við langa og harða baráttu
öldum saman, fátæktina,
pymd og allsleysi.
Það sem mestu máli skiptir
nú er að.fylgja þessum sigri
eftir, því fjölmörg verkefni
bíða enn óleyst í hinu íslenzka
þjóðfélagi. Umfram allt verð-
ur að treysta grundvöll fram-
leiðslunnar, tryggja það að
íslenzk atvinnutæki séu rek-
in á heilbrigðum grundvelli,
þannig að þau skili eigend-
um sínum og því fólki sem
við þau starfar, eðlilegum
arði, sem geri því fært að
lifa við afkomuöryggi og
batnandi hag. Blómlegt og
þróttmikið atvinnulíf er einn-
ig frumskilyrði þess, að hægt
sé að halda uppi félagslegu
öryggi með víðtækum al-
mannatryggingum og full-
kominni lýðhjálp.
Okkur íslendinga greinir á
um margt og við deilum oft
hátt og harkalega. En mundu
ekki flestir íslendingar geta
orðið sammála um það, að til
þess að geta tryggt þjóðinni
afkomuöryggi og félagslegt
öryggi, þarf grundvöllur
sjálfra lífskjaranna fyrst og
fremst að vera traustur og
heilbrigður. Og grundvöllur-
inn er bjargræðisvegir þjóð-
arinnar, framleiðslutæki
hennar til lands og sjávar,
og arðurinn af þessum tækj-
um. Því miður höfum við ís-
lendingar stundum gengið gá-
lauslega um gleðinnar dyr í
velgengni undanfarinna ára.
Þess vegna hefur verðbólga
og dýrtíð magnazt og ýmis
konar upplausn sett svip sinn
á þjóðlífið. En yfirgnæfandi
meirihluti íslendinga vill taka
raunhæfum og ábyrgum tök-
um á vandamálunum á hverj-
um tíma og gerir sér það
jafnframt Ijóst, að til þess að
framfarasókninni og barátt-
unni fyrir bættum lífskjör-
um verði haldið áfram með
góðum árangri, verður þjóð-
in að sníða sér stakk eftir
vexti og miða kröfur sínar til
lífsins gæða við þann arð, sem
hún dregur í bú sitt á hverj-
um tíma. Það er aldrei hægt
að eyða meiru en því, sem
aflast.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur átt ríkan þátt í þeirri upp-
byggingu bjargræðisveganna,
sem skapað hefur þjóðinni
bætt lífskjör, aukið félagslegt
öryggi, bætt menntunarskil-
yrði og alhliða umbætur á öll-
um sviðum þjóðlífsins. Hann
mun halda áfram baráttu
sinni fyrir að treysta grund-
völl lífskjaranna, bæta þau
og skapa rúmgott og réttlátt
þjóðfélag á íslandi.
= NOKKRAR vangaveltur hafa
5 veriS um það hver tæki við
3 formennsku ítalska kommún-
3 istaflokksins eftir lát Palmir-
S os Togliattis sl. föstudag.
3 Skiptir það að sjálfsögðu tals-
H verðu máli þar sem hér er um
3 að ræða stærsta kommúnista-
| flokk í vestrænu ríki, og eru
3 skráðir flokksmenn hans um
3 1750 þúsund.
3 Fljótlega verður miðstjórn
H flokksins kölluð saman til
3 fundar til að kjósa formann
5 og er það álit flestra, sem til
S þekkja, að Luigi Longo verði
= fyrir valinu, en hann hefur
= verið varamaður Togliattis
3 frá 1946 ag starfandi formað-
= ur undanfarna mánuði vegna
= veikinda Togliattis.
H Þótt líklegast sé talið að
3 Longo verði kjörinn, hafa
= þrjú nöfn önnur verið nefnd
3 í þessu sambandi. Eru það
3 Giorgio Amendola, 56 ára,
5 sem lengi hefur verið fylgj-
3 andi meira „lýðræði" innan
3 flokksins og minni áhrifum
3 frá Moskvu. Þá er það Pietro
3 Ingora, 49 ára, forsvarsmaður
3 „kínversku línunnar“, og loks
= Giancarlo Pajetta 56 ára, sem
3 á sæti í miðstjórninni.
RAÐSTEFNUR
í REYKJAVÍK
|7jöldi norrænna og alþjóð-
* legra ráðstefna hefur á
þessu sumri verið haldinn hér
í Reykjavík. Er ástæða til
þess að fagna þeirri stað-
reynd. Heimsóknir margra
áhrifamanna frá mörgum
íöndum til íslands munu eiga
sinn þátt í því að auka þekk-
inguna á landi okkar og
stuðla að bættri aðstöðu þess
á ýmsa lund. Það er að vísu
svo að þær raddir heyrast oft
hér á landi að lítið gagn sé
að aðild íslands að alþjóðlegu
Isamstarfi. Það hafi aðeins í
Luigi Longo hefur verið fé
lagsbundinn kommémisti frá
1922, skömmu eftir að flokk-
urinn var stofnaður á Italíu.
Hann var áður fylgismaður
jafnaðarmanna, og starfaði
um tíma við málgagn þess
flokks, blaðið „Avanti". Við
þetta sama blað hafði Musso-
lini, síðar einræðisherra, starf
að áður en hann stofnaði fas-
istaflokk sinn árið 1919.
Eftir að Mussolini komst til
valda var öll starfsemi komm-
únista’ bönnuð á Ítalíu, og
næstu árin var Longo hand-
tekinn hvað eftir annað fyrir
að skipuleggja neðanjarðar-
starfsemi gegn stjórninni.
Varð hann loks að flýja land
árið 1927 og settist fyrst að
í Frakklandi þar sem hann
vann að skipulagningu æsku
lýðsstarfs á vegum flokksins.
Síðar var hann um tveggja
ára skeið í Moskvu.
Þegar borgarastyrjöldin
hófst á Spáni var Longo send
ur þangað, og varð einn helzti
leiðtogi útlendingahersveit-
anna, sem börðust gegn
Franco. En eftir sigur falang-
ista Francos sneri Longo aft-
ur til Parísar, Þar var hann
för með sér fjárhagsleg út-
gjöld vegna ferðalaga fárra
útvaldra á fundi og ráðstefn-
ur úti í löndum.
Vitanlega verða íslending-
ar að miða þátttöku sína í al-
þjóðlegu samstarfi við fjár-
hagslega getu sína og allar
aðstæður. En engum hugsandi
manni kemur til hugar að það
væri mögulegt fyrir íslend-
inga að einangra sig frá þátt-
töku í slíku samstarfi. Allar
þjóðir í öllum heimshlutum
gera sér ljóst að þær geta
ekki komizt hjá því að vinna
með öðrum þjóðum að lausn
fjölmargra þýðingarmikilla
mála. Að vísu miðar oft seint
í alþjóðlegu samstarfi og
handtekinn og sat í frönskum 3
fangelsum árin 1939-41. Eftir 3
sigur Þjóðverja framseldi 3
Petain-stjórnin Longo til Ita- 3
líu, og næstu tvö árin mátti 3
hann enn gista fangelsi Musso =
linis. 3
Eftir að Mussolini hafði ver 3
ið hrakinn frá völdum 1943 =
og Longo leystur úr haldi, tók 3
sá síðarnefndi að skipuleggja 3
skæruliðahernað gegn Þjóð- 3
verjum í norðurhéruðum íta- 3
líu, en þangað hafði Musso- =
lini leitað á náðir nazista. =
Gekk Longo þar vasklega 3
fram í baráttunni að hann 3
var sæmdur bronzstjörnu 3
bandaríska hersins í lok styrj 3
aldarinnar. Skömmu áður en H
styrjöldinni lauk náðu skæru- =
liðar að handtaka Mussolini 3
ásamt frillu hans, Clara 3
Petacci, og voru þau bæði 3
tekin af lífi sem kunnugt er. 3
Sagt er að fyrirskipunin um 3
aftökuna hafi komið beint frá 3
Luigi Longo.
Að stríðinu loknu var starf 3
semi kommúnistaflokksins 3
heimiluð að nýju á Ítalíu, og §|
hóf Longo þá fyrri störf sin =
þar. Hann var fyrst kosinn á j§
þing árið 1948 og hefur átt =
þar sæti síðan.
árangurinn er ekki mikill af
einstökum fundum og ráð-
stefnum. En heilbrigð kynni
þjóðanna og ráðamanna
þeirra aukast og verða nánari
með hverju árinu sem líður.
Af því leiðir aftur vaxandi
skilning á hagsmunum og lífs
viðhorfum hinna fjarskyld-
ustu og fjarlægustu þjóða.
Við lifum í dag í einum
heimi, þar sem örlög fólks-
ins verða stöðugt nátengdari.
Þess vegna stefnir hið víð-
tæka alþjóðlega samstarf í
rétta átt. Án þess tekst ekki
að eyða margvíslegum mis-
skilningi, sem skapar hættu á
ófriði og ógæfu meðal þjóð-
anna.
'llllllillllllllllllllllllllllllllllllllliillllllllilllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllll 'llllllllllllllllllllllllllillllillllllllillllllllllilllllllllllllllllilllllllllllllllliiiiiiiiiitiiiiiiniui