Morgunblaðið - 05.09.1964, Síða 1
24 siðiu}
i
Sð ákvörðun fræðsluyfirvaldanna, að 10 ára böm skuli hefja skólagönguna 1. septesmber í stað 1. öktóber, eins og hingað til,
hefur tiðkazt, hefur sætt mikilli gagnrýni barnanna. Blaðamaður Mbl. heimsótti 10 ára böm í Langholtsskóla, er þau mættu í
skólann fyrsta sinni og spurði þau ma., hvort þau villu heldur byrja í skólanum 1. október. Þessi mynd var tekin er bömin svör
nðu spuraingunni, en eins og hún sýnir, voru allar hendur hátt á lofti. — Sjá frásögn og myndir á bls. 10. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Stjórnin segir af sér - og situr
- herforingjaráöiö skiptir um nafn,
enginn skilur neitt í
neinu lengur
en páfi sendir kaþólskum
postullegar kveðjur og peninga
Saigon, 4. september, AP.
NGUYEN Khanh hershöfðingi
tók í dag aftur við embætti sem
forsætisráðherra Suður Viet-
BiiiHiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiu
Fyrst kvenna
upp ó tindínn
Kleine Scheidegg, Sviss, 4. sept.
— (NTB — AP) —
DAISY VOOG, 26 ára gömul
stúlka frá Múnchen, sem er einka
ritari að atvinnu, varð til þess
snemma í morgun, fyrst kvenna
i heiminum, að komast upp á
tind Eiger-fjallsins í Sviss, sem
er 3.975 metra hátt.
Með Daisy Voog kleif tindinn
fjallgöngumaðurinn Werner
Bittner, sem er 23 ára gamall og
reyndur fjallamaður. Þau klifu
upp norðurhlið fjallsins, sem tal-
in er sérlega viðsjál og kostað
hefur 27 manns lífið síðan menn
komust fyrst þangað upp árið
1938. Á norðurhlið Eigerfjalls
ekín aldrei sól og þar hrynur sí-
fellt úr fjallinu bæði grjót og
íshröngl.
Daisy Voog og Werner Bittner
lögðu á brattann í bítið á þriðju-
dag og sögðu að allt hefði gengið
vel, en þó hefði þetta að vísu
ekki verið neinn barnaleikur. —
„Og nú langar mig bara í ær-
legan drykk og hársnyrtingu,“
sagði Daisy Voog og brosti, er
henni var óskað til hamingju
með afrekið.
Nam, eftir fimm daga dvöl í
fjallabænum Dalat, sér til hvíld-
ar og hressingar að því er latið
var í veðri vaka, þótt forsætis-
ráðherrann væri í stöðugu sam-
bandi við samstarfsmenn sína í
Saigon allan tímann. Hann hafði
fund með blaðamönnum í Saigon
í morgun og kvaðst hafa veitt
viðtöku lausnarbeiðnum allra
ráðherra sinna og stjórnarnefnd-
armanna, sem tilheyrðu her lands
ins, þar á meðal lausnarbeiðni
sjálfs sin, en ailir myndu þeir
samt gegna störfum enn um sinn.
Khan sagði að þriggja-manna-
ráðið, sem sett var á Iaggiraar í
siðustu viku, myndi starfa áfram
en yrði nú kallað stjóraarnefnd.
Aðspurður hvort satt væri, að
einn herforingjanna þriggja, Tran
Thien .Khiem, hefði sagt af sér,
eins og talsmaður stjórnarinnar
lét hafa eftir sér fyrr um dág-
inn, sagði Khanh: „Khiem hers-
höfðingi situr enn í þriggja
manna stjÓTnarnefndinni, en
hann hefur sagt af sér stjórnar-
emibætti.“ Khiem var varnarmála
ráðherra og yfirmaður herliðsins
undir stjórn Khans. Gert er ráð
fyrir því að hann gegni þessum
störfum áfram enn um sdnn eins
og aðrir ráðlherrar, en Khanh
vildi ekki úts'kýra það nónar.
Þá skýrði Khanh frá visi að
tillögu, sem hann sagðist myndu
leggja fyrir þriggja-manna
stjórnarnefndina á næstunni, þar
sem gert er ráð fyrir því að
stofna lögfræðdngaxáð, sem geri
áætlun um nýja ríkisstjórn og
ljúki verkinu á tveim mónuðum.
Að þeim tíma loknum yrðu svo
lögð drög að nýrri stjórnarskrá
og bráðatoirgða-þingi. Kvaðst
Khanh gera ráð fyrix þvi að þetta
mætti takast fyrir árslok 1965,
og þá myndi efnt til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um nýju stjórnar-
skrána og ríkisstjórnina. Kvaðst
Khanh hafa beðið Duong Van
Minh, þriðja herforingjann í
stjórnarnefndinni, að takast á
hendur undirbúning al'lan að
þessu verki, en sagðist ekki
vitíi, hvort Minh myndi fást til
þessa né heldur hvort hinir her-
foringjarnir myndu samþykkja
þessa tillögu hans.
Aðspurður hvort lausnarbeiðn-
ir stjórna'rinnar hefðu í raun og
veru verið teknar til greina,
sagði Khanh það vera, það væri
eðlilegur gangur mála, „en auð-
vitað tekur það nokkurn tíma að
finna aðra menn í stað þeirra
sem sögðu af sér og munu þeir
Framhald á bls. 23.
Metkjör-
sókn í Chile
Santiago, 4. sept. AP.
KJÖBSÓKN í Chile í dag var
með fádæmum og voru biöraðir
manna við kjörstaðina áður en
opnað var klukkan átta í morg
un. Allt fór fram með friði og
spekt, en lögreglu- og hervörð-
ur var hafður á kjörstöðunum.
Veður var sagt gott um allt land
ið.
Áætlað er að um 2,5 milljón
manna hafi kosið í dag og var
áberandi mikil kjörsókn kvenna.
M.a. ól ein kona barn meöan hún
•beið þess að greiða atkvæði —
Kosningalöggjöf Chile heimilár
stjórnmálafundi tveim tímum
eftir að atkvæði hafa verið talin,
en Alessandri forseti gaf út til-
skipun þess efnis að engir fund-
ir yrðu leyfðir fyr en á laugar-
dagsmorgun. Var þetta gert til
iþess að koma í veg fyrir hugsan
legar óeiröir, en stjórrfin óttast
að til þeirra kurmi að koma,
hver sem úrslit kosninganna
verða..
Fylgzt er með kosningunum af
mikilli athygli víða um heim, en
einkum eru það þó Bandarikin
og Kúba sem eiga þar hagsmuna
að gæta. Frambjóðandi sósíalista,
Salvador Allende, sem er per-
Framhald á bls. 23.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiniii
Helge Ingstad.
Umbun fyrir fimm ára erfiði
Klébergssnældan
á Ameríkufundi
Einikaskeyti til Mlbl; frá
Skúla Skúlasyni.
NOftSKI fornleifafræðingur-
inn Helge Ingstad lét svo um
mælt við fréttamann Morgun-
balðsins í morgun, að klébergs
snældusnúðinn góða sem um
var getið í blaðinu á sunnu-
daginn hefði kona sín, Anna
Stína, fundið sjálf og væri
gripurinn nú geymdur í banka
hólfi í Osló.
Snældu-snúðurinn er 36
millimetrar í þvexmól og er
svipaður að stærð ag flestir
þeir snældusnúðar sem fund-
izt hafa í byggðum norrænna
göða og vlðurkenning U.S.A
Leifs heppna
urkenna þar með að Leifur
hafi. fyrstur fundið Ameríku.“
manna á Grænlandi.
Aðspurður hvort snúður-
inn væri eign Norðmanna eða
Kanada svaraði Ingstad, að
Kanada ætti heimtingu á
ölJum fornminjum, sem fynd-
ust við uppgröftinn í Lance
Meadows, „en kannske fáum
við að halda þessum eina
grip, sem er okkur svo mikils
virði. Það er einmitt verið að
ræða það núna.“
Bkki sagðist Ingstad vita
fyrix víst, hvort hann færi aft-
ur vestur til Lance Meadows
næsta ár, hann hefði nú verið
þar fimm sum/ur og fyrir lægi
yfirgripsmikið efni til rann-
sótkna, sem vísindamenn frá
mörgum löndum og þar á
meðal íslandi, tækju þátt í.
Ingstad kvaðst fagna þeim
áxangri, sem náðst hefði og
sagði: „Okfeur finnst við hafa
hlotið umtoun fyrir erfiðið nú
þegar Bandaríkin taka upp há
tiðisdag Leifs heppna og við-
Myndin sýnir snældusnúða
frá Sandnesi í Vestri-byggð á'
Grænlandi, en þeir munu vera
mjög áþekkir snældusnúð
þeim, sem mag. Anne-Stine
Ingstad fann í Lance Mead-
iUlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllUllllllllllllilllllllllllillllllllllllllllllllllllllllll lllllllilllllllllllllllllllllllllllUlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimiUI