Morgunblaðið - 05.09.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.09.1964, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐtÐ Eaugardagur 3. sept. 1964 Judo - Armenn- inga í frægðarför Ragnar Jónsson hlaut æðsta afreksmerki islendings FIMM ísl. Judo-glímumenn úr Ármanni eru nýlega komn ir heim úr æfinga- og keppn- isför til London. Þetta eru þeir Sigurður Jóhannsson, sem ver ið hefur » þjálfari Judo- flokksins auk þess að vera þjálfari glímuflokks Ármanns, Sigurjón H. Jóhannsson, Ragn ar Jónsson, Guðni Kárason og Gunnar Sigurðsson. Einn þessara pilta náði sérstak- lega góðum árangri í förinni, því hann vann sér rétt til að bera háu gráðu afreksmerkis Judo- glímumanna, kom heim með „1. Dan“ eins og það heitir á þeirra máli og er fyrsti íslendingurinn sem það afrek vinnur og sá eini sem bera má svart belti í Judo- glímu, en það er merki þessa stigs. í gráðukeppni er þeir tóku iwimmwiiiMMiiMiiiiin»nuiHM>uiiinniiiiiiiim»«miiH (Jón stökk 12.06 m. | Á FRJÁLSÍÞRÓTTA- ! \ MÓTI í Borás í Svíþjóð í f ! gærkvöldi stökk Jón Þ. [ f Ólafsson 2.06 metra. Með f f því jafnaði hann íslenzka \ I metið og náði því lágmarki [ f sem ísl. íþróttayfirvöld \ f settu sem skilyrði fyrir f f þátttöku í OL í Tókíó. Er f ! Jón sá þriðji er þvi lág- f i marki nær af ísl. íþrótta- í 1 fólki. þátt í nýkomnir til Lundúna lögðu Guðni, Gunnar og Ragnar tvo andstæðinga hvor, Sigurjón einn en Sigurður tapaði fyrir ein um en í tveimur glímum hans varð jafnt. Telja má þetta góðan árangur, þar sem þeir höfðu alls ekki vanizt aðstæðum. Kom og í ljós er líða tók á dvalartíma þeirra ytra að þeir höfðu í fullu tré við þá Breta sem þeir höfðu áður tapað fyrir. Þegar Ragnar vann til svarta beltisins felldi hann fimm mót- herja hvern af öðrum og vann glímurnar með glæsibrag. Þeir komu einnig við í Sví- þjóð en höfðu lítið gagn af þeirri dvöl þar sem geta íslendinga er meiri en gerist meðal annarra Norðurlandafélaga. í ráði er að Ármenningar taki þátt í Norðurlandamóti í judo sem fram fer í október n.k. Má vænta þess að frammistaða flokksins þar verði góð. Vulsstúlkui unnu í Svípjóð HANDKNATTLEIKSSTÚLKUR Vals hafa að undanförnu verið á keppnisferðalagi í Noregi. Hafa Valsstúlkurnar unnið marga leikja sinna en tapað öðrum og hafa þær mætt mörgum af sterk- ustu liðum Noregs. Frá Noregi héldu Valsstúlkur til Svíþjóðar og kepptu í Gauta- borg við félagið GKIK og unnu Valsstúlkur með 17—13. í hálf- leið stóð 9—7 fyrir Val. Frá Svíþjóð halda ísl. stúlk- urnar til Danmerkur, leika þar einn leik áður en þær halda heim. KRogFH keppa í 5 flokki KR-ingar í Kvarusveden, KR-ingar keppa í Svíþjóð HÓPUR frjálsíþróttafólks úr KR ásamt gestum hafa ferðazt um Svíþjóð og keppt þar á mótum í Gautaborg, Trollhattan, Kvarn- sveden og Karlstad. 22. ágúst háði flokkurinn félagakeppni við íþróttafélagið í Kvarnsveden og var hópurinn í tvo daga gestir Kvarnsveden Gymnastik og Idrottförening. KR-hópurinn kom eiginlega beint úr lestinni eftir erfitt ferða- lag í félagakeppnina. Samt náðist góður árangur og KR-ingar stóðu sig vel gegn styrktu liði heimamanna. Dagana á eftir fóru KR-ingar í kynningarferðir m.a. til Kvarn- stad pappírsverksmiðjanna, sem eru í eigu Store Kopparbergs Bergslags AP. Skoðuðu þeir verk ismiðjurnair og kynntust fram- leiðsluháttum á appír í tímarit og dagblöð m.a. pappír sem not- aður er á íslandi. Skoðaði hóp- urinn fleiri iðnfyrirtæki og kynntust því að verzlun er mikið milli firma á þessum slóðum og íslands. í Falum skoðaði hópurinn kop- ariiámur, sem einnig eru í eigu áðumefnds firma. í kynnisferð til vatnsins Siljan sáu íslendingarn- ir aðalæfingastöðvar sænskra skíðamanna og kynntust sumum af frægustu Olympíuköppum Svía. í félagakeppninni í Kvarnsved- en varð árangur þessi: 100 m hlaup: Valbjörn Þorláks- son nr. 3 11.3, Úlfar Teitsson 4. 11.4. — 3000 m hlaup: Kristl. Guð- björnsson 8.30.8, 2. Ake Jansson 8.31.0. 3. Agnar Levy 8.41.8. — 4. Arnold Jonsson 9.00.4. Kúluvarp: Guðm. Hermanns- son 15.69, 2. Leif rBand 14.55. Langsrtökk: G. Zares 6.80, 2. Úlfar Teitsson 6.72, 3. Einar Frí- mannsson 6.46. 400 m: G. Tagstrom 50.1, 2. Þor. Ragnarsson 51.9. Kringlukast: B. Tallberg 47.16, 2. Valbj. Þorl. 30.10. 800 m hlaup: Halldór Guðbj. 1.58.3, 2. P. U. Larsson 1.59.2. Þrístökk: 1. Karl Stefánsson 13.73, 2. Þorv. Ben. 13.30. Hástökk: 1. Harry Berg 1.75, 2. Valbj. Þorl 1.75, 4. Þorv. eBn. 1.70. — Konur: Kringlukast: 1. M. Noren 34.50, 2. Ragnheiður Pálsdóttir 31.07. — Hástökk: 1. Ragnheiður Páls- dóttir 1.35, 2. E. Stalberg 1.25. 100 m hl.: Halldóra Helgadóttir 13.7, 2. Karin Olsen 13.8. Kúluvarp: B. Olsson 10.58, 2, Ragnheiður Pálsdóttir 10.18. Deilt yfir enn um lokunartímann: Kaupmenn notfæra sér ekki leyfi borgarstj. í bili VR telur það samningsrof, séu verzlanir Albert Guðmundsson hefur keppnina Á MORGUN kl. 2:15 e.h. hefst í Hafnarfirði mjög athyglisverð knattspyrnukeppni, sem án efa verður hin skemmtilegasta. Keppni þessi er milli KR og FH og þeir sem keppa eru drengir úr 5. aldursflokki félaganna, alls 7 lið, um 130 drengir keppa. Nokkur viðhöfn verður við upp haf keppninnar, því FH-ingurinn Albert Guðmundsson, frægasti knattspymumaður íslands fyrr og síðar mun sýna yngstu knatt- spymudrengjunum þann heiður að mæta og hefja fyrsta kapp- leikinn, með þvi að spynta fyrstu spyrnunni. í sumar hefir verið afar gott og mikið samstarf milli knatt- spyrhudeilda KR og FH og þá sérstaklega í yngri flokkunum. Hafa KR-ingar og FH-ingar heimsótt hvorir aðra margoft í sumar og hafa þessir æfinga- kappleikir hleypt mikilli grósku í knattspyrnuna í FH. — Áhugi hefir verið hvað’mestur í 5. ald- ursflokknum, en hann skipa drengir 12 ára og yngri. Fjöimenni hefir jafnan verið mikið á æfingum hjá FH' í þess- um aldursflokki og var því það ráð tekið snemma í sumár að stofna 6. aldursflokk sem voru drengir 9 ára og yngri. Æfingar þeirra hefir Ragnar Magnússon séð um af slíkri natni og dugn- aði, að vart er að finna betur liðinn mann í Hafnarfirði þessa dagana, en „Ragga Magg“ eins og_ „gubbamir“ kalia hann. í keppninni á morgun taka þátt 7 lið frá hvoru íélagi og yngsta liðið er skipað 6 og 7 ára drengjum. Keppninni er þannig hagað að keppt er heima og heiman. Fer því síðari hluti keppninnar fram á KR-svæðinu. Er ekki að efa að Haínfirðing- ar sem KR-ingar ungir sem gamlir láti ekki þessa keppni fram hjá sér fara, en hún mun standa yfir fram að kvöldmat, því þarna nrnnu menn sjá óslkertan áhuga og kapp og leiik- gleði ráðandi. LOKUNARTÍMI verzlana Reykjavík er nú enn á dagskrá, eftir að borgarstjórn samþykkti á fundi í fyrradag að leyfa 14 verzlunum að hafa opið til kl. 22, en áður hafði heilbrigðisnefnd mælt með umsóknum fyrr- greindra verzlana og borgarráð samþykkti þær fyrir sitt leyti. Enda þótt borgarstjóm hafi nú endanlega leyft kvöldsölu þess- ara verzlana eru ekki jill kurl til grafar komin enn. Formaður Verzlunarmannafjlags Reykjavik ur, Guðmundur H. Garðarsson, lýsti því yfir í viðtali við Mbl. í gær, að VR teldi það samnings rof af hálfu kaupmanna, ef þeir hefðu verzlanir opnar eftir kl. 18. Þyrfti til að koma samkomulag inn í gildandi kjarasamning VR um vaktaálag, áður en VR gæti fallizt á kvöldsölua. f gær barst Mbl. einnig afrit af bréfi, sem níu af fyrrgreindum kaupmönn- um hafa ritað VR. Segjast kaup menn hafa ákveðið að notfæra | sér ekki leyfi borgarstjórnar fyrst um sinn að hafa verzlanir opnar, en taka hins vegar fram, að í bili muni þeir láta nægja að afgreiða um söluop, eftir að verzlunum sé lokað, svo neyt- endum sé gerð nokkur úrlausn. Hér fer á eftir bréf fyrr- greindra kaupmanna (Kjöt og fiskur; Borgarkjör; Grensárkjör; Þingholt; Kambskjör; Hlíðar- kjör, Kaplaskjólsvegi; Hlíðakjör; Jónskjör; Lögberg): „Samkvæmt þeim samningi, sem kaupmenn imdirrituðu s.l. vetur, skal verzlunum lokað sem hér segir (7. grein): „ . . . Alla virka daga ársins skal sölubúð- um lokað eigi' síðar en kl. 18. Þó skulu vera frá þessu undan- tekningar ....“. Eru þessar undantekningar viðvíkjanli jóla verzlunina“ „Samningur við söluturnaeig- endur er byggður á vaktavinnu- grundvelli". „Undirritaðir kaupmenn, sem fengið hafa leyfi borgarstjórnar Reykjavikur til þess að reka kvöldsölu til kl. 22,00, hafa orð- ið þess varir að forystumenn sam taka starfsfólks í verziunum lki á það með tortryggni og telji jafnvel brot á kjarasamningum verzlunarmanna og atvinnurek- enda, ef verzlað sé eftir kl. 18 mánudaga til fimmtudaga og eft ir kl. 12 á laugardögum, Til þess að eyða öllum mis- skilningi viljum við ■ taka það fram, að við höfum, af tilliti til beggja aðila kjarasanrminganna, ákveðið, a.m.k. fyrst um sinn, að notfæra okkur ekki leyfi borgar stjórnar til þess að hafa „sölu- búðir opnar“, en tökum jafn- framt fram, að við álítum að slíkt sé utan sviðs kjarasamninga, og að orðalagið „að halda sölubúð- um opnum“, eigi einungis við tímamarkið, hvenær regluelgum starfstíma verzlunarfólks skuli ljúka. Samning milli forsvars- manna atvinnurekenda og vinnu þega á verzlunarsviði, þess efnis, að bannað sé einstökum kaup- mönnum að veita viðskiptamönn um þjónustu eftir tiltekinn Framh. á bls. 23 o|in>ar eftir kl. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.