Morgunblaðið - 05.09.1964, Qupperneq 2
2
MORCUH BLAÐIÐ
Laugardagur 5. sept. 1964
Jöklar h.f. kaupa
Hvítanes af Kaupskip
JÖKLAR h.f. eru í þann veg
að kaupa m.s. Hvítanes af
Kaupskip h.f. og er þess
vænzt að afhending skipsins
muni fara fram nú um helg-
ina í Reykjavík, en hingað
kom Hvítanes í gærkvöldi er-
lendis frá. Hvítanes er 2500
lestir að stærð, hefur ekki
frystigeymslur, og munu
Jöklar h.f. ætla að nota skip-
ið til flutnings stykkjavöru til
og frá landinu.
Kaupskip h.f. fékk Hvíta-
nes afhen t í september í
fyrra, og hefur það síðan ver-
ið í siglingum erlendis og
heima.
SýningJ es
Einars
MALVERKASÝNING Jes Ein-
ars Þorsteinssonar stendur nú
yíir í Ásmundarsal við Freyju-
götu og verður opin á laugardag
og sunnudag frá kl. 2—10 e.h.
Fjölmargir haia skoðað sýning-
una, og margar myndir hafa
selzt. Sýningunni lýkur á sunnu
dagskvöld.
Kaupskip mun ekki hafa
tekið ákvörðun um hvers kon-
ar skip það mun festa kaup
á í staðinn fyrir Hvítanes.
Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson og Gnnnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, og frú, koma að
Reykjainndi
Miklar byggingarframkvæmdir og
vélvæðing frá síðasta þingi
14. þing Sambands ísB. berklasjúklinga
í GÆR kl. 2 var sett á Reykja-
lundi 14. þing SIBS, að viðstödd
um forseta íslands, Ásgeiri Ás-
geirssyni, og Gunnari Thorodd-
sen fjármálaráðherra g frú hans.
Eru mættir til þingsins, sem
stendur fram á sunnudagskvöld,
um 80 fulltrúar frá 10 félagsdeild
um í Reykjavík og úti um land.
Settningarathöfnin hófst með
því að Oddur Ólafssn, yfirlæknir
bauð gesti velkomna og gaf
Þórði Benediktssyni, fram-
kvsemdastjóra samtakanna, orð-
ið. Þórður sagði í setningarræðu
sinni m.a. að enn á ný væru full
Serkin fjölskyldan. Talið frá vinstri: Margie 4. ára, Irine (fædd
Busch), Rudolf, og Judy, 14 ára.
trúar saman komnir til að ræða
leíðir, að markmiðið sem hand-
samað væri í dag, en ætíð jafn-
framt endurnýjað. Um leiðir að
því mætti deila, en aldrei um
markmiðið. Nú yrði gengið að
þingstörfum undir hinu gamla
kjörorði allra þinga samtakanna
.samhugur-saimstarf. Síðan rakti
hann sögu fyrri 13 þinga sem öll
hefðu skiLið eftir fagrar myndir.
allt frá fyrsta þingi fárra sjúkra
manna á Vífilsstöðum 1938. Á 3.
þinginu var td. ákveðið að reisa
vinnuheimili, 5. þingið var hald-
ið á Reykjalundi sem var að
tf.ka tii starfa, í gömlum her-
mannabragga,, 4. og 5. þingin
voru svo komin í hin vistlegu
salarkynni sem nú eru, og þar
voru haldin 9., 10. og 11. þingið,
sem hvert um sig sýndi þing-
fulltrúum nýjar byggingar og vél
væðingu og 13. þingið var haldið
í Reykjavík, þar sem búið var
að stofna öryrkjaheimilið í Múla
lundi.
Að setningaræðu lokinni var
leikið lag SÍBS. Þá flutti Gunn-
ar Thoroddsen, fjármálaráð-
herra, stutt ávarp. Minntist hann
heilladrjúgs starfs SÍBS og kvað
því treyst að SÍBS mundi hér
eftir sem hingað til halda merki
sínu hátt á loftL
Þá flutti Júlíus Baldvinsson
kveðju frá sjúkum þingfulltrúa,
Guðrúnu Sveinsdóttur frá Siglu
firði, sem er á Vífilsstöðum og
afhenti gjöf frá henni. Sendu
Serkin aftur á Islandi
HTNN heimsfrægi píanóleikari
Rudolf Serkin heldur tónleika í
kvöld Og annað kvöld í Austur-
bæjarbíói á vegum Tónlistar-
félagsins. A efnisskránni er
Sónata eftir Schubert, 11 baga-
tellur eftir Beethoven og Til-
brigði eftir Brahms um stef eftir
HandeL Þetta er í þriðja siran,
sem Serkin kemur til íslands.
Fyrst kom Serkin hingað með
tengdaföður sínum, Adolf
jBusoh árið 1946. Þá spiluðu þeir
allar sónötur Beethovens fyrir
pianó og fiðlu. Síðan kom hann
áxið 1966. í fyrra skipið lék
hann bæði í Reykjavík og á
Akureyri, en í hið síðara í
Reykjavtík og í HafnarfirðL
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti Serkin að máli í gærdag
og sagðist hann koma beint frá
Edinborg, þar sem Listahátíðtn
fræga hafur staðið að undan
förnu. Serkin hélt þar 5 hljóm-
leika, 3 með kammermúsík-
hljóimsveit, 1 með hljómsveit
og 1 einkakonsert. Þetta var í
annað sinn, sem Serkin hefur
komið á Edinborgarhábíðina.
Þegar meistariran var spurð-
emr, hivort hann þyrfti nokkuð að
aafa sig, sagði Ragnar Jónsson,
að hann ætlaði að aafa sig 6 klst.
þennan dag og hefði æft sig
6% daginn áður. Serkrn sagðist
þurfa að ætfa sig u.þ.b. 3 klst.
á dag bara til að halda sér við,
ef nokkrar framfarir ætfcu að
verða, þá þyrfti meira.
Rudolf Serkin er amerískur
ríkisborgari. Hannt ferðast vita-
skuld um heim allán til að halda
tónleika. Á hverju ári fer hann
til Evrópu, an hann miðlar
einnig öðrum af hæfileikuxn sín-
um, t.d. fer hann í annað skáptið
til Japans næsta vor. Hann lét
í ljós undrun sína yfir því, hve
Japanir hafa tekið tónieik-
um hans vel. „Mér finnsrt þetta
þeim mun verra, af þlví ég kartn
ekki að meta þeirra miisiík. Hins
vegar hef ég séð fjökia manras
í Japan tárast, ef ég leik
Appassionata“.
„Hvað eigið þér mörg börn?“
spurði blaðamaður.
„Ég á sex. Þau eru öll músí-
kölsk, en aðeins tvö þeirra,
John, sem er 21 árs hiomisti, og
Peter, sem er 17 ára, eru at-
vinnuhljómlistarmeran, enn sem
komið er. Ég veit ekki ennþá
um Julie. Hún er 14 ára og
nemur celloleik hjá frú Casais.
Pablo segir að hún hafi hæfi-
ieika. Hins vegar hefur Martgie
helmingi betri smekk, enda er
hún bara 4 ára. Hún neranir
ekki að hlusta á mig til enda.
Þó var uradantekning á Edin-
borganháfcíðirani. Margie sat til
enda. Ég spurði hana á eftir,
hvemig hefði staðið á þessu og
þá sagðist hún heldur ekki
skilja neitt í þessu, en sennilega
hefði þetta bara verið óvenju
gott hjá mér“.
„Eruð þér ekki bóndi líka?“
„Jú, það er ekki laust við
það. Ég er staðráðinn í þ(ví, að
kaupa 4 íslenzka hesta. Ég á 3
stóra ameríska og 30 beljur, en
það er ekki hægt að fara á bak
þeim. Mér lízt feiknalega vel á
íslenzku hestana. Þeir hafa svo
fallegan fótaburð".
„Hafið þér leikið mikið inn á
plötur upp á síðkastið?“
„Já, ég leik alltaf inn á plötur
öðru hverju, en mér líkar það
ekki alltof vel. Starvinsky lýsti
þessu ágætlega. Hann sagði:
Mér leiðast plötur, því að þær
eru alltaf eiras“.
„Mér finnast plötur alltof full-
komnar“, sagði Ragnar Jóns-
son.
„Ekki mér“, sagði Serkin,- „Að
minnsta kosti ekki mínar eigin.
Ég heyri aiitaf vitlausu nóturn-
ar minar og þoli það ekki‘%
þingfulltrúar henni kveðju sína.
Þá var kosið í kjörbréfanefnd,
sem skyldi ljúka störfum eftir
kaffihlé, en gestum vom nú born
ar myndarlegar veitiragar.
Miklar framkvæmdir
Síðdegis var kosið í nefradir og
fluttar skýrslur um störf sam-
bandsstjórnarinnar og stofnanna
saimbandsins. í skýrslu sambands
stjórnarinnar segir að sjaldan
eða aldrei hafi meira verið unn-
ið að framfaramálum sambands
ins en þau tvö ár seim liðin eru
frá 13. þingi. Tekjur sambands-
ins hafa ekki hrokkið til að
standa straum a/ stórfelldum
framkvæmdum og vaxandi
þunga afborgana og vaxta af
skuldum, gömlum og nýjum, og
er það þakkað Erfðafjársjóði að
kieift hefur verið að standa í þess
um stórræðum. Byggingarfram-
kvæmdir og vélvæðing í stórum
stfl, sem fram hafa farið, bæði í
Reykjalundi og Múlalundi, voru
icnúðar fram af brýnni þörf skjól
stæðinga okkar og til þess að
unnt verði í framtíðinni að reka
þessar stofnanir á sem hagkvæm
astan hátt og þannið reyna að
koma í veg fyrir hallarekstur,
segir í skýrslunni.
Á Reykjalundi hefur undara-
farið verið unnið að 1500 fenrn.
byggingu, sambyggðum vinnu-
skálum og skrifstofuhúsi, en þar
Framh. á bls. 23
Veglegur
predikunar*
stóll
Á ALDARAFMÆLI ísafjarðar-
kirkju á liðnu hausti tilkynnti
biskupsfrú Guðrún Pétursdóttir,
að nokkrir ísfirðingar fluttir suð
ur hefðu ákveðið að gefa ísa-
fjarðarkirkju veglegan útskorina
prédikunarstóL <•
Er stóllinn nú fullgerður, skor
inn af skurðmeistaranum Ágústi
Sigurmundssyni og smíðaður at
Ölafi Guðmundssyni, Bollag. 4.
Stóllinn er prýddur stórum skom
um myndum guðspjallamann-
anna og táknum þeirra. Er hann
af kunrauguim talinn veglegastl
írlenzkur prédikunarstóli I
kirkju.
í dag og á morgun, laugardag,
og sunnudag, gefst mönnum kost
ur á að sjá þennan veglega grip
í glugga verzlunarinnar Teppi
bf. í AusturstrætL
Verið er að gera bók með nöfa
am gefenda, og geta ísfirðingar
fluttir suður enn tekið þátt í þes»
ari kveðju til ísafjarðarkirkju
með því að hafa samband við
biskupsfrú Guðrúnu Pétursdótt-
ur, GrenLmel 17, eða Jón Leós I
Landsbankanum.
Lútherska heimssamhandib:
Kveðjuathöfn í Skál-
holtsdómkirkju í dag
Næsti fundur haldinn i Tanganyika
Lútherska heimssambandið:
STJÓRNARFUNDI Lútherska
heimssambandsins var fram hald
ið í Reykjavtk í gær, og þá voru
tvö kirkjusambönd, í Rúmeníu
og Tanganyika, formlega tekin
í sambandið. I kirkjusambandinu
í Tanganyika voru áður sex
kirkjur, sem hver um sig var
meðlimur í sambandinu, en nú
hafa þær gengið í sambandið sem
ein heild. Þá voru í gær viður-
kenndir einstakir lútherskir söfn
uðir, í Belgíu, Mexíkó og Equa-
dor. Stjómarfundi heimssam-
bandsins lýkur í Reykjavík um
hádegisbilið í dag, en síðan halda
fulltrúar til Skálholts, þar sem
fundinum verður formlega siitið
og kveðjuathöfn fer fram í Skál-
holtsdómkirkju.
Á fundinum í dag var einraig
ákveðið að næsti stjórnarfundur
heimssambandsins skyldi haldinn
í Tanganyika dagana 14.—19.
júní 1966.
Eins og fyrr getur, verður fund
inurn formlega shtið við guðs-
þjónustu í Skálholti, og hefst sú
athöfh kL 15 í dag. BiskU'pinn
yfir tslandfl herra Sigurbjöm
Einarsson, prédikar við kveðju-
athöfnina og þjónar fyrir altari,
ásamt sóknarprestinum, séra
Guðmundi Óla ólafssyni. Skál-
holtskórinn syngur undir stjórn
Guðjóns Guðjónssonar stud.
theol. Forseti ísland.s, herra Ás-
geir Ásgeirsson, verður viðstadd
ur athöfnina.
Forseti Lútherska heimssam-
bandsins, dr. Schiötz mun slíta
stjórnarfundinum formlega og
Páll Kolka læknir og kirkjuráðs
maður, mun flytja erindi, þar
sem hann rekur sögu Skálholts
staðar og greinir frá áætlunum
kirkjunnar á staðnum.
Að lokinni athöfninni í Skál-
holti, bjóða íslenzku biskupshjóu
in erlendum og innlendum full-
trúum á fundi heimssambandsins
til samsætis að Þingvöllum I
kvöLd.
Þess má geta, að bílferð verð
ur frá BSÍ til SkáLholts kl. 13
í dag fyrir þá, sem vilja vera
viðstaddir athölnina i Skálholts-
kirkj'U.