Morgunblaðið - 05.09.1964, Page 8

Morgunblaðið - 05.09.1964, Page 8
ð MORGUN BLAÐIÐ Laugardagur 5. sept. 1964 /T Finnbogi Guðmundsson, útgerðarmaður frá Gerðum: skoðanir um sjávarútveginn Sjávarútvegurinn er undirstöðuaitvinniivegur efnahagskerfisins nú og í náinni framtíð Skiptar ÉG HEFI nú gert nokkra grein i fyrir ástæðunum til þess að ég er bjartsýnn á að sjávarútvegur- inn muni enn um mörg ár geta orðið sterkasti undirstöðuatvinnu vegurinn fyrir efnahagskerfi okk ar, og þannig verið áfram aðal- atriðið í velmegun þjóðarinnar. Ég þorði að vísu ekki að spá á- framhaldandi mokafla nema 3—6 ár fram í tímann, en þótt eitt- hvað drægi úr möguleikum til afla á einstökum fiskitegundum, þá er hér um að ræða nú orðið, það mikla breidd í fiskveiðum okkar og fiskiðnaði, að ég tel engan veginn óvarlegt að reikna með mjög hagstæðari verð- mætisöflun um næstu 3—4 ára- tugi að minnsta kosti, þannig að sjávarútvegurinn dugi að mestu til þess að vera höfuðstoðin undir mjög góðri efnahagsafkomu, og geri ég þá ráð fyrir eðlilegri fólks fjölgun. Þótt mér sé það ljóst, að við eigum ekki kost á neinum nýjum Síðari hluti atvinnuvegum, sem gætu orðið okkur jafn hagstæðir og fiskveið- arnar og fiskiðnaðurinn eru okk- ur nú og munu verða um langa framtíð, þá er það fjarri mér að hamla gegn því að atvinnulífið sé gert fjölbreyttara með tilkomu stóriðju eða annarrar iðju, sem getur vel orðið okkur til hag- sældar, þótt það sé ekki eins hag- stætt og sjávarútvegurinn er nú, og mun lengi verða. Ég tel það tvímælalaust rétta ráðstöfun að stofna til Kísilgúrverksmiðjunn- ar, eins og nú er reyndar ákveðið, þó fannst mér eðlilegt að benda á, að þar er ekki um neina stór- kostlega verðmætaöflun að ræða, eins og margir virðast hafa í- myndað sér, vegna óeðlilegs áróð urs í sambandi við það mál. Þá finnst mér æskilegt að í náinni framtíð kæmist á stofn Alúmíní- umframleiðsla, ef það gæti orðið til þess að létta undir með að virkja orkumestu fallvötnin, og þá vonandi orðið til þess að raf- orka fengist ódýrari til iðnaðar- og almenningsþarfa. Þótt mér finndist æskilegt að slíkt fyrir- tæki yrði að mestu eða öllu leyti í eigu íslendinga sjálfra, finndist mér ekki frágangssök, að það yrði að einhverju leyti í eigu út- lendinga, en þó því aðeins að fyrirtækið yrði látið sitja við sama borð og búa við sömu kjör og önnur gjaldeyrisöflunarfyrir- tæki, um verðið á raforkunni, tolla, skatta, aðstöðugjöld og að sjálfsögðu kaupgjald og yfirleitt allt, sem aðrir útflutningsatvinnu vegir okkar verða að búa við. Olíuhreinsunarstöð finnst mér komi því aðeins til greina, að ekki hljótist markaðstap á fram- leiðsluvörum þeirra atvinnuvega, sem fyrir eru í landinu. Olía og benzín hafa að mestu verið keypt frá Rússlandi og lítilsháttar frá Rúmeníu. Vegna þessara miklu olíuviðskipta við þau lönd höfum við getað selt þeim ýmsar út- flutningsafurðir, sem okkur er hagstætt að framleiða og selja í sem allra mestu magni, en það er söltuð og fryst síld til manneldis- neyzlu, fryst flök af þorski, karfa, ýsu, ufsa og löngu, eða svo til all- ar algengustu fiskitegundir okk- ar. Þótt saltaða og frysta síldin sé þýðingarmest í þessu sambandi, þá er sala okkar á karfaflökum til Rússa mjög þýðingarmikil, enda fer mest af þeirri fram- leiðslu þangað og tæpast um aðra markaði að ræða fyrir þá vöru nema Bandarikjamarkaðinn. Hefðum við aðeins Bandaríkin sem eina markaðsmöguleikann fyrir karfaflök, yrði tæpast um mikið magn að ræða á viðunandi verði. Þá kaupa Rússar af okkur nokkurt magn af iðnaðarfram- leiðslu úr íslenzkri ull, sem er athyglisverð nýjung í framleiðslu okkar, og gæti verið vísir að stór- iðnaði úr heimafengnu hráefni. Þá finnst mér ástæðulaust að flýta mjög stóriðjuframkvæmd- um á meðan samdráttur og óhag- ræði á sér stað hjá öðrum at- vinnuvegum eins og nú er, og hef ur verið um hríð vegna fólks- eklu. Þar sem ég er nú farinn að ræða ýmsa atvinnuvegi í nútíð og framtíð, finnst mér eðlilegt að minnast á stöðugt vaxandi iðnað fyrir innlendan markað, sem er orðinn stór þáttur í efnahagskerf- inu, þótt sumt af því sé ekki veru lega hagstætt, frá þjóðhagslegu sjónarmiði. En þannig er um þann iðnað, sem hefur haft tak- markaða vaxtamöguleika, vegna takmarkaðs markaðs, en svo er um ýmsan neyzluvöruiðnað til almenningsþarfa, þar sem fá- menni þjóðarinnar takmarkar eðlilega markaðinn. En hins vegar eru ýms iðnað- arfyrirtæki, sem framleiða fyrir innlendan markað, sem hafa tekið að sér að veita aðalatvinnuvegunum þjónustu, sem var og er þeim mjög nauð- synleg. Hafa þau fengið mikil og vandasöm verkefni að leysa, sem þau hafa gjört mörg mjög mynd- arlega. Jafnhliða því hafa þau þró azt svo sjálf, og æft upp svo hæft og gott starfslið, að þau eru sum orðin fær um að framleiða það fullkomnar vörur, að þær eru fyllilega sambærilegar við það bezta, sem til er í heiminum. Voru þau a.m.k. áður en nýjasta verðbólguskriðan féli á sl. ári, orðin mjög samkeppnisfær um verð, þannig að í mörgum tilfell- um var að myndast vísir að út- flutningi á ýmsum framleiðslu- vörum. Hér hefi ég fyrst og fremst í huga vélaiðnaðinn,. sem smíðar ýmsar vélar og tæki fyrir fiskiskipastólinri og fiskiðnaðinn. Vélsmiðjurnar smíða nú orðið, og hafa gert um margra ára skeið, svo til allar vélar og tæki, sem þarf til síldar- og fiskimjölsiðn- aðarins, og ég held að ekki verði sótt til útlanda fullkomnari tæki en flest af því, sem íslenzku vélsmiðjurnar smíða í því sam- bandi, en um þennan þátt fisk- iðnaðarins er mér ekki fullkunn- ugt. Hinsvegar hefi ég fylgzt mjög vel með þróun frystiiðnað- arins. Er það skoðun mín að þar séu ýmsar vélsmiðjurnar komnar mjög langt í smíði svo til allra véla og tækja, sem sá iðnaður þarf. Einnig er það mín skoðun, að það góða samstarf, sem tekizt hefir milli vélsmiðjanna hér og samtaka frystiiðnaðarains hafi orðið svo árangursríkt, að við ís- lendingar séum komnir með því fremsta í frystiiðnaðartækni. Nú er það svo, að frysting ýmis konar matvæla fer mjög ört vax- andi um svo til allan heim. Mér finnst mjög miklar líkur til að þátttaka okkar í þeirri uppbygg- ingu geti orðið veruleg útflutn- ingsframleiðsla vegna þess, að við erum líka nú sem stendur tvímælalaust meðal fremstu þjóða um allt, sem viðkemur frystiiðnaði, flutningi og dreyf- ingu frystra matvæla. Farskipaþjónusta og deilur Eimskips og Hf. Jökla um þessi mál Um það verður ekki deilt, að stofnun Eimskipafélags íslands hf., snemma á þessari öld, var meðal þess markverðasta sem gerðist þá, og var þó margt mynd arlega gert á þeim árum. Þeir mætu menn, sem höfðu þar for- ystu um, eiga miklar þakkir skil- ið, sama er að segja um þann mikla fjölda manna, sem lögðu því máli lið, oftast af mjög litlum efnum. Eimskipafélag Islands hef ur um marga áratugi annast meginhlutann af flutningaþörf okkar á afurðum til útlanda, og einnig innflutning á því mikla vörumagni, sem við höfum þurft að flytja frá öðrum þjóðum. Þessi þarfa þjónusta hefur verið þjóðinni ómetanleg, og ekki hvað sízt á styrjaldarárunum 1914—1918 og 1939—1945. Það er ekki nema sanngjarnt að viður- kenna það, að Eimskip hefur oft- ast reynt að leysa stöðugt vax- andi flutningaþarfir þjóðarinnar, eftir því sem aðstæður frekast leyfðu á hverjum tíma. Ég vil einnig viðurkenna, að stjórnend- ur Eimskip voru á sínum tíma ótrúlega framsýnir. Þróun frystiiðnaðarins var lengi vel mjög hægfara. Það mun hafa verið þörfin fyrir flutning á frystu kjöti, sem var selt til út- landa fyrst frystra matvæla, sem kallaði á þörfina fyrir kæliskip. Þetta var dilkakjöt, sem var hæg fryst í heilum skrokkum, og þar sem kjötið var aðeins hægfryst, þ.e. fryst við 10—12°C og geymt við svipað frost í klefum, var eðlilega ekki talið nauðsyn- legt að gera kröfur til meiri frost hörku í lestum flutningaskipanna í því sambandi. Snemma á fjórða tug aldarinnar er farið að hrað- frysta fisk til útflutnings. Hér var um að ræða flök af þeim fisktegundum, sem Bretar sótt- ust mest eftir, eða lengi vel að- eins flök af skarkola, sólkola og lúðu. Hér gat því ekki verið um mikið magn að ræða. Framleiðsla þessi var á þessum árum nokk- urskonar lúxusvara. Vönduð framleiðsla af tiltölulega dýrum fisktegundum, allt handunnið og vandlega snyrt, flokkað og pakk- að í fullkomnar umbúðir og til- tölulega dýrar, þ.e.a.s. vaxbornar pappaöskjur, sem síðan var pakk- að í trékassa. Þetta hélzt þannig allan ára- tuginn og gat því ekki verið um að ræða, nema tiltölulega fáar fisktegundir og þar af leiðandi lítið fiskmagn. Á þessu tímabili þjónaði Eimskipafélagið þessari flutningaþörf að lang mestu leytL í lok fjórða áratugs þessarar aldar skall á heimsstyrjöldin síð- ari, svo sem kunnugt er. Vegna styrjaldarinnar varð mikil breyting, hvað snerti mark- aði og verkunaraðferðir sjávar- afurða. Markaður fyrir saltfisk lokaðist alveg, en hins vegar varð mjög mikil sala í ísvörðum fiski til Bretlands fyrir gott verð. Styrjöldin breytti þannig fyrri viðhorfum og verkunaraðferðum. Flutningaþörfin á ísvarða fiskin- um varð mikið vandamál. Allt var undir því komið, að flutn- ingaskip væru til staðar og af- skipanir á þessu gætu gengið greiðlega. ísflutningaskipin gátu ekki tekið á móti fiski nema i 1—2 daga hvert, vegna þess að varan þurfti að komast á markað fersk og í góðu ástandi. Hins veg- ar þurfti bátaflotinn, tugir og jafnvel hundruð báta, í hverri af- skipunarhöfn að losna við allan sinn afla daglega, þar sem ekki var um aðra verkunaraðferð að ræða. Þessi verkefni voru satt að segja óleysanleg, meðal annars vegna þess, hversu aflabrögð voru misjöfn frá degi til dags á vertíðinni. Annan daginn gat ver- ið tífaldur afli á móti hinum og allt þar á milli. Fiskimálanefnd starfaði þá að málefnum sjávar- útvegsins. Hana skipuðu mætir menn og velviljaðir, en þrátt fyr- ir það var henni alveg ofviða að leysa þetta vandamál. Forráða- mönnum sjávarútvegsins var ljóst, að brýn nauðsyn var á, að fleiri verkunaraðferðir kæmu til. Hraðfrystihús voru þó nokkur á landinu, en afkastalítil, og flest byggð af févana útgerðarmönn- um. Hugsun manna, sem framar- lega stóðu í þessum málum, var, að hagnýta aðalnytjafiskinn, þorsk og ýsu, og hefja fram- leiðslu á frystum flökum til út- flutnings til þess að leysa afferm- ingarþörf bátanna, sem var mikið vandamál. Svo sem áður er sagt, voru þessi mál í höndum Fiski- málanefndar, en þrátt fyrir góðan vilja, tókst nefndinni ekki að leysa þessi mál á viðunandi hátt. Útgerðarmenn létu ekki bugast, og eigendur hraðfrystihúsanna bundust samtökum og stofnuðu Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Sölumiðstöðinni tókst að fá þvl framgengt að samningar tókust við Breta um sölu á frysta fisk- inym á viðunandi verði. Þessum samtökum óx fljótt fiskur um hrygg og framleiðslan óx jafnt og þétt og mikið örar, en bjartsýn- ustu menn höfðu látið sér detta I hug í byrjun. Þessi þróun sýndi þeim mönnum, sem lifðu og störf uðu að þessum málum, að þeir voru á réttri leið og kvatti þá til að halda áfram á sömu braut. Allt fram að stríðslokum annaðist Eimskipafélag íslands svo að segja eingöngu flutninga fyrir SH. Það samstarf var með ágæt- um og þeir mætu menn, sem þá stjórnuðu Eimskip höfðu fullan skilning á þörfum SH og létu í té viðunandi þjónustu eftir ástæð- um, en hins vegar er trúlegt, að þeir hafi ekki áttað sig á, hva gífurlega ör framförin var hjá SH, og þar af leiðandi ekki haft tök á að byggja skip til að veita þeirri þróun þjónustu. Fram sýnir menn meðal frystihúsaeig- enda beittu sér því fyrir því, a8 stofnað var skipafélagið Hf. Jökl- ar. Þeir töldu að með því mótl gætu þeir bezt tryggt SH góða þjónustu og þannig stuðlað a8 uppbyggingu frystiiðnaðarins. Fyrsta skip Hf. Jökla kom til landsins árið 1947. Hf. Jöklar eiga nú þrjú mjög fullkomin frystiskip og veita SH ómetan- lega þjónustu. Hf. Jöklar beittu Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.