Morgunblaðið - 03.10.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1964, Blaðsíða 2
2 MORGU NBLAÐIB Laugardagur 3. okt. 1964 r Hæsta lánveiting hús- næðismálastjórnar UM mánaðamótin júlí-ágúst s.l. lauk húsnæðismálastjórn endanlega við fjárhæstu lán- veitinguna, sem enn hefur átt sér stað í starfi stofnunarinn- ar eða á eitt hundrað milljón- um króna. Þrátt fyrir það að ennþá sé sá hópur lánsumsækjenda of stór, sem enga úrlausn fengu, en voru með lánshæfar um- sóknir, >á er hér um geysi- háa fjárhæð að ræða, enda fengu rúmlega 1500 lánsum- sækjendur úrlausn og í mörg- um byggðarlögum úti á landi var lögmætri lánsf jár]>örf fulinægt nú í fyrsta sinni. Grundvöllurinn undir þessa lánveitingu fékkst með því, að félagsmálaráðuneytið f.h. ríkisstjórnarinnar gerði sér- stakan samning við Seðla- bankann. Var lántaka hjá Seðlabankanum sökum þess- arar lánveitingar algjör for- senda fyrir sjálfri lán- veitingunni vegna þess að hinar nýju tekjuöflunar- leiðir, sem samið hefur ver- ið um nú, að lokinni endur- skoðun Húsnæðismálastjórnar á lögum stofnunarinnar, hafa ekki enn gefið tekjur, svo neinu nemur. Ekki er fjarri að álykta, að brotið hafi verið blað í sögu Húsnæðismálastofnunarinnar varðandi öflun fastra tekna til íbúðalána vegna hins víð- tæka „júnísamkomulags" Verð ur lánveitingastarfið í mun fastari skorðum í framtíðinni, og leikur ekki vafi á því, að þetta mun verða mjög til bóta fyrir lánsumsækjendur, með því að óvissan um það, hvenær röðin kemur að þeim varðandi lánveitingu, er nú úr sögunni. Kosn'mgar til ASI FULLTRÚAK á næsta þing Al- þýðusambands íslands hafa verið kosnir í þessum félögum til viðbótar þeim, sem fyrr hafa verið talin hér í Mbl.: Landssamband vörubifreiða- stjóra. Listi stjórnar og trúnað- armannaráðs varð sjálfkjörinn, en hann skipa: Einar Ögmunds- son, Pétur Guðfinnsson, Harald- ur Bogason, Sigurður Ingvarsson, Hrafn Sveinbjarnarson, Ásgrímur Gíslason, Jens Steindórsson, Bjarni Þórðarson og Arnbergur Stefánsson. Fóstra. ' Erna Aradóttir var kosin aðalfulltrúi, en María Kristjánsdóttir varafulltrúi. Bifreiðastjórafélagið Neisti, Hafnarfirði. Kosinn var Jón Gestsson. Skjaldborg. Kosinn var Helgi Þorkelsson. BUCKINGHAM PALACE 21st September, 196L. Dear Kr. Gudmundsson, I am desired by The (Jueen to write and thank you for the most generous gift of Icelandic Lamb which you so kindly sent to Her Uajesty and His Royal Highness. The Queen and The Duke of Edínburgh very much appreciated this gift. I might add that the gift was sent to Balmoral Castle and was, I know, very much enjoyed by Members of the Royal Family who were staying there. Yours sincerely, Deputy Master of the Household. itr. Thorvaldur Gudmundsson. Þakkarbréf frá Bretadrottningu I TILEFNI þess að kjötsýning sú er nýlega var haldin í London sendi brezku konungsfjölskyld- unni London-lamb, hefur Þor- vaidi Guðmundssyni borizt svo- fellt bréf frá ráðsmanni drottn- ingar: „Kæri Guðmundsson, Mér hefur verið falið af drottn ingunni að skrifa og þakka yður hina rausnarlegu gjöf, íslenzka lambakjötið, sem þér voruð svo elskulegur að senda hennar há- tign og hans konunglegu tign. Drottningin og hertogmn af Edinborg kunnu vel að meta þessa gjöf. Ég vil bæta því við að gjöfin var send til Balmoral-kastala og mér er kunnugt um, að kon- ungsfjölskyldan sem dvaldist þar, naut kjötsins mjög vel“. NOVA-tríóið. Við píanóið situr hljómsveitarstjórinn, Sigurður Guðmundsson. A gitarinn lcik ur Björn Haukdal og á bassann Friðrik Theódórsson. Sigrún syngur. (Ljósm.: Sv. Þ.) Hef afdrei búið svo hátt uppi — segir söngkonan í „kjti!kranum“ í FYRRAKVÖLD gafst frétta mönnum tækifæri til að rabba ofurlitla stund við nýjan söng kraft, sem þá söng í fyrsta sinni í Þjóðleíkhúskjallaran- um, en er raunar öllum ís- lendingum að góðu kunn fyrir daégurlagasöng sinn. Þetta er Sigrún Jónsdóttir, sem fyrir allmörgum árum hóf söngferil sinn með Öskubusk- um hér í bæ. —Þjóðleikhúskjallarinn er nú að hefja vetrarvertíðina, eins og Helgi Gíslason bryti og stjórrtandi samkomustaðar- ins komst að orði. — Við höf- um fengið hiná vinsælu söng- konu til að syngja með NOVA tríóinu, sem ráðið er til starfa hjá okkur í vetur. Sigrún segist hafa komið heim frá Noregi fyrir hálfum mánuði og sé ekki nema rétt búin að átta sig á því enn þótt hún búi upp á 11. hæð í háhýsi og geti notið útsýnis- ins sem bezt verður á kosið. — Ég hef aldrei búið eins hátt uppi fyrr, en íbúðin er bara of lítil fyrir okkur, svo ég reyni að lauma inn smá- auglýsingu, segir hún bros- andi. Við erum svo stutt á hverjum hún hafi aðhafzt í Noregi, þar sem hún er búin að dveljast í 4 ár. — Alltaf sungíð. — Og er það ekki þreytandi er til lengdar lætur? — Jú. Einkum ferðalögin. Við erum svo stutt á herjum stað í einu. Svo þetta verða stanzlaus ferðalög um landið þvert og endilangt. — Hver er skemmtilegasti staðurinn, sm þú hefur sung- ið á í Norgi? — Ég held það sé Stabburet í Frederikstad, en það er nýr skemmtistaður í fornum stíl, ekki óáþekkur Naustinu, nema hvað þarna er um að ræða líkingu af gömlu búri í sveit. — En næturklúbbarnir í Osló? — Þeir eru aðeins tveir. Ég var lengi á Telle, sem er ann- ar þeirra. — Og söngstíllinn. Er hann ekki frekar af gamla skólan- um? — Ekkert frekar. Það fer mikið eftir því á svaða stað ég syng í hvaða dúr söngur- inn er. Mér þykja mörg bítla lögin falleg. Ég kysi þau kann ske í ofurlítið öðrum stil, en þau eru ágæt. — Og hverjar eru framtíð- aráætlanirnar. Er eiginmaður inn með þér hér heima? — Við hugsum okkur að vera hér í vetur að minnsta kosti. — Hvað starfar eiginmað- urinn? — Hann var þotuflugmað- ur og heitir Per Bakke. Ég veit ekki hvað hann fer að gera hér. Síðan hlýðum við ofurlitla stund á Sigrúnu og Noy.a-tríó- ið. Það er leikið bæði gamalt og nýtt. Við áttum ánægju- lega kvöldstund. Sigrún Jónsdótti- Vestifarðaráðslelnar SUS uni helgina UM þessa helgi efnir Samband , ungra Sjálfstæðismanna til þriggja helgarráðstefna á Vest- fjörðum. Eru ráöstefnur þessar á ísafirði og Patreksfirði í dag en Bolungarvík á morgun. Isafjarðarráðstefnan hefst kl. 16:00 í Uppsölum og fjallar hún um Samgöngur á Vestfjörðum. Frummælendur eru þeir Sigurður Bjarnason aiþm. og Páll Aðal- steinsson, skólastjóri. Á Patreks- fjarðarráðstefnunni verður fjall- að um Framtíð byggðarinnar á Vestfjörðum og tala þar Þor- valdur Garðar Kristjánsson alþm. og Jóhannes Árnason, sveitar- stjóri. Þessi ráðstefna verður í Skjaldborg og hefst hún kl. 16:00. Ráðstefha í Bolungarvík hefst í Félagsheimilinu þar kl. 17:00 á morgun og verður þar rætt um Atvinnuuppbyggingu á Vestfjörð" um og eru framsögumenn þeir Matthías Bjarnason alþm. og Guðmundur H. Garðarsson, við- skiptafræðingur. Ráðstefnur þessar eru öllum opnar ungum sem eldri og er þess að vænta að Vestfiröingar fjölmenm á þessar ráðstefnur sem Samband ungra Sjálfstæðismanna gengst fyrir um helztu hagsmunamál þeirra. LÆGÐIN yfir Grænlandshafi var orðin mjög djúp í gær, 959 þrýstistig í lægðarmiðj'u réi> austur af Hvarfi. Fylgdu lægð inni regnsvæði og svæði með Akranesi 2. okt. ANNAR flokkur knattspyrnu- manna bæjarins kom heim býsna glaður í fyrrakvöld, eftir að hafa sigrað Keflvíkinga með 5 mörk- um gegn 0. Þetta eru bráðefni- legir drengir og eru vonarstjörn ur okkar Akurnesinga í fram- tíðinni. skúraveðri suður af Græn- landi. Suður af hæðinni yfir Norðursjó var aftur mikið heiðríkjubelti og indælt bktó- berveður með 17 stiga hita. I NA /5 hmthr \y SV SOhnútsr K Snjóíemo 7 Slúrir f t’/Mi w w v/ S Þrumttr '////>KuUo)kH\H Hmf f /yy/trsÚ^S HíhtU <--> I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.