Morgunblaðið - 03.10.1964, Qupperneq 11
L jugardagur 3. okt. 1964
MORGU NBLAÐIÐ
11
Myndin er tekin í tima í þjá ifunarskóla Canadair.
taki skiptir það ekki nokkru
*náli“.
Verða að skilja allt
fullkomlega.
Áður en ég taiaði við Krist-
i« gafst okkur tækiíæri til að
heimsækja þjálíunarskóla
Holls Royce. Parker skóla-
etjóri, sem starfað hefur þar
í 22 ár, sýndi okkur hreyfil-
inn heilan og í smá'bútum.
Hann klappaði á einhverja
leiðslu- eða röraflækju og hóf
íyrirlestur eins og hann ætl-
aði að taka okkur þarna í
tíma. En sennilega höfum við
verið of fijótir að jánka öliu,
því hann þagnaði, leit á okk-
ur og sagði: „Sko, hér er hver
hlutur tekinn út af fyrir sig,
og við hættum ekki við hann
fyrr eh við vitum að allir
ekiija örugglega til hvers
hann er og hvernig hann
etarfar. í>á íyrst tökum við
það næsta fyrir. í stuttu máli
kennum við hvernig breyfiil-
inn vinnur, hvernig finna á
toilun og hvernig gera á við
hana“.
*-#l Canadair-skólinn.
— Og svo er það Canadair-
6kólinn?
„Já“, segir Kristinn, „við
erum þar í fjórar vikur. Það
er bókiegt námskeið og verk-
legt, allt nema flugið sjálft.
Við erum fyrstu tvær vik-
urnar með skrokkinn og ýmis
kerfi. Við lærum um væng-
ina, stýrisútbúnaðinn, heml-
ana, hjólin, flugeiginleika,
skrúfuna o.s.frv. Skrúfan til-
dæmis er geysifyrirtæki út af
fyrir sig. Þá er farið í radar
og radíó, rifjað upp með mót-
orinn og í rafmagninu vorum
við nokkra daga“.
„í þessum skóla eru aðal-
kennaramir fjórir. en alls
hafa þeir sex kennt okkur.
Kennslutíminn á daginn er
sá sami og hjá Rolls Royce.
Við erum mjög ánægðir hér“.
— Takið þið próf í lokin?
„Já, já, bæði hér og hjá
Rolls Royce. Og þegar við
höfum lokið þessu af hefur
félagið alls 12 áhafnir á nýju
flugvéiarnar".
— Segðu mér eitt, getið þið
nú ekki sjálfir þjálfað nýjar
áhafnir?
„Gætum það náttúrlega, en
hvort það borgaði sig, nei.
Við þyrftum að fá öll tæki,
heilan mótor og annan i pört-
um til þess. Nei, það borgaði
sig ekki. Ætlunin hjá okkur
er að fá tvo aðalkennarana
heim í vetur og halda þar
upprifjunamámskeið".
60 punda námsefni.
— Þuríið þið að lesa undir
tíma?
„Já, það er nú betra. Þú
sérð bækurnar þarna. Við
verðum að pæla í gegn um
alla þessa doðranta, þó að
við lesum þá að sjálfsögðu
ekki spjaldanna á milli. Við
vigtuðum þá einu sinni að
gamni okkar og reyndust þeir
60 pund“.
„Já, það er mikill áhugi hjá
strákunum", segir Kirigtinn,
„allir eru af vilja gerðir að
leysa þetta vel af hendi.
Engan hefur vantað í tíma,
ekki svo mikið sem íimm
mínútur".
Jóhannes Markússon kom
nú inn í herbergið. Kristinn
stendur á fætur og segir: „Á
kvöldin erum við svo í „link-
inu“ hjá TCA. Við Jóhannes
ætlum að fara með ykkur
þangað, þið hafið gaman af
því“.
Og í næstu grein verður
skýrt frá heimsókninni 1
„linkið“. — Þbj.
Einar Gíslason
trésmíðameistari
ÞÆR tínast burt af taflborðinu
smátt og smátt gömlu kempurn-
ar, sem uxu upp við fátæktar-
basl seinustu aídar, Á yzta borði
er saga þeirra keimlík margra
hverra. Með óþreytandi elju,
nægjusemi og sjálfsbjargarþörf
tókst þeim að brjótast úr ör-
birgð til bjargálna. Næsta kyn-
elóð ber íyrir þeim djúpa virð-
ingu. Hún veit, að í þeim á
þjóðféiagið trausta hornsteina.
Við vitum líka, að orðheidni
þeirra og drengskapur stendur
ekki að baki skjalfestum staf-
krók; heiðursmenn, sem mega
ekki vamm sitt vita. Engin hætta
á, að hlekkur þeirra brygðist í
þj óðfél agskeð junni.
Einum þessara öldruðu sam-
ferðarmanna, Einari Gísiasyni,
fylgjum við hinzta spölinn í dag.
Einar var fæddur að Melum
á Kjaiarnesi hinn 14. júní 1878,
og var hann því á 87. aldursári,
er hann lézt í Hrafnistu hinn
26. f.m. Foreldrar hans voru
hjónin Gísli Magnússon og Þór-
hildur Magnúsdóttir. Þau voru
11 systkinin. Á lífi eru enn 3
systur, sem dveljast í sjúkrahús-
um í hárri eili. Foreldranna naut
ekki lengi við, því hann missti
móður sína, er hann var á 3. ári.
Fór hann þá í fóstur til hjón-
anna Jóns og Sigríðar á Snæfoks-
stöðum í Grímsnesi og var þar
til heimilis til tvítugsaldurs. —
Ungur fór hann til sjávar. Hann
reri í Þorlákshöfri á vertíðum
jöfnum höndum ineð vinnu-
mennskunrii, óg urri tveggja ára
skeið var hann á skútum, sem
gerðar voru út frá Reykjavík.
En árið 1899 brá hann á nýtt
ráð, er hann um haustið hóf tré-
smíðanám hjá Sigurjóni Sigurðs-
sýni i Reykjavík. Þar með var
teningunum kastað, því að upp
frá því stundaði hann lengstum
smíðar, meðan kraftar entust.
Gekk hann bæði að húsa- og
skipasmiði í Reykjavík um ára-
tuga skeið. Þó komu þeir tímar
á fyrstu áratugum aldarinnar,
að lítil atvinna var í iðn hans.
En þá var brugðið á gamla ráðið
að íara á sjóinn. Var hann á tog-
urum og fleiri skipum á þessum
árum. Einnig snaraði hann sér
þá austur á firði og var þar for-
maður á smábátum 2 sumur í
röð.
Einar kvæntist árið 1905 Kat-
rínu Ólafsdóttur frá Litlu-Gröf
í Borgarfirði. Varð þeim auðið
þriggja barna. Dóttur misstu þau
nnga, en synir þeirra tveir eru
Sigurjón skipasmiður í Hafnar-
firði og Gísli bifreiðarstjóri í
Reykjavík. Eftir 42 ára búskap
í höfuðborginni, fluttust gömlu
hjónin til Sigurjóns sonar síns
og konu hans. Konu sína missti
Einar árið 1952, en dvaldist enn
um 10 ára skeið hjá syni sínum
og tengdadóttur, unz hann fór
i sjúkradeild Hrafnistu árið
1962, þar sem hann dvaldist til
dauðadags.
Einar Gíslason var lengstum
heilsuhraustur maður og óvíl-
inn. Hann var sívinnandi, með-
an kraftar entust, énda var hon-
um svo farið, að hann gat ekki
setið auðum höndurri. Hánn varð
að vinna, knúinn fram áf óslökkv
andi þörf hins starfsfúsa og
vinnuglaða atorkumanns. Hann
var sívinnandi, meðan kraftar
entust, enda var honum svo farið,
að hann gat ekki setið auðum
höndum. Hann varð að vinna,
knúinn fram af óslökkvandi þörf
hins starfsfúsa og vinnuglaða at-
orkumanns. Hann var afkasta-
maður til allra verka.
Hann var gleðimaður mikill,
en hófsmaður á allan munað.
Vinnufélagi þótti hann vera fram
úr skarandi, síkátur og úrræða-
góður með gamanyrði á vörum
og ávallt reiðubúinn að rétta
hjálparhöpd.
Einar Gíslason var maður fé-
lagslyndur og þótti gaman að
taka lagið með vinum og sam
ferðarmönnum. Hann var lika
afbragðs góður söngmaður. Söng
hann oft í karlakórum og um
langt árabil söng hann í Frí-
kirkjunni í Reykjavík.
Sa,mferðarmenriimir eiga af
honum bjarta mynd þessum söng
elská gleðinnar og kappsama at-
orkumanni, sem á iangri ævi
stóðst þá þölraun að vera ávallt
drengur góður. Blessuð sé minn-
ing hans.
B. S.
Hafnarfjörður
Viljum ráða áhugasaman mann. Þarf að vera van~
ur akstri vörubifreiða.
Hf. Dvergur
Trésmíðavél
Litið notuð Reckord III sambyggð trésmíðavél
til sölu. — Upplýsingar í síma 41525.
Prentari óskast
Loftleiðir vilja ráða prentara til starfa frá ®g með
15. þ. m. — Umsóknareyðublöð, er fást í afgreiðslu
Loftleiða við Lækjargötu þurfa að vera komin, út-
fyllt til ráðningastjóra, eigi síðar en 10. þ. m.
WFTLEIOIR
Tvær stúlkur
vantar í Heyrnleysingjaskólann, til starfa í eld-
húsi og við þvotta ög þjónustubrögð.
Upplýsingar í símum 13101 og 13289.
Kefiavík — Nágrenni
Vetrarstarfsemi Bridgeféiags Kefiavíkur hefst
sunnudaginn 4. október í Féiagsheimili, Ytri-Njarð
vík kl. 1 e.h. — Tvímenningsmót um Danivals-
bikarinn hefst fimmtudaginn 8. október kl. 20,00,
sama stað. Þátttaka tilkynnist formanni fyrir
þriðjudagskvöld 6. október. — Sími 2073.
STJÓRNIN.
Hef opnað lækningastofu
að Sólvallagötu 8; Keflavík frá og með 5. október.
Viðtalstími virka daga kl. 1—2 e.h. og eftir umtali.
Stofusími fyrst um sinn 1800.
Vitjanabeiðnir á stofutíma kl. 1—2.
Vinsamlegast geymið auglýsinguna
Ólafur Þorbjörnsson, læknir.
3ja herb. íbúð
til sölu
Ásvallagötu 69.
Símar: 21515 og 21516.
KVÖLDSÍMI 3 36 87.
Höfum verið beðnir að selja 3ja herbergja íbúð í
fullgerðu sambýlishusi. íbúðin er á 5. hæð. Tvö
svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og stór stofa.
Glæsilegir gluggar og tvennar svalir. Tvær lyftur
eru í húsiriu og vandaðar þvottavéiar í sameign,
Teppi út í horn á stofú og skála fylgja.
Stórfenglegt útsýni.