Morgunblaðið - 03.10.1964, Side 12
12
MORCU N BLAÐIÐ
' Laugardagur 3. okt. 1964
k
Geislun á ísuðum fiski 3-5 faldar geymsluþolið
Er hættulaust og tiltölulega ódýrt
Í9LBNZKUR vísindamaður,
Ari Brynjólfsson, hefur und-
anf. 7 ár starfað við kjarnorku
rannsóknastöðina í Risö í Dan
mörku, sá í byrjún um bygg-
ingu koboltstöðvarinnar og
up>psetningu fyrstu elektron-
byssunnar, sera notuð er til
geislunar, en hann er nú yfir-
maður geislunardeildarinnar.
Geislunarstöðin í Risö var árið
1960, íþegar hún var reist,
stærsta geislunarstöð í heimi,
en bar hafa undanfarin ár m.
a. farið fram tilraunir varð-
andi geislun á matvælum í
þeim tilgangi að lengja
geymsluþol þeirra. Einnig að-
stoðaði Ari við uppbyggingu
stærstu matvælageislunar-
stöðvar Bandaríkjamanna ár-
in 1962—1963.
Ari kom í gær til íslands á
leið frá ráðstefnu vísinda-
manna á sviði geislunar, en
hún var haldin í Boston í sam
bandi við vígslu bandarískrar
tilraunaverksmiðju til geislun
ar á fiski. En það, ásamt geisl
un á öðrum viðkvæmum mat-
vælum er að verða mjög raun
hæft mál í matvælafram-
leiðslu heimsins. Og það sem
það snertir mjög fiskafurðir
til manneldis hefur Fiskifélag
ið beðið Ara um að halda hér
fyrirlestur um þetta mál í Há-
skólanum kl. 2 í dag.
— Rannsóknir á geislun mat
væla hafa farið fram í 20 ár,
einkum þó síðustu 10—12 ár-
in. Og nú er svo komið að
búizt er við að heilsuverndar
ráð Bandaríkjanna viðurkenni
geislun á matvælum til al-
menningsnota á næstunni og
að heilsuverndamefndir ann-
arra ríkja komi þá strax á
eftir, sagði Ari Brynjólfsson,
er fréttamaður Mbl. hitti hann
að máli á heimili systur hans
í Kópavógi í gær.
Og þar sem fiskurinn er það
sem okkur íslendinga varðar
mest, báðum við Ara fyrst um
að segja okkur eitthvað um
geislun á fiski með tilliti til
íslenzkra staðhátta.
— Hagkvæmast verður að
geisla ísaðan fisk. Geymslu-
þol hans er um það bil 7 dag-
ar. Vegna fjarlægðar íslands
frá erlendum mörkuðum er
það geymsluþol tiltölulega lít-
ið og veldur erfiðleikum á að
selja og dreifa fiskinum á er-
lendum mörkuðum sem fyrsta
flokks vöru. Ef við nú geisl-
um og ísum fiskinn, þá þre-
faldast eða fimmfaldast
geymsluþol hans. I>á lengist
geymslutíminn upp í 20—35
daga. Þannig mundi miklum
mun auðveldara að koma fisk-
inum á erlendan markað og
dreifa honum sem 1. flokks
vöru og ætti að fást mun
hærra verð fyrir hann,
— Sá aukakostnaður, sem
geislun hefur í för með sér,
er 25—50 aurar á kg. miðað
við núverandi verðlag eða um
2—3% af dreifingarverði fisks
ins. Þessi aukakostnaður yrði
tiltölulega lítill. Eins má hafa
í huga að kostnaður fer ávallt
niður eftir því sem notkun
verður meiri. Framleiðsla er
enn svo lítil á kobolti, að það
er dýrt. Einingin kostar nú 4
danskar krónur, én kostaði 40
d. kf., þegar við byrjuðum
með kobaltstöðina í Risö. —
Kostnaðurinn við geislun á
fiskinum stendur sem næst í
öfugu hlutfalli við það magn
sem fer í gegnum geislunar-
stöðina, og því verður þessi
aðferð tiltölulega ódýrust þar
sem mikið magn kemur að
landi. Slík geislunarstöð
mundi því helzt vera í beinu
sambandi við fiskverkunar-
stöðvar og frystihús.
— Nú höfum við heyrt að
Bandaríkjamenn séu að koma
sér upp geislunarstöð til að
hafa úti í fiskiskipi?
— Það verður of dýrt fyrir
íslenzkar aðstæður. Þetta er
hægt, en þarf að vera i stóru
móðurskipi. Nei, hagkvæmara
yrði að láta geislunina fara
Ari Brynjólfsson.
Viðtal við Ara Brynjólfsson
fram í stærri fiskverkunar-
stöðvum í landi.
— Og hvernig fer slík geisl
un fram og í hvaða ástandi er
fiskurinn geislaður?
— Það má geisla hann heil
an og slægðan eða flakaðan.
í stórum dráttum mundi þetta
fara þannig fram: Fiskurinn
kemur að landi, er verkaður,
ísaður, geislaður og svo send-
ur út. Fiskurinn mundi fara
á færibandi gegnum geislunar
stöðina og geislun taka
1—3 tíma. Tæknilega hliðin
á málinu er á þessu stigi nokk
uð flókin, meðan svo fáir eru
henni kunnugir. En þegar
geislunin er komin í gang, er
þetta tiltölulega einfalt. Þá get
ur einn ófaglærður, en sam-
vizkusamur gætinn maður,
stýrt sjálfu geislunartækinu.
Að sjálfsögðu þarf að auki
að leggja kassana á færibönd
in og taka þá af þeim. En stöð
in þyrfti helzt að ganga óslitið.
— Hversu öruggt er slíkt
starf með tilliti til hugsan-
legrar geislunar? Og hvernig
er með neyzlu á geisluðum
matvælum?
— Hættan er ekki meiri en
í hvaða verksmiðju annarri
sem er. Starfsmanninum staf-
ar meiri hætta af færibandinu
en því að verða fyrir geislun.
Og hvað matvælin sjálf snert
ir, þá hefur engin önnur
geymsluaðferð verið rannsök-
uð meira með tilliti til þess að
hún sé hæítulaus.
— Verður engin breyting á
fiskinum til neyzlu?
— Ef hann er geislaður
ákaflega^mikið, kemur fram
svolítið beizkjubragð af fisk-
inum, eins og þegar sól skín
á feitan fisk. En næringargildi
hans er svo til óbreytt. Ef fisk
urinn er lítið geislaður, eins
og menn hugsa sér að hann
verði, þá breytist bragðið ekk
ert eða a.m.k. mjög lítið. Þó
eru undantekningar frá þessu.
Lax er ekki heppilegur til
geislunar, því bragðið af hon-
úm breytist svo mikið. Aftur
á móti á annar fiskur, sem
veiðist hér við land, svo sem
þorskur og koli, að þola vel
geislun. Annars yrði nauðsyn
legt að gera nokkra rannsókn
á áhrifum geislunar á ísl. fisk,
áður en tekin yrði upp geisl-
un hér á landi. í ísl. fiski eru
aðrar bakteríur en fiski sem
veiddur er annars staðar,
hann er feitari og fleira þess
háttar. Svo það þyrfti undir-
búning áður en hægt væri
að hefja geislun á fiski hér.
Ýmis matvæli varin
með geisiun.
Þá snúum við talinu að al-
mennum rannsóknum í heim-
inum á geislun matvæla með
tilliti til aukins geymsluþols.
Ari segir okkur að Banda-
ríkjamenn, Bretar og Danir
standi þar fremstir í flokki.
En Sameinuðu þjóðirnar og
sérstofnanir þeirra fylgist
mjög vel með og standi fyrir
rannsóknum, því geislun á
matvælum kemur til með að
hafa mikla þýðingu um heim
allan, þó einkum fyrir heitu
löndin. Kaldari löndin standa
betur að vígi, og hafa góðar
geymsluaðferðir nú þegar. —
Atomstofnun Evrópu stendur
líka fyrir tilraunum með
geislun í Belgíu, þar sem eink
um er fengizt við geislun á
fiskimjöli til að eyða bakterí-
um, sem valda sýkingu. Banda
ríkjamenn hafa komið upp
geislunarstöðvum, sem enn
eru tilraunastöðvar, og er
þeirra stærst fiskirannsóknar-
stöðin í Gloucester í Massa-
chusetts, sú, sem verið var að
vígja, er Ari var fyrir vestan.
Sums staðar er byrjað að
geisla ákveðnar matartegund
ir. í Bandaríkjunum hefur ver
ið leyft að geisla svínaflesk og
kartöflur. Heilsuverndarráð
Bandaríkj anna leyfði líka á
s.l. ári geislun á korni og
hveiti til að útrýma maðki, en
hann veldur miklu tjóni í
heitu löndunum. Um það bil
25% af korninu í Indlandi'
eyðileggst af þeim sökum. Ind
verjarnir svelta, en maðkur-
inn étur 25% af korni þeirra.
Er gert ráð fyrir að þar verði
komið upp stórri geislunar-
stöð fyrr en varir. Kanada-
menn eru líka byrjaðir að
geisla. Þeir hafa smáar stöðv-
ar til að geisla kartöflur og
eru nú að reisa eina stóra.
Danir geisla fyrst
svínakjötið.
Við spyrjum Ara hvað hans
eigin deild í kjarnorkurann-
sóknarstöðinni í Risö hafi
mest fengizt við. — Við höf-
um fyrst og fremst gert til-
raunir með geislun á alls kon
ar læknisvörum, og nú þegar
er geislun mikið notuð til
gerilsneyðingar á læknisáhöld
um, segir hann. í Danmörku
hefur líka verið mikill áhugi
á geislun á kjötmjöli, beina-
mjöli og blóðmjöli, sem flutt
er inn sem dýrafóður. Krafizt
er gerilsneyðingar á slíku
mjöli, en við þáð rýrnar nær-
ingargildið um 35%. Hins veg-
ar rýrnar næringargildið ekk-
ert ef gerilsneytt er með geisl
un, og þar sem kostnaður er
svipaður, er beinn hagnaður
af að geisla.
— Þá hafa verið gerðar
rannsóknir með geislun á
svínakjöti. Danir hugsa sér
fyrst og fremst að geisla kjöt-
ið tiltölulega lítið en minnka
suðuna á því. Þeir hafa sýnt
fram á, að með því má bæta
gæði niðursoðins svínakjöts
og auka öryggi um að það
sé alveg sótthreinsað. Munu
þeir taka upp geislun á því
um leið og það verður viður-
kennd aðferð meðal annarra
þjóða. Hvað svínafleskinu við
víkur, þá hafa þeir svo góðan
markað fyrir það, geymt á
þann hátt sem þair nú gera,
að þeir hafa ekki áhuga á að
breyta því. Eins höfum við
gert rannsóknir á geislun á
kartöflum og grænmeti, en
það hefur ekki mikla þýðingu
í Danmörku. Það er í heitari
löndunum, er geislun á ávöxt
um og grænmeti hefur mesta
þýðingu, því þar skemmist
það áður en hægt er að koma
því á markað.
Við víkjum nú að fyrirlestri
þeim sem Ari ætlar að flytja
í dag kl. 2, á vegum Fiskifé-
lags íslands í Háskólanum um
geislun matvæla með sérstöku
tilliti til fiskafurða. Ari segir
að hann hafi verið beðinn um
að halda þennan fyrirlestur
þegar hann fór hér um á leið
vestur til Bandaríkjanna til að
sitja ráðstefnu, þar sem vís-
indam. á sviði geislunar mat-
væla báru saman bækur sín-
ar. — Ég er að vísu ekki sér-
staklega undir það búinn. En
ég ætti að vita eitthvað um
efnið, að minnsta kosti, segir
Ari og brosir við.
Atvinna
Starfsfólk, konur og karlar, óskast til iðnaðarstarfa
nú þegar. — Upplýsingar í verksmiðjunni,
Brautarholti 26.
Sútunarverksmiðjan b.f.
Sendisveinar óskast
hálfan eða allan daginn.
JWtrgttttMttMI*
% A
*
í útbreiddasta blaðinn
borgar sig bezt.
Ný íbúð
Falleg 6 herb. íbúð á 2. hæð í Heimunum til sölu.
í íbúðinni eru 2 stofur með gluggum í vestur og aust
ur, 4 svefnherbergi, 2 snyrtiherbergi, þvottahús á
hæðinni, stórar svalir í vestur og suður. Hurðir úr
álmi, eldhúsinnrétting úr Teak og Husqvarna-eld
hússamstæða. Bílskúrsréttur. Geymslur í kjallara.
Húsið er fullfrágengið að utan.
Þetta er ein glæsilegasta íbúð á markaðnum í dag.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12
Sími 21735 — eftir lokun 36329.