Morgunblaðið - 03.10.1964, Síða 14

Morgunblaðið - 03.10.1964, Síða 14
14 MORGU NBLADIÐ Laugardagur 3. okt. 1964 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. SKOLARNIR HEFJAST vatnsorkuna- í Kanada ERU spárnar um, að úran- kjarninn geti framleitt ódýr- ari orku en fallandi vatn, að rætast? Um þetta deila verk- fræðingar og kjarnorkufræð- ingar og yfirleitt virðast þeir sammála um, að innan fárra ára geti kjarnorkustöðvar framleitt eins ódýra orku og vatnsorkustöðvar sem vegna óhentugra staðhátta verða dýr ar í byggingu, miðað við hvert hestafl eða kílówatt. Gunnar Randers, mikilsmet- inn norskur kjarnorkufræðing ur, spáir því, að innan fárra ára verði hægt að framleiða kjarnorku-rafmagn eins ódýrt og rafmagnið verði frá þeim fallvötnum, sem þá-verða ó- virkjuð í Noregi. En þess ber vitanlega að gæta, að þær ár, sem dýrast er að virkja, hafa setið á hakanum, en hentug- ustu fallvötnin verið virkjuð fyrst. í þessu sambandi er það at hyglisvert, sem verið er að gera í Kianada um þessar mundir. E ^ agnsstjórn Ont- ario-fylkis hefur afráðið að byggja kjarnorkustöð skammt frá Toronto, sem framleiði eina milljón kílówatta straum, frétt. En rétt er að geta þess, rafmagni til innanhússþarfa. Rafmagnsstjórnin rekur m. a. hina mikiu stöð við Niagara, sem framleiðir 1.200.000 hest- öfl, og á enn aðgang að virkj- anlegu fallvatni. í Ontario eru tvær kjarn- orkustöðvar til rafmagnsfram TeiðsLu í gangi, eða svo til. Sú fyrri var reist í tilraunaskyni og er kennd við Deep River, en sú síðari við Douglas Point. Er hún að verða fuUgerð og mun framleiða 1.000.000 kw., og Lofar að selja rafmagn sam- keppnisfæru verði við aðrar aflstöðvar í Kanada og lægra verði en þær kjarnorkustöðv- ar, sem nú eru í gangi x heim- inum. — f>etta er eftirtektarverð frétt. En rétt er að geta þess, að nýja Pickeringstöðin nýtur ýmsra hlunninda. Hún á að kosta 300 milljón dollara, en af þeirri upphæð leggur sam- bandsstjórn Kanada fram 80 milljónir, sem styrk. Úran er til í Kanada, en markaður- inn fyrir það er rýr, því að Bandaríkín hafa fengið ódýr- ara úran annarsstaðar. En Pickering-stöðin á að rétta við hag úran-vinnslunnar. Kandamenn hafa sjálfir smíðað „reaktorana“, sem verða í stöðinni. Þeir eru að- eins tveir, af svonefndri Candu-gerð (skammstöfun af Canadian Deuterium Uraní- um), og verða fylltir af 2i3ö lestum af úran og nær 900 Lest um af þung-vatni dreypt á þá Þungavatnið kostar 20 dollara pundið. f>að er hægt að kaupa svokallað „mettað úran“ og þá þarf ekki þung'-vatn. En mettað úran kostar 6000 doll- ara pundið. Hinsvegar er „ómettað“ úran svo mikLu ódýrara, að Kanadamenn telja „candu-aðferð“ sína hagkvæm ari. Indverjar hafa þegar reist 200.000 kw atómstöð og vilja fá 2—3 í viðbót á næstunni f»eir nota í aðalatriðum kana- dísku aðferðina. í EngLandi er stór atómstöð í smíðum, kennd við WYLFA, Hún er stærri en Pickering- stöðin verður í byrjun, þegar hún tekur til starfa, 1970. En allar teikningar að Piékering eru þannig gerðar, að hægt er að bæta við tveim „reaktor- um“ án mikils kostnaðar, og tvöfalda þannig orku stöðvar- innar upp í 2 milLjón kw. Og þá verður Pickering stærsta atómstöð veraldar. — I>. e. a. s. ef ekki skýtur ein- hversstaðar upp öðrum ennþá stærri í miLLitíðinni. ESSKÁ. Afkoma Blindra- félagsins góð sl. <ár nPugir þúsunda ungmenna eru um þessar mundir að hefja skólagöngu. Glæsilegt æskufólk er að hefja nám eftir sumarstörf. Glaðværð og bjartsýni ríkir í mennta- stofnunum landsins, samfara þeirri ábyrgð, sem hinir ungu menn, er leggja inn á mennta brautina, gera sér grein fyrir að þeim er á herðar lögð. Ár frá ári vex fjöldi þeirra, sem aflar sér aukinnar mennt unar. Skólar eru byggðir og kennaraliði fjölgar. Nútíma þjóðíélag krefst sérmennt- unar og þess vegna hlýtur þessi þróun að halda áfram, og raunar þyrfti hún að vera mun örari en raun ber vitni. Hitt er mála sannast, að æskumenn menntast ekki ein- ungis við skólaborðið. Þeir mega ekki slitna úr tengslum við hin daglegu störf og hið daglega líf. Þess vegna væri sú þróun óæskileg, að ungir menn hættu sumarstörfum í hinum ýmsu atvinnugreinum þjóðfélagsins, þótt ef til vill megi eitthvað lengja náms- tímann. Mikið er um það rætt, hvort ekki sé nauðsynlegt að breyta eitthvað skólakerfi landsins með hliðsjón af breyttum þjóðfélagsháttum, og vafa- laust er margt, sem til bóta gæti horft, þótt ekki skuli hér farið út í þá sálma. En á þessu hausti vekur einna mesta athygli setning nýs skóla, Tækniskólans. — Undirbúningur að stofnun hans hefur lengi verið á döf- inni og hafa margir mætir menn lagt þar hönd á plóg- inn, enda er það mála sann- ast, að við höfum dregizt aft- ur úr á sviði tæknimenntun- ar og ekki seinna vænna að gera stórátak til úrbóta á því sviði. Hin batnandi lífskjör þjóð- anna byggjast á því, að tækn- in er stöðugt tekin í ríkara mæli í þágu atvinnuveganna. Þess vegna er hvarvetna lögð á það megináherzla að auka tæknimenntun, og með stofn- un Tækniskólans höfum við íslendingar lagt inn á þessa braut, enda eru menn yfir- leitt á einu máli um það, að á næstu árum hljóti að rísa hér upp stórfyrirtæki, sem þarfnast margra sérmennt- aðra manna á sviði marghátt- aðs iðnaðar. Er vonandi að hinn nýi tækniskóli megi vaxa og auðn ast að gegna því mikilvæga hlutverki, sem honum er ætlað. TREGÐA EYSTRA egar félagi Einar Olgeirs- son kom frá viðræðun- um við félaga Bresnev, hafði hann mörg orð um það, að íslendingum stæðu opnir markaðir fyrir niðurlagða síld í Rússlandi, jafnvel fyrir 100 milljónir króna, og þótt- ist hafa unnið mikið og gott starf austur í Moskvu. Engu er rpí líkara en félagi Bresnev hafi gleymt loforðunum, sem félagi Einar segir hann hafa gefið sér, því að mjög hefur verið leitað á rússneska ráða- menn um það að standa við fyrirheit félaga Einars. Eins og Morgunblaðið skýrði frá í gær, hefur af hálfu íslenzkra stjórnarvalda verið unnið kappsamlega að því að reyna að afla markaða fyrir niðurlagða síld í Rúss- landi í samræmi við fréttir félaga Einars Olgeirssonar af því að slíkir markaðir væru fyrir hendi. En þrátt fyrir það að ís- lenzkir aðilar hafa gert allt sem í þeirra valdi.stendur til að fá svör við því, hvort Rúss- ar vildu kaupa þessar afurð- ir ,hafa svör enn ekki borizt. Vonandi hefur félagi Einar ekki misskilið félaga Bresnev, heldur er einungis um minn- isleysi af hálfu hins síðar- nefnda að ræða, og þá ætti að vera hægt að hressa upp á minni hans, þannig að hann stæði við þó ekki væri nema einhvern hluta af loforðun- um. En ætíð hljóta þau við- skipti að vera býsna óörugg, sem byggjast á duttlungum einstakra manna, eins og er um viðskiptin vjð kommún- istaríkin, sem háð eru póli- tískum ákvörðunum hverju sinni. Sannast það nú — og hefur raunar sannazt oftsinn- is áður. AFLALEYSI TOGARANNA T viðtali sem Morgunblaðið átti í gær við Markús Guð- mundsson, skipstjóra á Júpí- ter, segir hann að minnkandi fiskur sé á miðunum og að í ár sé algert met í fiskileysi, Þetta eru uggvænleg tíðindi, sem menn mega ekki láta sem vind um eyru þjóta. Togaraútgerðin hefur nú ár um saman gengið svo erfið- lega, að engu er líkara en að þessi þáttur útgerðarinnar muni algerlegá leggjast niður, I og er þá vissulega skarð fyrir AÐALFUNDUR BLindrafélags- ins var haldinn 28. ágúst s.l., að HamrahLíð 17. Gefin var ýtar- skildi í íslenzkum atvinnu- málum, því togararnir, hafa verið ein helzta undirstaða þeirrar velmegunar, sem við nú búum við. Hitt er þó alvarlegra, ef það er svo að fiskigengd á miðunuiTi sé almennt að minnka. Yirðist það geta ver- ið hugsanlegt, þrátt fyrir hinn mikla afla að undanförnu, sem vafalaust byggist að miklu leyti á bættum veiði- aðferðum og fullkomnum tækjum. Svo mikið er a.m.k. víst, að fiskifræðingar telja að ekki megi mikið auka afla frá því sem nú er. Ljóst er þess vegna að bætt afkoma manna og lífsframfæri fjölgandi þjóðar verður jafnframt því sem verðmæti sjávarafurða er aukið að byggjast á nýjum þáttum atvinnulífs. Auðvitað verður sjávarút- vegurinn, næstu áratugina að minnsta kosti, helzta stoð ís- lenzks útflutnings. En jafn- framt því sem okkur ber að gera allt sem unnt er til að styrkja stoðir hans, þurfum við að treysta nýjan stórat- vinnurekstúr ,þáf sem er stór- iðjan. leg skýrsla um rekstur síðasta árs, endurskoðaðir reikningar lagðir fram og samþykktir. Helztu niðurstöður þeirra eru á þessa leið, að merkjasala nam kr. 214 þús., reksturshagnaður kr. 1,2 millj, og skuldlaus eign í árslok kr. 4 millj. 489 þús. Fé- lagið naut byggingarstyrks frá Alþingi kr. 150 þús. Fjárhagsleg afkoma var hag- stæð, og átti þátt í því m. a., að stofnað var til happdrættis til ágóða fyrir byggingarsjóð félags ins er heppnaðist mjög vel. Einnig bárust að vanda stærri og minni gjafir frá ýmsum aðilum er of langt yrði upp að telja, og beindí fundurinn einlægu þakklæti til allra, sem þar eiga hlut að, bæði opinberra aðila og fjölmargra einstaklinga. Blindravinnustofan starfaði á sama hátt og fyrr við nægt verk- efni, vörusala nam kr. 552 þús., og tekjuafgangur varð kr. 75 þús., þar starfa að jafnaði 11 blindir menn, og auk þeirra nokkrir er stunda önnur störf úti í borginni. Fundurinn ræddi mikið ýmis þau nauðsynjamál, er nú varða félagið mest, um næstu framtíð, þar á meðal að það efli fram- leiðslu sína enn betur og gjöri hana fjölbreyttari en nú er, og að opnuð verði sölubúð á veg- um þess. Ennfremur að ieggja áherzlu á það meginverkefni og mesta áhugamál allra félagsmanna, að ekki líði langir tímar þar til möguleikar verði að hefja bygg- ingu 3Íðari hiuta BLindraheimU- isins í Hamrahlíð 17, því eins og nú horfir er íbúðarhúsnæði að verða íullskipað og fyrr getur féLagið ekki rækt að fullu það hlutverk, að veita sem flestum folindum mönnuni heimilisvist, og öll skilyrði til menntunar og þjálfunar í hverskonar störfum, en þetta verður framkvæmt. Og með hliðsjón af því a<5 BLindrafélagið á.tti 25 ára afmæli 19. ágúst s.l., og hefir með starfi sínu orðið vel ágengt um mörg verkefni er ákveðið var að vinna að er félagið hóf göngu sína, heitir það enn á alla vel- unnara sína, er jafnan hafa i verki stutt blinda fólkið í starfi, að leggjast nú enn fast á sveif með því, að takast megi að leysa þau viðfangsefni, sem bíða sem allra fyrst, og vill í þessu sam- bandi minna alla á merkjasölu félagsins er verður annan sunnu dag í nóvember. Fundurinn kaus tvo bLinda fulltrúa til að mæta á þingi blindra manna frá Norðurlönd- um, er haldið verður í Finn- landi, dagana 1.—3. október n.Jc. Stjórn félagsins var endurkjör in og skipa hana Margrét Andrés dóttir, Rósa Guðmundsdóttir, Guðmundur Jóhannesson, K. Guðmundur Guðmundsson og Hannes M. Stephensen. Blindrafélagið minntist 25 ára afmælis síns sunnudaginu 20. september í Blindraheimilinu Hamrahlíð 17, og hófst það með kaffidrykkju, kl. 3 e.h. Boðið var blindu fólki úi* Reykjavík og aðstandendum þess, og einnig utan af landi. Ennfremur nokkrum öðrun* gestum. Formaður félagsins Margréft Andrésdóttir setti hófið og bauð gesti velkomna. Undir borðum voru ræður fluttar af þeim Hannesi M. Step hensen ritara félagsins er rakti nokkra þætti úr sögu félagsins, Skúla Guðjónssyni bónda á,Ljót- unnarstöðum og Helga ELíassyni fræðslumálastjóra er flutti kveðju frá Blindravinafélaginu. Á eftir skemmtu leikararnip Anna Guðmundsdóttir og Kart GuðmuncLsson. Hófið var vel sótt og stóð fram á kvöld og varð öllum viðstöddum til mik- itlai ánægju. (Frá Blíndrafétaginu).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.