Morgunblaðið - 04.11.1964, Blaðsíða 8
MORCU N 2LADIÐ
Aldarafmæli Einars
Benediktssonar minnzt
Stytta af skáldinu afhjúpuð á Klambratúni
Tómas Guðmundsson flytur ræðu sín*, efUr stytta Asmund-
ar Sveinssonar af Einari Benediktssyni hefur verið afhjúpuð.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
ALDARAFMÆLIS Einars
Benediktssonar, 31. október,
var minnzt með ýmsum hætti.
Helzta minningarathöfnin fór
fram á Klambratúni í Reykja
vík, þar sem stytta skáldsins
var afhjúpuð.
Ásmundur Sveinsson, mynd-
höggvari, gerði frummyndina á
árunum 1932—1934. Árið 1956
fór Ásmundur að vinna að stækk
nn myndarinnar fyrir tilmæli
Útgáfufélagsins Braga. Lauk
hann því verki seinni hluta árs-
ins 1960, og næsta ár, 1961, var
styttan' send til Lundúna, þar
sem hún var steypt í eir.
Formaður Braga, Magnús Vig-
lundsson, afhenti Reykjavíkur-
borg styttuna að gjöf, og tók borg
arstjóri, Geir Hallgrímsson, við
henni fyrir hönd borgarinnar.
Sonardóttir Einars Benediktsson-
ar, frú Þóra Benediktsdóttir, af-
hjúpaði styttuna, en síðan hélt
Tómas Guðmundsson ræðu. Guð-
mundur Jónsson söng við undir-
leik Lúðrasveitar Reykjavíkur.
Styttan er þrír metrar á hæð
og stendur á steyptum stalli.
Reykjavíkurborg sá um uppsetn-
ingu styttúnnar, en hún stendur
á Klambratúni sunnanverðu, um
50 metra frá Miklubraut. Stytt-
an snýr til norðurs, en gert er
ráð fyrir hávöxnum trjágróðri
fyrir aftan hana, milli hennar og
Miklubrautar, og löngum, opnum
grasfleti fyrir framan hana.
Athöfnin hófst kl. 14 að við-
stöddu fjölmenni með því að
Lúðrasveit Reykjavíkur lék
„Rís þú unga íslands merki“ eft-
ir Sigfús Einarsson við ljóð Ein-
ars Benediktssonar. Meðal gesta
við afhjúpunina var forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
höfundur styttunnar, Ásmundur
Sveinsson, ýmsir ráðherrar, borg
arfulltrúar og fleiri.
Þá hélt Magnús Víglundsson,
formaður Útgáfufélagsins Braga,
ræðu og afhenti styttuna. Ræddi
hann um skáldskap Einars og
hlutverk hans í endurreisn ís-
lands. Þegar Einar Benediktsson
hafði tekið sér stöðu í fremstu
röð íslenzkra skálda fyrir um
það bil þremur aldarfjórðungum,
hefði íslenzka þjóðin verið lang-
þjökuð af erlendri kúgun og
aárri fátækt. Gegn þessu reis
Einar Benediktsson með slíkri
málsnilld, að íslendingar höfðu
aldrei heyrt aðra eins lögeggjan,
tagði Magnús. Einar hefði verið
spámaður þjóðarinnar, boðberi
nýrrar aldar. Hann hefði farið
víða og átt sterkari itök erlendis
verðlaunaveitinga meðal ís-
lenzkrar skólaæsku fyrir beztu
ritgerðir um íslenzkar bókmennt
ir og sögu. Verðlaunin yrðu
bundin nafni og minningu Ein-
ars Benediktssonar. í þessu sam-
bandi mundi félagið gangast fyr-
ir mjög víðtækri kynningu á
verkum Einars í skólum lands-
ins. Einnig væri áformað, að
Bragi gengist fyrir útgáfu árs-
rits, sem helgað yrði minningu
skáldsins. Þá mundi félagið beita
sér fyrir könnun heimilda um á-
ætlanir Einars Benediktssonar
um virkjanir fallvatna og stór-
iðju á íslandi.
Að lokum kvað Magnús Víg-
lundsson vel til fallið, að æska
íslands kæmi framvegis saman á
afmæli Einars Benediktssonar
við þennan bautastein hans, til
þess að treysta þar heit sín við
ættjörðina.
Geir Hallgrímsson, borgar-
Magnús Víglundsson afhendir
Reykjavíkurborg styttuna að
gjöf frá Útgáfufélaginu Braga.
stjóri, veitti nú styttunni mót-
töku, og sonardóttir skáldsins,
frú Þóra Benediktsson, afhjúp-
aði styttuna. Geir Hallgrímsson
þakkaði gjöfina og kvað Reyk-
víkinga meta mikils að eiga nú
minnismerki Einars Benedikts-
sonar á miklatúni höfuðborgar-
innar. Einar hefði öðrum fremur
séð fyrir vöxt og viðgang
Reykjavíkur. Hann hefði hvatt
tReykvíkinga til dáða og gert
þeim grein fyrir hlutverki höfuð-
borgarinnar í lífi þjóðarinnar.
Þá hélt Tómas Guðmundsson
ræðu og fjallaði um Einar og
skáldskap háns. Vitnaði hann til
orða Einars: „f vöggunnar landi
skal varðinn standa" og kvað
sjálfsagt mál, að hér í höfuðborg-
inni stæði minnisvarði hans.
Einar Benediktsson væri borinn
og barnfæddur við túnfót Reykja
víkur, hér hefði æska hans átt
athvarf, hér hefði hann lifað
nokkur beztu manndómsár sin,
og einatt síðar komið á marga
lund við sögu Reykjavíkur, sem
hann hefði ætlað stærri hlut en
nokkur annar samtíðarmanna
hans. Tómas kvað skáldskap Ein-
ars Benediktssonar einstæðan,
enda hefði hann ekki skapað
neinn skóla í venjulegri merk-
ingu. Hann benti síðan á skyld-
leikann, sem væri með Agli
Skallagrímssyni og Einari Bene-
dikssyni. Svo gæti virzt, sem ís-
lenzk skáldlist missti í engu af
hæð sinni, þó að hún væri mæld
eingöngu við þá Egil og Einar.
Stærri svipur og sterkara ættar-
mót væri með þessum tveimur
skáldum en nokkrum öðrum.
Einar Benediktsson væri land-
námsmaður nýrrar aldar, sem
lagzt hefði 1 vikingu til að sækja
þjóð sinni auð og efni í nýja há-
menningu. Þá ræddi Tómas Guð-
mundsson um lotningu Einars
Benediktssonar fyrir íslenzkri
tungu og sagði vafasamt, að nokk
ur íslendingur hefði bundizt
tungu sinni jafn ástríðufullri ást,
að ekki væri sagt dulvitlegum
átrúnaði.
Að lokinni ræðu Tómasar söng
Guðmundur Jónsson við undir-
leik Lúðrasveitar Reykjavíkur
„Reykjavík" eftir Sigvalda
Kaldalóns.
Fánar íslands og Reykjavíkur
blöktu yfir hátíðasvæðinu á
Klambratúni.
Minningardagskrá í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs gekkst fyr
ir samkomu í Félagsheimili
Kópavogs föstudagskvöldið 30.
október, þar sem aldarafmælis
Einars Benediktssonar var
minnzt.
Fyrst var fluttur „Skálda-
kongressinn á Parnass“. Þessir
fóru með hlutverk: Björn Einars-
son (Bertel Ó. Þorleifsson),
Magnús B. Kristinsson (Hannes
Hafstein), Björn Magnússon
(Einar H. Kvaran), Loftur
Ámundason (Matthías Jochums-
son), Sigurður Jóhannesson
(Benedikt Gröndal), Þórður
Kristinsson (Grímur Thomsen)
og Guðmundur Guðmundsson
(Steingrímur Thorsteinsson).
Þá flutti Pétur Benediktsson
erindi um manninn Einar Bene-
diktsson.
Síðan las Auður Jónsdóttir upp
úr ljóðum Einars, og flutt var
atriði úr Pétri Gaut (Gandreið-
in). Sigurður Grétar Guðmunds-
son fór með hlutverk Péturs
Gauts, en Lily Guðbjornsdðttip
með hlutverk Ásu. Gunnvör
Braga Sigurðardóttir las upp.
Þá flutti séra Sigurður Einars-
son í Holti erindi um skáldið
Einar Benediktsson, og að lokum
las Hjálmar Ólafsson upp.
Einars Benediktssonar minnzt
í Háskóla íslands
Kl. 15 laugardaginn 31. oktð-
ber hófst minningardagskrá utn
Einar Benediktsson í hátíðasal
Háskóla íslands.
Dr. Steingrímur J. Þorsteins-
son, prófessor, flutti érindi, o<*
Kristinn Hallsson söng við undir-
leik Árna Kristjánssonar. Þá laa
Lárus Pálsson upp úr ljóðutn
Einars.
Laugardagskvöldið 31. októ-
ber flutti Ríkisútvarpið dagskrá,
til þess að minnast þess, að þá
voru eitt hundrað ár liðin frá
fæðingu Einars Benediktssonar,
Minningarfrímerk!
Póststjórnin hefur Skveðið að
minnast aldarafmælis Einara
Benediktssonar með því að gefa
út sérstakt frímerki. Merkið
kemur út á næsta ári.
en nokkurt annað íslenzkt skáld
allt frá tímum hirðskáldanna.
Hann hefði fært landmörk ís-
lenzkrar Ijóðlistar út að miklum
mun. „Hvergi hefur íslenzka
þjóðin eignazt jafn stolta fram-
tíðardrauma sem í kvæðum þessa
mikla skálds. Hvergi hefur metn-
aðar- og sjálfstæðisþrá fslend-
inga verið svalað á jafn listræn-
an og djarflegan hátt og þar.
Ekkert skáld hefur skapað jafn
tignarlegt ísland og í kvæðinu
„Sóley“. í kvæðum Einars hafi
þjóðin heyrt gný komandi aldar
og síðan farið að breyta skáld-
skap hans í veruleika.
Magnús kvað mikilvægt, að ís-
lenzk æska fengi tækifæri til
þess að lesa og meta kvæði Ein-
ars Benediktssonar. Þau væri
eitt höfuðvígi í baráttunni gegn
ýmsum tilbrigðum vafasamra er-
lendra áhrifa, sem leituðu hér
landsetu. Útgáfufélagið Bragi
hefði því ákveðið að efna til
Ýmis ný frumvörp hafa verið l
borin fram á Alþingi, á meðan
á verkfalli prentara stóð, og sem
iþví ekki hefur gefizt tækifæri til
að skýra frá hér. Þar á meðal er
stjórnarfrumvarp um ný girð-
ingarlög. í athugasemdum og
greinargerð sem fylgja frumvarp
inu, segir meðal annars.
Þann 3. apríl 1963 samþykkti
Alþingi eftirfarandi ályktun um
endurskoðún girðingalaga:
„Ailþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta, með hlið-
sjón af endurskoðun vegalaga,
endurskoða girðingarlög nr. 24 1.
febr. 1952. Endurskoðun þessari
skal lokið það tímanlega, að
hægt sé að leggja niðurstöður
hennar fyrir næsta reglulegt Al-
þingi.
Að tilhlutan landbúnaðarráðu-
neytisins tilnefndi Búnaðarfélag
íslands þá Þorstein Sigurðsson,
formann félagsins og Ásgeir L.
Jónsson, ráðunaut, í nefnd til að
I endurskoða lögin og vegamála-
stjóri tilnefndi Snæbjörn Jónas-
son, verkfræðing, í nefndina.
Hafa þeir samið frumvarp það,
sem hér liggur fyrir.
Síðasta Búnaðanþing fjallaði
um frumvarpið og gerði tillögur
um breytingar, sem teknar hafa
verið upp í frumvarpið. Er nefnd
arálit jarðræktarnefndar Búnað-
arþings prentað með frumvarp-
inu sem fylgiskjal.
Að fenginni reynslu, þykir rétt
að hækka 5 strengja gaddavírs-
girðingu um 10 cm frá því, sem
verið hefur. Hins vegar reynist
6 metra bil milli jarðfastra staura
of langt, og er því hér stytt í 4 m.
Á síðari árum hafa bændur í
ýmsum landshlutum brugðið til
þess ráðs að girða jarðir sínar
og hólfa í sundur með djúpum
skurðgröfuskurðum. Þar sem
slíkir skurðir eru grafnir í mýra-
jarðveg, hafa þeir reynzt grip-
heldari girðing en nokkrar aðrar,
er hér tíðkast, og eru þá venju-
lega settir 2—3 gaddavírsstrengir
á annan skurðbakkann. Með því,
að svona girðingar eru algengar,
og í sumum sveitum því nær ein-
göngu notaðar, þykir rétt, að
þær verði löggiltar.
Sigurvin Einarsson og Hanni-
bal Valdimarsson hafa borið
fram frumvarp í neðri deild um
kaup og rekstur á Vestfjarða-
skipi.
Þá hafa þingmenn Framsókn-
arflokksins í neðri deild borið
fram frumvarp um hækkun ríkis
framlags til hafnargerða og þing-
menn sama flokks í efri, deild
hafa flutt frumvarp um sam-
vinnubúskap. Arnór Sigurjóns-
son (Alþbl.) hefur flutt frum-
varp um gróðurvernd og land-
græðslu og 5 þingmenn úr öllum
flokkum hafa flutt frumvarp um
menntaskóla á ísafirði.
í Sameinuðu þingi hafa komið
fram nokkrar tillögur til þings-
ályktunar. 4 þingmenn Fram-
sóknarflokksins eru flutnings-
menn þingsályktunartillögu unt
landafundi íslendinga í Vestur-
heimi. Þá hafa Framsóknarmenn
flutt þingsályktunartillögu um
endurskoðun laga um aflatrygg-
ingasjóð sjávarútvegsins og urt»
verðtryggingu sparifjár. Árnór
Sigurjónsson er flutningsmaður
þingsályktunartillögu um verð-
lags og peningamál.
Þá hafa þingmenn Vestfjarða-
kjördæmis flutt frumvarp un»
menntaskóla á ísafirði.
Smurt brauð, smttur, öl, gos
og sælgæti. — Opið frá kL
9—23,30.
BrauÓstofan
Sími 16012
Vesturgötu 25.