Morgunblaðið - 04.11.1964, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.11.1964, Blaðsíða 20
20 MORGU N BLAÓIÐ Miðvíkudagur 4. nóv. 1964 L Rétt fyrir mánaðamótin fórn fram miklar heræfingar á Spánar- ströndum, og gensu m.a. liðssveitir úr bandaríska landgönRU- liðinu á land í æfingaskyni. Þa ð slys varð, að tvær þyrlur, eina og þær sjást á myndinni, ráku st saman, hröpuðu. Niu banda- rískir hermenn biöu bana í slys- inu. — Myndin er frá heræfing unum. HÉR fara á eftir í stuttu máli og tímaröð helztu erlendu fréttir þá daga er Morgun- hlaðið kom ekki út vegna verkfallsins. ALLSHERJARÞINGINU FRESTAÐ New York, 24. okt. (AP-NTB) Fulltrúar 41 meðlimaríkis SÞ hafa farið þess á leit, að Alls- herjarþimgi SÞ verði frestað til 1. des. n.k., en fundir þess áttu oð hefjast 10. nóv. Það eru þjóðir Afríku — Asíu og S-Ameriku sem eð frestunartillögunni standa. VIÐRÆÐUR IIM KJARNORKUAFVOPNUN Washington 24. okt. (NTB) Bandaríkjastjórn er ekki mót- fallin viðræðum við Kinverska Alþýðulýðveldið og önnur ríki, er ráða yfir kjarnorkuvopnum um afvopun á þessu sviði. Frakk- ar hafa einnig lýst sig fylgjandi alíkum fundL JENKINS HEFURUÍTIL ÁHRIF Washington 24. okt. (NTB) Stjómmálasérfræðingar í Bandaríkjunum eru flestir sam- mála um, að handtaka Walters Jenkins, náins ráðgjafa John- sons forseta, hafi lítil áhrif á möguleika forsetans til þess að sigra kosningamar. Niðurstöður skoðanakönnunar, sem gerð var eftir handtöku Jenkins, fall Krúsjeffs og kjarnorkuspreng- ingu Kínverja, sýná, að Johnson á enn auknu fyigi að fagna meðal kjósenda. ZAMBIA SJÁLFSTÆTT RÍKI Lusaka, 24. okt. (NTB) í dag hlýtur N.-Rhodesía sjálf- stæði og nefnist héðan í frá Zambia. Fáni hins nýja ríkis var dreginn að húni á miðnætti í nótt. Landið hefur lotið Bretum I 61 ár. HERNAÐARAÐSTOÐ VI» ÍSRAEL Bonn, 27. okt. (NTB) Áreiðanlegar heimildir í Bonn hermdu í gær, að V.-Þýzkaland hefði fyrir mörgum árum gert samning við ísrael um vopna- sölu og hemaðaraðstoð. Tals- menn v.-þýzka varnarmálaráðn- neytisins neituðu að svara spum- Síðustu dagar kosningabaráttunn »r í USA hafa verið Goldwater og Johnson erfiðir. Þeir hafa þeytzt landshomannna á milli og tekið í hendur þúsunda kjós- enda. Hér er Jolinson, þreytuleg- nr að sjá, með plástra á hendi, sem er fleiðruð eftir öll hand- tökin. ingum fréttamanna um þetta mál. Heimildirnar hermdu m.a., að samningurinn um hernaðarað- stoð^ og vopnasölu V.-Þýzkalands til fsraels hefðu verið gerðar í stjórnartíð Adenauers, fyrrv. kanzlara og Ben Gurions, fyrrv. forsætisráðherra. Segir, að aðstoð in hafi þegar numið sem svarar rúmum 2 milljörðum ísl. kr. ísraelskir hermenn hafi hlotið þjálfun í V.-Þýzkalandi, en V.-Þjóðverjar hafi hins vegar ekki sent hernaðarráðgjafa til ísraels. NÉ STEFNA BRETA í EFNAHAGSMÁLUM London, 24. okt. (NTB) Brezka stjórnin lagði í gær fram tillögu um breytta stefnu í efnahagsmálum landsins í þeim tilgangi að draga úr hallanum á viðskiptajöfnuðinum. Margar viðskiptaþjóðir Breta hafi lýst áhyggjum sínum yfir að stefnu- breytingin, sem miðar mji. að því að draga úr innflutningi, hafi alvarleg áhrif á útflutning þcimu í tillögunni, sem stjórn Verka- mannafiokksins bar fram um efnahaigsmál, er m.a. gert ráð fyrir 15% hækkun tolla á öllum innflutningi til Bretlands og skattaívilnunum, sem auðvelda eiga framleiðendum í Bretlandi að framleiða ódýrari vörur og auka útflutninginn. Einnig hyggst stjórnin taka öll útgjöld hins opinbera til endurskoðunar. Reiginald Maudling, sem var fjármálaráðherra í stjórn íhalds- flokksins, sagði, er tillagan hafði verið borin fram í þinginu, að íhaldsflokkurinn væri ekki mót- fallinn henni í grundvallaratrið- um, en hygðist fylgjast nákvæm- lega með hverning hún yrði í framkvæmd. VIRÐING OG JAFNRÉTTI Moskvu, 27. okt. (NTB) f ritstjórnargrein Izvestija i gærkvöldi segir, að hinir nýju leiðtogar Sovétríkjanna vilji, að sambúðin við kommúnistaflokka í öðrum löndum grundvallist á gagnkvæmri viröingu Ofj jafn- rétti. Einnig er lögð áherzla á mikilvægi einingar innan heims- kommúnismans. í ritstjórnargreininni var sam- búð Sovétríkjanna og Kína ekki nefnd einu orði, en vestrænir fréttamenn í Moskvu telja hina mikiu áherzlu, sem lagð var á einingu innan heimskommúnis- mans, benda til þess að reynt verði að komast að samkomulagi við Kínverja. WALKER VILL HITTA RÁÐHERRA EBE London, 27. okt. (NTB) Utanríkisráðherra Breta, Pat- rik Gordon Walker, hefur óskað eftir viðræðum við utanríkisráð- herra allra landa Efnahagsbanda lags Evrópu. Ákveðið hefur ver- ið að hann hitti utanríkisráð- herra Ítalíu, Guiseppe Saragat 5 nóv. OLÍUBRUNI f SIDNEY Sidney, 27. okt. (NTB) Eldur kom upp í olíugeym- um í Sydney í dag og eyðilöigðust um 35 þús. lítrar, en slökkvilið- inu tókst að hindra útbreiðslu eldsins. SAMEINING KÝPUR OG GRIKKLANDS Saloniki, 27. okt. (NTB) Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, sagði í ræðu í dag, að sameining Kýpur við Grikk- land væri nú í undirbúningi. Sagði hann, að bæði Bretar og Bandaríkjameipi væru þeirrar skoðunar, að sameining væri eina lausn sem unnt væri að finna á Kýpurdeilunní. Forsætisráðherr- ann sagði, að Tyrkir værn enn mótfallnir sameiningu, en kvaðst vona, að þeir skiptu um skoðun. FARÞEGAFJÖLDI SAS EYKST UM 15% Osló, 27. okt. (NTB) Frá 1. apríl til 1. nóv. n.k. hef- ur farþegatala SAS í utanlands- flngi aukizt um 15% miðað við sama tímabil s.l. ár. DEILA UM SJÁLFSTÆÐI S.-RHODESÍU London, Salisbury, 27. okt. (NTB) f tilkynningu frá hrezku stjórn inni í dag segir, að litið verði á það sem lanðráð, ef stjórn S.- Rhodesíu lýsi einhliða yfir sjálf- stæði landsins. Ráðigert er að atkvæðagreiðsla um sjálfstæðis- yfirlýsinguna fari fram í S,- Rhodesiu innan skamms, en mikill minnihluti landsmanna er á kjörskrá. Flestir íbúar landsins eru þel- dökkir, en aðeins fáir þeirra fá að greiða atkvæði. Bretar setja það skilyrði fyrir sjálfstæði S--Rhodesíu, að allir landsmenn séu samþykkir stjórnarskránni. sem gengur í gildi, er sjálfstæði ei fengið. ÁTTI AÐ STEYPA HOXHA? Aþenu, 27. okt (NTB) Grísk blöð höfðu í dag eftir flóttamonnum frá Albaníu, að fyrir skömmu hefði verið gerð tilraun til þess að steypa stjórn Envers Hoxha. Margir liðsfor- ingjar hefðu verið teknir af lífi eftir tilraunina og harðstjórn aukizt í iandinu. NÓBELSVERDLAUN Stokkhólmi, 29. okt. (AP-NTB) 1 dag var úthlutað í Stokk- hólmi Nóbelsverðlaunum í efna- og eðlisfræði. Efnafræðiverðlaun in hlaut brezk kona, frú Dorothy Crowfoot-Hodgkin, en hún starfar við Oxford-háskóla. Eðiisfræðiverðlaunin skiptast milli þriggja vísindamanna, tveggja Rússa og Bandaríkja- manns. Eru það prófessorarnir Charles Hard Townes við M.I.T. háskólann í Boston og Nikolay Basov og Aieksander Prochorov við Lebedev-eðlisfræðistofnunina í Moskvu. SPRENGING Stokkhóimi, 26. ok. (NTB) Átta manns fórust og fjöldi særðist er sprenging varð í dag í sprengiefnaverksmiðjunni Nit- troglycerin A.B. í Gyttorp I Sví- þjóð. Verksmiðju þessa stofnaði Aifred Nobel fyrir réttum hundrað árum. KRÚSÉFF FUNDINN? Moskvu, 29. okt. (AP) Ekkert hefur verið vitað um dvalarstað Nikita Krúsjeffs, fyrrum forsætisráðherra, frá því stjórnarskiptin fóru fram 1 Moskvu fyrir hálfum mánuði. Nú er haft eftir áreiðanlegum heimildum að Krúsjeff hafi feng- ið fjögurra herbergja íbúð við Ulitsa Granovskogo nr. 3 1 Moskvu, fái 1.000 rúblna eftir- laun á mánuði og hafi einkabif- reið til eigin nota frá ríkinu, Meðal sambýlismanna Krúsjeffa í fjölbýlishúsinu eru Molotov, fyrrum forsætisráðherra, sern Krúsjeff rak úr emfoætti 1957, og Georgi Zukov, fyrrum mar- skálkur og varnarmálaráðherra, sem Krúsjeff rak einnig 1957. V.-BERLÍNARBÚAR TIL A.-BERLÍNAR Berlín, 30. okt. (AP) Þúisundir V.-Beriinarbúa streymdu í dag gegn um hlið á múrnum til A.-Berlínar til þesa að heimsækja vini og ættingja, Heimsóknir þessar eru liður í samkomulagi, sem gert var við a.-þýzk yfirvöld fyrir skömmu, Samkvæmt samkomulagi þessu fá V.-Beriinarbúar að heim- sækja ættingja í A-Berlín næsta háifa mánuðinn, um jólin oig páskana. STJÓRNARSKIPTI f S.-VÍETNAM Saigon, 30. okL (NTB) Stjórn Kafans hersftiöfðingja f S.-Víetnam hefur nú afsalaö sér völdum í hendur borgaralegrar stjórnar, og verður borgarstjór- inn í Saigon, Tran Van Huong, forsætisráðherra bennar. Eru stjórnarskiptin samkvæmt áætl- un, sem gerð var fyrir nokkrum mánuðum eftir að gerð liafðl verið uppreisn gegn Kahn, en hann tekið við völdum aftur. Hershöfðingjastjórn hefur verið í S.-Víetnam frá því í nóvember sJ. ár. Talsmaður bandaríska sendi- ráðsins í Saigon sagði í dag, að útnefning Huong í forsætisráð- herraembættið væri kærkomið qg mikilvægt skref í átt til virkrar borgarastjórnar. BÓLIVÍA REKUR TÉKKNESKA SENDIMENN La Paz, 30. okt. (NTB) Bólivía hefur slitið stjórn- málasambandi við Tékkósló- vakíu og vísað öllum tékknesk- um sendiráðsstarfsmönnum úr landi. Sakar stjórn Bólivíu Tckka um að hafa hlutazt til um innan- ríkismál landsins og æst til óeiröa. En undanfarna daga hef- ur verið ólga í Bólivíu og til nokkurra átaka kom i dag. Tveimur Rússnm og einum Bandaríkjamanni var sameiginlega úthlutaö eðlisfræðiverðlaunum Nóbels í ir. Hér sjást frá vinstri verðUunahafarnir, Charles Hard Townes, USA, Alexander Prochorov og Nikolai Basov, Sovétríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.