Morgunblaðið - 04.11.1964, Side 14

Morgunblaðið - 04.11.1964, Side 14
r 14 MOkCU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 4. nóv. 1964 MARGRET B.jarnason, blaSamað ur Morgunblaðsins, hefur fylgzt með lokaátökunum í forsetakosn- ingunum í Bandaríkjunum og fara hér á eftir lýsingar hennar á tveimur kosningafundum. — Vegna prentaraverkfallsins hef- ur ekki verið unnt að birta þess- ar greinar fyrr en nú. Washington, r ^ sunnudag, 25. okt. Erlendur ferðarnaður, sem gengur um götur Washington- borgar þessa dagana, verður þess ekki mikið var, að kosningar séu á næsta leiti — hvað þá að yfir standi ein hörkulegasta kosninga barátta aldarinnar. Það, sem fyrst og fremst fangar hug hans er borgin sjálf, sem skartar, nú haustlitum sínum í glampandi Sólskini. Á stöku stað má þó sjá borða og skilti, sem gefa til kynna, hvað um er að vera — á einum húsvegg stendur ef til vill: Á kosningafundi Johnsons. A kosningafundum í Bunduríkjunum Lýsingar fréttamanns IVIbl. r „Citizens for Goldwater" og á öðrum: „Scientists & Engineers and Physisians for Johnson" — og einn og ein* maður sést með merki í barmi. | Við komum hingað til Was- j hington í síðustu viku þrír ís- j lenzkir blaðamenn, í því skyni að fá að fylgjast að einhverju leyti með kosningabaráttunni og undirbúningnum á nokkrum stöðum. Það var ekki fyrr en við fórum að gefa okkur tíma til að horfa á sjónvarpið og fórum á ritstjórnarskrifstofur blaða og skrifstofur flokkanna hér í borg- inni, að við fundum kosninga- andrúmsloftið. Loks komumst við þó rækilega í kynni við það í gærkvöldi, er okkur gafst tæki- færi til að vera viðstödd kosn- ingafund demókrata í Baltimore í Maryland. Flestir þeir, sem ég hef tekið tali hér til þessa, leigubílstjórar, afgreiðslufólk í búðum, þjónar og skrifstofufólk o. fl. virðast þess fullvissir, að kosningaúrslit- in séu þegar ljós, að Lyndon B. Johnson sé viss um sigur, þrátt fyrir Walter Jenkins málið. Það mál vakti að sjálfsögðu feikna athygli og umtal, en áhrif þess á kosningabaráttuna hurfu að miklu leyti í skugga áhrifanna af leiðtogaskiptunum í Kreml og kjarnorkusprengingunni í Kína. Síðustu skoðanakannanir, sem gerðar voru eftir að Jenkins- málið komst á dagskrá, benda til þess, að fylgi Johnsons hafi auk- izt um '2%. Stærsta blaðið hér í Washing- ton, „The Washington Post“, sem einnig á vikuritið „Newsweek", auk tveggja útvarps- og sjón- varpsstöðva, hefur mikinn við- búnað fyrir kosningadaginn. — Þegar 1. september sl. var byrj- að að skipuleggja blaðið, sem kemur út 4. nóvember, og skipta verkefnum milli blaðamannanna. Gefst hverjum þeirra þannig tækifæri til að búa sig sem bezt undir að leysa það hlutverk, sem honum er falið — enda er til þess ætlazt. Við hittum að máli James Cleyton, Assistant Manager Editor, og skýrði hann okkur svo frá, að möguleikarnir til að flytja lesendum kosningafrétt- irnar hefðu breytzt stórkostlega frá síðustu kosningum. í þetta sinn hafa stærstu fréttastofnan- irnar, helztu blöðin, útvarps- og sjónvarpsstöðvarnar, komið sér saman um eitt geysimikið og full komið rafeindaheilakerfi og verða úrslitin nú ljós mörgum klukkustundum fyrr en venju- lega. Þá sagði Cleyton, að CBS- útvarps- og sjónvarpsstöðin hefði komið sér upp rafeindareikni- kerfi, er gerði fært að segja nokk urn veginn til um það, þegar á þriðjudagskvöld, hver úrslitin hafa orðið á einstökum svæðum og hverra atkvæði hafi ráðið úr- slitum. Tvö blöð, „The Washing- ton Post“ og „New York Times“, hafa keypt þessa þjónustu af CBS og vænta þess að geta sagt lesendum sínum margfalt meira um kosningarnar nú en dæmi eru til í sögunni. Á kosningafundi Johnsons Sem fyrr segir vorum við ís- lenzku blaðamennirnir viðstadd- ir kosningafund demókrata í Baltimore í gærkvöldi, en þar hélt Lyndon B. Johnson ræðu. Að lýsa slíkum fundi í blaða- grein held ég að sé ekki á færi annarra en hinna ritfærustu manna og getur það, sem hér fer á eftir aldrei orðið annað en fá- tækleg vísbending um það mikla sjónarspil, er þar fór fram. Fundurinn var haldinn í 5th Regiment Armory og hafði verið boðaður kl. 9. Þegar við komum þangað laust eftir kl. 7.30 var salurinn, sem sagður var taka 6.500—7.000 manns í sæti — óð- um að fyllast og fólk streymdi að í þúsundatali. Var gizkað á, að hátt í tíu þúsund manns hefðu verið á fundinum. Sa'lurinn var allur skreyttur hvítum, rauðum og bláum borð- um, merkjum og myndum af frambjóðendunum. Við inngang- inn voru seld merki, mynda- og merkispjöld ýmis konar. Fremst í salnum höfðu allmargir ungl- ingar tekið sér sæti og veifuðu þeir merkjum og höttum, með myndum af Johnson, Humhrey og Joseph Tydings, frambjóðanda demókrata í Maryland til öld- ungadeildarinnar, en hann er ungur maður, á að gizka þrítug- ur. Þessi unglingaflokkur reynd- ist kjarninn í kallkór fundarins. Fyrstu tvær klukkustundirnar komu fram ýmsir söngvarar og hljóðfæraleikarar, þar á meðal Lionel Hampton og tíu manna hljómsveit hans. Meðal við- staddra var leikkonan Dorothy Lamour, sem nú er komin ögn til ára sinna, en heldur sér afar vel — og einnig hún kom fram á sviðið. Milli skemmtiatriða æfði kynnirinn kallkórinn í hrópum, eins og: „We Want Johnson — We Want Johnson" og „LBJ — All The Way“. Þá skýrði hann jafnóðum frá því, hvað leið ferðum forsetans, sem kom með þyrlu frá Hvíta húsinu í Washington. Jókst eftirvænting in með hverri mínútu. Þyrla forsetans lenti á íþrótta- velli í Patterson Park og ók hann þaðan í opinni bifreið til fundarsalarins, sömu leið og John F. Kennedy hafði farið, er hann heimsótti Baltimore síðast, árið 1962. Leiðin lá að nokkru um íbúðarhverfi blökkumanna, þar sem mest ber á raðhúsum með hvítum marmaratröppum, sem eru stolt borgarbúa. — Nokkur mannfjöldi hafði safnazt saman til að sjá forsetann, er hann ók um, og lét hann nokkrum sinn- um stöðva bifreið sína til að geta ávarpað fólkið og tekið í hendur þess. Þegar hann komst loks til fundarstaðarins var þar úti all- stór hópur manna, sem ekki hafði komizt inn og ávarpaði Johnsori fólkið þar, áður en hann gekk í salinn. Meðan þessu fór fram voru alla vega litir blaðamenn og ljós- myndarar hvaðanæfa að úr heim inum í óða önn að koma fyrir tækjum sínum, ljósmyndavélum og kvikmyndavélum, segulbönd- um, ritvélum, „walkie-talkies" o. s. frv. Var gaman að sjá ljós- myndarana, sem gengu um og gutu gagnrýnandi augum hver á annars ljosmyndaútbúnað, rétt eins og konur í samkvæmi, sem huga að klæðnaði hinna. Meðal blaðamanna var einn kolsvartur frá Nígeríu, klæddur síðum, skrautlegum kufli og naut hana sýnilega þeirrar athygli, sem hann vakti. Ekki fannst mér blaðamennirnir öfundsverðir að þurfa að vinna fréttir í þessum ærandi hávaða, sem þarna var, en þeir virtust þessu vanir. Þó virtust sumir þeirra nokkuð æst- ir og taugaóstyrkir — og einn þeirra gekk ég fram á, þar sem hann sat í hnipri undir borði með síma í fanginu, heyrnartólið við annað eyrað og visifingurirfn uppi í hinu. Virtist honum mikið niðri fyrir. Síðustu mínúturnar, áður en forsetinn kom ætlaði allt um koll að keyra. Kallkórinn æfði af kappi, lúðrasveit lék og við- staddir sungu. Framan af höfðu það einkum verið unglingarnir, sem hrópuðu, en nú fóru hinir eldri að taka meira undir og líktist þetta einna mest fótbolta- kappleik. Lögregluþjónar voru á staðnum í hundraðatali — og auk þeirra fjöldi öryggisvarða. Einn þeirra sagði mér, að þeir hefðu unnið allan daginn að þvi að rannsaka húsið og leiðina, sem forsetinn ók frá vellinum. En ekki fékk ég annað. séð, en hver sá, sem ætlaði að gera til- ræði við forsetann hefði getað komið því við. Þó líklega ekki með því að sleppa sjálfur. Þegar menn héldu, að nú væri forsetinn rétt að birtast datt skyndilega allt í dúnalogn. Prestur nokkur sté í ræðustólinn og flutti bæn — og á eftir söng ungur blökkumaður bandaríska þjóðsönginn. Stakk þetta mjög I stúf við hávaðann á undan og Framhald á bls. 23. Á kosningafundi Goldwater,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.