Morgunblaðið - 06.12.1964, Blaðsíða 32
LANQ-
*-kOVER
BENZ1N eða
DIESEL
ótgttttfrlafcifr
277. tbl. — Sunnvidagur 6. desember 1964
•lAUOAVEGI 6?sími 21800
l\lóg síld fyr-
ir austan
Margir bátar á leið þangað
G6Ð síldveiði var í fyrrinótt á
Rauða torginu, þ.e.a.s. á síldar-
miðunum 70 mílur suðaustur af
Norðljarðarhorni. 18 bátar fengu
tæplega 14 þúsund mál. Nokkrir
bátar eiu þegar farnir af stað
frá Reykjavík austur á miðin
og margir eru að ferðbúast, enda
hefur síldveiðin gengið treglega
fyrir sunnan.
Aflahæstu bátarnir fyrir aust-
an voru: Hrafn Sveinbjarnarson
með 1300 mál; Óskar / Halldórs-
son 1200, ísleifur VE 1100, Guð
björg GK 1100, í>órður Jónasson
1050, Hafrún 1000 og Margrét
1000. Sjö bátar lögðu upp afla
sinn á Neskaupstað og er þar
fryst eins mikið og frystihúsin
tvö geta afkastað. Hins vegar
mun skortur á húsrými valda
því, að ekki er h;egt að salta, en
slíkt mun ekki framkvæmanlegt
utanhúss á þessum árstíma. —
Fjórir bátar komu með afla sinn
til Eskifjarðar og fór hann ýmist
í söltun, frystingu eða bræðslu.
Samkvæmt upplýsingum Vil-
hjálms Ingvarssonar fara 3 bát-
ar Ingvars Vilhjálmssonar aust-
ur, Ásbjörn og Ásþór fóru í gær
og Hafþór fer sennilega í dag.
Sigurður Pétursson kvaá báta
sína tvo, Sigurvon og Pétur Sig-
urðsson á leið austur og stefndu
þeir rakleitt á Rauða torgið, en
skipstjórarnir segðust búnir að
leita af sér allan grun um síld
hér fyrir sunnan. Jón Sigurðs-
son, útgerðarstjóri hjá Einari
Sigurðssyni, kvað Viðey hafa
lagt af stað í fyrradag og kann
ske færu fleiri af bátum Einars
eftir helgina. Sigurður Gíslason,
hjá Haraldi Böðvarssyni á Afcra
nesi, sagði að til stæði að senda
tvo báta, Harald og Höfrung III
austur. Væri í ráði að þeir ísuðu
síldina og sigldu með afla'nn til
Akraness í vinnslu.
Morgunblaðið átti símtal við
Jakob Jakobsson, fiskifræðing, í
gær. „Þarna er nóg síld“, sagði
Jakob. „Og eins og við sögðum
í haust, er sennilegt að hún verði
þar þangað til um áramótin, en
næstum ómögulegt er að hún
verði lengur, þar sem síldin þarf
að vera komin á hrygningar-
stöðvarnar við Noregsstrendur
fyrir lok febrúarmánaðar. Sólrún
hefur verið að leita á Jökuldjúpi
og Miðnessjó og er nú á svæðinu
vestur og suður af Eldey. Hún
hefur lítið fundið, en leitinni
verður haldið áfram án afláts“.
Frá doktorsvörn í Háskóla íslands í gær: Annar andmælenda, prófessor Július Sigurjónsson,
(t. v.) og verjandi, Gunnlaug ur Snædal læknir.
Erfitt sjúkraflug
IMý brautarljós á Þingeyri
GUNNAR Guðjónsson, flugmað-
ur hjá Birni Pálssyni, fór í mjög
erfitt sjúkraflugí gær á TF-VOR,
Beechraft Twin Bonanza. Flytja
þurfti konu frá Þingeyri til mjög
nauðsynlegrar aðgerðar í Reykja
vík eftir barnsburð.
■tiMiiKtiiiiiimmMiiiifiiiiiiiHiiniiiiiiitfiiMtiMiiiiiiiiin
! ÍR vann I
171-17 !
Gunnlaugur Snædal
doktor í lækn'Lsfræbl
í HÁSKÓLA íslands í gær varði
Gunnlaugur Snædal læknir
doktorsritgerð sína um brjóst-
krabbamein á íslandi, „Cancer
of the Breast“. Andmælendur
voru prófessor dr. Júlíus Sigur-
; í GÆR fór fram í iþróttahús- j
; inu á Keflavíkurflugvelli leik =
; ur í 1. umferð keppninnar um :
; Evrópubikar í körfuiknattleik. j
; Mættust ÍR og irska liðið j
! Collegians Belfast, en þessi |
; tvö lönd eru ásamt meistur- j
; um Frakklands í riðli í 1. um- j
; ferð.
; ÍR-ingar höfðu í gær algera j
; yfirburði og má segja að um j
; einstefnuakstur hafi verið að j
; ræða. ÍR vann leikinn með 71 j
; fftigi gegn 17. Síðari leikur lið j
: anna verður í Belfast 19. des. \
I Sá aðilinn er kemur með betri j
j stigatölu úr trveim leikjum j
j hefur sigrað og má nú hér j
j um bil slá föstu að það verði j
j ÍR-ingar. Þeir mæta þá Frökk j
j um um það hvorir komist í ;
j 2. umferð.
j ÍR-ingar réðu öllu á vell- ;
j inum frá byrjun og höfðu ;
j algera yfirburði. Irar skoruðu ;
j 5 stig í fyrri hálfleik — allt j
j úr vítaköstum. í síðari hálf- \
j leik léku nær eingöngu yngri j
j og óreyndari menn ÍR-liðsins. j
Góðar veðurhorfur voru fyrir
vestan í gærmorgun, en Gunnar
gat ekki lagt af stað fyrr en um;
kl. 11, þar sem rafmagnslaust 1
var í Reykjavík og stefnuvitarnir
því óvirkir.
Flugtíminn til Dýrafjarðar var
1:40 í stað 50 mínútna, þar sem
erfiðlega gekk að komast niður
fyrir skýjaþykknið. Fór Gunnar
fyrst niður um skýjagat fyrir of-.
an ísafjörð og flaug síðan út með
fjörðum, en komst ekki inn Dýra
fjörð, vegna skýjabakka. Varð
hann að hækka flugið aftur upp
í 5000 fet og sveimaði yfir í
Framhald á bls. 31
Reykjovík
ralmognslaus
í húlftíma
RAFMAGNSLAUST va<r í
hálftíma á öljlu svæði Raf-
magnsveitu Reykjavikur í
gærmorgun
Að sögn Ingólfs Ágústsson-
ar, deildarverkfræðings, varð
skammhlaup í 33 kílóvatta
rofa í tengivirkjuninni við
Elliðaár, sem al'lt rafmagin
frá Sogsvirkjuninni fer um,
kl. 9,57 og var straumlaust
um allan bæinn í 31 miínútu.
Klukkan rúmilega 11 var þó
rafmagn komið á í öldu/m
hverfum. Varahlutir munu til
í rofann, svo að hann verður
brátt nothæfur aftur. Að
sögn Ingólfs, er ékiki hætta á
frekari refimaignsbilunium a/f
þessuim scikum.
jónsson og prófessor dr. Snorri
Hallgrímsson.
Ritgerðin fjallar um yfirlits-
rannsóknir á krabbameini í
brjósti, og sagði Gunnlaugur, að
vart væri annars staðar í heim-
inum betri aðstaða til slíkra yfir
litsrannsókna en hér. Gunnlaug-
ur hóf gagnasöfnun að ritgerð
sinni fyrir sex árum og Byggir
að mestu, rannsóknir sínar á
þeim sjúkdómstilfellum, sem
skýrslur sjúkrahúsa geta um
eftir 1911.
Mjög margt manna var saman
komið við doktorsvörnina, og
rúmaði hátíðasalur Háskólans
ekki nærri alla í sæti. Meðal við
staddra voru m. a. rektor og
prófessorar Háskóla íslands,
fjöldi lækna og annarra fræði-
manna, borgarstjórinn í Reykja-
vík og fleiri.
Nánar verður skýrt frá dokt-
orsritgerð Gunnlaugs Snædals í
blaðinu síðar.
18
DAGAR
TIL JÓLA
Póstsendingar og ferðalög
fram að jólum
FÓLK er nú þegar farið að ganga
frá póstsendingum og jólakveðj-
um fyrir jólin. Þá mun, ef að
vanda lætur, verða mikið um
ferðalög fólks fyrir jólin í því
skyni að heimsækja vini og ætt-
ingja yfir hátíðirnar. Morgun-
blaðið hefur til hagræðis fyrir
lesendur því snúið sér til póst-
stofunnar í Reykjavík og hinna
ýmsu aðila á sviði ferðamála og
aflað sér upplýsinga um starf-
semi þeirra fram að jólum.
Póstur
Móttaka á jólapósti í Reykja-
vík er til kl. 24 miðvikudaginn
16. des., en útburður póstsins
hefst mánudaginn 21. des. Allar
póstsendingar, sem ekki bera á-
ritunina „JÓL“ verða bornar út
jafnóðum og þær berast.
Skilafrestur á jólapósti, sem
fara á með bifreiðum til fjar-
lægra staða, er til 17. des. en til
nálægra kaupstaða og kauptúna
til 21. des.
Flugpósti til Norðurlanda þarf
að skila fyrir 18. des. en fyrir 17.
des. til annarra landa.
Athuga ber, að með flugvélum
innanlands eru eingöngu send
bréf og blöð en bögglapóstur að-
eins með skipum og bifreiðum.
Þá skal vakin athygli á því, að
nauðsynlegt er fyrir þá, sem í
hyggju hafa að senda bögglapóst
með skipum til Mið-Evrópu og
Bretlands, að koma sendingum
sínum í póst í síðasta lagi h. 8.
des. og í síðasta lagi h. 9. des.,
ef um bögglapóst er að ræða til
Norðurlanda, svo að öruggt verði,
að þessar sendingar komist í
hendur viðtakendum fyrir jólin.
Bögglapóstur til Færeyja í þessu
skyni þarf að berast póststof-
unni ekki síðar en h. 16. des.
Skipaferðir
Síðustu ferðir skipa, sem
taka farþeiga frá Reykjavík út á
land, er komast vilja á áfanga-
stað fyrir jól, eru þessar: Esja
fer ausur um til Akureyrar h.
14. des., Herðubreið fer vestur
um í hringferð h. 15. des., Skjald
breið fer vestur uim til Akureyr
ar h. 15. des og Hekla fer vest-
ur um til Akureyrar h. 17.
Dr. Alexa.ndrine fer síðost
skipa utarn fyrir jód eða h. 17.
Frambald á bls. 31 *
Hrapaði
og beið bana
ÞAÐ slys varð í fyrradag, að
vistkona á hælinu að Arnar-
holti á Kjalarnesi hrapaði ofan
af kletti og beið bana. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Hafnarfirði mun
konan hafa farið frá Arnar-
holti í fyrradag og starfs-
menn haldið að hún væri á
leið til Reykjavíkur, þar sem
hún átti heima. Síðan hefði
hennar verið saknað í gær og
Hafnarfjarðarlögreglan og
hjálparsveit skáta þar beðin
aðstoðar. Áður en leitarflokk
urinn lagði af stað, eða kl.
rúmlega 2 var hjálparbeiðnin
afþökkuð, þar sem konan
hefði fundizt látin fyrir neðan
klett nokkurn niður undan
Arnarholti.
Morgunblaðið hringdi og
átti tal við starfsmann hælis-
ins, sem neitaði að gefa nokkr
ar upplýsingar um mál þetta.
Ráðsmaður hælisins var fjar-
verandi.
Sæmilegur afli
Hornafjarðar-
báta
Höfn, Hornafirði, 5. des.
BÁTAR hafa róið héðan að und-
anförnu og haft sæmilegan afla
á línu þetta 5—9 lestir í róðri
Lélegar gæftir voru hinsvegar í
nóvember.
Einhverjar jólahreyfingar eru
byrjaðar í búðunum.
Samgöngur eru ágætar og allir
fjallvegir færir. Póstur fer reglu
lega til Djúpavogs.
Leikfélagið hér fór í gær áleið-
is til Eskifjarðar með einu varð-
skipanna og mun þar sýna leik-
inn „Þrír skálkar“, sem hér hefir
verið sýndur að undanförnu við
góðar undirtektir. Áætlað er að
hafa þrjár sýningar á Eskifirði,
þar sem fjallvegir eru vel færir.
220 bóka-
titlar
SAMKVÆMT upplýsingum
frá Geir Jónassyni, bóka-
verði í Landsbókasafninu,
munu 220 bókatitlar vera á
jólamarkaðinum í ár.