Morgunblaðið - 08.12.1964, Page 3
f Þriðjudagur 8. des. 1964
MORGU NBLAÐIÐ
3
ÞEGAR belgísku fallhlífa-
hermennirnir- komu heim
eftir hjörgunaraðgerðirnar
í Stanleyville voru fjöl-
skyldur flestra þeirra sam-
ankomnar á flugvellinum í
Briissel til þess að fagna
þeim. í þessum hópi voru
eiginkona, foreldrar og
systir Luciens Welvaerts,
eins fallhlífahermannsins.
Þau voru glög og ánægð
vegna þess að þeim hafði
verið tilkynnt að Lucien
væri heill á húfi.
Þegar flugvélin, sem flutti
hópinn, er sagt var að Lucien
væri í, lenti og hermennirnir
gengu út, stóð fjölskyldan
við grindverkið á flugvellin-
um, veifaði ákaft og beið í eft-
irvæntingu eftir að andlit hans
kæmi í ljós. En biðin varð
árangurslaus. Allir hermenn-
irnir voru komnir út úr vél-
inni, en Lucien sást hvergi.
flugvellinum ljóslifandi, en
það var Lucien sem hafði
faiiið.
Eiginkona Luciens, sem er
rúmiega tvítug og nýbúin að
eiga barn, féll í öngvit, er
henni varð ijós misskilningur-
inn og eftirvæntingarsvipur-
inn á andiitum foreldra hans
og systur hvarf, en í staðinn
kom sorg og örvænting.
Dider Welvaert stóð ein-
mana úti f horni á flugstöð-
inni og skyldi ekki hvers
vegna enginn kom að taka á
móti honum. Þegar honum var
sagt hvernig í öllu lá, hljóp
hann í símann til þess að
hringja heim og segja fjöl-
skyldu sinni, að hánn væri á
lífi. Og mikill fögnuður ríkti
á heimili hans, þegar foreldr-
arnir höfðu náð sér eftir undr-
unina, sem greip þau, er þau
heyrðu rödd sonar síns, sem
þeim hafði verið tilkynnt að
væri látinn.
< v* 1
Eiginkona Luciens Welvaerts fellur í öngvit á flugstöðinni.
Faðir Luciens grípur hana, en á bak við stendur systir hans
grátandi og móðir hans lengst til hægri.
Sorglegur mísskilmngur
Faðir hans tók að spyrjast fyr-
is um hverju þetta sætti og þá
varð ljóst, að orðið hafði sorg-
legur misskilningur. f herdeild
Luciens var annar maður, sem
hafði sama ættarnafn ög hann,
Dider Welvaert. Fjölskyldu
Diders hafði verið tilkynnt
lát hans. Nú birtist hann á
Dider Welvaert
Tveir klakaklárar. Hestar eru nú víða komnir á gjöf á Suðuriandi.
harðindalegur og snjólegur.
Segja má, að menn sé fegnir
hverjum degi, sem sleppur við
snjókomu. Ekki snjóar mikið nú,
en meira áður, og hlífir það
jörðu við klaka. Frost hefur
lengst komizt niður í tíu stig.
— G. S.
— ★ —
GELDINGAHOLTI, Gnúp-
verjahreppi, 7. des.
Veður er gott hér, en harðindi
mega teljast nú. Töluvert mikill
snjór er á jörðu og algerlega hag
laust. Fé hefur verið um þrjár
vikur á gjöf.
Bændum lízt hann harðinda-
legur, eins og er. Ekki er mikill
klaki I jörð, og hlífir snjórinn.
Noklkurt frost hefur verið hér,
mest þrettán stig, en komst niður
í tíu stig í nótt.
Færð er prýðileg eins og sfend
ur. — J. Ó.
STAKSTEINAR
„Miklu hagstæðari
skattalög"
EINS og menn muna voru skatta-
lög með þeim hætti allt fram til
1960, að ekki var um það hæigt að -
deila, að löggjafinn ætlaðist bein- -
líns til þess, að stórfelld skatt-
svik ættu sér stað. Það var engin
lifandi leið að framfylgja lög-
unum og jáfnvel hafði komið
fyrir að beinir skattar til ríkis-
og sveitarfélag höfðu orðið hærri
en allar tekjur manna. í ritstjóm
argrein sl. sunnudag ræðir Tím-
inn um skattalög og segir: •
„Auðstéttin hefur auðsjáan-
lega ástæðu til að fagna að hún
hefur fengið miklu hagstæðari
skattalög“.
Fróðlegt væri að fá skýringu
á því, hvað það er sem Tíminn
nefnir „auðstétt" hér á tslandi.
Morgunblaðinu er sem sé ókunn-
ugt um, að slík „stétt“ sé til hér
á landi, þótt auðvitað sé hagur
manna misjafn. Blaðið hefur
líka raunar oftsinnis spurt Tím-t
ann að því, hverjir það væru,
sem græddu óhóflega hér á
landi, hvort það væru útvegs-
menn eða sjómenn, bændur eða
iðnaðarmenn, kaupmenn eða
iðnrekendur, en ekkert svar hef-
ur fengizt.
Upplýsingar frd SÍS
Morgunblaðið hefur bent Tím-
anum á það, þegar það hefur
spurzt fyrir um það, hvar ofsa-
gróði væri fólginn, að naumast
væri sá atvinnurekstur til, sem
SÍS hefði ekki einhver kynni af,
og oftast hefðu þau samtök verið
fundvís á peningalyktina og lagt
út í þann atvinnurekstur, sem
helzt var líkle.gt að gæfi hagnað.
Ættu því að vera hæg heima-
tökin fyrir Framsóknarforingj-
ana að fá upplýsingar um ofsa-
gróðann. Þess vegna ætti að vera
hægt að ætlast til þess af Tím-
anum að hann svaraði framan-
nefndri spurninigu Morgunblaðs-
ins. En hvað er það sem málgagn
Framsóknarflokksins á við, þeg-
ar það talar um miklu hagstæð-
ari skattalög „auðstéttarinnar“.?
Varla getur verið átt við annað
en það að með skattalögunum
frá 1960, sem að vísu hafa nokk-
uð raskazt síðan, var horfzt í
augu við þá staðreynd, að til-
gangslaust er að líta á fólk með
miðlungstekjur og jafnvel góðar
tekjur, eins og vel launaðir
embættismenn hafa, sem auð-
menn og skattleggja þá í sam-
ræmi við það. Skattalögin voru
gerð heilbrigð og eðlileg, bæði
að því er varðaði skattlagningu
á einstaklinga og eins á atvinnu-
fyrirtæki, en þeim var með hin-
um nýju lögum heimilað að
halda eftir nokkru af hagnaði
sínum til að endumýja tæki sin
og styrkja reksturinn.
H agbönn og harðindalegt
á Suðurlandi
HELDUR er harðindalegt
á Suðurlandi nú og alls
staðar haglaust, eftir því
sem Mbl. komst næst í gær,
þegar hringt var til nokk-
urra fréttaritara þess í
Sunnlendingaf jórðungi. —
Frásagnir þeirra fara hér á
eftir:
HOLTI á Síðu, Kirkjubæjar-
hreppi, V-Skiaft., 7. des..
* Hér er stillt veður, lítill snjór
á jörðu, en haglaust, og allt fé
komið á gjöf. Ágætis færi er um
allt og vegir góðir. — S. B.
— ★ —
BORGAREYRUM, V-Eyja-
fiallahreppi, 7. des.
Umhleypingasöm tíð hefur
verið hérna. Sniór er ekki mik-
ill. en illa gerður og jörð al-
klökuð. Mikil hálka er á vegum.
Allt fé er á giöf og hefur verið
i hálfan mánuð til þrjár vikúr.
Veður er ágætt nú. vægt frost,
en snjóél annað veifið.
— Markús.
— ★ —
EYRARLANDI, í Þykkvabæ,
7. des.
Hér eru hörkur’ og alger jarð-
bönn um allt hérað. Jafnfallinn
snjór er um allt og gamall snjór
undir, svo að hörð skorpa er kom
in á jörð. Sex til tíu stiga frost
er alla daga. *
Um þrjár vikur eru síðan fé
var tekið á gjöf, og nú, eru hross
og allur búpeningur í húsum.
Kartöfluuppskeran er seld að
mestu leyti; eftir um 2.500 tunn-
ur.
Færð er ágæt, því hvergi hef-
ur dregið eða skafið. Þetta breyt-
ist auðvitað til hins verra, um
leið og vind hrevfir. — M. S.
— ★ —
SELJATUNGU í Gulverja-
bæjarhreppi, 7. des.
Gott veður er hér nú, en hag-
laust hefur verið með öllu í um
það bil hálfan mánuð. Færð er
ágæt um vegi, það ég veit.
Heldur lízt mönnum hann
— Körfubolti
Fraimlhiald af bls. 26
kannske að finna einhverja á-
stæðu fyrir lítilli hittni þeirra
gegn iR-ingum. KR-liðið átti
fremur slakan dag en náði þó að
sigra örugglega með tólf stiga
mun, 60 stigum gegn 48. Var sig-
ur þeirra nokkuð öruggur frá
upphafi og aldrei í hættu. Spræk-
astur íranna var nr. 7, Clarke.
Hann varð stigahæstur í leikn-
um með 18 stig og sýndi allgóðan
leik. Hjá KR bar mest á Gutt-
ormi, Kolbeini og Kristni og skor
uðu þeir til samans 47 af stig-
um liðsins. Dómarar voru Guð-
jón Magnússon og Daninn Dan
Christiansen, sá er kom of seint
til leiksins á laugardag. Dæmdu
þeir vel og var ekki auðsýnt fyr-
ir ókunnuga að sjá hvor væri al-
þjóðlegur milliríkjadómari, Dan-
inn eða Guðjón.
Opinbera innræti sitt
í sumar var sem kunnugt er
mikið rætt um skattana og mörg
stór orð sögð. Ekki voru það sízt
Framsóknarforingjamir, sem
fjargviðruðust út af alltof háum
sköttum. Þeir sem þekkja til
stjórnmála vissu raunar að lítið
mark var takandi á stóru orð-
unum um það að Framsóknar-
foringjamir væm einlægir bar-
áttumenn fyrir lækkuðum skött-
um. Þvert á móti hafa þeir sýnt
það fyrr og síðar, að þeir era
hlynntir sem mestri skattpíninigu, *
þar sem þeir telja að einstakling-
amir eigi ekki að hafa mikil
yfirráð yfir fjármunum, hvorki
til atvinnurekstrar eða eigin
nota, heldur eigi að þjappa
fénu saman hjá ríkinu annars
vegar og samvinnufélögunum
hinsvegar. Nú hafa þeir heldur
ekki lengur getað orða bundizt
og fjargviðrast yfir því að skatta-
lög Viðreisnarstjómarinnar séu
alltaf hagstæð skattborgurunum.^