Morgunblaðið - 08.12.1964, Page 14

Morgunblaðið - 08.12.1964, Page 14
MORCV N BLADID I»riSjadagtir 8. des. 1964 jMttgmtfrlitfetfr Útgefandi: Framkvæmdast j ór i: Ritstjórar: Auglýsingar: Ú tbreiðslus t j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 I lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Johannessenu Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. NATO - VÖRN FRIÐARINS Vffirgnæfandi meirihluti ís- lenzku þjóðarinnar telur Norður-Atlantshafsbandalag- ið í dag brjóstvörn heimsfrið- arins. íslenzka þjóðin gerir sér það ljóst, eins og aðrar frjálsar lýðræðisþjóðir, að það var stofnun NATO, sem stöðvaði framsókn hins al- þjóðlega kommúnisma í Ev- rópu og kom þannig í veg fyr- ir, að Vestur-Evrópu biðu sömu örlög og þjóðanna aust- an járntjaldsins, þar sem lýð- ræðislegt stjórnarfar hefur verið afnumið og í stað þess tekið upp hið svokallaða „al- þýðulýðræði“ kommúnista. En sú tegund „lýðræðis“ byggist fyrst og fremst á eins flokks fyrirkomulagi, sem leyfir aðeins starfsemi komm únistaflokksins en bannar alla aðra stjórnmálaflokka. En NATO hefur ekki aðeins bjargað frelsi Vestur-Evrópu. Þessi víðtæku samtök lýðræð- isþjóða hafa jafnframt bjarg- að heimsfriðnum. Enginn viti borinn og hugsandi maður fer í grafgötur um það, að ef kommúnisminn hefði lagt undir sig Vestur-Evrópu hefði það ekki aðeins haft í för með sér styrjöld í Evrópu heldur heimsstyrjöld. Sú styrjöld hefði verið háð með kjarn- orkuvopnum. Hún hefði þess vegna hlotið að verða gjör- eyðingarstyrjöld, sem lagt hefði meginhluta heimsins í rústir. Þegar alls þessa er gætt verður það enn ljósara en áð- ur hversu mikið mannkynið á Norður-Atlantshafsbandalag- inu að þakka. ísland gerðist aðili að At- lantshafsbandalaginu þegar við stofnun þess. Meiri hluti lýðræðisflokka var sammála um þá ráðstöfun. íslenzkir kjósendur hafa síðan við hverjar kosningar lýst trausti sínu á hina íslenzku utanrík- isstefnu, sem byggist á þátt- töku lands þeirra í varnar- samtökum hinna frjálsu lýð- ræðisþjóða. Kommúnistar hafa hins vegar barizt trylltri baráttu gegn aðild íslands að þessum þýðingarmiklu friðarsamtök- um. Þeir hófu árás á Alþingi daginn sem það samþykkti aðild íslands að NATO. Þeir rifu grjót úr fótstalli styttu Jóns Sigurðssonar á Austur- velli til þess að geta -„greitt atkvæði með grjóti“, eins og ‘það hefur verið kallað. Síðan það gerðist ' hafa kommúnistar hvað eftir ann- að rekið upp reiðiöskur, þegar um það hefur verið að ræða að fá varnarsamtökunum að- stöðu hér á landi. Nú síðast hafa þeir hafið upp sinn gamla söng um landráð og þjóðsvik, vegna þess að end- urnýja á nokkra olíugeyma í Hvalfirði. Auðvitað tekur enginn viti borinn íslendingur minnsta mark á þessum hrópyrðum kommúnista. Stefna þeirra er hin sama og áður, að berjast gegn hvers konar viðleitni til þess að vernda frelsi og ör- yggi íslands í samvinnu við vestrænar lýðræðisþjóðir. — Það er sú dagskipun, sem deild hins alþjóðlega komm- únistaflokks hér á landi hef- ur fengið frá sínum austrænu húsbændum. Mörgum lýðræðissinnum innan Framsóknarflokksins mun hins vegar ofbjóða ábyrgðarleysi og hentistefna flokksforystu þeirra, þegar hún skipar sér nú við hlið kommúnista í árásum þeirra á varnarsamtök lýðræðisþjóð anna. Hlutur Framsóknar- manna verður heldur ekki betri við það, að vitað er að olíufélag Sambands íslenzkra samvinnufélaga hefur leigt varnarliðinu olíugeyma í Hvalfirði, en þykist nú missa spón úr aski sínum, þegar Atlantshafsbandalagið byggir sjálft nýja olíugeyma. Kjarni málsins er, að yfir- gnæfandi meirihluti íslend- inga styður aðild íslands að varnarsamtökum vestrænna þjóða og vill að íslendingar standi við skuldbindingar sín- ar við þessi friðarsamtök, sem bjargað hafa heimsfriðnum og komið í veg fyrir, að hinn alþjóðlegi kommúnismi leiddi nýja heimsstyrjöld yfir mann kynið. FUNDUR WILSONS OG JOHNSONS U'ðlilegt er, að fundur þeirra ^ Lyndon B. Johnsons, Bandaríkjaforseta, og Harold Wilsons, forsætisráðherra Breta, veki mikla athygli. Þessir tveir leiðtogar forystu- þjóða hins vestræna heims, þurfa að ræða mörg þýðing- armikil vandamál, sem úr- lausnar krefjast. Á miklu veltur, að Bretar og Banda- ríkjamenn treysti sem bezt samvinnu sína og séu færir um að gegna hinu mikil- væga forystuhlutverki sínu meó 1 lýðræðisþjóða. Það er einnig í jög þýðingarmikið fyrir Breta og hina nýju stjórn Verkamannaflokksins, að fá aukinn fjárhagslegan UTAN ÚR HEIMI Systir Nehrús tekur sæti bró&ur síns á FRU VIAJAYA Laksh.mi Pandit Nehru, hin 64 ára gamla systir hins látna þjóð- arieiðtoga Indlands tók fyrir skömmu sæti í indverska þing- inu, sem fulltrúi fyrir Pulphur í Uttar Pradesh, þar sem bróð- ir hennar, Jawaharlal Nehru, hafði áður haft á hendí þing- mennsku. Frú Pandit er vel að sæti bróður síns komin, því ekki lét hún sér nægja að treysta á töframátt nafnsins Nehru eða eigin frægð og reynslu, heldur lagði ótrauð út í kosningabaráttuna og dró ekki af sér. Lal Bahadur Shastri, forsætisráðherra, hafði boðið dóttur Nehrus, Indiru Gandhi, sem gegnir starfi upplýsinga- málaráðherra í stjórn hans, að erfa þingsæti föður síns, en Indrira hafnaði boðinu eftir nokkra umhugsun. I>ví var fleygt, að Indira væri hrædd um að hún myndi bíða ósigur í kosningunum, en það hefði verið sjálfri henni mikill álitshnekkir og Kongress- flokknum þá ekki síður. En Indira Gandhi var ekki fyrr búin að lýsa því yfir, að hún myndi ekki bjóða sig fram í Pulphur, en ríkisstjór- inn í Marahashtra, frú Pandit Nehru, sem sat í Bombay og lét illa að vera utangátta við indversk stjórnmál, þó komin væri nokkuð til ára sinni, til- kynnti flokknum að hún væri reiðubúin til þess að taka upp hanzkann fyrir hann og heið- ur ættarinnar í kjördæmi broður síns sáluga. Ekki gat Kongressflokkur- inn hafnað svo góðu boði og frú Pandit sagði óðara af sér embætti ríkisstjóra til þess að leggja út í konsningabarátt- una. Mörgum sagðist illa hug- ur um þetta tiltæki frúarinn- ar, stjórnmálaandstæðingar höfðu sig mjög í frammí í Uttar Pradesh og lögðu stjórn Shastris allt það til last er þeir framast máttu, því erfitt var að koma höggi á frú Pand- it sjálfa. Mörg dagblöð í rík- inu voru henni einnig and- snúin. En frúin lét engan bil- bug á sér finna. Þetta var svo sem ekki I fyrsta skipti, sem hún tefldi á tvær hættur. Systir Nehrus var ýmsu vön á árunum áður en Indland öðl- aðist sjálfstæði og síðan hafði hún unnið • landi sínu dyggi- lega á erlendum vettvangi, verið sendiherra í Moskvu, London og Washington, verið formaður sendinefndar lands síns hjá Sameinuðu þjóðunum fyrst kvenna oig forseti Alls- herjarþingsins 1953, einnig fyrst kvenna til að gegna því embætti. Og samt hafði hún haft hönd í bagga með öllu því sem var að gerast heima fyrir, og sat meira að segja á þingi í tvö ár. Sumir sögðu líka, að frú Pandit þætti kosn ingabaráttan þeim mun skemmtilegri, sem hún gæti ekki verið viss um sigufinn og auk þess myndi hún með Frú Lakshmi Pandit — ieiddist aðgerðarleysið. þessu vilja ögra frænku sinni, dóttur Nehrus, sem ekki hafi viljað vinna það til að erfa sæti föður síns í þinginu að leggja út í tvísýna kosninga- baráttu. Nú er aftur skipað sæti Jawaharlal Nehrus í ind- verska þinginu. Systir hans er vel að þessum arfi komin. En hvort hún lætur þar við sitja er annað mál. Nýverið lét frú Pandit svo um mælt við einhvern, sem latti hana heldur að bjóða sig fram í Pulphur, að hún væri nú ekki komin á eftirlaun enn. Arf- taki Nehrus á eflaust eftir að láta að sér kveða í indversk- um stjórnmálum áður en hún fæst til að setjast í helgan stein. stuðning Bandaríkjanna. Efna hagsmálaráðstafanir Verka- mannaflokksstjórnarinnar eru að vísu umdeildar. En sú stað- reynd verður ekki sniðgeng- in, að ríkisstjórn Harold Wil- sons erfði mörg vandamál og erfið viðfangs frá fráfarandi stjórn íhaldsflokksins. Vitað er, að Harold Wilson mun fara fram á mikla efna- hagsaðstoð frá Bandaríkjun- um. Telja margir, að John- son forseti muni eiga óhægt um vik að verða við öllum óskum Wilsons í þessum efn- um, ekki sízt vegna þess, að verulegrar vantrúar verður vart meðal bandarískra fjár- málamanna á fjámálastefnu Verkamannaflokksins. Ymsir leiðtogar Verkamannaflokks- ins hafa einnig látið í Ijós skoðanir á varnarmálum, sem ganga í berhögg við skoðanir Bandaríkjamanna. Þeir Johnson og Wilson munu vafalaust leggja sig fram um það eftir fremsta megni að samræma sjónarmið sín, þannig að þeir nái end- unum saman og geti markað sameiginlega afstöðu til hinna þýðingarmestu mála. En slík samstaða Bandaríkjanna og Bretlands er hinum frjálsa heimi höfuðnauðsyn. Sedrusvlðarskógar Líb- anons vaxa upp aftur HINIR gömlu, víífræga og víðáttumiklu sedrusviðar- og furuskógar í Líbanon verða nú ræktaðir að nýju. Stjórn- arvöldin í landinu hafa látið fara fram mikla og víðtæka g-róðursetningu á græðlingum í fjallahéruðunum, þar sem áður stóðu hinir mikiu sedrus viðarskógar sem frægir eru í Biblíunni, því þaðan fékk Salómon konungur sedrusvið- inn í musterið í Jerúsalem. Matvæla- og Iandbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) veitir tæknilega hjálp og ráðleggingar í sambandi við þetta fyrirtæki, og Fram- kvæmdastjóður Sameinuðu þjóðanna hefur 3agt fram fjárhæð sem nemur 888.000 dollurum (rúmum 38 milljón- um íslenzkra króna). Gróðursetning skóganna er þáttur í víðtækri áætlun, sem miðar að ræktun og nýtingu fjallasvæðanna í Líbanon. Fyrsta skrefið var að velja sex tilraunasvæði, samtals 130.000 hektara, þar sem menn verða uppfræddir og þjálfaðir í gróðursetningu, vökvun og vörzlu jarðvegsins. Ennfremur er ætlunin að koma upp skólum fyrir skóg- fræðinga og landbúnaðarsér- fræðinga og setja á stofn rann sóknarstofur. Þegar hafa verið gerðar nokkrar efna- hagslegar kannanir I sam- bandi við þessar áætlanir, og innan skamms er von á skóga- korti yfir Líbanon. Allar eiga þessar fram- kvæmdir að takia fjögur og hálft ár, og í sambandi við þær verða búnir til sérstakir garðar og gerðar tilraunir með fiskirækt í tilbúnun* fjallavötnum. Chou En-Iai heimsækir Nasser Kairó, 5. des. (NTB). CHOU En-lai, forsætisráðherra Kínverska Alþýðulýðveldisins, hefur þegið boð um að heim- sækja Egyptaland. Segir blaðið „A1 Ahram“ í Kairó, að hann só væntanlegur þangað í marz n,.k- Kínverski forsætisráðherrann mun ræða við Nasser forseta Egyptalands um alþjóðamál og um málin, sem verða á dagskrá ráðstefnu Asíu- og Afrikuríkja, en hún verður haldin í Alsír í vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.