Morgunblaðið - 08.12.1964, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. des. 1964
Þórður Magnússon
bókbindari — minning
ÞÓRÐUR Magnússon lifði líf-
inu eins og góðum mönnum er
eiginlegt kvikur og kátur sem
ungur maður, mildur og stilltur
á efri árum. Hann var kominn
hátt á 84. árið er hann lézt að
kvöldi 28. nóv., en fæddur var
hann 17. febrúar 1881. Banamein
ið var hjartabilun. En þega-r góð
ir menn fara er ekki hægt að
tala um hjartabilun, hjartað hætt
ir aðeins að slá.
Enda þótt bezt sé að minnast
Þórðar, sem góðs vinar og félaga
trausts verkstjóra og mikils at
orkumanns við vinnu, þá mun
hann í einu efni hafa átt um það
bil heimsmet. Hann hóf starfs í
bókbandsstofu fsafoldar 1. apríl
1897 og vann þar nær óslitið til
hinstu stundar eða í full 67 ár.
Sjálf er bókbandsstofan 78 ára
gömul, stofnuð af Birni Jóns-
syni árið 1886. Að loknu bók-
bandsnámi fór Þórður til Kaup-
mannahafnar til framhaldsnáms,
en kom heim að tveimur árum
liðnum, árið 1904, og tók þá við
verkstjórn í Lsafold. Þessa verk-
stjórn hafði hann á hendi næstu
43 árin. Mest af þessum langa
tíma störfuðu þeir saman Þórður
og Gísli Guðmundsson, og var
bókbandsstofan um þær mundir
nafnfræg af þessum fjörmiklu
mönnum og kunnu borgurum.
Lengi framan af voru bækur
yfirleitt handbundnar og á með-
an það var mun margur bóka-
vinurinn hafa glaðst yfir að eign
ast handbundnar bækur eftir
Þórð og Gísla. En báðir þessir
menn lifðu einnig tímabil vél-
bandsins og kunnu að méta kosti
þess, þótt handbandið væri
sterkara — og persónulegra.
Þórður var sannkallaður Reyk
víkingur. „Ég er fæddur í Vest
urbænum", sagði Þórður í sam-
tali við Morgunblaðið, er hann
varð áttræður, „en ég man ekki
eftir mér þeim megin. Þegar
ég fyrst man eftir mér var ég
heima í Ingólfsstræti 7. Þar hef
ég átt heima æ síðan og held nú
upp á áttræðisafmælið í þessu
gamla og góða húsi, sem faðir
minn, Magnús Magnússon
byggði, en þar var áður torfbær-
inn Ofanleiti. Við systkinin skift
um lóðinni, og Magnús bróðir
minn reisti sér þar hús, Ingólfs-
stræti 7B (Magnús lifir Þórð,
86 ára gamall) og að Ingólfsstræti
10 bjó systir mín Halldóra gift
Kristjáni Möller málara. (Hall-
dóra er látin.) Við systkinin höf-
um því öll átt heima við Ingólfs-
stræti, okkur hefir liðið mjög
vel þar og sennilega flytjum við
ekki héðan af“. Þórður lézt að
Ingólfsstræti 7 og hafði þá lifað
þar í um það bil 80 ár.
Þórður Magnússon átti þátt í
stofnun Hins íslenzka bókbind-
arafélags árið 1906, og hann átti
frumkvæðið er félagssamtök bók
bindara voru endurvakin árið
1934 og Bókbindarafélag íslands
var stofnað. Þetta félag heiðrar
nú minningu þessa frumherja,
með því að kosta útfpr hans.
í ísafold er skarð fyrir skildi
er Þórður er farinn. í bókbands
stofunni er enn fólk, sem starf
að hefir með Þórði í hartnær 40
ár. Hefi ég þar helzt í huga Ein
fríði Guðjónsdóttur (starfað í
ísafold í nær 60 ár), Ólafíu Ólafs
dóttur og Fanneyju Guðmunds-
dóttur. Engan vin mun Þórður
hafa átt einlægari síðustu ára-
tugina en Ólafíu. Sjálfur hefi
ég þekkt Þórð frá blautu barns-
beini og persónulega á ég og
raunar við feðgar í þrjá ættliði
Þórði mikið að þakka.
Þórður kvæntist árið 1907 Guð
rúnu Magnúsdóttur. Fjögur börn
þeirra komust á fullorðinsaldur,
Páll (lézt af slysförum árið 1932),
Lilja, gift Ragnari Þórarinssyni,
húsasmíðameistara, Magnús, í
heimahúsum, og Geir, verkstjóra
á bókbandi Hilmis. Utan hjóna-
bands átti Þórður tvær dætur,
Fríðu, en hún er gift Kristjáni
Lindhardt í Kaupmannahöfn, og
Huldu, sem vinnur á bókbands-
stofu prenstmiðjunnar Hóla.
Hinn mildi maður, sem vann
nær allt sitt líf hjá sömu hús-
bændum og bjó alltaf við Ing-
ólísstræti 7 er nú fluttur. Hann
var spur'ður að því 75 ára gam-
all, hvort hann hefði lent í nokkr
um ævintýrum á lífsleiðinni.
„Engum sérstökum", svaraði
Þórður, „lífið hefir verið eitt
ævintýri“.
Mönnum eins og Þórði er gott
að kynnast og að leiðarlokum
skilja þeir eftir Ijúfar minning-
ar.
Pétur Ólafsson.
Leikfélag Kópavogs:
Fínt fólk
Höfundur: Peter Coke
Leikstjóri: Gísli
Alfreðsson
LEIKFÉLAG Kópavogs hefur að
undanförnu sýnt grínleikinn
„Fínt fólk“ eftir brezka leikar-
ann og leikritahöfundinn Peter
Coke. Var hann frumsýndur 19.
nóvember, en ég komst ekki til
að sjá hann fyrr en í síðustu
viku, þannig að þessi umsögn
birtist eftir dúk og disk. Það var
fámennt í Kópavogsbíói kvöldið
sem ég sá leikritið, og má nærri
geta að leikendum hefur verið
róðurinn allþungur við heldur
daufar ujndirtektir áhorfenda, þó
stundum væri hlegið hressilega.
„Fínt fólk“ er nefnt sakamála-
skopleikur í leikskrá, og segir sú
nafngift í rauninni alla söguna.
Hér er á ferðinni einfaldur og
í mörgu tilliti fjarstæður skop-
leikur um heldur fáfengileg
sakamál, og hann á ekki annað
erindi við áhorfendur en vekja
hlátur og kæti stutta kvöld-
stund. Efnisþráðurinn er með ó-
líkindum, eins og títt er um grin
leiki, og sjálfar persónurnar
sömuleiðis. Það sem mest veltur
á er að gera hvert atriði leiksins
og samhengið milli þeirra sem
spaugilegast og fá áhorfendur til
að taka þátt í gríninu.
Ekki verður annað sagt en
leikararnir í Kópavogi gengju
fram af sönnum eldmóði og ein-
lægri leikgleði, sem gaf sýning-
unni hressilegan blæ, þó vitan-
lega væru snöggu blettirnir
bæði margir og áberandi. Leik-
stjórinn, Gísli Alfreðsson, hefur
unnið sitt verk fagmannlega, náð
hraða í sýninguna og allgóðum
heildarblæ, þó sviðshreyfingar
mættu sums staðar vera örugg-
ari. Meginagnúinn á sýningunni
er hins vegar takmörkuð geta
leikenda til að búa til einfaldar,
heilsteyptar manngerðir úr hlut
verkum sínum. Þau krefjast
hvorki sálfræðilegrar krufningar
né innri átaka eða þróunar, held
Frá vinstri: Nina Sveinsdóttir, Auður Jónsdóttir, Guðmundur
Gíslason, Hólmfriður Þórhallsdó ttir og Lily Guðbjörnsdóttir.
ur fyrst og fremst einfaldrar stíl-
færslu á hverri einstakri per-
sónu, sem haldist leikinn á enda.
Þetta tókst ekki nema að mjög
takmörkuðu leyti. Leikstjórinn
hefur réttilega lagt áherzlu á að
sérkenna hverja persónu, enda
er hópurinn sundurleitur, en leik
ararnir áttu erfitt með að „tolla
í rullunum“. Næst því komust að
minni hyggju þær Lily Guð-
björnsdóttir (Hattie) og Nína
Sveinsdóttir (frú Beatrice Apple-
by), einkanlega sú fyrrnefnda.
Taugaveiklun Hattie var hæfi-
lega ýkt og persónan var söm
við sig til leiksloka. í leik Nínu
vantaði ýmsar þær ýkjur sem
gert hefðu þessa hugmyndaríku
gæðafrú ennþá skemmtilegri,
hún var helzti þyngslaleg, en
innan sinna takmarka hélt hún
strikinu til enda. Auði Jónsdótt-
ur vantaði ekki miklu meira en
herzlumuninn til að gera Nann-
ett minnisverða gríngúru og var
margt vel um leik hennar. Okta-
vía Stefánsdóttir lék þjónustu-
stúlkuna, Lily Thompson, og var
örugg í framgöngu, en einhvern
veginn of „jarðbundin“: hún
var ekki nægilega spaugileg.
Hólmfríður Þórhallsdóttir lék
Alice, rótlausa hefðarkonu, snot-
urlega með köflum, en hana
skorti líka sérkennilegra svip-
mót.
Af karlmönnum leiksins bar
Guðmundur Gíslason hita og
þunga dagsins í hlutverki Reyn-
es hershöfðingja, sem getur með
engu móti gleymt hernum, og
hygg ég að reynsluskortur Guð-
mundar í hermálum standi hon-
um mjög fyrir þrifum í þessu
hlutverki! Endrum og eins örlaði
á hinum sérvitra brezka herfor-
ingja, en persónan varð ekki
heilsteypt og því sjaldan veru-
lega fyndin. Björn Magnússon,
Sigurður Grétar Guðmundsson
og Sigurður Jóhannesson fóru
með smáhlutverk, sem ekki urðu
eftirminnileg, nema kannski ör-
stutt innkoma Sigurðar Jóhann-
essonar.
Þýðinguna gerði Óskar Ingi-
marsson, og virtist hún lipur og
hæfa anda leiksins. Leiktjöldin
voru eftir Hafstein Austmann,
látlaus og snotur, en ekki kunni
ég við útsýnið úr stofugluggan-
um og þvi síður litasamsetning-
una á gluggatjöldum og vegg-
fóðri — þar var æpandi mis-
ræml.
Því hefur oft verið haldið
fram, og það jafnvel af ábyrg-
um leiðtogum íslenzkrar leiklist-
ar, að léttmetið væri það sem
„fólk yfirleitt“ helzt vildi sjá á
fjölum leikhúsanna. Eitthvað
virðist mér sú kenning standa
höllum fæti, ef nokkuð má
marka af aðsókninni að „Fínu
fólki“ kvöldið sem ég sótti þá
sýningu.
Sigurður A. Magnússon.
almennt ekki byrjuð. En það er
ekki nema rétt liðlega hálfur
mánuður til jóla. Tíminn líður
hratt.
Kannski veldur snjókoma
um helgina, því að ég er að
komast í jólaskap. Þetta var
reglulegur jólasnjór — og ég er
bara að vona, að hann haldist
fram yfir nýjár. Mér finnst
rauð jól aldrei jafn jólaleg.
Að vanda hafa verzlunar-
menn skreytt mikið nú þegar,
en í heimahúsum er slíkt ekki
byrjað enn. Þó sá ég marglitar
ljósaperur utan á tveimur hús-
um í Austurbænum á sunnu-
dagskvöldið — og satt að segja
finnst mér það full snemmt.
Hingað til hefur það verið sið-
ur að skreyta ekki í heimahús-
um fyrr en jólahátíðin gengur
Jólaskreytingin verður ekki
jafn jólaleg.
★ ERLENÐUR SLÐUR
Það virðist færast æ í vöxt,
að börnum hér á landi sé gefið
sælgæti í skóna sína á hverri
nóttu — og á þessu er byrjað
löngu fyrir jól. Þetta er erlend-
ur siður, sem mér finnst engin
ástæða til að innleiða hér. Þetta
er eins konar forskot, sem
börnin fá á jólin, forskot, sem
dregur úr tilbreytingunni, sem
fylgir jólunum. Þar að auki er
það áreiðanlega hvimleitt fyrir
foreldra, þegar börnin eru farin
að ætlast til að fá reglulegar
sælgætisgjafir. En það eru auð-
vitað foreldrarnir sjálfir, sem
innleiða þetta. Ekki börnin.
in hér í blaðinu á surmudaginn.
Þetta sífellda sjálfshól íslend-
inga í sambandi við flug- og
ferðamál er svæfandi fyrir þá,
sem bera ábyrgðina á að allt
fari vel á þessum vettvangi.
Þess vegna mættu fleiri stinga
niður penna á sama hátt og
Gísli í þetta sinnið.
En dagblöðin eiga mikla sök
á því hvernig komið er. Þau
hafa oft og tíðum stuðlað að
endurbótum á þessu sviði sem
öðrum, en þeim getur líka
brugðizt bogalistin. Sjaldan láta
þau vanta í viðtöl sín við út-
lendinga, að „íslenzka gestrisn-
in“ beri af öllu öðru, landið sé
það „sérstæðasta“ í heimi —
og landsmenn þeir gáfuðustu,
sem fyrirfinnast á hnettinum.
— Þá er auðvitað ekkert und-
arlegt, þótt mörgu þjónustu-
fólki finnist gestirnir ekki hafa
efni á að setja sig á háan hest.
— Útlendingar fara oft fögrum
orðum um ísland og íslend-
ingar það er satt. Stundum
vegna þess að þeir hafa búizt
við öllu mjög vanþróuðu hér
— og gera ekki samanburð við
annað. Oft vegna þess að þeir
eru að reyna að geðjast heima-
mönnum — þriðji hópurinn —
vegna þess að hann hefur orðið
fyrir góðri reynzlu hér.
En það er alveg óþarfi fyrir
blöðin að birta þetta sífellda
hól. Ég er ekki að segja, að þess
eigi ekki að geta, sem vel er
gert. En stundum mætti gæta
meira hófs á þessu sviði.
★ JÓLA-AFSLÁTTUR
Af því ég minntist á jólin
langar mig til að benda skóla-
fólki alveg sérstaklega á „jóla-
afslátt“ Flugfélags íslands á
innanlandsleiðum. Það er jafnan
vinsæl ráðstöfun að slá af verði,
en fáir kunna betur að meta
afslátt en félítið skólafólk, sem
langar heim um jólin.
B O S C H
rafkerfi
er í þessum bifreiðum:
BENZ SAAB
DAF TAUNUS
NSU VOLVO
OPEL VW
Við höfum varalilutina.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF.
Vesturgötu 3. — Sími 11467.