Morgunblaðið - 08.12.1964, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 8. des. 1984
MORGUNBLADIÐ
21
Sr. Halldór Kolbeins
Hugsjónamaður kvaddur
SBRA Halldór Kolbeins var
minnzt hér í blaðinu á sunnu-
daginn var með prýðilegri grein
eftir séra Magnús Guðmundsson
frá Ólafsvík. Ætlunin var, að
þessi fáu kveðjuorð fylgdu þeirri
grein, en af því gat ekki orðið
af ástæðum, sem ekki er þörf að
grein hér, en ekki var það
blaðsins sök.
Bindindisstarfsemin á fslandi
á góðum liðsmanni á bak að sjá
þar sem séra Halldór Kolbeins
er, og þó einkum Góðtemplara-
Halldór H. Snæhólm
F. 23. sept. 1886. D. 28. nóv. 1964
Halldór H. Snæhólm var fædd
txr á Auðkúlu í Svínavatnshreppi
A-Húnavatnssýslu 23. september
1886. Foreldrar: Halldór Fr. Hall
dórsson og Ingibjörg Bjarnadótt-
ir. Veturna 1906—07 stundaði
Halldór H. Snæhólm nám við
Hólaskóla í Hjaltadal, og útskrif
aðist þaðan sem búfræðingur
seinni veturinn'eða 1907. Árið
1914 kvæntist Halldór Elínu K.
Guðmundsdóttur. En foreldrar
hennar voru Guðmundur Sveins-
son og Kristín Friðriksdóttir, er
hjuggu á Tannanesi í Önundar-
firði.
' Halldór Snæhólm og Elín áttu
saman 7 börn, misstu tvö á fyrsta
eða öðru ári, en fimm lifa:
Alda gift dr. Hermanni Einars
syni, fiskifræðingi; Njörður starfs
maður í rannsóknarlögreglunni,
kvæntur norskri konu Magnhild
Mopen, Kristín gift Skiúla Han-
sen tannlækni; Guðmundur
kvæntur Sunnefu Guðjónsdóttur
og Edda gift Hrafni Pálssyni
hlj óðfæraleikara. Halldór og E1
ín byrjuðu búskap á Sneis á Lax
árdal í A-Húnavatnssýslu. Eftir
tólf ára búskap þar selur Hall-
dór jörðina Sveini Hannessyni
frá Elivogum og flytur að Mel-
stað í Glerárþorpi við Akureyri
árið 1927. I>ar vonx þau einnig í
tólf ár eða til 1938 að þau fluttu
til Reykjavíkur. Eftir það vinn-
ur Halldór, meðan heilsa og kraft
®r leyfa, við Pípuverksmiðjuna
við Rauðarárstíg, hjá mági sín
um Kristjáni Guðmundssyni, þar
til að hann flytur á Þinghóls-
braut 11, Kópavogi. Halldór H.
Snæhólm var félagslyndur mað-
ur. Hann tók þátt í félagslífi
sveitar sinnar á meðan hann bjó
í sveit. Einnig var hann þátttak
andi í kaupfélagsmálum og virk
ur félagi í verkalýðssamtökunum
á þeim árum, er hann var bú-
6ettur á Akureyri Á yngri ár-
um var Halldór góður glímu-
maður og lagði þá oft að velli
haerri menn og herðabreiðari, en
hann var sjálfur. —
Á þeim árum, sem hann bjó
1 sveit, átti hann ágætan reið-
hest er hann kallað Spak. Aldrei
kom ég svo á heimili hans, að
hann færi ekki að tala um Spak
sinn, og benti hann þá oftast um
'leið á myndina af klárnum, sem
hékk þar á vegg í herberginu.
Halldór hafði mjög gaman af
kveðskap og vísum, enda hagyrð
ingur, og kastaði oft fram tæki-
færisvísum, er flestar voru létt
*r og lifandi og þá oftast gædd
•r góðleik og kímni.
Ég held að það hafi verið fyr
ir tíu árum eða nálægt því, sem
ég kynntist Halldóri fyrst, mun
hafa verið í sumarferð kvæða-
mannafélagsins Iðunnar, Mér
fannst þá við fyrstu kynni að
eitthvað væri það við manninn,
sem mér geðjaðist að. Enda hef-
ur reynslan sannað það hugboð
mitt. Ég hef átt því láni að fagna
að kynnast mörgu góðu fólki,
bæði konum og körlum, og með-
al þeirra var Halldór Snæhólm.
Hann var hinn góði félagi, sem
ávallt var fengur í að hafa ná-
lægt sér. Hann var með allra orð
vörustu mönnúm, sem ég hef
þekikt, ég heyrði hann aldrei hall
mæla nokkrum manni.
Þótt Halldór væri ávallt
skemmtilegur, þá var hann
skemmtilegastur, þegar hann var
að veita öðrum, þá voru það
hreinustu töfrar að sjá hann og
heyra. Þá gleymdi maður heimi
og sjálfum sér — og ungur var
Halldór í anda fram á síðustu
stund.
Að endingu dettur mér í hug
erindi eftir Stefán G. Stefáns-
son skáld, sem eru nokkurskonar
heilræði til annarra, en sumir
menn eru þannig af guði gerðir,
að þeir gera þessi heilræði að
veruleika með lífi sínu og
breytni:
Láttu hug þinn aldrei eldast
eða hjartað.
Vinur aftansólar sértu,
sonur morgunroðans vertu.
Jóh. Ásgeirsson.
reglan. Rúmlega tvítugur að
aldri gekk Halldór í stúkuna
Mínervu í Reykjavík, og í Mín-
ervu starfaði hann seinustu árin
eftir að hann fluttist frá Vest-
mannaeyjum, en í ýmsum stúk-
um þess á milli, eftir því hvert
leið hans lá. Hann tók snemma
öll stig reglunnar (hástúkustig
1920), og var ótrauður baráttu-
maður fyrir bindindi og reglu-
málum til dauðadags. Um skeið
ferðaðist hann víða um land sem
regluboði, flutti boðskap bind-
indissemi, hvatti til starfa á
þeim vettvangi, blés að glæðum
áhugaelds hjá einstökum mönn-
um og heilum stúkum. Reglan
átti því séra Halldóri margt að
þakka. Það var lítil viðurkenn-
ing þess, að hann var gerður
heiðursfélagi Stórstúku íslands.
Séra Halldór Kolbeins var hug-
sjónamaður. Hann trúði því, að
mannkynið stefndi' áfram til
betra lífs, þrátt fyrir allt. Hann
var sannfærður um gildi þess
fyrir einstaklinginn að helga sig
hugsjónum, standa ekki óvirkur
hjá, heldur leggja lið sitt fram
til að gera mannlífið fegurra og
betra, samferðamennina farsælli.
Og hann lifði sjálfur í samræmi
við þessa trú.
Það var af þessum ástæðum,
að stúdentinn Halldór Kolibeins
gerðist starfandi félagi í Góð-
templarareglunni. Það vax af
þessum ástæðum, að presturinn
og prófasturinn séra Halldór Kol-
beins starfaði í þeim félagsskap
til æviloka af mikilli trúmennsku
og skeleggjum áhuga. Það var
af sömu ástæðum, að hann
hreifst af esperantó-hreyfing-
unni, þá nýlega fermdur ungling-
ur, hreifst af tilgangi hennar að
auka jafnrétti og efla bræðralag
manna af ólíkum þjóðum.
Séra Halldór Kolibeins þótti
góður regluboði. Bar margt til
þess. Hann var hverjum manni
alúðlegri í framkomu, falslaus
og einlægur, greindur og víða
heima og kom stundum að manni
úr þeirri átt, er sízt varði. Hann
var ágætur ræðumaður, þegar til
þess þurfti að taka, hafði gott
vald á máli, byggði ræður af
fastri rökvísi, en eldur áhuga og
trú á málstaðinn setti sterkan
svip á allan flutninginn. Mælsk-
an var söm, hvort sem hann
talaði móðurmál sitt eða alþjóða-
málið esperantó, cldmóðurinn
eins, hvort sem hann ræddi um
lífsstefnu kristninnar, gildi bind-
indissemi eða þýðingu bræðra-
lags manna og þjóða, en fyrir
honum var þetta allt sama hug-
sjónin: farsælla líf, betri menn.
Séra Halldór var meðal full-
trúa á Stórstúkuþingi síðastliðið
vor, eins og oft áður (fyrst 1917).
Hann tók lifandi þátt á störfum
þingsins, eggjaði til dáða og lét
sér hvorki deyfð almennings í
landinu í bindindismálum né and-
stöðu sumra manna í augum
vaxa. Bjartsýnin var mikil,
kjarkurinn óslævður, sigurtrúin
örugg. Eldur hugsjónanna brann
enn skært í brjósti hans og
gneistaði af orðum hans, þótt
orðinn væri meira en sjötugur.
Það er gott að minnast manns
eins og séra Halldórs Kolbeins.
Stórstúka íslands þakkar störf
hans að bindindi og öðrum menn-
ingarmálum og ber jafnframt
fram þá ósk íslenzku þjóðinni til
handa, að hún eigi jafnan sem
flesta menn, sem gæddir eru trú
hans á sigur hins góða í mann-
lífinu og jafnfúsir honum að
leggja góðum málstað lið í orði
og verki.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
SAMVINNUTRYGGITNGAR
Imanonier:38500“llr
Þetta
er kúluoenni
............' ' - •' ;
, - , •• •
auðvitað er það
Parker ?
PARKER kúlu-
penninn er völ-
undarsmíð, fram
leiddur úr bezta
fáanlega hráefni
PARKER kúlpennafyll-
ingar endast allt að
fimm sinnum lengur,
en aðrar.
Fyliingin snýst til að koma í veg
fyrir ójafnt slit skrifkúhinnar.
*
PARKER kúlupennafyllingar
fást í fjórum oddsverleikum og
fjórum litum.
PARKER skrifar jafna, óbrotna
línu, klessir ekki og rennur
'liðugt yfir pappírinn.
kúlupenni kr. 106.00,
Allir PARKER kúlupennar ein-
kennast af hinu heimsþekkta
PARKER útliti og gæðum, sem
gert hafa PARKER eftirsóttast
skriffæri heims.
Parker pennar, kúlupennar, skr úfblýantar
frá kr. 106.0« til kr. 1570.00.
UAURS OF THt WORUO'S MOST WANTEO PtNI