Morgunblaðið - 08.12.1964, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. des. 1964
Ævintýramennska að senda
írska liðið í EM-keppni
71-17 mesti yBrburðasigur hérlendis
FVRSTI leikurinn í Evrópu-
keppni meistaraliða í körfuknatt
leik milli ÍR og írsku meistar-
anna Collegians, fór fram í
Iþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli s.l. laugardag. Þvert ofan í
spár manna reyndist þetta ÍR-
liðinu léttur sýningarleikur, sem
endaði með yfirburðasigri þeirra,
en þeir skoruðu 71 stig gegn 17.
Irarnir reyndust í alla staði auð
veld bráð hinum fljótu og skot-
vissu ÍR-mönnum, sem þó náðu
ekki sínum bezta leik, og er það
varla furða gegn svo lélegum
andstæðingum.
• Ævintýramennska.
í upphafi leikáins gekk ÍR-ing
um heldur illa að fá knöttinn
ofaní körfuna, reyndu þeir
þrettán körfuskot árangurslaust,
þar til Guðmundur Þorsteinsson
braut ísinn með vítaskoti á
5. mín. Allur leikurinn var ein-
stefna að körfu íranna og verður
með sanni sagt að sjaldan hafi
sézt slíkir yfirburðir í leik milli
tveggja íslenzkra meistaraflokks
iiða, jafnvel náði þýzka meistara
flokksliðið DHFK, sem kom hér
árið 1958, ekki neitt viðlíka mikl
um mun gegn íslandsmeisturun
um ÍKF þá. Líktist það fremur
aefintýramennsku en heilbrigðri
skynsemi að etja slíku liði í'
Evrópukeppni, og er það sár
skellur fyrir ÍR-inga að þurfa að
eyða miklu fé og tíma til þess
að kosta þessa heimsókn og end
urgjalda hana síðan þann 19.
þessá mánaðar, í Belfast.
Svo vikið sé aftur að gangi
leiksins þá endaði hálfleikurinn
31:5, og voru öll stig íranna skor
uð úr vítaskotum. Er sex mín.
voru af seinni hálfleik heppnað-
ist írum loks að skora sína fyrstu
körfu úr leik, og fögnuðu áhorf-
endur mikið. ÍR notaði síðari
hluta leiksins nær eingöngu
yngstu pilta sína og höfðu þeir
einnig yfirburði yfir hina
miklum mun eldri írlendinga.
Lofar þetta góðu um framtíð ÍR
liðsins, þó reyndar megi segja,
að allt liðið sé mjög ungt eða
að meðaltali tæpra tuttugu ára.
Lokatölurnar í leiknum voru
eins og að ofan getur 71 stig ÍR
gegn 17 stigum íranna.
• Liðin.
Lið íranna er, þótt ljótt sé til
frásagnar, mjög jafnlélegt. Sýndi
enginn þeirra þá hæfni sem sjálf-
sögð þykir hjá meistaraflokks-
mönnum íslenzkum og er vafa-
mál að nokkur Íranna kæmist í
beztu meistaraflokkslið okkar.
Helzt voru það George Clark no.
7, og Eddie Mullholland no. 5,
sem vöktu athygli. Leikur liðsins
var á köflum svo tilviljanakennd
ur að sendingar og grip minntu
oft og á hið fræga grín og sýning
ariið Harlem Globetrotters.
ÍR-liðið átti svo rólegan dag,
að varla er hægt að leggja neitt
mat á frammistöðu einstakra leik
manna, til þess var mótstaðan of
lítil. Heldur var iiðið seint í
gang og taugaóstyrkt í byrjun, og
er ekki að vita hverjar afleiðing-
ar það kynni að hafa haft gegn
sterkari mótherjum. Stig ÍR skor
uðu: Birgir Jakobsson 16 stig og
vakti hann mikia athygii fyrir
skotfimi sína, en hann er aðeins
sextán ára gamall; Hólmsteinn 16
og Guðmundur 12 stig.
Dómarar í leiknum voru skot
inn R.G. Hyslop og Guðjón
Magnússon. — Dæmdu þeir
mjög vel og ætti dómarafélagið
að athuga möguleika á því að
senda dómara á námskeið hjá
FÍBA til þess að öðlast réttindi
milliríkjadómara. Guðjón hefur
dæmt tvo landsleiki í Finnlandi
og nú þennan milliríkjaleik og
hefur sýnt að hann er fullboðleg-
f DAG kl. 6 ganga íslands-
meistarar Fram til Evrópu-
keppni í handknattleik. Mæta
þeir í 1. umferð sænsku meist
urunum félaginu Redbengslid
í Gautaborg. Það liðið sem
vinnur mætir rúmensku meist1
urunum í 2. umferð en það i
er tapar er úr keppninni.
Leikurinn fer fram í stærstu
íþróttahöll Gautaborgar. Má
vænta að leikurinn verði jafn
og hafa bæði lið sigurmögu-
leika þó fleiri telji Svia sigur-
stranglegri vagna meiri
reynslu þeirra.
Sigurður Sigurðsson lýsir
síðari hálfleik í útvarpinu.
Vegna breytt leiktíma ytra
verður lýsing hans tekin á
band og flutt kl. 7.45 — að'
afloknum fréttum.
ur dómari hvar sem er. Dómari
sá frá Danmörku sem átti að
dæma leikinn, Dan Christiansen
að nafni, kom ekki til landsins
fyrr en hálftíma eftir að leiknum
lauk, vegna seinkunar á flugvél
Loftleiða.
'-K
KR — ÍRAR
A SUNNUDAG léku írsku meist
ararnir aukaleik að Hálogalandi
gegn KR, en þeir eru í öðrti sæti
á Reykjavíkurmótinu í körfu-
bolta um þessar mundir. Var
leikur íranna nú ailur betri en
gegn ÍR og eru þeir greinilega
vanari að nota járnspjöld eins og
þau að Hálogalandi, heldur en
glerspjöldin í Keflavík. Er þar
Framhald á bls. 3
ÚRSLITALEIKIR handknattleiks
móts Reykjavíkur fóru fram á
sunnudagskvöldið og verðlaun
voru afhent. Reykjavíkurmeist-
arar í m.fl. karla urðu KR-ingar.
Þeir áttu leik við ÍR þetta kvöld
og unnu hann létt og örugglega,
svo titillinn og bikarinn varð
þeirra — aftur eftir nokkurra ára
hlé. I kvennaflokki sigruðu Vals-
stúlkurnar í hörkuspennandi úr-
slitaleik við Ármann.
ÍR-ingar megnuðu ekki að
ógna KR-ingum einu sinni hvað
þá meir.' KR-ingar léku mjöig vel
í byrjun og tryggðu sér sigur-
inn með þeim glæsilega leikkafla.
Úrslit leiksins urðu 17-8 þeim í
vil.
í meistaraflokki ’kvenna mætt-
ust Valur og Ármann. Valsstúlk-
urnar voru mun skotharðari oig
unnu verðskuldaðan sigur 7-4.
Önnur úrslit um helgina urðu
2. fl. kvenna Fram-Vík. 5-1; 3. fl.
karla Valur-KR 8-5; 2. fl. karla
Valur-ÍR 12-7 og 1. fl. karla
KR-Vík. 9-8.
Sigurvegarar i mótinu urðu
M.fl. karla KR
M.fl. kvenna Valur
1. fl. karla KR
2. fl. karla Vaiur
3. fl. karla Valur
1. fl. kvenna Valur
2. fl. kvenna Fram
Byrjaði 7 ára í badminton
DÖNSKU bræðumir Erl'iand
Kops heimsmieistari í eimliðia-
leik í badiminton og Torben
„litli bróðir“ halda heimleið-
is í dag ef allt fer að áætlun.
Þeir dvöldu hér lengiur en
hinir tveir og ætlunin var að
gefa íssl. badmintonmönnuim
tækifæri til að leika við þá
oig '!æra af þeim í ieik. En
hvað skeði? >á fékkst ekkert
hús n,ema í eina klukkustund
frá 6-7 í gær. Er þetta ekki
einkennandi fyrir okkar
íþróttamál? Femginn er hing-
að beimsmeistari og þegar á
að fara að læra af honum,
þá er ekki hægt að hagræða
svo húsnæðismálunum og not
verði af tveigigja sólarhringa
dvöl hans nema eina klukku-
stud.
Frá þessu sagði Erland
Kops er við heimsóttum hann
á hótel Sögu i gær. Hann var
ánægður með förina, og vill
alit fyrir ísl. badmintoniþrótt
gera, en var dálítið undrandi
yfir skipulaginu.
— Ég var 7 ára þegar ég
hóf að leika badminton og hef
því lekiið íþróttina í 21 ár.
— Er algengt að danskir
strákar byrji svo ungir?
— Nei ekki lengur. Þá voru
vellirnir verri og ekki eins
eftirsóttir svo við litlu peyj-
arnir komust að. Nú er svo
mikil notkun á vöilunum að
yngri en 9 ára komast ekki
að.
— Er keppni fyrir svo unga
stráka?
— Já, já. Það er svokölluð
„pusslinga“-keppni fyrir
yngri en 12 ára. En fyrst þeg-
ar strákar eru 15, 16 og 17 ára
fara þeir að ktomast framar-
lega og mörg dæmi eru þess
að menn hafi 18 ára gamlir
komizt í landslið.
Við röbbuðum svo við E.
Kops um heimsmeistaratign
hans. Hann var hinn lítillát-
asti og sagði að í raun og veru
væri ekki um þann titil að
ræða í þess orðs merkingu
hvorki fyrir éinstaklinga eða
flokka. Hins vegar væri
aimennt litið á sigurvegara i
„All England" keppninni sem
bezta mann heims í einliða-
leik og sigurvegari í Thomas
bikarkeppninni sem heims-
meistara í flokkakeppni.
Sama fyrirkomulag væri í
tennis. Hann kvaðst fyrst hafa
sigrað í All England kieppn-
inni 1958 og alltaf síðan er
hann hefur verið með en 1959
og 1960 var hann búsettur í
Austurlöndum vegna atvinnu
og fór ekki til Englands.
— Er ekki erfitt að vera
heimsmeistari og stunda jafn
framt einhverja vinnu?
— Jú áður fyrr var það, en
ég fékk að taka sumarfríið
sem var mánuður eins og ég
vildi, 2 og 3 daga í senn eins
og ferðirnar tóku. En ég hef
ferðast mjög mikið og við
toppmenn Danmerkur í bad-
minton gerum mun meir af
því að ferðast erlendis og
keppa en að taka á móti er-
lendum og keppa við þá
heima. En nú rek ég sjálf-
stætt fyrirtæki með inn- og
útflutning og ræð tíma mín-
um. Samt get ég ekki stundað
bandminton eins og ég vildi
— og það hef ég aldrei getað.
Ég vildi helzt æfa 4—5 sinn-
um í viku 2 tíma í senn. En
núna t.d. æfi ég 1 sinni í viku.
— Er það nóg til að halda
heimsmeistaratitli
— Nei. í janúar fjölga ég
æfingum upp í 3 vikulega 2
tíma í senn.
— Hversu lengi geta bad-
mintonleikarar verið á toppn
um?
— Ef áhuginn er engu
öðru bundinn en badminton
ætla ég að menn gætu verið
það fram undir fertugt.
— Hefur Dani aldrei áður
unnið All England keppnina?
— Jú, John Skaarup 1948.
— Hvað um badminton í
Danmörku?
— Jðkendur eru á að gizka
40 þús. Það er keppni fyrir
meistara og það sem við köll-
um síðan A, B, C raðir og síð-
an unglingakeppni. Allir geta
þvi fundið keppni við sitt
hæfi en samt eru keppendur
ekki nema 2^-4 þús. talsins.
Hinir iðka badminton tíl
Framh. á bls. 19
varð heimsmeistari 22 ára