Morgunblaðið - 08.12.1964, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 8. des. 1964
MORCUNBLAÐIÐ
27
Tveir menn slasast við fall;
Annar féll úr hey-
stabba,hinn í lest
TVEIR menn slösuð'ust í falli í
Árnessýslu um helgina, annar
höfuðkúpubrotnaði við að detta
- Tito
Framhald af bls. 1
haldið í Ljubliana 1958,
Samtímis gagnrýni Titos á
Kínverja, birti málgagn kín-
versku stjórnarinnar, „Dagblað
þjóðarinnar“ í Peking, nýjar árás
ir á Krúsjeff og Tito, en einnig
gagnrýndi blaðið nýju leiðtogana
í Moskvu, þá Brezhnev, aðalrit-
ara flokksins, Anastas Mikoyan,
forseta og Mikhail Suslov. Kem-
ur þetta fram í ræðu, sem Enver
Hoxha, leiðtogi kommúnista í
Albaníu, hélt fyrir skömmu í til-
efni þjóðhátíðardagsins þar, en
ræða þessi er birt í heild í kín-
verska blaðinu.
Tito sakar kínversku leiðtog-
ana um að reyna að þröngva
stefnu sinni inn á leiðtogana í
Sovétríkjunum. Þeir hefðu aukið
árásir sínar á hina nýju leið-
toga Sovétríkjanna, og vildu
taka sér aukin völd á sviði heims
málanna og alþjóða verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hann sagði að
Kinverjar hafi með kjarnorkutil-
raun sinni skapað ótta í heimin-
um. et'ki aðeins vePna bess að þá
hafi Kína verið komið í fylkingu
kjarnorkuríkja. heldur aðallega
vegna þess að Kínverjar væru
ekki reiðubúnir að taka virkan
þátt í því að koma á afvopnun.
Kommúnistaflokkur Júgóslavíu
er hins vegar ætíð reiðubúinn að
ræða gagnrýni Kínverja við kín-
verska leiðtoga, sagði Tito, og
lagði áherzlu á að Júgóslavía hafi
ávallt barizt gegn því að gengið
yröi á rétt Kínverja.
Varðandi Krúsjeff, sagði Tito,
að hann hafi gerzt sekur um
nokkur mistök og misskilning, en
hann eigi mikinn heiður skilinn
fyrir að kveða niður Stalínisma
og auka tjáningarfrelsi. Einnig
hafi hann átt mikinn þátt í að
tryggja frið í heiminum, eins og
fram kom í Súez og Kúbu deil-
unum. Og ekki hvað sízt vildi
Tito þakka Krúsjeff hina góðu
sambúð Sovétríkjanna og Júgó-
slavíu.
Tito er nú 72 ára, og hafa
heyrzt raddir um að hann muni
senn láta af aðalritarastarfi
kommúnistaflokksins. Engin stað
festing hefur þó fengizt á þeim
orðrómi. En það er eitt af verk-
efnum flokksþingsins að velja
forustumenn flokksins.
— Gromyko
Framhald af bls. 1
upprunalegum tilgangi sínum.
Án efa hefur enginn á móti því
ef það ástand helzt áfram í fram
tíðinni.“
Varðandi afvopnunarmálin í
hei'd lagði Gromyko fram til-
lö«ur Sovétstjórnarinnar í 11
liðum, sem hún kveðst vona að
komist I framkvæmd hið fvrst.
Fela bær m. a. í sér algjört bann
við öllum tilraunum með kiarn-
orkusprengjur, minnkandi fram-
lög þjóðanna til vígbúnaðar og
afnám allra herstöðva á erlendri
grund.
af heystabba og liggur í sjúkra-
húsinu á Selfossi, hinn féll 7—8
m. fall ofan í tóma lest á MS.
Mælifelli, og var fluttur á Slysa-
varðstofuna og þaðan í I.anda-
kotsspítala.
Á laugardagskvöld var Ólafur
Bjarnason frá Þorkelsgerði í Sel-
vogi að leysa hey með heyskera
í heimahlöðunni á Bakka í Ölfusi.
Leið um klukkustund frá því
hann fór út og þangað til komið
var að honum í hlöðunni, en þá
hafði hann sýnilega fallið ofan
af heystaéðinu og slasast illa. !
Fallið var ekki hátt, um 3 m.,
en hann hefur sennilega lent
með höfuðið á tröppu. Hann var
fluttur í sjúkrahús á Selfossi og
reyndist vera höfuðkúpubrotinn.
Hitt slysið varð seint á sunnu-
dagsnótt. Ms. Mælifell lá i I>or-
lákshöfn og var búið að af-
ferma þar salt. Voru menn að
ganga frá lestarhlerum, er einn
maðurinn, Þorsteinn Óskarsson
frá Vestmannaeyjum, féll niður
í tóma lestina. Var það 7—8 m.
fall, en hann kom niður á fæt-
urna. Var hann fluttur á Slysa-
varðstofuna í Reykjavík og það-
an í Landakotsspítala.
— Hntfstungumálið
Frh. af bis. 28
máls þessa, gerðist það þriðju-
dagskvöldið 12. maí sl., að ákærði
kom í heimsókn til stúlkunnar,
sem var vinkona hans. Var þar
fyrir vinkona hennar, og ræddu
þau þrjú saman nokkra stund.
Vinkonan þurfti síðan að bregða
sér frá í annað' hús. Er ákærði
og vinkona hans voru tvö ein
orðin eftir í herbergi hennar, fór
hann þess á ieit við hana. að hún
kæmi með sér norður í land. f
framburði sínum hefur ákærði
viðurkennt, að hafa beðið stúlk-
una að trúlofast sér nokkrum
sinnum, en hún neitað. Hugðist
hann gera síðustu tilraun til þess
að bera upp málið við stúlkuna,
en ef hún mundi ekki láta að vilja
hans í þessum efnum, kveðst
hann í framburði sínum hafa
ætlað að ráða hana af dögum, og
fyrirfara sér síðan.
Stúlkan svaraði þessari mála-
leitan piltsins svo, að af sinni
hálfu kæmi þessi ráðahagur ekki
til greina, auk þess sem hún væri
byrjuð að umgangast annan
mann. Dró pilturinn þá upp
skeiðahníf, sem hann hafði haft
með sér innan klæða, og veitti
stúlkunni 8 hnífstungur. Voru
sumar í handlégg, sumar á öðr-
um stöðum líkamans, svo sém
andliti og kvið. Foreldrar stúlk-
unnar komu hlaupandi til við
hljóð hennar, og hljóp þá piltur-
inn út. í útidyrum mætti hann
vinkonu stúlkunnar, og greiddi
henni höfuðhögg.
Stúlkan, sem fyrir hnífsstung-
unnum varð, var í sjúkrahúsi þar
til seinnipartinn í júlí í sumar,
en hún hafði hlotið alvarlega
innvortis áverka. Vinkona henn-
ar, sem höfuðhöggið hlaut, lá í
sjúkrahúsi til rannsóknar í 9 daga
og er hún talin hafa orðið fyrir
varanlegu heilsutjóni, eins og það
er orðað í ákæruskjalinu.
Af piltinum er það að segja, að
eftir tilræðið hélt hann út á
Grandagarð, tæmdi þar allt laus-
legt úr vösum sínum, fyllti þá af
grjóti, varpaði sér í sjóinn, og
hugðist fyrirfara sér. Brast hann
kiark til bess, komst við illan leik
i land aftur, og hringdi til lög-
re«tunnar.
ÁkœruskiaTið er í tveimur lið-
um. f fvrsta lagi er pilturinn
sem er 21 árs, ákærður fyrir morð
tilraun við stúlkuna, og í öðru
lavi fvrtr vrófa líkamsárás á vin-
stúlku hennar.
db
Mjólkurbú Flóa-
manna 35 ára
Gaf Sjúkrahúsi Suðurlands 50 þús. kr
SELFOSSI, 7. des. — Hinn 5.
desember voru 35 ár liðin síðan
Mjólkurbú Flóamanna tók til
starfa, en það var 5. des. 1929.
Niðurstöður geðrannsóknar,
sem fram fór, eru þær, að pilt-
urinn sé ekki haldinn neinni
meiriháttar geðveiki né vitskorti.
Hann er talinn vel greindur, en
iinnilokaður og eigi mjög erfitt
með að tjá tilfinningar sínar á
eðlilegan hátt. Hann hafi af-
brigðilegan persónuleika og
mjög alvarlega skapgalla, sé kleif
hugi. Hins vegar telst pilturinn
sakhæfur í niðurstöðum geð-
rannsóknarinnar.
Fulltrúi saksóknara ríkisins.
•Tónatan Þórmundsson. taldi í mál
flutninsi sínum. að höfuðatriði
væri. að nilturinn hafi framið
tilræðið að vfirlögðu ráði. á
skioulegan hátt, og að vel íhug-
aðri fyrirframákvörðun með til-
finningaöryggi og geðró undan-
farandi afbrotinu. Krafðist hann
þess, að ákærði yrði látinn sæta
hæfilegri refsingu, og dæmdur til
greiðslu sakarkostnaðar og sak-
sóknarlauna til handa ríkissjóði.
Þá flutti skipaður verjandi
ákærða, Örn Clausen hrl., máls-
vörn sína. Hann krafðist þess áð
ákærði yrði dæmdur í vægustu
refsingu er lög heimila og að
ákærði verði sýknaður af broti
gegn 218. gr. almennra hegning-
arlaga, sem hann er ákærður fyr
ir í 2. lið ákæruskjalsins, og að-
eins dæmdur í vægustu refsingu
er lög heimila samkv. 217. grein
hegningarlaganna og til vara í
vægustu refsingu fyrir brot gegn
218. grein hegningarlaganna. Þá
krafðist verjandi þess, að gæzlu-
varðhaldsvist ákærða kæmi til
frádráttar refsivist þeirri, sem
hann kynni að verða dæmdur í,
og að lokum að sér yrðu dæmd
hæfileg málsvarnarlaun.
f málflutningi sínum lagði verj
andi áherzlu á, að verknaðurinn
hefði verið framinn í algjörri ör-
vinglan, einmitt vegna skapgerð-
arbrestanna, sem skýrt kæmu
fram í niðurstöðum geðrannsókn
arinnar. Pilturinn hafi tekið það
nærri sér, að stúlkan vildi ekk-
ert með hann hafa, og þegar hún
loks hafi sagt honum, að hún
væri farin að umgansast annan
mann, hafi uno úr soðið og giör-
samle«a slegið út í fvrir piltin-
um. Síðan rakti veriandi ýmis
ákvæði hevoaðarlaganna. sem
hann taldj að tíj greina ætti að
taka við ákvörðun refsingar.
Málið var síðan dómtekið. og
mun dóms að vænta innan fárra
daga.
Fyrstu stjórnina skipuðu Eiríkur
Einarsson, alþingismaffur, Sigur-
grímur Jónsson og Dagur Bryn-
jólfsson. f tilefni afmælisins var
haldinn fulltrúafundur á Sel-
fossi sl. laugardag og þar sam-
þykkt aff gefa til væntanlegs
Sjúlnrahúss Suðurlands 50 þús.
kr.
Fyrsta árið sem Mjólkurbúið
starfaði, tók það á móti 1,2 millj.
lítra af mjólk, en í ár rúmum
35 millj. Forstjóri Mjólkurbúsins
er Grétar Símonarson.
Grétar skýrði m. a. frá því á
fulltrúafundinum á laugardag,
að í Svíþjóð væri nú sá háttur
á hafður um mjólkurflutninga.
að á hverjum bæ væru kælitank
ar fyrir mjólkina og væri hún
svo sótt annan eða brið;a hvern
dag og mætti búast við að b«ð
vrði framtíðarfyrirkomulag hér
líka.
Stjórn Miólkurbúsins skipa nú
sr. Sveinbjörn Högnason, for-
maður, Sigurgrímur Jónsson,
Þorsteinn Sigurðsson, Ágúst
Þorvaldsson og Eggert Ólafsson.
Moskvu, 7. des. (NTB—AP).
TALIÐ var að þriðji fundur mið-
stjórnar sovézka kommúnista-
flokk.sins á tveimur mánuðum
ætti að hefjast í dag, og var fund
arins beðiff með eftirvæntingu.
Hefur orðrómur verið á kreiki
í Moskvu að undanförnu um
fundinn, og að á honum yrðu
teknar mikilvægar ákvarðanir
varðandi embættaskipan í ríkis-
stjórninni og í miðstjórninni.
Ekkert varð þó úr fundinum í
|Á TJÖRNINNI var í gaer|
1 þykkur ís, en því miður nokk-|
1 uð mikill snjór ofan á honum.f
j En við því er ráð. íþróttabandaf
| lag Reykjavíkur sendi strákf
I á ýtu út á Tjömina og skóff
= hann snjóinn ofan af svellinu.l
Athugasemd
ÉG þakka Guðmundi Danfels
syni skilningagóðan ritdóm
um grísku skáldsöguna „Sól
dauðans" hér í blaðinu á
sunnudaginn og ekki sízt hlut
tekningu hans vegna mistaka.
sem hann nefnir „stórfeng-
leigt línubrengl“ á blaðsíðu
234 í bókinni. Væntanlegu'm
lesendum skáldsögunnar til
glöggvunar vil ég vinsamlega
benda á, að hér er ekki um að
ræða línu'brengl í venjuleigum
skilningi, heldur hefur niður-
lag næstsíðasta kafla skáldsög
unnar verið tvísett, þannig að
15 síðustu línur kaflans eru
endurteknin« á því «em á und
an var komið og eiga Wí að
str;hí>=t út — b.e.a.s. frá oig
m“ð 7. línu að neð’n i þls.
234. F.r óbarft að ræða frókar
þessi leiðu mistök. sem urðu
eftir að síðasta próförk bókar-
innar hafði verið lesin, en les-
endur eru hins vegar beðntr
velvirðingar á þeim.
Sigurður A. Magnússon.
dog, en búizt viff aff hann hefjist
á morgun, þriðjudag.
Á miðvikudag hefst svo fund-
ur Æffsta ráffsins, og er þaff
fyrsti fundur þess síffan Krú-
sjeff var hrakinn frá völdum. Er
talið aff þar verffi tilkynntai
ák'iVarffanir um breytingar á
stjórninni.
Erfitt er að henda reiður i
hvað er að gerast, en hver orð-
rómurinn rekur annan. Þannij
Framhald á bls. 24
PÁLS ZÓPHÓNÍASSONAR
f.v. alþingismanns,
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 9. des-
ember kl. 10:30. Athöfninni verðtrr útvarnað. Þeir serrt
vilia minnast hins látna eru beðnir að láta líknar-
stofnanir njóta bess.
Unnur. Tónhónías, Páll Agnar,
Hannes og Hjalti.
mmmmmÆBMiœmmmmmwm
Miðstjórnarfund
inum frestað
Æðstaráó Sovétrikjanna kemur
saman á miðvikudaginn