Morgunblaðið - 19.12.1964, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.12.1964, Blaðsíða 5
LaugardagUr 19. des. 1OT4 MORCU N BLAÐIÐ I Storkurinr , ' sagði ®ð hann hefði í gær farið á Andafund á Tjörninni, og það er raunar miiklu merkilegri anda íundur, en þeir hjá henni Liáru, |>ar sem allir haldast í hendur ©g enginn má rjúfa hringinn, enginn krossleggja, hvorki hend- ur né fætur, því að þá eyðileggj- ast andamir, bæði þeir með slæðurnar og hinir, sem em Blæðulausir. Andahjónin á Tjöm inni eru raunveruleg. Þar er bæði Stokkönd og Raúðhöfðaönd, og allar þessar endur lifa í góðu Bambýli. Ég hitti mann þarna í Tjarnarkrikanum, sagði storkur- inn, sem sagði mér, að við menn- irnir ættum að taka andahjörð- ína okkur til fyrirmyndar. Við erum suimstaðar að bjástra við kynþáitta'vandamiál. Allir erum vi’ð menn. Allur okkar heimur er byggður jafn réttháum mönn- um. Gulur, rauður, grænn og blár. Hverju máli skiptir það? Engu, sagði maðurinn. Einhvern- tíma öðlumst við þá vizku, að hörundsliturinn heifur eklkert að segja. Þetta verður einhvemtíma einn allsherjar „Kjokkteill“. Með það flaug storkurinn upp á húsi'ð hjá Mjólkur SAM sölunni ©g hló í hjarta sínu yifir hug- myndinni um nýja ostinn úr j urtasm j örlíkinu. Sunnudagaskólar Þeir sletta skyrinu sem eiga það í dag er það SKYRGÁMUR. Og nú má mjólkursamsalan fara að vara sig. í gær vantaði okkur nafn á verðlaunahöfundi. Nú er það fengið, og hann heitir Ólaf- ur Jóhannsson, Stekkjarkinn 7, Hafnarfirði og er 13 ára. Sú sem fær verðlaun vegna Skyrgáms heitir Aðalbjörg Þórð- ardóttir, 13 ára, heima í Grænu- hlíð 4 • í Reykjavik. Þeir sem fá viðurkenningu vegna Skyr- gáms heita Haraldur Sigurðsson, j í 10 ára B. í Hlíðaskóla, heima | Hvassaleiti 5 og Már Gíslason, 14 ára, Grenimel 14. Myndimar eru að venju settar | út í Mbl. gluggann. Fæðing Jesú. Minnistexti: Yður er I dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. (Lúkas 2, 11). Sunnudagaskóli KFUM, Amt- mannsstíg, Reykjavík. Kirkjuferð é morgun frá KFUM-húsinu kl. 1:30 e.h. ÖU börn velkomin. Engin samkoma er í skólanum «ð þessu sinni sunnudagsmorgun kl. 10:30. Fíladelfiusöfnuðurinn hefur Eunnudagaskóla á þessum stöð- um, Hátúni 2, Hverfisgötu 44 í Reykjavik, Herjólfsgötu 8, Hafn- arfirði. Alls staðar á sama tíma kl. 10:30. Sunnudagaskólar K.F. U.M. og K. í Reykjavík og Hafn- arfirði hefjast kl. 10:30 á sunnu- dögum í húsum félaganna. Öll börn velkomin. F RÉTTIR A Ljón halda bögglauppboð Lionsklúbbur Rey kjavílkur hefur bögglauppboð í Tjarnar- kaffi í dag kl. 3—7. Uppboðs- haldari verður Guðbrandur Magnússon. Guðmundur Jónsson óperusöngvari syngur. Ágóðinn rennur til líknarstarfa. Sunnudaginn 20. des. verða jóla- •öngvar I Neskirkju kl. 2. Meðal ann- ars syngur kór stúlkna úr Hagaskóla undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Allir velkomnir. Bræðrafélagið. Æskulýðsfélag Bústaðasóknar. Joia- fundur á mánudag9kvöld kl. 8:30. Bræðrafélag Langholtssafnaðar hef- ur j ólatr és9kem mtun fyrir börn 28. des. kl. 3 og kl. 8. Aðgöngumiðar af- hentir í Safnaðarheimilinu 19. og 20. desember kl. 1—6. báða dagana. Óháði söfnuðurinn heldur jólatrés- fagnað fyrir börn í Kirkjubæ sunnu- daginn milli jóla og nýárs, 27. des. Jólasveinn kemur í heimsókn. Konur úr kirkjufélaginu sjá um allar veit- ingar að venju. Aðgöngumiðar við innganginn. Jólagjafir blindra. Eins og að und. anförnu tökum við á móti jólagjöfum til blindra, sem við munum koma tU hinna blindu fyrir jólin. Blindravinafélag slands. Ingólfsstræti 16. Hjálpræðisherinn hefur úthlutun á fatnaði frá 14. til 23. des. frá kl. 10 til 13 og 15 til 18. Spakmœli dagsins Þinn sanni maður asannast í myrkrinu. — Moody. VISIJKORiM SKAMMDEGI Sólarmætti tapað tafl, trauðla stætt í veðrahrynu, myrkvaættum magnast afl, meinið fætt í skammdeginu. Þó til varnar þursa mátt, þjóðararni beztu föngin. Jólastjarna í heiði hátt, hlustar barn á englasönginn. St. D. Málshættir Margur er knár, þó hann sé smár. Margt er það í koti karls, sem ! Ikóngs er ekki í ranni. Vinstra hornið Hamingjan er einhvers stað- ar á milli of mikils og of lítils. Munið vetrarh/álpina í Hafnarfirði * Munið Vetrarhjálpina Reykjavík. Skrifstofan er að Ingólfs- I stræti 6, sími 10785. Opið frá kl. 9 — 12 f.h. og 1 — 5 e.h. Styðjið og styrkið Vetrar- ' hjálpina. SKYRGÁMUR Keflavík — Suðurnes Telpnagreiðslusloppar, fal- leg jólagjöf. Verzlunin F O N S Sófasett Sófasett, svefnbekkir, svefn stólar, eins manns, margar gerðir. Tveggja manna svefnsófar, svefnstólar. NÝJA BÓLSTURGERÐIN Laugavegi 134, sími 16541. Gullfiskabúðin auglýsir Beztu jólagjafirnar fást hjá okkur. Tamdir páfagaukar, kanarífuglar, fallegir smá- fuglar, gullfiskar, skraut- fiskar, hamstrar og skjald- bökur. — Gullfiskabúðin, Barónsstíg 12. Jólainnkaup Epli, appelsínur, ódýrari í heilum kössum. Vöruúrval. Kvöldsala til kl. 10. Verzl. Áma, Fálkagötu 13. Simi 12693. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Keflavík Margar gerðir af eldhús- klukkum, ferðatækjum og veggklukkum. — Úrsmiða- verkstæðið, Bókabúðarhús- inu. Keflavík Úraúrvalið er á úrsmiða- verkstæðinu. Margar gerð- ir af dömu- og herraúrum. Falleg svissnesk almanök fylgja. Ursmíðaverkstæðið Bókabúðarhúsinu. Verkstjóri vanur að stjórna mörgu fólki, óskar eftir atvinnu i Reykjavík eða Kópavogi, — hef iðnréttindi og reynslu í margvíslegum störfum. Tilboð sendist Mbl., merkt: „9764“. Keflavík Þeir, sem ætla að panta ístertur fyrir jól, hringi í sima 1839 í síðasta lagi 20. þessa mánaðar. ísbarinn, Keflavik. Athugið Æðardúnssængur 4 stærð- ir, barnakerrupokar. Allt úrvalsvara. Fæst að Sól- völlum Vogum. Verðið er sanngjarnt. Póstsendi. — Sími 17, Vogar. I dag verða gefin saman í hjóna band af séra Jóni Þorvarðssyni ungfrú Guðrún Jóna Guðlaugs- dóttir og Jóhann Guðmundsson, siómaður. Heimili þeirra verður í Fögrukinn 7 í Hafnarfirði. Kcimbskjör auglýsir ÓÐUM STYTTIST TIL JÓLA. Gjörið svo vel að senda jólapöntun sem fyrst. Athugið allar niatvörur á staðnum, kjöt mjólk, brauð, nýlenduvörur, einnig öl, gos, tóbak og sælgæti, Sendum heim. — Afgreitt til kl. 22 alla daga nema aðfangadag og jóladag. Kambskjör Kambsvegi 18. — Síml 38475. Lóan tilkynnir Ný sending á eftirtöldum vörum: Telpnakjólar aldur 1—14 ára. — Vettlingar og trefla sett. — Lambhúshettur og húfur í miklu úrvali - Drengjaföt 1—3 ára — Telpna- og drengjasloppar og fl. vörur. Barnafataverzlunin LÓAN, Laugavegi 20 B. gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg. i|| Til jólagjafa KJÓLAR, DRAGTIR, PILS, BLÚSSUR PERLONSLOPPAR, UNDIRFATNAÐUR. Skólavörðustíg 17. 6KV«CÓíT>05 Skyrgámur eftir Þorstein Haniiesson. Telpnakápurnar með skinnkraga eru loksins komnar. Aðalstræti 9 — Sími 18860.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.