Morgunblaðið - 19.12.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.12.1964, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIB Laugardagur 19. des. 1964 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Ú tbreiðslus t j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 f lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 3. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. Á AD HÆKKA AÐSTÖÐ UGJÖLDIN? ITið síðari umræðu fjárhags- * áætlunar Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1965, lögðu minnihlutaflokkarnir í borg- arstjórn til að stórhækka að- stöðugjöld í Reykjavík, og töldu að á þann hátt væri hægt að lækka útsvörin á ein- staklinga. Um útsvörin á Reykvíkinga næsta ár er þess að geta, að þau munu verða mun lægri en í ár, þótt heildarupphæð- in sé nokkuð hærri, því að bæði fjölgar skattgreiðendum og svo hefur orðið verulegur tekjuauki, ekki sízt þar sém hinar miklu kauphækkanir 1963 komu aðeins á lítinn hluta þess árs, en hins vegar á allt árið 1964. Borgarstjóri gat þess í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun- ina að gera mætti ráð fyrir, að unnt yrði að gefa allt að 20% afslátt frá núgildandi út- svarsstiga, miðað við 9% eins og var í ár, en hins er að gæta, að hugmyndin er að auka per- sónufrádrátt og breyta skatt- stigum til þess að lagfæra út- svarsbyrðina, svo að ekki er á þessu stigi hægt að gera sér fulla grein fyrir því, hver verða útsvör hvers eintaks. í umræðunum um aðstöðu- gjöldin, benti borgarstjóri á að þau væru nokkurs konar sambland af beinum og óbein- um sköttum. Þegar aðstöðu- gjöldin færu inn í verðlagið, greiddi neytandinn þau end- anlega, og eru þau þá í raun- inni lík söluskattinum. Ef hækkunin er hinsvegar greidd þeim, sem atvinnureksturinn hafa með höndum, þá tak- marka þau möguleika fyrir- tækjanna á endurnýjun, auk- inni tækni og bættri þjónustu við viðskiptamenn, auk þess sem þau gera fyrirtækjunum að sjálfsögðu erfiðara um að greiða starfsfólki hækkandi kaup. Þá er þess og að geta, að hærri aðstöðugjöld leiða til þess að hagur fyrirtækjanna verður verri og þannig minnk ar sá tekjustofn, sem útsvör á fyrirtæki eru lögð á. Það er þannig síður en svo örug'gt að hækkuð aðstöðu- gjöld leiði til þess, að skatt- arnir á einstaklinga verði léttari, enda hefur yfirleitt verið góð samstaða í borgar- stjórn um ákvörðun aðstöðu- gjalda, og jafnvel hefur það borið við, að mnnihlutaflokk- ar hafa flutt tillögur um lækkun þeirra. Á. borgarstjórnarfundinum var upplýst, að samanburður hefði verið gerður á veltuút- svörunum í Reykjavík á ár- unum 1957—1961 og aðstöðu- gjöldum 1962—1965. Niður- staðan var sú, að veltuútsvör- in voru sem svaraði 21,40% af öðrum útsvörum, en hluti aðstöðugjalda af útsvörunum árið 1962—1965 var 22,88% að meðaltali. Þannig eru að- stöðugjöldin nú heldur hærri hundraðshluti af skatttekjum borgarinnar en veltuútsvörin voru á sínum tíma. Þá hefur einnig verið gerð- ur samanburður á hlutfallinu milli greiðslna fyrirtækja og einstaklinga, annars vegar á árunum 1957—61, og hins veg ar á árunum 1962—64. Þessi niðurstaða sýndi að félögin greiddu á fyrra tímabilinu 19,40%, en á síðara tímabilinu 21,72%, en einstaklingarnir greiddu hins vegar á fyrra tímabilinu 65,71% en á síðara tímabilinu 62,89% af heildar- upphæð allra tekna borgar- innar. Þessar upplýsingar sýna, að það er ekki rétt, að minni gjöld hafi verið innheimt af atvinnurekstrinum síðari ár- in, eins og minnihlutaflokk- arnir héldu fram í borgar- stjórn, heldur fremur hið gagnstæða. ]Pins og greint hefur verið frá ^ í fréttum hafa hin nýju og glæsilegu skip, Jörundur II. og Jörundur III. farið til síldveiða í Norðursjó, og þeg- ar fengið þar nokkurn afla. Enn er að vísu ekki vitað, hvernig þessi tilraun muni takast, en útgerðin á þakkir skilið fyrir að reyna þessa nýjung. Hér við land eru nú hundr- uð rússneskra síldveiðiskipa, og ýmiss önnur veiðiskip sækja aflann á íslandsmið, svo að ekki er að ástæðulausu ótti við ofveiði á okkar fiski- miðum. Við höfum hins vegar ekki gert mikið að því að sækja til fanga á önnur mið. Að vísu var á tímabili mjög góð- ur afli á Nýfundnalandsmið- um, sem við íslendingar hag- nýttum í ríkum mæli, og auk þess hefur verið sótt á ýmiss norðlæg mið. Hins vegar hefur engin til- raun verið gerð til þess að reyna fiskveiðar langt sunn- an íslands. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri, flutti þá til- Frá afhendingu friðarverðlauna Nobels í Ósló á dögunum. Þeir feðgar Ólafur Noregskonungur og Haraldur krónprins óska dr. Martin Luther King til hamingju með verðlaunin. Við hlið mamms síns stendur Coretta King og er harla broshýr, en yzt til hægri sést á vanga Gunnars Jahn, for- manns Nobelsverðlaunanefndar norska Stórþingsins, sem afhenti verðlaunin augnabliki áður. Kiarnorkuvopnamagn í V-Evrópu aukið um 60% á þremur árum Washington, 17. des. (NTB) ROBERT McNamara, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í dag, að yfir- maður herafla bandamanna í Evrópu hefði undir höndum fullgerðar áætlanir um notk- un kjarnorkujarðsprengja í V-Evrópu, ef nauðsynlegt yrði að grípa til þeirra. Hefðu slík vopn verið í vopnageymslun- unt undanfarin fimm ár. Þess- ar jarðsprengjur væru aðeins ein af kjarnorkuvopnategund- unum, seni Atlantshafsbanda- lagið hefði undir höndum. Ráðherrann skýrði einnig frá því, að sl. þrjú ár hefði kjarnorkuvopnamagn í Vest- * „SJOR/ENINGJASTÓÐ INNSIGLUÐ Haag, 17. des. (NTB) Hollenzkir Iögreglumenn og embættismenn innsigluðu í dag senditæki „sjóræningja- stöðvar“, sem sjónvarpaði dagskrá til Hollands. Stöðin var staðsett á fleka skammt fyrir utan þriggja míina land- helgi Hollands, og hefur starf- að frá því í ágúst. ur-Evrópu verið aukið um 60%. — McNamara skýrði frá ofan- greindu vegna frétta fná fundi Atlanbsihafsbandalagsins í París í gær, þess efnis, að fyrir lægju áætlanir um kjarnorkujarð- sprengjuibelti á landamærum A,- og V.-Þýzkalands til varnar ár- ása fná A.-Þýzkalandi. Kai-Uwe von Hassel, varnar- málaráðherra V.-Þýzkalands, ræddi einnig þessar fréttir í dag. Lagði hann áherzlu á, a'ð tillög- urnar um sprengj uibeltið væru á algeru byrjunarstigi og hefðu að- eins verið ræddar á hernaðarleg- um vettvangi án þess að nökkrar ákvarðanir væru teknar. Pólska blaðið „Zucie Warsawy" gagnrýndi í dag harðlega það, sem blaðið netfnir kjarnorkuibelti gegn um Þýzkaland og segir, að v.-þýzíkir hernaðarisinnar í hefmd arhug hafi nú sýnt 9vart á hvítu, að þeir séu óseðiandi, þegar kjarnorkuvopn séu annars vegar. Úl'furinn haifi varpað sauðagær- unni og enginn geti lengur verið í vafa u*m hvers vegna V.-Þjóð- verjar vilji baka þátt í sameig- inleguim kjarnorkmher Atlants- hafslbandalagisins. Frá því var skýrt í Washing- bon, að kjarnorkujarðsprengjurn- ar hefðu verið framleiddar á grundveUi tilrauna til friðsam- legrar notkunar þeirra. Væri t.d. hægt að nota þær til áó sprengja kletta og húsgrunna. Sovétríkici hefur einnig gert slíkar tilraun- ir. Sprengjurnar væru fjarstýrð- ar og gætu fyrst og fremst gert gagn, ef lamdvarnafherir hefðu orðið að hörfa, því að þá mætti gera daLi og fjallaákörð ófær óvinunum með því að sprengja slíkar sprengjur af miátuleguim. styrkieika. 36 þúsynd ibúar í Færeyjum Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl. í Þórshöfn, 16. des. NEFND sú í Færeyjum, sem vinnur að rannsóknum á mögu- leikum til aukins iðnaðar í land- inu, hefur látið gera yfirlit yíir fólksfjölgun þar frá 1930 til 1, júií 1964. í yfirlitinu er einnig gerð grein fyrir flutningum i'ólka milli byggðarlaga. Með þessu er fyrst og fremst verið að kamna hve mikið vinnuafl má gera ráð fyrir að verði til ráð'stöfunar fyr- ir iðnaðinn í framtíðinni. Af yfirlitinu má sjá, að íbúar í Færeyjum voru 36,088 1. júlí sl. 1930 voru íbúarnir 24,200 og hef- ur því íbúatalan aukizt um 11,888 á þessu tímabili. En á tímabilinu hafa 4409 menn flutzt frá Fær- eyjum, flestir til Danmerkur. — Flestir fóru frá landinu á tíma- bilinu frá 1950—55: 1102 kona og 932 karlar. lögu á Alþingi, að tilraun yrði gerð til þess að finna fiski- mið við Afríku eða á suðlæg- um veiðislóðum. Það er minnisstætt, að þess ari markverðu tillögu tóku kommúnistar og foringjar Framsóknarflokksins með full um fjandskap, og töldu hana jafnvel nálgast landráð, þvíað hún ætti að verða til þess að við afsöluðum okkur fiski- miðum til þess að sækja ann- að. Slíkt ofstæki er að vísu líkt kommúnistum, en það leiðir ekki til farsællar iausnar, hvorki í þessu efni né öðrum. Auðvitað eigum við íslend- ingar að gera tilraunir til að sækja aflaföng á fjarlæg mið, ef fisk er þar að fá. íslenzkir fiskimenn hafa sýnt og sann- að, að þeir afla yfirleitt meir en aðrir á sömu miðum. Þess veg'na getur vel verið, að út- gerð íslenzkra fiskiskipa á fjarlæg mið, geti borgað sig, jafnvel þótt öðrum gangi þar misjafnlega. Það var þess vegna ekki seinna vænna, að við reynd- um síldveiðar í Norðursjón- um, og vissulega væri ástæða til þess að einn eða tveir af togurum þeim, sem eftir eru, reyndu veiðar við Afríku- strendur. Anægjulegast væri, ef einstaklingsframtakið treysti sér til þess að gera slíka tilraun, eins og útgerð Jörundanna gerir, en ella væri rétt að styrkja hana af ríkisfé. Einnig má á það benda að bæði Norðmenn og Færeying- ar stunda þeg'ar arðvæniegar fiskveiðar víða um Atlants- hafið, má þar nefna hámera- og sverðfiskveiðar við austur- strönd Norður-Ameríku og túnfiskveiðar í Karabiska hafinu. Auka þeir flota sinn 1 mjög í þessum tilgangi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.