Morgunblaðið - 19.12.1964, Page 8
8
MORGUNBLADIÐ
Laugardagur 19. des. 1964
Sðlushatturinn
Framhald af bls. 1
engin slík yfirlýsing vevið gefin
né teldi ég, að samningsaðilar af
hálfu Alþbl. hefðu átt ástæðu til
þess að skilja yfirlýsingar mínar
eða annarra, sem ég vissi um, á
þann veg heldur hefði þvert á
móti af minni hálfu verið gefin
yfirlýsing, sem hefði átt að að-
vara þá um, að þessi þeirra
skiiningur fengi ekki staðizt.
Nú hef ég átt frekari viðræður
við þá háttvirtu þingmenn, sem
voru í þessum samningum af
hálfu Alþýðusambandsins í sum-
ar, þá Björn Jónsson, Edvarð
Sigurðsson og Hannibal Valdi-
marsson, og ég hef af þeim
viðræðum fyllilega sannfærzt
um, að þeir eru í góðri
trú um sinn skilning. Jafnframt
því, sem ég legg áherzlu á, að
líkisstj. telur, að sinn skilningur
o.g sá, sem kemur fram í þessu
frv* sé réttur frá hennar sjónar-
miði, þ.e.a.s. hún er í góðri trú
um sinn skilning. Hér hefur því
orðið einhver misskilningur, og
þar sem ég tel það vera höfuð-
nauðsyn, að hvorugur aðili hafi
nokkra ástæðu til að ætla, að
reynt sé að hlunnfæra hann í
þessu máli eða nota sér mis-
skilning, sem á sér stað í góðri
trú, þá hef ég lagt til við ríkis-
stjórnina, að hún fallist á, að
skattheimtan, sem hér um ræðir
verði lækkuð þ.e.a.s. í stað 8%,
þá verði farið fram á 7i4%
söluskatt. í>að svarar nokkurn
veginn til þeirrar fjárhæðar, sem
hér er umdeild.
Eins og ég segi, þá tel ég og er
sannfærður um, að báðir aðilar
eru hér í góðri trú um þann
skilning sem af þeirra hálfu hef-
ur komið fram. Ég tel, að þó að
okkur greini á um lausn þess
DANSKAR
karlmanna-
og drengja
huxur
Austurstræti 22 og Vesturveri
vanda, sem nú liggur fyrir og
verður að leysa, þá sé það frum-
skilyrði, að menn geti áfram í
góðri trú átt viðræður og unnið
hér eftir beztu vitund að leysa
þann vanda, sem framundan er,
og í þeirri sannfæringu um, að
þetta viðhorf sé rétt, þá hef ég
beitt mér fyrir þessari tillögu og
ríkisstj. fallizt á hana og hún
mun vera lögð hér fram.
Að öðru leyti skal ég ekki á
þessu stigi blanda mér í deil-
urnar, sem hér eru um efni máls-
ins, en taldi rétt, að þetta kæmi
fram strax í upphafi umr., svo
að það deiluefni væri úr sög-
unni.
Næstur á eftir forsætisráðherra
talaði Ólafur Björnsson (S) og
mælti hann fyrir nefndaráliti
meiri hluta fjárhagsnefndar, sem
mælti með því,
að frumvarpið
yrði samþykkt.
Sagði Ólafur, að
mikill úlfaþytur
hefði verið gerð-
ur út af þessu
máli. Eitt væri
eftirtektarvert
við þetta mál,
að þegar eitt-
hvað hefði gerzt af svipuðu tagi
áður, þá hefðu birzt útreikning-
ar hjá stjórnarandstöðunni,
meira eða minna villandi, um
hvað kjaraskerðingin næmi
miklu. Þetta gerðist ekki nú,
vegna þess að erfitt væri að
sýna fram á kjaraskerðingu og
hann kvaðst sjálfur álíta, að hún
gæti varla verið meira en 1%.
Ræddi Ólafur Björnsson síðan
almennt um fjármál ríkisins og
sagði m.a., að varðandi tekjuöfl-
un næsta ár hjá ríkissjóði þá
teldi hann það algerlega út í blá-
inn að hækka hana. Ef það yrði
gert, þá væri þar um fölsun að
ræða, sem sízt væri samboðin
Alþingi. Hann sagði það enn
fremur persónulegt álit sitt, að
ekki mætti afgreiða svo fjárlög
fyrir næsta ár, að halli yrði á
ríkissjóði.
f>að væru blekkingar, ef því
væri haldið fram við almenning
að komast mætti hjá söluskatts-
hækkun. Þá mætti alveg eins
halda því fram, að unnt væri að
sleppa allri skattheimtu yfirleitt.
og taka bara lán í Seðlabankan-
um fyrir útgjöldum ríkissjóðs.
Vísaði hann síðan til nefndar-
álits Framsóknarmanna í fjár-
veitinganefnd, þar sem það er
tekið fram, að ekki komi til mála
að afgreiða f járlagafrumvarpið
með halla í slíku góðæri, sem nú
er til lands og sjávar. Þama
skjóti því heldur betur skökku
við, þegar athuguð eru viðbrögð
Nytsamasta jólagjöf
skólafólks:
LUXO -1001
2ja ára ábyrgð
á hverjum lampa.
Ábyrgðarskírteini fylgir.
Varist eftirlíkingar.
Munið LUX0-1001
Framsóknarmanna við hækkun
söluskattsins, því að ef farið
væri að ráðum þeirra þar, hlyti
það að leiða til mikils halla ríkis-
sjóðs.
Greiðsluhalli hjá ríkissjóði
myndi í fyrstu leiða til rýrnandi
gjaldeyrisforða, en síðan til vöru
skorts og aukinnar dýrtíðar.
Ein leið væri samt fær til þess
að létta byrðar ríkissjóðs af al-
menningi, en það væri að spara.
Þetta hljómaði vel, en vandinn
væri bara sá, hvaða tillögur á
fjárlögum ætti að skera niður.
Eftirtekjan væri mjög lítil, þeg
ar athugaðar væru tillögur
stjórnarandstöðunnar um sparn-
að, því að Alþýðubandalagið
vildi hækka fjárlagafrumvarpið
um tugi milljóna og Framsóknar-
flokkurinn margfalt meira.
Það yæri ekki nóg að krefjast
margháttaðra framlaga úr ríkis-
sjóði, en vera svo gegn því að
greiða þá skatta, sem þyrfti til
þess að standa undir slíkum
framlögum.
Helgi Bergs (F) sagði, að al-
menningur væri þrautpíndur
vegna óhóflegra skattálaga. —
Gerði hann grein
fyrir nefndará-
g • m liti Framsöknar-
manna við frum
varpið, en Karl
Kristjánsson
stendur að álit-
inu auk Helga
Bergs. — Taldi
Helgi að hækk-
un söluskattsins
væri óþörf,, og að hér væri valin
skattheimtuaðferð, sem yæri í
alla staði mjög óheppileg og
hættuleg efnahagsþróuninni í
landinu. Enn fremur taldi hann,
að hækkun söluskattsins myndi
hindra samningagerð milli at-
vinnurekenda og verkalýðssam-
takanna, sem í vændum væru á
næsta vori.
Björn Jónsson (Alþbl.) kvaðst
lýsa yfir sérstakri ánægju sinni
yfir því, að ríkis
stjórnin hefði
lagt til, að sölu-
skatturinn yrði
lækkaður um
%%. — Sagðist
hann vilja þakka
forsætisráðherra
persónulega fyr-
ir drengskap og
þau hyggindi,
sem hann hefði sýnt með afstöðu
sinni til þessa máls.
Hvað frumarpið sjálft snerti,
sagði Björn Jónsson, að skoðan-
ir hans væru óbreyttar, hann á-
liti það jafn skaðsamt og áður.
Ræddi hann síðan um sparnað
í sambandi við útgjöld ríkissjóðs
og taldi að létta mætti byrðar
hans þannig. Þá sagði hann það
alls ekki óvíst að hækka mætti
tekjuáætlun ríkissjóðs og þánn-
ig mæta þeim útgjöldum, sem
með þyrfti.
Alfreff Gíslason (Alþbl.) gerði
ýmsar athugasemdir við ræðu
ólafs Björnssonar og sagði, að
Ólafur hefði ekki komið nóg inn
á gagnrýni þá, sem stjórnarand-
staðan hefði haft í frammi. Sagði
hann enn fremur, að stjórnar-
andstaðan óttaðist, að söluskatt-
urinn yrði til þess að opna á
nýjan leik flóðgáttir dýrtíðarinn-
ar.
Karl Kristjánsson (F) taldi að
komast mætti af með það fé, sem
renna myndi í ríkissjóð, án þess
að söluskatturinn yrði hækkað-
ur. Hækkun söluskattsins væri
að hans áliti trygging fyrir því,
að verðbólgan héldi áfram.
★
Eftir að 2. umræðu um sðlu-
skattsfrumvarpið lauk var tekið
til 2. umr. frumv. um tekjustofna
sveitarfélaga, sem er fylgifrum-
varp með frumvarpinu um sölu-
skattinn. Fyrir lá breyt'ingartil-
laga frá ríkisstjórninni um, að
einnig honum yrði breytt og
hann yrði 8% af söluskattinum
eða að upphæð hinn sami og áð-
ur. Var því frumvarpi einnig vís-
að til 3. umræðu.
Söluskattsfrumvarpiff afgreitt
til Neffri deildar
Að loknum fundi í Efri deild
var fundur settur þar að nýju
og frumvarpið um söluskatt tek-
ið til 3. umr. Ekki urðu þá nein-
ar umræður um frumv. og var
það síðan afgreitt til Neðri deild-
ar.
Þá var frumvarpið um breyt-
ingu á lögum við tekjustofna
sveitarfélaga einnig tekið til 3.
umræðu.
Helgi Bergs bar fram breyt-
ingartillögu um að tekið yrði úr-
tak af 5% skattframtölum sölu-
skattsgreiðenda. Einnig bar hann
fram breytingartillögu um, að
12% af sölu skattinum rynni í
Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Gunnar Thoroddsen fjármála-
ráðherra sagði að söluskatts-
viðaukinn væri ætlaður til niður
greiðslna til þess
að koma í veg
f y r i r hækkun
vísitölu og kaup
gjalds umfram
ákveðið mark.
Því væri ekki
grundvöllur til
þess að láta sölu
skattsviðaukann
renna í Jöfnun-
arsjóð.
Varðandi rannsókn á framtöl-
um söluskattsgreiðenda, þá væri
rannsóknardeild skattaeftirlitsins
nýlega tekin til starfa og því
kvaðst ráðherrann ekki telja það
heppilegt að setja henni starfs-
reglur af þessu tagi. Sagðist
hann vilja taka það skýrt fram,
að skattaeftirlitið tæki ekki síð-
ur til söluskattsins en útsvars og
tekjuskatts.
Xlnnar Stefánsson (Alþfl.) tal-
aði að lokum og mælti gegn
breytingartillögum Helga Bergs.
Var frumvarpið síðan afgreitt til
Neðri deildar.
Magnús Kjartansson
— Erum háðir
Framh. af bls, 1, w
upplýsingar verið gefnar um
þetta mál, en stjórnmálafrétta-
ritari íhaldsblaðsins Daily Tele-
graph segir í dag, að þingmenn
íhaldsflokksins hafi í gærkvöldi
fengið óþægilegan grun um, aS
Wilson vissi vel, hvað hann væri
að segja.
Sem fyrr segir brá stjórnar-
andstaðan hart við yfirlýsingu
Wilsons og varð fyrir svörum af
hálfu íhaldsflokksins Peter
Thorneycroft, fyrrverandi land-
varnaráðherra. „Eftir því sem ég
bezt veit“, sagði hann, „eru upp-
lýsingar hans (Wilsons) rangar“.
Og Wilson svaraði snöggt: „Yður
er velkomið að koma og rann-
saka þær upplýsingar, sem ég
hef undir höndum.
— Dómur
i njósnamáli
Framhald af bls. 1
Réttarhöid hófust í máli þeirra
Butenkos og Ivanovs í sl. mán-
uði í Newark. Stóðu þau yfir 1
36 daga og lauk svo, að kviðdóm-
ur skipaður átta konum og fjór-
um mönnum, úrskurðaði þá seka.
Butenko sagði við yfirheyrslur,
að hann hefði hitt að máli sov-
ézkan sendisveitarmann í þvl
skyni að fá upplýsingar um ætt-
ingja, er hann ætti í Sovétríkj-
unum. Sór hann fyrir að hafa
nokkru sinni séð Ivanov fyrr en
í réttarsalnum. Þegar Ivanov var
handtekinn hafði hann, að sögn
FBI, í fórum sínum leyndarskjöl
yfir loftvarnaáætlanir, sem But-
enko vann að, ásamt tækjum til
að ljósmynda skjöl.
Butenko og Ivanov neituðn
allri sekt og hafa lögfræðingar
þeirra látið að því liggja, að þeir
muni áfrýja dómnum. Butenkn
er 39 ára, Ivanov fimm árum
yngri. Hann starfaði sem bif-
reiðarstj óri viðskiptanefndarinn-
ar í Newark.
Jólablað Síma-
blaðsins
NÝLBGA kom út jólablað Síma-
blaðsins, en eins og nafn blaðs-
ins ber með sér er það tímarit
símamanna. Blaðið er að þessu
sinni mjög fjölbreytt um efni.
Eru í því margar fróðlegar grein-
ar um íslenzk og erlend málefni'
auk jólagetrauna vísna o. m. fl.
Ritstjóri Símablaðsins er A.G.
Þormar, en blaðið er prentað I
Félagsprentsmiðjunni.
DR. KING HEIDRAÐUR
New York, 18. des. AP-NTB
• Dr. Martin Luther King,
sem nýkominn er heim fri
því að veita viðtöku friffar-
verfflaunum Nobels var í
gærkvöldi sæmdur heiffurs-
merki New York borgar.
Robert Wagner borgarstjóri
afhenti Dr. King heiffurs-
merkið.
„Bak við bambustjaldið“
— stjómmálaleg ferðasaga frá Kína
„BAK viff bambastjaldiff“ heitir
206 blaðsíffna bók eftir Magnús
Kjartansson, ritstjóra. Heims-
kringla gefur bókina út.
Bók þessi, sem er myndum
skreytt og Prentsmiðjan Hólar
hefur gert smekklega úr garði,
er frásaga af ferðalagi höfundar
og eiginkonu hans um hið dular-
fulla Kínaveldi, — hið forna
Chatay. Höfundur ferðaðist um
Kína í opinberu boði Alþýðudag-
blaðsins í Peking, Renmin Ribao.
Segir hann vel frá því, sem hon-
um var sýnt og hann sá. Segir
hann, að þau hjónin hafi átt „tal
við nokkra valdamikla sérfræð-
inga og stjórnmálamenn, og höfð
um af (þvi mikið gagn“. Enn segir
höfundur í formáia: „Enda þótt
ég hafi lært mikið á þessurn
tíma, dettur mér sízt í hug a(J
telja mig einhvern Kínasérfræð-
ing; Kína er sérstakur heimur,
mjög ólikur okkar, og enguna
vesturlandamanni mun takast aSJ
átta sig á honum til nokkurrar
hlítar, nema á löngum tíma. Þessl
bók er aðeins frásögn blaða-
manns af daglegum vandamáluna
og viðhorfum Kínverja, eins og
þau komu mér fyrir sjónir“. —•
Þótt svo sé, og bókin sé að aukt
mörkuð pólitískum skoðunum
höfundar, fer tæplega milli mála,
að hún ber af öðrum bókum un*
Kína á íslenzku, einkum skrudd-
um og doðröntum, hvers tapút-
gáfa hefur verið kostuð me3
dönskum krónum, kínverskætt"
uðum.