Morgunblaðið - 24.12.1964, Qupperneq 2
2
MORCUNBLADIL
Fimmtudagur 24. deS. 1964
SœmiSeg færð um land
allt á Þorláksmessu
ÞEGAR Mbl. hafði samband
viA Vegamálaskrifstofuna í jær,
voru vegir i'ærir víðast um land,
a.m.k. slarkfærir, en hálka og
aur voru sums staðar til trafala.
Suðurlandsvegur var vel fær
i gær, og flestir vegir á Suður-
landi sæmilega færir. Þó var
Landeyjavegur syðri lokaSur við
Fíjótsveg vegna úrrennslis, en
gert var ráð fyrir því, að hann
yiði afiur kominn í laig í gær-
kvu di.
Vesturlandsvegur frá Reykja-
víic um Bröttu ;»ckku var sæmi-
lcga fær allt vestur í Reykhóla-
sveit. Vegir á Snæfellsnesi eru
flestir færir.
Á Vestfjörðum er fært frá
Patreksfirði til Rauðasands og
frá Patreksfirði til Barðastrand
ar. Fært er frá ísafirði tiT Bol-
ungarvíkur og Súðavíkur.
Strandavegur er fær tif Hólma-
Villahermosa, Mexíkó,
21. desember — (NTB) —
í GÆRKVÖLDI varð mesta
járnbrautarslys í sögu Mexikó
þegar flutningalest ók á far-
þegalest hjá Villahermosa. Að
minnsta kosti 46 manns fórust,
en 75 særðust.
I víkur og Bjarnarfjarðar.
j Norðurlandsvegur var sæmi-
1 lega fær ali a leið frá Reykjavík
til Húsavíkur. Vegurinn yfir
: Lágheiði til Ólafisfjarðar var
[ lokaður. Frá Húsavik til Raufar
hafnar var stórum bílum og
að ákvörðun lágma:fcsverðs á
bolfiski o.fl., sem gilda á frá 1.
janúar n.k. Samkomulag náðist
ekki. Á fundi ráðsins 22. des. var
verðákvörðunum þvi vísað til
yfirnefndar.
í yfirnefndina voru tilnefndir:
Af hálfu fiskkaupenda:
Helgi G. Þórðarson, framkv.stj.
Hafnarfirði og Bjarni V. Magn-
ússon, framkv. stj., Reykjavik.
Til vara: Ólafur Jónsson, fram-
j jeppum fært, og þaðan jeppum
til Þórsha.frvar og Vopnafjarðar.
Austuriandsvegir eru yfirleitt
færir, n.ema Suðurfjarðavegiur
frá Fáskrúðsfirði og suður eftir
j er aðeins fær jeppum vegna
I skriðufalla og vatnaágangs.
Sigurður Petursson, utgm.,
Reykjavík, og Ttryggvi Helga-
son, sjóm., Akureyri.
Með breytingu á lögum um
Verðlagsrá'ð sjávarútvegsins, sem
samþykkt var á Aiþingi, þann
19. þm., var ákveðið að forstjóri
Bfnahagsstofnunarinnar, sem nú
er Jónas Haralz hagfræðingur,
skuli vera fastur oddamaður
yfirnefndarinnar.
(Frá Verðlagsráði sjávar-
útvegsins).
Agreiningur um
fiskverðið
— ákvörðun v/soð til yfirnefndar
VERÐLAGSRÁD sjávarútvegs-1 kvstj., Sandgerði. Af hálfu fisk
ins hefur að undanförnu unnið selJenda:
dlafur Þ. Jónsson söngvari
hlýtur góða dóma í Þýzkalandi
ÍSLENZKI tenórsöngvarinn
Ólafur Þ. Jónsson hefur hú
verið í Þýzkalandi á annað
ár og hefur hlotið þar mjög
lofsamlegt umtal fyrir söng
sinn.
Allan síðastliðinn vetur
var Ólafur við ópernua í
Heidelberg og fór þar með
mörg kunn óperuhlutverk, s.s.
hlutverk Lyonels í óperunni
„Martha“ eftir Flotow, hlut-
verk Ernestos í „Don Pas-
quale“ eftir Donizetti og
hlutverk Alfreds í óperettu
Jóhanns Strauss, „Leðurblak-
an.“ ,
Meðan Ólafur var í Heidel-
berg voru honum gerð ýmis
tilboð um að koma að syngja
annars staðar og réði hann
sig sl. haust að óperunni í
Hamborg og hefur verið við
hana síðan. Fyrsta hlutverk
hans þar var í óperunni „Káta
ekkjan“ eftir Lehár, en sú
sýning Hamborgaróperunnar
þótti takast mjög vel og var
óperettan flutt í 100. sinn nú
skömmu fyrir jól.
Ólafur hlaut lofsamlega
dóma fyrir þátt sinn að sýn-
ingunni og m. a. segir eitt
blaðanna að hann sé „mjög
tígulegur, geislandi tenór“.
„Hamburger Abendblatt“ seg
ir hann syngja með miklum
glæsibrag, þótt enn sé hann
nokkuð viðvaningslegur á
sviði. „Der Bild“ segir að
Ólafur taki hlutverk sitt föst-
um tökum og syngi eins og sá
sem valdið hafi.
Ólafur Þ. Jónsson er ráð-
inn til Hamborgaróperunnar
til janúarloka, en hyggst þá
taka við starfi við Berlínar-
óperuna. Þar syngur hann
m. a. í óperettunni „Brosandi
land“ eftir Lehár. Frá næsta
hausti hefur Ólafur verið ráð-
inn að óperunni í Lúbeck og
þar syngur hann m. a. hlut-
verk Fentons í óperunni „Fal-
staff“ eftir Verdi og hlutverk
Pinkertons í óperunni
„Madame Butterfly" eftir
Puccini.
Ólafur hefur sungið íslenzk
lög, bæði fyrir norðurþýzka
og suðurþýzka útvarpið, og
einnig sungið í skemmtiþætti
í þýzka sjónvarpinu. Hann
hefur mikinn hug á að
koma heim til Islands til
hljómleikahalds áður en
langt um líði, en ekki er enn
vitað hvenær af þvi geti orð-
Nína Sæmundsdóttir
Maríumyndin
á forsíðu
MARÍUMYNDIN á forsíð-
unni er tekin i Selfosskirkju.
Ljósmyndiari blaðsins. Ólafur
K. Magnússon, kom auga á
hana, er hann kom í kirkjuna
á Selfossi í haust og tók þá
þessa mynd. Myndin er skor-
in í við af Nínu Sæmundsson,
myndhöggvara. Við leituðum
höfundinn uppi í Reykjavik,
til .að spyrja um uppruna
myndarinnar og tildrög þess
að hún lenti á Selfossi, en
flestar myndir Nínu, sem eru
á opinberum stöðum, eru vest-
an hafs, í anddyri Warldorf
Astoria hótelsins mikla á
Moderne listasafninu í New
ork og víðar.
— Ég gerði þessa mynd í
Ameríku fyrir 10—12 árum,
sagði Nína, er við vorum setzt
að kaffiborði innan um högg-
myndir og málverk í stöflum
eða á málaragrind í vinnu-
stofu hennar á Þórsgötu.
— Ég sendi myndina oft á
sýningar í Ameriku og hún
vakti athygli. Allt.af vildi ein-
hver kaupa hana, en ég gat
aldrei fengið af mér að skilja
hana við mig. Loks ákv.að ég
að selja hana aldrei. Þegar ég
svo kom einu sinni í kirkjuna
á Selfossi, leið mér einhvern
veginn svo vel og ég fann allt
í einu að þarr.a ætti hún að
vera. Sr. Friðrik heitinn Frið-
riksson var gestur við messu
í kirkjunni þennan sunnudag.
Sr. Sigurður Pálsson leiddi
hann upp í predikunarstólinn.
Og gamli blindi presturinn
gerði mér svo gott með því
sem hann sagði eða bara
hvernig hann hreyfði hend-
urnar, að einhver trúarleg til-
finning settist að mér og ég
fann að þarna væri einmitt
st.aðurinn fyrir myndina, sem
mér þótti svo vænt um. Á
leiðinni út ákvað ég að gefa
Selfosskirkju hana, og ég
sendi hana .austur skömmu
seinna. Svo hún er að minnsta
kosti á góðum stað, hvar sem
hinar myndirnar mínar flækj-
ast. Þctta eru nú börnin mín,
og maður er afar viðkvæmur
fyrir því hvar þ.au lenda. Ég
hefi annars verið heppin. Þau
hafa flest lent á prýðilegum
stöðum, þó þau hafi flækzt
út um heim.
Myndin í Selfosskirkju er
unnin í balsanvið, sem er
mjcg léttur viður frá Panama,
mikið not.aður í flugmodel og
við spyrjum Nínu hvernig sé
að vinna í slíkt efni.
— Það er erfitt, svarar hún.
— Ég vil heldur vinna harðan
við eins og íbenholt, því í hon
um er svo mikil olía. Balsan-
viðurinn er þurr, maður verð
ur að not.a egghvöss verkfæri,
alveg eins og rakblöð. Annan
við er ég vön að fara yfir með
skóáburði eða einhverju þvi-
líku að lokum, en það er ekki
hægt með balsanviðinn. Hann
verður .að nudda og pressa
niður með fingurgómunum og
nðta eingöngu fituna úr hönd
unum á sér. Svo þetta er voða
leg vinna.
Við lítum í kringum okkur
í vinnustofunni. Þar eru gaml
ar höggmyndir, eins og hin
kunna mynd af kvikmynda-
leikkonunni Hedy Lamar og
ný verk, mest málverk. Nín.a
hefur selt nokkur málverk að
undanförnu, bæði hér heima
og úr landi, t.d. fóru tvö til
Ameríku um daginn. Hún hef
ur lika verið að móta portret-
myndir, sú siðasta var af Jóni
Mar/iassyni, bankastjóra, og
er nú verið að steypa hana í
bronz í Kaupmannaliöfn. Ann
ars segist hún líka vinna við
að móta íantasíur í vax, og
þar með farin að búa sig und
ir að halda sýningu á næsta
ári, annað hvort hér í Reykja
vík eð.a í Kaupniannahöfn.
Verkiallsboðamz
á bátaUotanum
FÉLOG sjómanna í Reykjavfk,
Hafnarfirði, Grindavík ag á Akra
nesi hafa nú boðað verkfali á
bátaflotanum frá og með 1. jan.
hafi samkotfnulag ekki náðst áð-
ur. Sjómenn í Keflavík ætluðu
að halda fund í gær, þar sem
ákvörðun átti að taka um það,
hvort verkfall skyldi boðað. Þá
hafa félög sjómanna á Snæfells-
nesi og á Vestfjörðum ságt upp
samningum, en ekki boðað verk-
fall.
Sáttafu-ndur hefur verið boð-
aður þriðjudaginn 29. desember.