Morgunblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. des. 1964 suutvarpiö Jóladagskráin f Fimmtudagur 24. desember ' (Aðfangadagur jóla) T:00 Morgunútvarp 7:30 Fréttir 12:00 Hádegisútvarp 12:50 Jólalcveðjur til sjómanna á haíi úti. Sigríður Hagaiin les. 16:00 Stund fyrir börn. Ingimar Óskarsison les ..Jólasögu úr svei«t“ eftir Jón Traus>ta. íislenzk börn syngja jólalög. 16:00 Veðurfregnir Sungin jólalög frá ýmsum lönd- um. 16:30 Fróttir — (Hlé) 16:00 Aftansöngur í Dómkirkjunni Prestur: Séra Óskar J. !>orláks- son. Organlteikari: Dr. Páll ísóLfsson. 16:00 Tónleikar: a) Capella Antiqua í Múnchen flytur tónlist eftir Feneyja- tónskáldin Gussago, Gabrieli og Taggio; Konrad Ruhland stj. b) Kammerhljómsv’eitin í Ma- * inz Jjeikur þrjá jólakonserta. Stjómandi: Gunther Kehr. MfO Orgelleikur og einsöngur í Dóm- kirkjunni. Við orgelið: Dr. PáU ísólfsson. Einsöngvarar: Álfheiður Guð- mundsdóttir og Erlingur Vig- fússon. •0:46 Jólahugvekja. Séra Dárus Halldórsson talar. •1 .-00 Orgelleikur og einsöngur 1 Dóm- kirkjunni; — framhald. 21:30 ,,I>að aldin út er sprungið": Kristín Anna Þórarinsdóttir og Óskar Halldórsson lesa jólaljóð. •2:00 Veðurfregnir. Kvöldtónileikar: Jólaþátturinn úr óratóríunni „Messíasi'* eftir Handel. Adele Addison, Russel Oberlin, David Lloynd. William Warfield og Westminster.kórinn syngja með Filharmoníusveitinini í New York. Stjórnandi: Deonard Bern- stein. — Dr. Bjarni Jónsson vígslubiskup les ritn i ngart e xt - f ann. 83:10 Náttsöngiur í Dómkirkjunni. Dr. Páll ísólfsson leikur jólalög á orgel í 20 mínútur á undan guðsþ jón ustunni. Biskup íslands, herra Sigur- björn Einarseon, messar. Guðtfræðinemar syngja imdir stjóm dr. Róberts Abrahams Ottóssonar söngmálastjóra. For- söngvari: Séra Hjalti Guðmunds son. ( 00:30 DagJskrárlok. Föstudagur 25. desember (Jóladagur) 10:45 Klukknahringing. — Blásara- septett leikur jólalög. 11 .OO Messa í Hallgrímskirkju. Prestur: Séra Sigurjón Þ. Árna- son 12:16 Hádegisútvarp. 16.-00 Jólakveðjur frá íslendingum erlendis. 14:00 Messa í safnaðarheimili Lang- holtssóknar. Prestur: Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Organleikari: Jón Stefánsson. 16:10 Miðdegistónleikar: Jólaóratóría eftir Johann Sebasit- lan Baeh, flutt með ritningar og textalestri, liítið eitt stytt Flytjendur: Gunthild Weber, Sieglinde Wagner, Heimut Krebs Heinz Rehfuss, mótettukór Berlínar, Riaskommerkórinn og Filharmoníusveit Berlínar. Stjórnandi: Fritz Lehmann. Jólasaga: „Steinninn í Rotna- vatni“ eftir Selmu Lagerlöf. Stefán Sigurðsson kennari þýðir og les. Vf 30 Við jólatréð: Baratími í útvarps •al. Stjórnandi Anna Snorradóttir Séra ÓLafur Skúlason ávarpar \ börnin. | Telpur úr Melaskólanum syngja; Tryggvi Tryggvason stj. f Hljórrusveit Magnúsar Péturs- ' sonar leikur. j Gerður Hjörleifsdóttir og Stein- dór Hjörlieifsson lesa. Jólasrveinarnir Hurðaskellir og Stúfur koma í útvarpssal. 10:00 Jól í sjúkrahúsi. Hjörtur Pálsson stud. mag. sér um þáttinn. 10:30 Fréttir. 20:00 Jólafrásögn: ^Skammdegishríð“, Herdís Ólafsdóttir á Akureyri segir frá. 20:20 ,,Ár og aldir líða“: Dagskrá í tónum og tali um jólahald frá upphafi íslands- byggðar. Guðrún Sveinsdóttir tekur sam- an og flytur ásamt Liljukómum, sem Jón Ásgeirsson stjórnar. 20:50 Úr Harmaminning: Leonóra Kristína í Bláturni. Flytjendur: Herdás Þorvaldsdótt- ir. Hildur Kalman, Rúrik Har- aldsson, Baldvin Halldórsson og Bjöm Th. Björnsson, sem tekur saman dagskrána. 22:00 Veðurfregnir. Kvöldtónleikar i útvarpssal. a) „Jólahátíð“: Blásaraseptett leikur gömul lúthersk kirkju lög undir forustu Herberts Hriberscheks Ágústssonar. b) Anker Buch leikur á fiðlu og Guðrún Kristinsdóttir á píanó e) „The Angl-ian Chamber Solists** flytja brezka tónlist. Einsöngvari: Austin Miskell. d) Konsert nr. 2 í C-dúr fyrir tvö píanó og hljómsveit eftir Bach. Gísli Magnússon og Stefán Edel-stein leika með Sinfóníúhljómsveit íslands. Stjórnandi: Páll Pampichler Pálsson. 23:40 Dagskrárlok. Laugardagur 25. desember (Annar dagur jóla) 9:00 Fréttir. — 9:10 Veðurfregnir. 9:20 MorguntónJeikar: 11:00 Messa í hátíðarsal Sjómanna- skólans. Prestur: Séra Arngrímur Jórus- son. Organleikari: Gunnar Sigurgeirs son. 12:15 Hádegisútvarp. 13:00 Jólakveðjur frá íslendingum erlendis. 14:00 Miðdegistónleikar 15:30 Kaffitímin-n: — (16:00 Veður- fregnir). a) Þorvaldur Steingrímseon og félagar hans leika. b) Mantovani og hljómsveit hans leika þjóðlög frá ýmeum lönd um. 16:30 Heimspeki karknennskunnar: Grétar Fells rithöfundur flytur erindi um hina fomu Stóuspeki. 17:30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnarson) a) Bamakór Hlíðaskóla í Reykja vík syngur jólalög; Guðrún Þorsteinsdóttir stjórnar. b) Þórunn Elfa Magnúsdóttir rit höfundur flytur frásöguþátt: ,Jlmur jólanna“, brot úr b ernskuminningum. e) Jólaleikrit: „Hann á að vaxa“ eftir Graham du Bois. Leiikstjóri: KLemens Jónsson. 18:46 10:10 19:30 20:00 21:15 22:00 22:10 22:50 Frægir söngvarar syngja andleg lög. Tilikynningar. Fróttir. Jólaópera útvarpsins: „Orfeus og Evridike'* eftir Christoph Willibald Gluck. Flytjendur: Margrét Eggerts- dóttir, Eygló Viktorsdóttir, í>ur- íður PáLsdóttir, Þjóðleikhúskór- inn og Sinfóniuhljómsveit ís- lands. Stjóraandi: Igor Buketoff Þýðinguna gerði Þorsteinn Valdi marsson skáld. Þrjú atriði fremur í gamni en alvöru: a) Elín Pálmadóttir les söguna ,JIundalíf“ eftir Fnancoise Sagan. b) Róbert Arnfinnsson og Rúrik Haraklsson flytja þátt eftir rjóh: „Gautur og hnappa- smiðurinn". c) Róbert G. Snædal flytur frumsamda smásögu: „Klipp- ing og höfuðbað." Fréttir og veðurfregnir „Hvít jól og rauð“: Svavar Gests og hljómsveit hans leiika syrpu af léttum jólalögum. Söngvarar: Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason. Danslög, þ.á.m. leikur hljóm- svett Magnúsar Randrup görrulu dansana. — (24:00 Veðurfregnir) Dags-krárlolk. Sunnudagur 27. desember (Þriðji dagur stóru brandajóla) 8:30 Létt morgunlög. 9:00 Fróttir. — 9:10 Veöurfregnár. 9:20 Morgunitónleikar 11:00 Messa 1 elliheimidiniu Grund i Reykjavík. Prestur: Séra Sigurbjörn A. Gíslason. OrganLeilkari: Gústav Jóhannes- son. 12:15 Hádegisútvarp. 13 KX) Erindi: Bókaútgáfa Magnúsar Stephensens dómstjóra. Ólafur Pálmason mag. art. flytur 14:00 Miðdegistónleikar. 15:30 Kaffitíminn: a) Aage Lorange leikur á píanó. b) Boston Pops-hljómsveitin leikur; Arthur Fiedler stj. 16:00 Veðurfregnir. 16:15 Endurtekið efni: a) Tómas Guðmundsson skáld talar um séra Björn Halldórs son í Laufási og lee kvæði eftir hann (Áður útv. 12. júná s.l.). b) Jón R. Kjartansson kynnir söngplötur Péturs Á. Jóns- sonar óperusöngvara (Áður ur útv. 9. júlí). e) Tryggvi Emilsson verkamað- ur flytur þátt sinn „Eyði- býláð var enn í byggð" úr ritgerðasannkeppninni „Þegar ég var 17 ára“ (Aður útv. 29. marz). 17:30 Barnatími (Hildur Kalman); „Kóngurinn, sem vildi hafa þögn“, saga með söngvum Höfundur sögu og ljóða: Birgita Bohman. Höf undur sönglaga: Hans Holewa. Þýðandi: Halldóra B. Björmsson. Steindór Hjörleifs son leikari les söguna. Tíu stúlk ur úr unglingadieild Miðbæjar- skólans syngja undir stjórn Jóns G. Þórarinssonar. Einsöngvari: Edda Sigurðardóttir. Undirleik- ari: Þorkiell Sigurbjörnsson. 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Fræg söngkona syngur: Lotte Lehmann. 19:10 Tilkynningar 19:30 Fréttir 20:00 Jólaleikrit útvarpsins: „Ævi GaliLei" eftir Rertold Brecht. Ásgeir Hjartarson þýddi lei'krit- ið, stytti og bjó ttl útvarpsflutn- ings. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Tónlistina sa>mdi Hanns Eisler. Hana flytja: Liljukórinn undir stjórn Jóns Ásgeirssonar, Averil Williams fflautuleikari, Gunnar Egilson k la rí n ettul e i.k a r i og Fran,k Herlufsen píanóleikari. 22:00 Fréttir og veðurfregnir 22:15 Niðurlag jólaleiikritsins „Ævi Galilei" eftir Bertold Brecht. 23:00 Danslög (valin af Heiðari Ást- valdssyni danskennara). 24:00 Dagskrárlok. Mánudagur 28. desember 7.00 Morgunútvarp 7:30 Fréttir 12:00 Hádegisútvarp 13:15 Búnaðarþáttiuj*: Svipmynd úr sveitalífinu. Þar koma fram bændurnir Guð- mundur Þorláksson og Viggó V ald imarsson, Stina Gísiadóttir kennari og Gísli Kristjánsson ritstjóri, sem sér um þáttinn. 13:50 „Við vinnuna": Tónleikar. 14:40 Framhaldssagan: „Katherine" eftir Anya Seton f þýðingu Sig- urlaugar Árnadóttur: Hildur Kalman les (26). 15:00 Síðdegisútvarp Tónleikar ___ 16:30 Veðurfregnir Tónleikar 17:00 Fréttir. 17:06 Tónlist á atómöld. Þorkell Sigurbjömason kynnir. 18:00 ..........? 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Lög leikin á ýmfe hljóðfæri. 19:00 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Um daginn or veginn Sigurður Bjarnason ritstjóri frá Vigur talar. 20:20 Tveggja manna tal: Matthías Johannessen ræðir við Halldór Laxness. 21:30 Útvarpssagan: „Elskendur“ eftir Tove Ditleivsen; IX. Þýðandi: Sigríður Ingimarsdóttir Ingibjörg Stephensen les. 22:00 Fréttir og veðurfregnir 22:10 Hljómplötusafnið. Gunnar Guðmundsson. Elisabet Hallsdóttir Stórgjöf til barnaspítalu og vöggustofu FYRIR nokkru var lokið ksiftum í dánarbúi fr. Elísabetar Halls- dóttur. hjúkrunarkonu, sem var fædd 8. jan. 1887, en andaðist 25. sept. 1962 og kom meginhluti eigna hennar, skv. erfðaskrá, daigs. 15. des. 1968, í hlut Barna- spítala Hringsins og Vöggustofu- sjóð Torvaldsensfélagsins eða kr. 166.460.— í hlut. Einnig hlaut barnaskólinn á Vopnafirði kr. 25.000.00. Skal vandamönnum hinnar látnu konu vottuð vinsemd og virðinig. Reykjavík, 23. des. 1964. F.h. Barnaspítala Hringsins Sigþrúður Guðjónsdóttir formaður. F.h. Vöggustofu Thorvaldsens- félagsins Svanfríður Hjartardóttir formaður. j UJlðS i Aftur komin jól Enn eru komin jól. Okkur, sem slitið hafa barnsskónum, finnst mörgum furðu skammt síðan við héldum jólin síðast hátíðleg. Börnunum, sem full eru af óþolinmæði og eftirvænt- ingu, finnst alveg nógu langt á milli jóla, kannski allt of langt. Þannig gengur það ævinlega. Unglingarnir bíða óþreyjufullir eftir því að verða fullorðnir — og svo kemur að því fyrr eða síðar, að allir vildu gjarna vera orðnir börn á ný. Fullorðinsárin hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þá verður skammt á milli jóla. ■Jr Jólagleðin En við tökum alltaf á móti jólunum með jafnmikilli gleði. Við hlökkum til jólanna vegna þess að við ætlum að gera okk- ur dagamun. Margir hafa haft orð á því, að jólin séu raun og veru horfin fyrir glingri, prjáli og matföngum — og dagamun- urinn felist mestmegnis í áti og skemmtunum. Lítið fari fyrir kristilegum hugleiðingum. Svo sannarlega hefur jóla- haldið breytzt frá því að ís- lenzk börn fylltust jólagleði af því að horfa á kertaljósið eitt. f þá daga gaf fólk sér meiri tíma til að hugleiða jólaboð- skapinn. Það var ekki svo ýkja- margt, sem truflaði annað en daglegt strit. Þetta var tíð fá- tæktar, sem enginn vill víst fá aftur, enda þótt flestir viður- kenni, að nýja kynslóðin gæti lært margt gagnlegt af því að kynnast krappari kjörum en hún býr við. Grundvöllurinn En þrátt fyrir allt það nei- kvæða, þrátt fyrir allt prjálið og óhófið, sem jafnan er fylgi- fiskur velmegunarinnar, er það helgi jólanna, hinn sanni og eilífi jólaboðskapur, sem hrífur hugi okkar um jólin — og hef- ur hátíðina í æðra veldi. Við gætum dregið að okkur matföng og klæðzt skrautklæðum á hvaða tíma árs sem væri. Sú há- tíð yrði hins vegar aldrei annað en át og skemmtun. Hún yrði aldrei jól. Hún minnti okkur ekki á hinn tuttugu alda gamla boðskap, þann sannleika, sem staðið hefur af sér storma og stríð kynslóð eftir kynslóð, hef- ur verið kjölfestan í lífi mill- jónanna. Sá grundvöllur, sem við höfum í rauninni byggt allt okkar stóf'a hús á. Heilagar stundir Þess vegna kaupum við okkur ekki jólagleðina. Hún er ekki í skrautinu. Hún er í okkur sjálfum. Og hún streymir á milli okkar á ósýnilegan hátt. Hún tengir kynslóðir og aldir, eins og þráður, sem dreginn er í gegnum perlur. Það er þessi gleði yfir lífinu, yfir hinum eilífa krafti, sem skóp, skapar og mun skapa okkar dásamlega furðuverk, sem er lífið sjálft. Allir, sem tök hafa á, dvelja um jólin með vinum og vanda- mönnum. Við erum meðal þeirra, sem okkur þykir vænzt um — þeirra, sem við óskum helzt að njóta — og láta njóta okkar. Þetta eru þær stundir, sem verða einna skýrastar 1 endurminningunum síðar meir. Þetta eru heilagar stundir. Við óskum hvert öðru gleðilegra jóla \ n ■'3T líSUW, B O SC H rafkerfi er í þessum bifrelðum: BENZ SAAB DAF TAUNUS NSU VOLVO OPEL VW Við höfum varahlutina. BRÆÐURNIR ORMSSON HF. Vesturgötu X — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.