Morgunblaðið - 18.02.1965, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.02.1965, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 18. febrúar 1965 VORGUNBLADIO 19 | I | i Þjórsárvirkjun Framhald af bls. 28 okkar. Almenna Bygginga- félagið, Verklegar fram- kvæmdir og verkfræðifirmað Harza í Bandaríkjunum sam- mála. En svo var það, að Harza benti á að þróun flug- vélahreyfla hefði leitt til mik- illa framfara í smíði gastúr- bínustöðva sem væru nú orðn ar mjög ódýrar og örugtgar í rekstri og að augljóst væri að þær. ættu enn eftir að taka mkilum framförum. Lagði firmað til að athugað væri hvort ekki mætti leysa vand- ann við Búrfellsvirkjun, sem við höfum mælt með sem fyrstu stórvirkjun okkar, með því að nota gastúrbínur til vara við ístruflanir, og á þann hátt brúa bilið þar til þróun raforkukerfisins skapaði fjár- hagslegan grundvöll fyrir miðlun samfara öðrum ráð- stöfunum og frekari virkjun- um. Firmað hafði þá í huga að þegar íhlaupin skeðu yrði megninu af ísnum hleypt framhjá virkjuninni með mikl um lokubúnaði í stíflu, í stað þess að reyna að taka við honum í ónógu lóni og að gas túrbínurnar stæðu þá til taks ef útskolunin krefðist svo mikils vatns að virkjunin hefði ekki nóg aflögu. Sú spurning, sem öllu máli skipti, var að sjálfsögðu sú, hve mikil olíunotkun gastúrbínustöðv- anna yrði. — Hvað er gert ráð fyrir mikilli olíunotkun? — Olíunotkunin er háð því hve mikið vatn virkjunin þarf að ota. Fyrst í stað er gert ráð fyrir að virkja rúmlega 100 teningsmetra á sekúndu, sem samsvarar rúmlega 100 þús. kw stöð og er um % af meðalrennsli Þjórsár við Búr- fell. Þegar virkjunin verður stækkuð verður að sjálfsögðu minna vatn til ráðstöfunar við útskolun á ísnum og því er i áætlunum reknað með miðl- un í Þórisvatni, samfara aukn ingu stöðvarinnar. Þetta mál hefur verið athugað gaum- gæfilega og er niðurstaða dr. Gunnars Sigurðssonar sú, að undanfarin 10 ár hefði olíu- kostnaður vegna ístruflana við Búrfell auk*ið reksturs- kostnað 1. virkjunarstigsins uni ca. 2%. Þá er þess að gæta, að línur vélar spennar o.s.frv. geta bil- að og er þá nauðsynlegt að geta gripið til varastöðva. Stofnkostnaður þessara stöðva og olíunotkun er að sjálfsögðu tekin með í reikninginn við samanburð á öðrum leiðum, en í rauninni ætti að taka til- lit til þess að igastúrbínustöðv- arnar spara fyrst í stað vara- línu frá Búrfelli og lækka kostnað kerfisins í heild vegna getu til hækkunar fas- viksstuðuls o.fl. Þetta hefur þó ekki verið gert. Til varúð- ar hefur auk þess í endanleg- um fjárhagssamanburði verið reiknað með tvöfalt meira varaafli, en útreikningar sögðu til um að þyrfti. Modeltilraunir í Noregi — Er ekki verið að vinna við modeltilraunir í Noregi? — Harza benti snemma á að nauðsynlegt yrði að gera modeltilraunir með inntaks- virki Búrflelsvirkjunnar, ekki vegna ákvörðunar um virkj- unarstað heldur vegna könn- unar í einstökum atriðum. Yer ið er nú að framkvæma þess- ar tilraunir í Noregi og má 'búast við að nægar niður- stöður fyrir útboðslýsingu liggi fyrir í vor. — Hvað segið þér um þá til lögu Sig. Th. að leita álits hinna norsku sérfræðinga um ísvandamálin við Búrfell? — Eins og ég sagði áður er ætlunin að byrja á ódýrri rennslisvirkjun, en að sjálf- “ ^ ^ ^ ~ -. - Leyndardómur Framhald af. bls. 10 marmarabekkur, sem skýlt er af þéttu laufskrúði og gfæn- um trjákrónum. Jóhannesi XXIII geðjaðist einnig vel að þessum stað. Einu sinni gekk hann þangað ásamt virðulegum gesti frá Kanada. Til þess ag rjúfa þögnina, sem var orðin óþægi- lega löng, spurði gesturinn skyndilega: „Heilagi faðir! Hve margir menn vinna eigin- lega í Páfagarði?“ Páfanum var ekki að skapi að hefja samræður, og hann svaraði aðeins: „Helmingur þeirra." • Eyðilegging. Stjórnmálamaður, sem kom til Jóhannesar páfa í einkaviðtalstíma, sagði hon- um, að flokkur sinn hefði tap- að I kosningum og þar af leið- andi væri líf sitt eyðilagt. Nei, nei,“ sagði páfinn hug- hreystandi, „ekki vera svona svartsýnn. Það getur alltaf brugðið til beggja vona í stjórnmálum, en það er aðeins þrennt, sem getur eyðilagt líf manna: konur, fjárhættuspil og búskapur. Faðir minn valdi það leiðinlegasta af þessu þrennu.“ • Ferskt lo.ft Páfahirðin var mjög mót- fallin ákvörðun Jóhannesar páfa um að kalla saman kirkjuþing, bæði af trúarleg- um og fræðilegum ástæðum og einnig vegna hins mikla um- stangs, sem slikt hefði óhjá- kvæmilega í för með sér. Skömmu eftir að páfinn hafi tilkynnt opinberleiga í Róm, að hann myndi kalla saman kirkjuþing, var hópur em- bættismanna Páfagarðs saman kominn í skrifstofu hans. Spurðu þeir páfa hvers vegna hann vildi leggja út í þetta stórvirki, þar sem hvorki væri unnt að gera ráð fyrir að það leiddi til raunverulegrar ný- skipunar né verulegra breyt- inga á fáum mánuðum. Jóhannes hlustaði rólegur á mál þeirra um sinn, en stóð síðan upp, gekk út að glugga, opnaði hann upp á gátt, and- aði djúpt að sér og sagði brosandi: „Þetta er ástæðan“. • Frú Kennedy Þegar Jóhannes páfi átti von á Jacqueline Kennedy, þáverandi forsetafrú Banda- ríkjanna, í heimsókn, reyndi hann að festa sér í minni nægilega mörg ensk orð til að geta boðið hana velkomna á hennar eigin máli. Siða- meistararnir söigðu honum, að hann ætti að ávarpa gestinn „Madam“ eða „Missis“ Kenn- edy (frú Kennedy). f nokkr- ar mínútur, áður en forseta- frúin kom, sat páfinn í bóka- safni sínu og æfði sig: „Madam, Missis Kennedy, Madam, Missis Kennedy . . .“ tautaði hann. En um leið og gesturinn gekk inn, gleymdi hann þessu öllu, en hraðaði sér til móts við forsetafrúna með útbreyddan faðminn og hrópaði: „Jacqueline." Jóhannes gerði það sem 'hann igat til að lífga andrúms- loftið í herberginu þar sem Eiríkur Briem, rafmagnsveitustjóri ríkisins. sögðu er takmarkið að hemja árnar í framtíðinni og nýta betur rennsli þeirra. Það var því ákveðið að koma á stofn sérstakri ísrannsóknardeild hjá raforkumálastjórninni. Fékkst til þess styrkur frá Sameinuðu Þjóðunum, og Norðmennirnir tveir, þeir dr. Devik og hr. Kanavin voru fengnir til þess að aðstoða okkur í því. Það fóru fram samtalsfundir við dr. Devik og hr. Kanavin á siðastliðnu ári eftir að þeir höfðu gert fyrstu athuganir sínar í Þjórs á og Hvítá. Þeir staðfestu hug- myndir okkar um ísmagnið í Þjórsá, sem þeir sögðu að væri til muna meira en í norskum ám. Við þá voru ræddar margvíslegar aðferðir til að draga úr ísmyndun og koma i veg fyrir ístruflanir eða draga úr þeim. Þessum mönnum er að sjálfsögðu ljóst, að æskilegast er að virkja ár af þessu tagi með stórum vatns uppistöðum, löngum jarðgöng um o.s.frv. En þeim er hins vegar jafnframt ljóst, að hér er um mikið fjárhagsvanda- mál að ræða, sem ekki verð- ur komist hjá að taka tillit til. Dr. Devik er ráðunautur tilraunastofnunar þeirrar í Noregi, sem gerir modeltil- raunirnar fyrir okkur og hann vinnur því við vandamál okk- ar báðu megin frá, ef svo mætti að orði komast. Sú hug- mynd að leita hans ráða og álits er því ekki ný. Það er að sjálfsögðu svo, að yið mannvirkjagerð eins og Búrfellsvirkjun þarf marga sérfræðinga. Einn segir til um ísinn, annar um veðráttuna, þriðji um jarðfræðina, fjórði um steypuefnin. Að fengnum þeim upplýsingum, sem þessir menn, og raunar margir fleiri, gefa segir sá fimmti til um hvernig mannvirkið skuli gert og áætlar kostnað. Þá kemur sá sjötti og reiknar út fjár- hagsafkomuna miðað við þá sölumöguleika, sem sá sjöundi upplýsir og svo má enn telja. Samstarf allra þessara aðila er nauðsynlegt. — Hvað segið þér um þá fullyrðingu að reynsla okkar af istruflunum sé að vettugi virt? — Reynslan hefur kennt okkur, að nauðsynlegt sé að hafa vara stöðvar með rennsl- isvirkjunum og að olíunotkun vegna ístruflana sé lítil. Margt höfum við lært um stíflur, lón, stíflubúnað o. fl. og ég vil halda því fram að við hagnýtum okkur svo sem kost ur er þessa reynslu við Búr- fellsvirkjun. Nægilega stór uppistaða við virkjun er að sjálfsögðu bezta lausnin, en eins og ég hef skýrt er sú leið ekki alltaf fjárhagslega fær. — Nota gastúrbínur meiri olíu, en aðrar eldsneytisstöðv- ar? — Já, þær hafa lélegri nýtni enn sem komið er og henta því fyrst og fremst sem varastöðvar með stuttum nýt- ingartíma, og þaer þurfa að ganga með sem næst fullu álagi. Ef stærð eininga er val- in í réttu hlutfalli við stærð raforkukerfisins, er hér ek'ki um vandamál að ræða. Loks þurfa þær að vera að minnsta kosti 10 þús. kw. að stærð tii þess að ná lágu stofnkostnað- arverði á einingu. Gastúrbín- ur geta þó engu að síður keppt við aðrar stöðvar í orku- vinnslu að vissu marki og því má einnig nota þser sem topp- stöðvar. Þannig getur 50 þús. *kw. gastúrbína keppt við álíka stóra eimtúrbínustöð með allt að 2500 stunda nýtingartíma, þó gastúrbínan brenni dýrri olíu, en eimtúrbínan ódýrri. Og sé gastúrbínustöðin gerð fyrir notkun ódýrari olíu, þol- ir hún í samanburði enn lengri nýtingartíma. En eins og ég sagði áður, henta þessar vélar fyrst og fremst sem vara stöðvar og toppstöðvar með stuttum nýtingartíma. — í grein sinni í Tímanum gefur Sig. Th. í skyn að þó Búrfellsvirkjun sé slæm þá megi hugsanlega hanna hana á betri hátt, en sérfræðingar raf torkumálast j órnarinnar hafi komið auga á. Hvað segið þér um tillögur Sig. Th. í því efni? — Það er rétt að Sig Th. hefur látið orð falla við okk- ur í þessa átt. Meira get ég ekki um málið sagt, því Sig- urður skýrði ekki nánar frá þessum hugmyndum sínum. — Þjóðviljinn gefur í s"kyn að Harza sé bundið viðsemj- endum okkar í Sviss. Hvað vlijði þér segja um það? — Þegar Harza var valið árið 1957 til að aðstoða okk- ur var þess alveg sérstaklega gætt, að firmað væri öðrum óháð. Allar þær upplýsingar, sem við höfum fengið um firm að undanfarin átta ár stað- festa að svo sé. Og hvað Swiss Aluminium viðvíkur, þá hafa þeir ráðfært sig við annað verkfræðifirma, því Harza hefði vitanlega aldrei komið til hugar að starfa fyr- ir báða aðila í þessu máli. hann lá banaleguna. Hann hafði ura langt skeið gert sér fulla grein fyrir því að hann gek-k með ólækandi sjúkdóm, en hann reyndi að létta skap sinna nánustu og dreifa áhyggjum þeirra. Og jafnvel þegar hann var lagstur bana- leguna reyndi hann að brosa og hughreysta þá, sem söfn- uðust saman við beð hans. Það var mjög af honum dregið, en rödd hans var næstum biðj- andi, er hann sagði: „Hafið ekki svona miklar áhyggjur af mér. .... Ég er reiðubúinn að halda í hina löngu ferð. Ég hef látið niður í töskurnar og get lagt af stað hvenær sem er ....“ — Madras Framh. af bls. 14 Shastri forsætisráðherra sagði fyrir nokkru að ekki yrði fyrir- munuð áframhaldandi notkun ensku enn um skeið í stað hindi, en hefur sætt fyrir þessi orð sín mikilli gagnrýni af hálfu Jan Sangh, hins hægrisinna flokks hindúa, sem vill að stjórnin haldi fast við fyrri ákvörðun sína. Frá Kalkútta berast þær fregn- ir að kvikmyndaframleiðendur í Indlandi gerist nú mjög áhyggju fullir vegna þess að Suður-Ind- verjar eru mikið til hættir að fara í kvikmyndahús, ef sýndar eru myndir á hindi. Hvergi er meiri kvikmyndaframleiðsla en í Indlandi og í 80% allra ind- verskra kvikmynda er talað hindi, svo horfurnar eru ískyggi- legar fyrir hina ótal mörgu kvikr myndaframleiðendur í landinu,' segir í fréttinnL Tveir franskir námsstyrkir RÍKISSTJÓRN Frakklands býð- ur fram tvo styrki handa íslend- ingum til háskólanáms í Frakk- landi námsárið 1965—66. Styrk- imir nema hvor um sig 480 frönkum á mánuði. Skilyrði til styrkveitingar er, að umsækjandi hafi til að bera góða kunnáttu í frönsku. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eigi síðar en 10. marz nk. og fylgi staðfest afrit prófskirteina ásamt meðmælum. Umsóknareyðublöð fást í mennta málaráðuneytinu og hjá sendiráð um íslands erlendis. (Frá mennta málaráðuney tinu). Hafnorverka- menn aftur til vinnu New York, 15. febrúar, (NTB-AP) HAFNARVERKAMENN á aust- urströnd Bandaríkjanna tóku aft ur upp vinnu í dag eftir 33 daga verkfall, sem um 60.000 hafnar- verkamenn tóku þátt í. Verkfallið hefur valdið at- vinnumissi 130.000 manna og kostað bandarískt efnahagslíf um 2.500 milljónir dala. - IJrVARPlll Framhald af bls. 6. asson viðtal við Harald Ólafs- son, forstjóra „Fálkans", en hann rekur, sem kunnugt er, bæði reið hjóla- og. hljómplötuverzlun. Keypti faðir hans Fálkann, sem þá var hjólhestaverkstæði, árið 1824, og hófu þeir feðgar þar verzlun. Árið 1925 tóku þeir svo einnig að verzla með hljómplöt- ur, og olli því mest tónlistar- áhugi Haraldar. Gekk hann img- ur í lúðrasveitina „Harpan“, en sú lúðrasveit tengdist síðar lúðra sveitinni „Gígjan“, og mynduðu þær í sameiningu „Lúðrasveit Reykjavíkur“. í þá daga var tízka mikil að stunda hjólreiðar, sagði Harald- ur, og hjóluðu ekki síður svo nefndir heldri menn en þeir, sem minna áttu undir sér. Annars taldi Haraldur, að meginorsakir þess, hve hjólreiðar væru hér lítið iðkaðar væru óhagstæð veðrátta og landslag svo og slæm ir vegir. Um kvöldið var svo leikið gamanleikritið: „Æðikollurinn" eftir Ludvig Holberg. Mál til kom ið að fá gamanleikrit á laugar- dagskvöldi. Þau hafa flest verið af alvarlegra tæginu undanfarið. Þetta er bezt hvað með öðru, í hæfilegum hlutföllum, þótt for- múlan kunni að vera vandfund- in. Sveinn Kristinsson. Blý Kaupum blý hæsta verðL Málmsteypa Amunda Sigurðssonar Skipholti 23. Sími 16812.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.