Morgunblaðið - 18.02.1965, Qupperneq 27
MORCUNBLAÐIÐ
27
Fimmtuclagur 18. febrúar 1965
Forníslenzkir
sfjðrnufræðingar
DANI nokkur sem eitt sinn var
berbergisfélagi minn á sjúkra-
!húsi, sá mig einhvemtíma vera
að horfa til stjarna út um glugg-
ann. Sagði hann mér !þá frá því,
áð í bænum þar sem hann var
uppalinn hefði verið maður með
svipuð áhugamál. Hefði hann
átt dálítinn stjörnukíki og oft
farið út með hann á kvöldin,
þegar stjörnubjart var, og stund-
um staðið lengi við að skoða. En
svo bætti þessi danski kunningi
minn við: „Folk troede han var
skör, fordi han kiggede stjern-
er‘ — það var haldið hann væri
ekki með öllum mjalla, af því
hann var að horfa á stjörnurnar.
Mér datt ýmislegt í hug, þegar
ég heyrði þetta, og mér hefur
oit dottið þetta atvik í hug síðan,
en ekki skal orðlengja um það
hér, heldur nefni ég þetta aðeins
sem dæmi um það, hve tiltölu-
lega fágætt það hefúr löngum
verið, að menn gæfu gaum að
stjörnunum, og hvaða álit þeir
fáu máttu stundum búast við að
fá á sig. Slíkir menn hafa verið
uppi á ýmsum öldum og með
ýmsum þjóðum og hefur gáfa
þeirra eða viðléitni birzt á ýmsan
hátt, eftir því hvernig á stóð, og
eítir því hve djarflega og drengi
lega var sótt fram hverju sinni.
Að það voru slíkir menn, sem
urðu frumhöfundar heimspeki og
visinda með Forngrikkjum, er
vel kunnugt, eins og líka það
hvernig framhald varð af verki
þeirra með þeim undirstöðuupp-
götvunum, sem gerðar voru á
Vesturlöndum löngu síðar. En
hitt er líka jafnsatt að uppi hafa
verið forníslenzkir stjörnufræí-
ingar, þótt sjaldan hafi vist verið
þannig til orða tekið. Um Einar
bónda Eyjólfsson á Þverá (Einar
Þveræing) segir svo í Ljásvetn-
inga sögu: „Einarr var sjálfr ár-
vakr ok ósvefnugr. Gekk hann
oft út um nætr at sjá himintungl
ok hugði at vandliga. Kunni
hann alls þess góð skil“. Ég sé
enga ástæðu til að bera brigður
á þennan vitnisburð Ljósvetninga
sögu (fremur en t.d. frásagnirnar
af hinum forníslenzku landa-
fundum, sem fáir munu nú
rengj-a), og það því síður, sem
frásögn Glúmu (27. kap.) bendir
einnig til þess, að Einar hafi
verið skarpskyggn athugandi
— Eldflaug
Framh. af bls. 1
Ranger 7. sendi fjölda mynda
ef yfirborði tung'lsins til jarð-
ar. Fyrirhugað er að Ranger 8
sendf um 4.800 myndir til jarð
ar, og jafnframt búizt við að
þær myndir verði enn skýrari
en þær fyrri.
Ranger 8 var skotið á loft
kl. 16,05 í dag (ísl. tími) og
var fyrsti áfanginn að komast
á braut í 185 km. hæð frá
jörðu. Þar „beið“ svo eld-
flaugin í 12 mínútur þar til
hún kom á tilætlaðan stað
yfir Suður-Atlantshafi. Þá
kviknaði á ?5ru þrepi eldflaug
arinnar og Ranger 8 var kom-
inn á rétta braut til tunglsins.
Vegalengdin, sem Ranger 8
fer, er rúmlega 375 þúsund
kílómetrar.
náttúrufyrirbæra. Virðist mér
einsætt að telja megi Einar hinn
þriðja íslenzka stjörnufræðing,
milli þeirra Þorsteins surts og
Stjörnu-Odda, sem báðum héfur
verið veitt nokkur eftirtekt af
fræðimönnum. Hefur jafnvel ver
ið talinn einna fremstur stjcrnu-
fræðingur síns tíma í Evrópu,
þótt ekki hafi því neitt Vér\ð
sinnt að fá þá vitneskju tekna
upp í fræðibækur. En Þorsteinn
surtur grundvallaði timatahð ís-
lenzka, sem einstætt er í sinni
röð', og má telja víst að hann hafi
byggt á stjörnufræðilegum at-
hugunum. Var enduroót hans
samþykkt á Alþingi, senriJega
árið 961, að ráði ÞorkeL. mána
segir í íslendingabdk. En það er
kunnugt, að Þorkell n:áni Komst
svo einkennilega að orði um sól-
ina, að undrun hefur vakið fram
á þennan dag. Væri bá ef til vill
ekki ástæðulaust að láia sér detta
í hug, eins og maður nokkur hefur
'haft orð á við mig, ao auKiiefni
sitt hafi hann fengið af einhverj-
um óvenjulegum áhuga a-mán-
anum.
Þorsteinn Guðjónsson.
Ighef iiugsað mér að hafa þau fíu‘
seglr Eihel Kennedy, sem él
níunda barn sitt í fyrra mánuði
ROBERT Kennedy sótti ný-
verið konu sína á fæðingar-
deildina i níunda sinn og ekki
hið síðasta, ef maríca má orð
konu hans, sem sagði er hún
kvaddi lækna sína og hjúkr-
unarkonur: „Jæja, við sjáumst
aftur að ári, ég hef nefnilega
hugsað mér að hafa þau tíu“.
Sjálf er Ethel Kennedy 6.
barnið af sjö, en Kennedy-
systkinin voru tíu talsins og
Ethel langar til að halda þess
ari ættarhefð.
Þetta niunda barn þeirra
hjóna, sem er drengur, verður
vatni ausið innan tíðar og gef
ið nafnið Matthew. Þessi
skemmtilega mynd hér að
ofan var tekin við skírnina
og á henni sjást, auk prests-
ins, nokkur hinna níu barna
Kennedy-hjónanna, og fleiri
úr þessari frægu ætt. Litla
stúlkan með blúnduslæðuna,
sem stendur hjá prestinum og
heldur á hinum nýskírða Matt
hew, er systir hans, Kathleen.
Að baki hennar sést í kollinn
á Jean, eiginkonu kvikmynda
leikarans . Peter Lawford,
yngstu systir Roberts Kenne-
dy, sem sjálfur heldur á
yngst.u dóttur sinni, Kerry og
styður hendi á öxl elzta son-
ar síns, er ber nafn afans,
Joseph. Framan við þau stend
ur þriðja dóttirin, Courtney.
Fremst á myndinni sjást svo,
talið frá vinstri: Christine
Radziwill og Anthony, bróðir
hennár (börn Lee Radziwill,
systur Jacqueline Kennedy),
John-John, sonur forsetans
sáluga og loks tveir aðrir syn
ir Roberts, Michael og David.
Bréf:
Hinir ógæfusömustu
— Indónesar
Framh. af bls. 3
enda lögreglulið, vel búið vopn-
um, og hermenn með táragas-
grímur komnir á vörð við lokuð
og rammleg hlið sendiráðsbygg-
ingarinnar löngu áður en mann-
fjöldann dreif að.
Sex manns teknlr höndum.
Indónesíustjórn tilkynnti síðar
tendiráði Bandaríkjanna að hún
myndi taka í sína vörzlu um sinn
menningarmiðstöð Bandaríkj-
anna í Djakarta, en vonandi þó
ekki nema í nokkra daga.
— Sinfóníusveitin
Framhald af bls. 28
þetta óhapp aftra sér frá því að
stjórna hljómsveitinni í kvöld.
Á efnisskránni 'í kvöld verður
Vatnasvíta eftir Hándel-Harty;
Cellokonsert í D-dúr eftir Haydn,
en Einar Vigfússon leikur ein-
leik í því verki. í»á mun hljóm-
sveitin og flytja Leikmúsik nr. 1
eftir Karl-Birger Blomdahl, en
hann hefur m.a. samið tónlist við
nokkrar kvikmyndir Ingmars
Bergmans. Síðasta tónverkið á
efnisskránni verður Sinfónía
nr. 2 í H-moll eftir Borodin.
Miðvikudagisn 24. febrúar held
ur Sinfóníuhljómsveitin aukatón-
leika og verður þar flutt tón-
list af léttara fagi. Meðal verka
á efnisskrá þá verða Rapsody in
Blue, eftir Gerswin og mun Ás-
geir Beinteinsson leika einleik á
píanó; og Svanavatnið eftir
Tjakovski. Að því er Gunnar Guð
mundsson, framkv.stj. hljómsveit
arinnar sagði, er þetta einn þátt-
ur í starfsemi hljómsveitarinnar,
sem miðar að því að flytja tón-
verk við allra hæfi. Igor Buke-
toff mun einnig stjórna þessum
tónleikum. Verður nánar sagt frá
þeim síðar.
>AÐ vandamál meðal þjóðar |
vorrar, sem brýnust nauðsyn ber |
til að reyna að leysa, er hjálp
við drykkjusjúka.
Núverandi ástand í þessum efn
um er svo bágborið, að það er
þjóðinni til vanvirðu. Enda þótt
AA-samtökin hafi hér unnið
mikið og fórnfúst starf, er sú
megin stefna þeirra, að hjálpa
helzt þeim er geta og vilja sjálf-
ir reyna að hætta ofdrykkjunni,
að mínum dómi röng að veru-
legu leyti, því vitað er, að mikill
fjöldi þessa ógæfusama fólks
hefur hvorki vilja né getu til
þess að hætta sjálfviljugt.
Hér þarf lokað heilsu- og
vinnuhæli að koma til.
Ég las nýlega í einu dagblað-
anna frásögn af fundi samtaka
gegn áfengisbölinu. Af þeirri frá-
sögn má ráða, að mikið hefur
verið starfað og margir mætir
menn lagt þar hönd að verki.
En eitt vantaði. Hvergi var á það
minnst að koma þyrfti upp lok-
uðu hæli.
Það ætti þó að vera flestum
ljóst, sem um þessi mál hugsa,
’að slík stofnun er hið eina, sem
nú gæti leyst þetta knýjandi
vandamál að verulegu leyti.
Ástand þessara mála í dag er
mun lakara en það hefur verið
um árabil, því segja má, að eini
spitalinn, sem nú tekur við þess-
Frcsl hi. Hafnorfirði
vantar stúlku til frystihúsavinnu.
Upplýsingar í síma 50165.
um sjúklingum sé Kleppsspítal-
inn, og geta ménn gert sé í hug-
arlund hve vænlegt til lækninga
það sé, að ofdrykkjumenn séu,
jafnvel langdvölum, samvistum
við hina andlega sjúku.
Mörg líknar- og mannúðarfé-
lög eru starfandi í þessu landi og
eru styrkt af Alþingi á marg-
víslegan hátt. Þegar maður hug-
leiðir hve miklar tekjur ríkis-
sjóður hefur af áfengissölunni,
væri það vart nein goðgá þótt
maður ályktaði, að það væri
fyrst og fremst skylda Alþingis,
að leggja eitthvað áf mörkum
til hælisbyggingar fyrir hina
ógæfusömu, sem áfengið héfur
lagt að velli. Ef öll þau félög
og félagasamtök er nú vinna
gegn áfengisbölinu, tækju hönd-
um saman og legðu verulegan
hluta tekna sinna t.d. næstu 2—3
árin, ásamt ríflegu framlagi Al-
þingis og þar við bættist svo
frjálst framlag þeirra einstakl-
inga er vildu ljá þessu máli lið,
— en ég vænti að þeir séu ófáir,
— ætti að vera hægt að leysa
þetta mál á tiltölulega skömmum
tíma.
Ég skora hér með á alla þá,
er að þessum málum vinna,
taka höndum saman til hjálpar
hinum drykkjusjúku á þann hátt
sem að framan er lýst.
Drykkjusýkin er ólýsanlegt
böl, bæði hinum drykkjusjúku og
heimilum þeirra og lítt bætan-
legt tjón okkar fámennu þjóð.
Hefjumst handa og reisum
heilsu- og vinnuhæli fyrir hina
ógæfusömu í þjóðfélaginu.
Annað er ekki sæmandi ís-
lenzkri þjóð.
Jonas Guðmundsson
Sporðagruim 8.