Morgunblaðið - 11.03.1965, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 11. marz 1965
Fá þjálfun í vinnuhag-
ræðingu á Norður-
löndum
Til starfa hjá hagsmunasam-
tökum vínnumarkaðarins
saekja okkur og komast í fyrstu
snertingu við Sögueyjuna á
hlaðinu framan við afgreiðslu
Flugfélagsins — og síðan í aurn
um á Njarðargötu, igera sér e.t.v.
aðrar hugmyndir um borgina og
landið en við ætlumst til.
„ísland — dásemdaiand nátt
úrunnar" auglýsir annað flug-
félagið okkar erlendis. Hitt aug
lýsir: „ísland — síðasta uppgötv
un ferðamannsins" — og það er
ekki ólíklegt, að ýmsir þurfi
ekki að fara lengra en á Njarð-
angötuna til að uppgötva eitt-
hvað.
• TAKA ÁSTFÓSTRI
VIÐ BÍLINN
Og það er heldur ekki laust
við að maður finni til með bíln
um, þegar hann hjakkar í djúp
um holum eða atast aur. Það er.
SJÖ ÍSLENDINGAR dveljast í
vetur í Noregi, þar sem þeir fá
þjálfun í vinnuhagræðingu. Seint
í þessum mánuði fara þeir til
Danmerkur, þar sem þeir sitja
námskeið og kynnast samskonar
málum þar í landi og e. t. v. einn
ig til Svíþjóðar, áður en þeir
koma heim, þar sem hver um
sig tekur til starfa við ráðgefandi
störf hjá vinnuveitenda- eða
verkalýðssamtökum.
Mbl. leitaði nánari upplýsinga
um þetta hjá Sveini Björnssyni,
framkvæmdastjóra Iðnaðarmála
stofnunarinnar, en hann hefur
komið á og annast skipulagningu
á þessari þjálfun manna fyrir
hagsmunasamtök vinnumarkaðs-
ins, en ríkið hefur styrkt það
með fjárframlögum.
Sagði hann, að til þessa hefðu
verið ráðnir ungir menn, sem
mundu starfa á vegum 7 aðila að
þjálfun lokinni, þ.e. hjá Vinnu-
veitendasambandi íslands, Al-
þýðusambandinu, Félagi ísl. iðn
rekenda, Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna í Reykjavík,
Iðju félagi verksmiðjufólks og
Verkamannasambandi íslands.
Fóru þeir til Noregs í haust og
hafa fengið þar þjálfun á vegum
Statens technologisk Institut og
notið hagnýtrar æfingar hjá fyrir
tækjum. 26. marz munu piltarn-
ir 7 koma til Danmerkur, þar sem
þeir sækja 3 námskeið og kynn
ast starfsemi á vinnumarkaðin-
um, og hugsanlegt er að þeir
fari einnig til Svíþjóðar og kynn
ist því sama þar.
Áformað er að piltarnir komi
heim fyrri hluta maí og verði á
námskeiði hér út maímánuð. Að
því búnu taki þeir til starfa við
vinnuhagræðingu hver hjá sínum
samtökum, annist fræðslustarf-
semi, vinni að kerfisbundnu
starfsmati eða því sem bezt á
við hjá hverjum aðila um sig.
Voldimor Björnsson flylur uðol-
ræðn í ufmællshófi íslenzk-
nmerískn félngslns
ÍSLENZK-AMERÍSKA félagið
varð 25 ára í janúar sl. f tilefni
af því verður haldinn hátíðar-
fundur að Hótel Sögu sunnudag-
inn 21. þ. m. og hefst hann stund
víslega kl. 8:30 e. h. Aðalræðu-
maður kvöldsins verður herra
Valdimar Björnsson, fjármálaráð
herra Minnesota-ríkis, sem kem-
ur hingað til lands í boði félags-
ins ásamt konu sinni, af þessu
tilefni. Viðstaddir verða forseti
íslands, herra Ásgeir Ásgeirs-
son, sem átti sæti í fyrstu stjórn
félagsins, sendiherra Bandaríkj-
anna, herra James K. Penfield,
og væntanlega fyrrverandi for-
menn félagsins.
Að loknum ræðum núverandi
formanns, dr. Benjamíns Eiríks-
sonar, bankastjóra, og herra
Valdimars Björnssonar, ráð-
herra, verður dansað til kl. 1
eftir miðnætti.
Þess er vænzt að félagsmenn
fjölmenni og taki með sér gesti.
Aðgöngumiðar kosta kr. 100,00
og verða afhentir í skrifstofu
Konráðs Axelssonar & Co. hf.,
Vesturgötu 10, og Ferðaskrifstof-
unni Sögu, IngólfsstrætL — (Frá
Íslenzk-ameríska félaginu).
Hnlnnrbnm-
kvæmdii n
Eskifiiði
Myndin er af fyrsta hluta hafn
armannvirkjanna á Eskifirði.
Talið er að 8 milljónir króna
séu komnar í höfnina nú, en
áætlaður kostnaður við fyrsta
áfangann er 12 millj. kr. Nú
er verið að grafa upp úr dokk
og fyrir framan aðalbryggj-
una. Einnig er unnið að upp-
fyllingu fyrir ofan bryggjuna.
Þarna við höfnina verður
mikið athafnasvæði og um-
sóknir þegar farnar að berast .
um aðstöðu fyrir síldarsöltun, I
fiskvinnslu og olíuafgreiðslu.
Yfirumsjón með verkinu hef-
í ur vita- og hafnarmálaskrif-
stofan. Teikningin er eftir
Aðalstein Júlíusson, vita-
málastjóra. — Verkstjóri er
Andrés Árnason frá Reykja-
vík. Ætlunin er að fyrsta á-
fanga mannvirkjanna verði
lokið snemma í vor.
Valdimar Björnsson.
SnerS vSð með
óðan skipverja
SL. laugardag varð togari, sem
nýlega hafði lagt úr höfn í
Reykjavík, að snúa til lands
vegna þess að einn skipverja
gekk berserksgang um borð. —
Hafði maðurinn hent öllum fatn
aði sínum fyrir borð svo og öll-
um kaffibirgðum skipsins. Þegar
skipsfélagar hans reyndu að róa
hann, dró hann fram sveðju og
gerði sig líklegan til að ráðast á
þá. Einnig vann hann nokkur
spjöll á matsal skipsins. Þegar
í land kom, var hinn óði maður
fenginn lögreglunni í hendur.
Gaf hann þá skýringu á fram-
ferði sínu, að sig hefði gripið
óstjórnleg löngun til að komast
í land aftur, og því viljað með
þessu neyða skipstjórann til þess
að snúa við.
IMýtl sjókort og
breytt sigEisiga-
merki
Vitamálastjóri hefur geffð út
tilkynningu um nýtt sjókort yfir
suðausturströndina frá Hlöðu að
Hvanney í mælikvarðanum 1:
100.000. Er það kort nr. 12.
Þá er tilkynnt breyting á dönsk
um siglingamerkjum, sem kemur
til framkvæmda í vor í samræmi
við samkomulag, sem gert var í
september 1962 milli Danmerkur,
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar
um samræmingu í garð og nobk-
un sjómerkja við afmörkun sigl-
ingaleiða þessara landa. Er smá-
ritið „Afmærking í Danska
Farvande gældende frá Foraret
1965“ til sölu í sjókortasölu vita
málaskrifstofunnar.
• „SÍÐASTA
UPPGÖTV UNIN“
í fyrrakvöld ók ég Njarðar
götuna út á flugvöll, Flugfélags
megin. Minnstu munaði að ég
festi bílinn í aurnum á miðri
götunni og satt að segja held ég
að betra sé að loka þessari götu
þegar svona viðrar, beina um-
ferðinni um Suðurgötu, fremur
en að láta bílstjóra ösla eftir
Nj arðargötunni.
Við tölum mikið um land-
kynningu og við gerum eitt og
annað til þess að fegra borg-
ina, auðvitað ekki eingöngu
vegna aðkomumanna — heldur
fyrst og fremst vegna borgar-
búa sjálfra. Og fegrunarstarfið
í bonginni hefur gengið vel og
það er verulega skemmtilegt að
fylgjast með því.
En ferðamenn, sem heim-
erfitt að halda bílum sínum si-
hreinum hér á íslandi. Til þess
þarf mikla natni og umhyggju.
Þeir, sem ætla sér að halda bíl-
sínum hreinum í veðráttu eins
og hér hefur verið að undan-
förnu, hafa nóg að gera í frí-
stundunum. En sumir telja það
ekki eftir sér að vera stöðugt að
fægja og þvo bíl sinn — og þess
eru víst fjölmörg dæmi, að
menn taki ástfóstri við bíl sinn.
Slíkir tala meira um bílinn en
allt annað, eru stöðugt að reyna
að telja sjálfum sér og öðrum
trú um að þeirra bíll sé sá bezti
fáanlegi — og fyrir þeim er bíll
inn ekki dauður hlutur, heldur
lifandi vera — eða því sem
næst.
• STERK RÖK
Enskur blaðamaður tók
þetta mál til umræðu í blaði
sinu á dögunum og hélt þvi
fram, að mörgum bíleigendum
þætti vænna um bilinn sinn en
eiginkonuna. BBC-sjónvarpið,
sem alltaf er lifandi og skemmti
legt, notaði tækifærið og sendi
einn fréttamanna út af örkinni
til þess að kanna málið meðal
bíleiganda sjálfra.
Þeir voru valdir af handa-
hófi þar sem þeir stöðvuðu bil
sinn við igangstéttir á götum
Lundúna. Af f jórum, sem spurð
ir voru, svöruðu tveir afdráttar
laust, að þeim þætti vænna um
konu sína en bílinn — þrátt fyr-
ir allt. Sá þriðji var á báðum
áttum, en sagðist loks elska kon
una sína meira en bílinn þótt
hann væri greinilega ekki viss
um það.
Sá fjórði brosti og sagðist
viðurkenna það fúslega að hon-
um þætti vænna um bílinn sinn
en konuna — einfaldlega vegna
þess, að hann gæti hvenær sem
væri selt bílinn sinn og fengið
sér annan nýjan.
6 v
12 v
BO SC H
háspennukefli i alla bíla
BRÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 3. — Sími 11467.