Morgunblaðið - 11.03.1965, Side 27
Fimmtudagur 11. marz 1965
MORGUNBLAÐIÐ
27
Ríkislögreglumenn í Alabama ráðast a3 göngu blökkumanna, er þeir freistuðu að fara frá Selma til Montgomery — höfuðborgar
ríkisins á sunnudag.
— Selma
Framhald af bls. 1
Er göngumenn komu að brúnni
var þar fyrir 100 manna lið úr
ríkislögreglunni og tilkynnti að
þar skyldi göngunni ljúka. Dr.
King spurði hvort göngumenn
mættu krjúpa og gera bæn sína
og var það veitt. Ekkert varð til
tíðinda annað og héldu .göngu-
mennirnir, sem voru um 4000,
aftur heim til Selma og fór Dr.
King fyrir þeim sem áður.
Sagði King seinna, að hann
teldi gönguna mestu göngu og
bezt heppnuðu sem farin hefði
verið í Suðurríkj unum til þessa,
en sagðist hafa vitað það fyrir,
að göngumenn myndu ekki kom
ast til Montgomery þessu sinni.
En King sagði, að í næstu viku
myndi aftur freistað að ganga
til Montgomerý og lét að því
liggja að hann myndi þá hafa
í höndum dómsúrskurð þess efn
is að yfirvöldunum í Alabama
væri óheimilt að banna slíkar
mótmælagöngur. Sagði King það
aldrei hafa verið áform blökku-
- //> róttir
Framhald af bls. 26
að meta gestrisnina og hætt
að ónáða íslenzku nýlenduna.
— Það eru fáir, sem ónáða
okkur hér úti í sveit á kvöld-
in, sagði Þórólfur. Við lifum
hér eins og munkar og þeir
einu, sem koma óboðnir að
músunum undanskildum, eru
bréfberarnir með íslands-
póstinn.
— Það eru nú meira en Is-
landspóstur, sem þeir koma
með, segir Eyleifur og glottir.
Hann er alltaf að fá ástarbréf
frá hinum og þessum aðdáend
um Rangers, í hverri viku.
Þórólfur játar og segir að
það sé allt eðlilegt. Á Bret-
landseyjum komist sumir
knattspyrnumenn lengra en
frægustu kvikmyndaleikarar
hvað vinsældir snertir.
Við förum þess á leit að
hann sýni okkur eitthvað af
póstinum, einhver bréf, sem
séu frá óþekktum aðdáendum
og hann lætur til leiðast og
dregur upp nokkur sýnishorn.
Eitt kom frá Möltu. Ung
stulka sendi honum meira en
hlýjar kveðjur — og bað um
eiginhandaráritun á mynd.
Onnur sendi heita ástarjárn-
ingu og sú þriðja sendi Ijóða-
bréf. Niðurlag þess var svona:
Apples grow in Egypt
Oranges grow there too
But it takes a place like Ice-
land
to grow a peach like YOU.
Þetta var sent með ..True
Uove‘‘ frá einni óþekktri, en
Eyleifur verður að láta sér
nægia bréf af Skaganum. Það
gæti þó staðið til bóta, þegar
fram liðu stundir, því sagt er
að mikið búi í Skagamannin-
um. Þegar BBC kvaddi undir
miðnættið kvöddum við líka
og héldum heimleiðis. Mýsl-
urnar voru þá enn ekki mætt-
ar ' kvöldkaffið. en beir Þór-
ólfur héldu heitu á könnunnL
manna að brjótast gegnum varnir
lögreglunnar, slíkt stríddi gegn
grundvallarreglum þeim sem far
ið væri eftir í baráttunni fyrir
réttindum blökkumanna.
Hvítur. prestur, James Reeb,
38 ára gamall, sem kom til Selma
til að taka þátt í mótmælagöng-
unni, varð fyrir árás nokkurra
kynbræðra sinna er hann gekk
út úr matsölustað blökkumanna
í borginni í fylgd með tveim öðr
um, og liggur nú á sjúkrahúsi í
Birmingham, þungt haldinn. Var
gerður á honum heilaskurður í
morgun. Hinir prestarnir tveir
særðust ekki alvarlega. Árásar-
mennirnir verða sóttir til saka.
Tugþúsundir manna, blakkra
og hvítra hafa farið í mótmæla
göngur víða í Bandaríkjunum
til þess að mótmæla atburðun-
um í Selma. í fjölda borga, allt
frá Boston suður til Los Angeles
var þess krafizt, að alríkisyfir-
Féll úr 6
m. hæð
AKUREYRI, 10. marz. — Nokkrir
ungir drengir voru í morgun að
leika á göngubrú þeirri, sem
liggur þvert y.fir Grófargil, efst
austan á Sundlauigarhúsinu,
vestan við andapollinn. Gerðu
þeir sér meðal annnars að leik að
ganga yfir brúna utan við hið
öfluga handrið, sem á henni er.
Féll þá einn drengjanna, Hall-
grímur Stefánsson, Byggðavegi
101 F, 7 ára að aldri, niður af
brúnni, þar sem hæst er, á að
giska 6 metra fall. Svo vel vildi
til, að hann kom niður á mjúka
jörð og meiddist ekkert að kalla,
hjóst aðeins lítillega á höku.
Hann var samt fluttur í skyndi
í sjúkrahús til rannsóknar, en
fór þaðan fljótlega heim. Eitt-
hvað er hann þó miður sín í dag,
vegna hræðslunnar, sem greip
hann, þegar hann datt. — Sv. P.
— Armstrong
strong, sem virtist loks orð-
inn efins um að hann gæti til
frambúðar setið hjá í deilun-
um um aukin réttindi blökku-
manna, „en ég er með mínu
fólki og legg því það lið, sem
ég get. Tónlistin er allt mitt
líf. En í Alabama myndu þeir
berja mig í framan og þá gæti
ég ekki lengur blásið í tromp-
etinn minn. Hverju sæta þessi
ósköp nú? Hitler er löngu
dauður, eða er ekki svo?“ —
Armstrong sagði sitthvað
fleira, en danskir blaðamenn
sem á hlýddu undruðust sára
gremju Satchmos gamla, sem
aldrei þessu vant stökk ekki
bros.
Aðspurður hvert förinni
væri heitið, sagði Louis sig og
hljómsveitina að þessu sinni
myndu halda hljómleika í
Tékkóslóvakíu, Austur-Þýzka
landi, Rúmeníu, Búlgaríu og
Júgóslavíu.
„Mér er sama hvert ég fer“,
sagði Armstrong, „ef ég bara
fæ að blása í trompetinn minn.
Járntjaldið er tilbúningur
dagblaðarma".-
völd tækju málið í sínar hendur
og veittu blökkumönnum í Ala-
bama tilhlýðilega vernd gegn of
beldi ríkislögreglunnar þar
syðra. Lögreglan skarst í leikinn
vegna mótmælaaðgerða í Was-
hington, New York,- Chicago og
Detroit og á annað þús. manna
fóru í mótmælagöngu framhjá
Ær ber tveimur
hrútlömbum
AKRANESI, 10. marz. — Það bar
til nýlundu í fyrradag, að ær bar
tveimur hrútlömbum hjá Eyjólfi
Búasyni, Skagabraut 15 hér í bæ.
Ærin er þriggja vetra gömul og
er þetta í 3. sinn, sem hún ber.
Litlu hvítu hrútarnir eru sprækir
og fjölskyldan öll hin hressasta.
Farmgjöld
frystiafurð-
anna
í SAMNINGUM Eimskipafélags
íslands og Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna um flutninga hrað-
frystra fiskafurða til útlanda
voru farmgjöld ákveðin 28 doll-
arar fyrir tonnið til Bandarikj-
anna, 150 shillingar pr. tonn af
frystum flökum til Evrópu (21
dollar) og 90 shillingar fyrir tonn
af frystri síld.
í KVÖLD kl. 19,15 heldur Guð-
rún Tómasdóttir söngskemmtun
í Gamla biói. Við hijóðfærið er
Gúðrún Kristinsdóttir.
Á söngskránni eru sönglög eftir
Hándel, Caldara, Mozart, Hugo
Wolí, Strauss. Schubert, Ferdin-
Hvíta húsinu og bar þar mikið
á kaþólskum prestum og nunn-
um. Þeir sem að göngunni í Was
hington stóðu, ræddu einnig við
varaforsetann, Hubert Hump-
rey, nokkra stund. í Montgomery,
höfuðstað Alabama átti einnig
að fara mótmælagöngu í dag, en
hún var stöðvuð, eins og sú í
Selma. Ekki kom til neinna
óeirða af því tilefni.
IÞorsteini |
Ingólfssyni
lagt \
TOGARANUM Þorsteini Ing-l
ólfssyni, eign Bæjarútgerðar /
Reykjavíkur hefur nú veriðl
lagt. Samkvæmt upplýsinguml
Þorsteins Arnalds, forstjóra í
útgerðarinnar, átti skipið að i
fara á veiðar síðastliðið mánu- J
dagskvöld, en tókst ekki að 1
manna það. 1
Þar sem Þorsteinn Ingólfs-t
son hefur eins og kunnugt er,/
verið settur á sölulista Oig ver-1
ið að leita tilboða í hann, varl
horfið að því ráði að leggjak
honum í Reykjavík. Togarinnt
hefur að undanförnu verið á/
ísfiskveiðum við ísland ogl
siglt með aflann og selt á er-»
lendum markaði, þar til núf
síðast, að lagt var upp í/
Reykjavík, vegna slæmra sölu-1
horfa erlendis. I
and Rauter, Markús Kristjánsson,
Jón Nordal og Fjölni Stefánsson.
Aðgöngumiðar að söngskemmt-
uninni fást í Bókaverzlun Sigfús-
ar Eymundssonar og Bókabúð
Lárusar Blöndals á Skólavörðu-
stíg og í VesturverL
— S-Vietnam
Framhald af bís' 1
um .>g lofum eða bví sem næst.
Voru birgðir þessar og herlið,
sem þær flutti, ætlað til aðstcðar
umsetnu liði stjórnarinnar í Hoai,
en þar höfðu skæruliðar Víet
Cong rétt lokið við að ná á sitt
vald bækistöð í útViðri bæjarins.
Skammt frá Hoai missti Viet
Cong 100 manna sinna á mánu-
daginn var.
VEGURINN OPINN
EN ÓTRYGGUR
Orrusta þessi var hin slðasta
af mörgum, sem orðið hafa síðan
í fyrra mánuði, er 'Viet Cong
náði á sitt. val.d hinum míkiiváéga
þjóðvegi númer 19 og hluta þjóð-
vegarins, sem liggur meðfram
ströndinni og var það greinilega
tilætlunin, að hluta S-Vietnam í
tvennt með þessum aðgerðum.
Hermálaráðunautár Bandaríkja-
manna sögðu í dag að vegurinn
væri aftur opinn milli Pleiku og
Qui Nhon, en talið er að Viet
Cong eigi enn svo margt skæru-
liða í skógunum, er að veginum
liggja, að ekki muni óhætt neinpi
bílalest að fara um hann án her-
liðs til verndar.
TRÚABRAGÐAÓEIRÐIR
í Da Nang hefur komið til
trúarbragðaóeirða, sem sagðár
eru spunnar af því að hermenn
sátu þar að spilum nú um helg-
ina og sinnaðist eitthvað og stakk.
þá einn þeirra, kaþólskur, annan,
Búddatrúar, til bana. Síðan h&f-
ur verið ókyrrt þar í bæ og í dag
brenndu nokkrir ungir Búdda-
trúarmenn til grunna fjögur
heimili kaþólskra, en hermenn
dreifðu mannfjölda á götum úti
og hótuðu að beita skotvopnum.
BÆTT HERNAÐARAÐSTADA
Talsmenn Bandaríkjamanna í
S-Vietnam líta bjartari augum á
ástandið þar síðan hafnar voru
loftárásirnar og sóknin hert gegn
skæruliðum Viet Cong. „Auðvit-
að vitum við ekkert fyrir víst
ennþá“, sagði einn hermálaráðu-
nautanna og ástandið er enn ó-
tryggt víða úti á landsbyggðinni,
en hernaðarlega hefur þettá allt
saman stórum batnað og áform
Viet Cong um að hluta landið í
tvennt mistekizt gjörsamlega.“
10 ÞIJSUND TIL VIÐBÓTAR ?
1 Saigon er mælt, að Banda-
ríkjamenn hyggist senda austur
þangað 10.000 sjóliða til viðbót-
ar þeim sem þangað eru komnir,
en ekki hefur fregn þessi feng-
izt staðfest í Washington og sagði
talsmaður varnarmálaráðuneytis
ins bandaríska sér ekki kunnugt
um neitt það er rennt gæti stoð-
um undir þessa frétt að austan.
Sjóliðar þeir, sem sendir voru
austur til varnar flugstöðinni í
Da Nang, hafa ekki tekið þátt
í neinum hernaðaraðgerðum.
U THANT REYNIR ENN
Frá New York berast þær
fregnir að enn reyni U Thant,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
að finna friðsamlega lausn mála
í Vietnam, en bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hafi hafnað til-
lögum hans, þeim er hann lagði
fram um miðjan sl. mánuð Og
sendar voru til umsagnar Banda-
ríkjunum, Sovétríkjunum, Frakk
landi, Bretlandi, Suður-Vietnam
og Norður.Vietnam. 1 N-Vietnam
eru menn sagðir efast um gagn-
semi alþjóðlegrar ráðstefnu um
Suður-Vietnam.
— Verkfræðingor
Framh. af bls. 2
Stjórn sjóðsins skipa nú. Rögn-
valdur _ Þorláksson, formaður,
Páll Ólafsson, efnafræðingur,
varaformaður; Haukur Pálmason
ritari, Hinrik Guðmundsson gjald
keri og Leifur Hannesson með-
stjórnandi.
Á vegum félagsins er starfandi
gerðardómur til þess að skera úr
ágreiningi manna um tæknileg
mál. Dómsformaður er próf.
Theodór B. Líndal en stjórn fé-
lagsins skipar 2 meðdómendur
eftir málavöxtum hverju sinni.
Til dómsins var skotið 2 málum
1 á starfsárinu.
Guðrún Tóm-c-'óttir á æfingu með undix-leikara sínum, Guðrunu
Kristinsdó.
Söngs'íemmtun Guðrúnar
Tómasdóttur ■ dag